Morgunblaðið - 18.01.1995, Qupperneq 12
12 MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Meirihlutinn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar endurreistur
Jóhann víkur á meðan
viðskipti eru athuguð
Hafnarfirði stjórnað frá Reykjavík, segir bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins
Morgunblaðið/Kristinn
ÞORGILS Ottar Mathiesen, sem tekur sæti Jóhanns G. Bergþórssonar í bæjarstjórn um stundarsak-
ir, Lúðvík Geirsson bæjarfulltrúi Alþýðubandalagsins og Magnús Jón Arnason bæjarsljóri bera
saman bækur sínar fyrir bæjarstjórnarfundinn í Hafnarfirði í gær.
Sjálfstæðisflokkur og
Alþýðubandalag hafa á
ný starfhæfan meiri-
hluta í bæjarstjórn eftir
að Jóhann G. Bergþórs-
son ákvað að draga sig
í hlé frá bæjarstjórnar-
störfum á meðan mál
Hagvirkis-Kletts eru at-
huguð. Samkomulag
þessa efnis var handsal-
að á skrifstofu Davíðs
Oddssonar forsætisráð-
herra á mánudag.
MEIRIHLUTI Sjálfstæðisflokks og
Alþýðubandalags í bæjarstjórn
Hafnarfjarðar var endurreistur í
gær, er lesin var upp á bæjarstjórn-
arfundi yfirlýsing Jóhanns G. Berg-
þórssonar um að hann drægi sig í
hlé og myndi ekki sitja fundi bæjar-
stjórnar eða bæjarráðs þar til athug-
un á viðskiptum bæjarsjóðs og Hag-
virkis-Kletts lyki. Þorgils Óttar
Mathiesen tekur sæti Jóhanns í
bæjarstjórn á meðan.
Ösamkomulag Jóhanns við sam-
flokksmenn sína í Sjálfstæðisflokkn-
um varð til þess í seinustu viku að
hann hætti stuðningi við meirihluta-
samstarfið og hóf viðræður við Al-
þýðuflokkinn um myndun nýs meiri-
híuta. Samkvæmt upplýsingum
Morgunbiaðsins beittu áhrifamenn
í Sjálfstæðisflokknum í Hafnarfirði
sér mjög fyrir því við Jóhann að
hann sættist við aðra bæjarfulltrúa
flokksins. Samkomulag þess efnis
var handsalað á skrifstofu Davíðs
Oddssonar forsætisráðherra í
Stjómarráðshúsinu á mánudag.
Bréf Jóhanns
Jóhann G. Bergþórsson mætti
ekki á bæjarstjómarfundinn í gær.
í upphafi fundarins las Ellert Borg-
ar Þorvaldsson, forseti bæjarstjórn-
ar, upp bréf sem honum hafði bor-
izt frá Jóhanni. Bréfið er svohljóð-
andi:
„Svo sem þér er kunnugt hefur
ákveðnum samskiptum bæjarsjóðs
Hafnaríjarðar og Hagvirkis-Kletts
hf., sem ég veitti forstöðu, verið
vísað til félagsmálaráðuneytisins til
úrskurðar og álits. Af því tilefni, og
í samræmi við það að ég hef ávallt
vikið er málefni fyrirtækisins voru
til umfjöllunar í bæjarstjórn og
bæjarráði, hef ég ákveðið að sitja
ekki fundi bæjarstjórnar og bæjar-
ráðs þar til niðurstaða félagsmála-
ráðuneytisins í nefndu máli liggur
fyrir, þó ekki lengur en til 1. maí
næstkomandi.
í fjarveru minni í bæjarstjórn og
bæjarráði taki Þorgils Öttar Mathi-
esen og Ellert Borgar Þorvaldsson
sæti mín þar. í forföllum þeirra taki
síðan næstu varamenn sæti mitt,
sbr. 4. mgr. 35. gr. sveitarstjórnar-
laga.“
Eilert Borgar sagðist fallast á þá
tillögu, sem Jóhann gerði í bréfinu.
Fáum tækifæri til að
halda áfram
„Ég fagna því að við, sem höfum
setið í meirihluta þennan tíma, fáum
tækifæri til að halda áfram og vinna
þau verk, sem okkur þykja brýn og
eru til hagsbóta fyrir Hafnfírðinga,"
sagði Magnús Gunnarsson, formað-
ur bæjarráðs og oddviti Sjálfstæðis-
flokksins, í samtali við Morgunblaðið.
Magnús sagði að samkomulagið
við Jóhann breytti engu um kæru
þá, sem send hefði verið til félags-
málaráðuneytisins vegna viðskipta
Hagvirkis-Kletts og bæjarsjóðs
Hafnarfjarðar. Aðspurður hvort Jó-
hann yrði velkominn í bæjarstjórn-
arflokkinn að nýju síðar, sagði
Magnús: „Hann hefur tekið þessa
ákvörðun og svo verður það auðvit-
að að koma í ljós hvernig framvinda
mála verður."
Magnús Jón Árnason, bæjarstjóri
og oddviti Alþýðubandalagsins í
bæjarstjórn, sagði í samtali við
Morgunblaðið að hann fagnaði því
að komin væri sátt í Sjálfstæðis-
flokknum og hlakkaði til áframhald-
andi samstarfs við hann. Hann sagði
að kærumálið til félagsmálaráðu-
neytisins vegna viðskiptanna við
Hagvirki-Klett myndi hafa sinn
gang.
Tryggvi Harðason, bæjarfulltrúi
Alþýðuflokksins, sagði á bæjar-
stjórnarfundinum að ljóst væri að
Hafnarfirði væri meira og minna
stjórnað frá Reykjavík, annars veg-
ar úr forsætisráðuneytinu, og hins
vegar af endurskoðendum, sem nú-
verandi meirihluti hefði fengið til
að gera skýrslu eftir skýrslu um
fjármál bæjarins. Tryggvi sagði að
áfram lægi fyrir að bæjarstjórinn
nyti ekki stuðnings meirihluta kjör-
inna bæjarfulltrúa og ekki hefði
verið meirihluti fyrir fjárhagsáætlun
bæjarins.
Forsæltisráðherra
kemur enn að málinu
Tryggvi sagði að Davíð Oddsson
forsætisráðherra hefði „verið með
puttana“ í myndun meirihluta Sjálf-
stæðisflokks og Alþýðubandalags
síðastliðið sumar og nú kæmi hann
enn að málinu. Ekki sagðist hann
vita hvort hótanir eða gylliboð hefðu
ráðið því að Jóhann G. Bergþórsson
hefði dregið sig til baka.
Tryggvi riíjaði upp fyrirgreiðslu
við Hagvirki-Klett í bæjarráði 15.
september á síðasta ári, en þá voru
fyrirtækinu greiddar út verktrygg-
ingar og vörzlufé. Magnús Jón
Árnason bæjarstjóri hefur áður sagt
að þessi greiðsla hafi verið „á gráu
svæði“. Tryggvi sagði að í minnis-
blöðum frá fjármálastjóra bæjarins
kæmi fram að um vafasöm við-
skipti væri að ræða.
Hagfræðingur BSRB um hækkun skattleysismarka í 60 þúsund
Ráðstöfunartekjur myndu
aukast um allt að 990 la*ónur
Áætlað að tekjutap ríkisins á ári
yrði 1,3 milljarðar króna
EF skattleysismörk yrðu hækkuð
úr 58.299 kr. eins og þau eru í dag
í 60.000 kr. á mánuði myndu ráð-
stöfunartekjur aukast um allt að 990
kr. á mápuði en áætla mætti að
tekjutap ríkisins á ársgrundvelli yrði
1,3 milljarðar kr. Þetta kemur fram
í greinargerð Rannveigar Sigurðar-'
dóttur, hagfræðings BSRB, um
breytingar á skattleysismörkum,
sem fylgir ályktun fundar stjórnar
og formanna aðildarfélaga BSRB,
sl. föstudag.
Skv. útreikningum Rannveigar
myndi hækkun skattleysismarka í
65.000 kr. auka ráðstöfunartekjur
um allt að 3.893 kr. en áætlað tekju-
tap ríkissjóðs yrði 3,4 milljarðar kr.
Hækkun skatt’.eysismarka í 70.000
kr. myndi auka ráðstöfunartekjur
um allt að 6.796 kr., en tekjutap
ríkisins yrði 5,5 milljarðar kr.
Ef persónuafsláttur í tekjuskatts-
kerfinu hefði hækkað eins og gert
var ráð fyrir í upphafi, miðað við
lánskjaravísitölu, þegar staðgreiðsla
skatta var tekin upp en skatthlutfall-
ið væri það sama og það var. árið
1988, væru skattleysismörkin í dag
75.440 kr. í stað 58.299 kr., skv.
útreikningum Rannveigar. Mismun-
urinn er 17.211 kr. á mánuði eða
9.994 kr. eftir skatta.
Hefði persónuafsláttur hækkað
eins og gert var ráð fyrir í upphafi,
en skatthlutfailið breyst, væru skatt-
leysismörkin 63.331 kr. í dag og ef
skatthlutfailið hefði ekki hækkað en
persónuafsláttur væri sá sami og
hann er í dag væru skattleysismörk-
in 69.443 kr.
Stjórn BSRB krefst breytinga
á lánskjaravísitölu
Á fundi stjórnar og formanna
aðildarfélaga BSRB var samþykkt
ályktun þar sem samtökin krefjast
þess að þegar verði gengið til samn-
inga við aðildarfélög BSRB, sem
hafa kynnt kröfugerðir sínar.
Jafnframt er þess krafist að gerð-
ar verði breytingar á lánskjaravísi-
tölunni þannig að launavísitalan
verði felld út og frekari ráðstafanir
gerðar til að draga úr vægi launa í
vísitölunni. Ennfremur er hvatt til
samstöðu um að snúa við þróun
undanfarinna ára í skattamálum.
Kjarvalsstaðir
Staða for-
stöðu-
manns
auglýst
TILLAGA borgarstjóra um að
auglýsa skuli stöðu forstöðu-
manns Kjarvalsstaða hefur
verið samþykkt með þremur
atkvæðum í borgarráði.
I bókun borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokks, segir að
borgarstjóri hafi kosið að nið-
urlægja stjórn menningar-
málanefndar með því að
hundsa ákvörðun nefndarinn-
ar um endurráðningu Gunnars
Kvaran, forstöðumanns Kjarv-
alsstaða til sex ára.
í bókun Sjálfstæðisflokks-
ins segir enn fremur að þvert
ofan á ákvörðun menningar-
málanefndar, sem samþykkt
hafi verið samhljóða, ákveði
borgarstjóri að leggja til við
borgarráð að staðan vei ði aug-
lýst. Þá segir, „Borgarstjóra
virðist ekki hafa verið kunnugt
um að til stæði að afgreiða
tillögur um endurráðningu
Gunnars Kvaran á síðasta
fundi menningarmálanefndar.
Það sýnir ótrúlegt sambands-
leysi forseta borgarstjórnar,
sem sæti á í menningarmála-
nefnd og tók þátt í afgreiðslu
málsins. Borgarráðsfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins gagnrýna
harðlega þessi vinnubrögð,
• sem gefa til kynna ringulreið
í stjórnunarháttum R-listans
og innbyrðis ósætti á R-lista-
heimilinu."
Athugasemd
myndlistarmanna
í bókun Guðrúnar Ágústs-
dóttur forseta borgarstjórnar,
segir að í ljósi athugasemda
frá samtökum myndlistar-
manna við tillögu menningar-
málanefndar um að endurráða
Gunnar Kvaran til sex ára,
telji hún rétt að borgarráð
auglýsi stöðuna. Þar með sé
komið til móts við óskir sam-
taka myndlistarmanna.
Reiðhöllin
ÍTR greiðir
rekstrar-
kostnað
BORGARRÁÐ hefur sam-
þykkt samkomulag milli
Iþrótta- og tómstundaráðs og
íþróttadeildar Fáks um rekstur
Reiðhallarinnar í Víðidal. Gert
er ráð fyrir að Iþrótta- og tóm-
stundaráð greiði kostnað af
rekstri hallarinnar og að ef
um hagnað verði að ræða skuli
hann renha til framkvæmda
og endurbóta á Reiðhöllinni.
Samkomulagið gerir ráð
fyrir að fjögurra manna
rekstrarstjórn, sem hafi yfirlit
með rekstri Reiðhallarinnar,
komi á föstu formlegu sam-
starfi milli Iþrótta- og tóm-
stundaráðs og íþróttadeildar
Fáks. Stjórnin geri tillögur um
forstöðumann sem skal fara
með daglegan rekstur Reið-
hallarinnar. Starfsmenn verða
starfsmenn Iþrótta- og tóm-
stundaráðs á samningstíman-
um en samningurinn gildir til
31. ágúst 1996.