Morgunblaðið - 18.01.1995, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 1995 19
FRÉTTIR: EVRÓPA
Reuter
JACQUES Santer kynnir stefnu hinnar nýju framkvæmdastjórn-
ar á Evrópuþinginu í Strassborg í gær.
Verðandi forseti
framkvæmdastjórnarinnar
Ekkí fjölgun
fyrr en eftir
breytingar
Strassborg. Reuter.
JACQUES Santer, verðandi forseti
framkvæmdastjórnar ESB, sagði í
gær að aðildarríkjum yrði ekki
fjölgað fyrr en að Evrópusamband-
ið hefði endurskipulagt stofnanir
sínar.
„Ef við stækkun myndi kosta
að afturkippur kæmist í" samrun-
ann, þá myndu allir tapa á því.
Það er einmitt sökum hinna háleitu
markmiða sambandsinS, sem þessi
ríki sækjast eftir aðild,“ sagði
Santer á Evrópuþinginu. Hann
sagði að ESB yrði þvert á móti
að taka risavaxið stökk fram á
við, rétt eins og við fyrri stækkan-
ir á bandalaginu.
Hann sagði að þó að hann teldi
að gefa ætti nýjum aðildaríkjum
tíma til að laga sig að heildinni
væri ekki ætlunin að útvatna sam-
starfið. Aðildarríki gætu hugsan-
lega tekið þátt í samrunanum mis-
munandi hratt en þeim yrði ekki
leyft að velja úr þá þætti, sem þau
vildu taka þátt í.
Fyrir ríkjaráðstefnuna 1996 yrði
ESB að hans mati að gera það upp
við sig á hvaða sviðum væri æski-
legast að efla hið sameiginlega
samstarf. „Þar með er ekki sagt
að allt eigi að samræma heldur
að við að auka samvinnu á þeim
sviðum þar sem við njótum sannan-
lega góðs af því.“
Kýs þingið arftaka Santers?
Hann sagðist einnig vera hlynnt-
ur auknum völdum Evrópuþingsins
og gaf jafnvel í skyn að næsti for-
seti framkvæmdastjórnarinnar
yrði kosinn beint af þinginu að
gefnum tillöguni ríkisstjórna aðild-
arríkjanna. Það vakti mikla reiði
Evrópuþingmanna er Santer var
valinn sem arftaki Delors með bak-
tjaldamakki innan ráðherraráðs-
ins.
Evrópuþingið greiðir í dag at-
kvæði um framkvæmdastjórn
Santers.
Semleg tollafgreiðsla í Svíþjóð
Einn dýralæknir af-
greiðir norskan fisk
Ósló. Morgunblailið.
MARIE Petterson, eini dýralæknir
Svía á landamærunum við Noreg,
er í mestu vandræðum með að af-
greiða allt það magn af norskum
fiski sem fluttur yfir landamærin
við Svinesund. Veikist Petterson
kann annar stærsti útflutningsat-
vinnuvegur Norðmanna að stöðvast
á meðan.
Eftir að Svíar urðu aðilar að
Evrópusambandinu (ESB) verður
dýralæknir að kanna allan físk sem
fluttur er yfir landamærin og þar
með ESB. Búið var að koma upp
skilvirku eftirliti við fyrrum landa-
mæri ESB en nú er það skyndilega
Svíþjóð sem er flöskuhálsinn og
skapar mikil vandamál fyrir norsk-
an fiskútflutning.
Petterson situr nú sveitt við að
kanna hvern fiskfarminn af öðrum,
að meðaltali 29 á degi hvetjum.
Það getur þýtt töluverða bið fyrir
vörubílstjórana en Petterson segir
þá taka henni með jafnaðargeði.
Skrifstofa Petterson er ekki opin
allan sólarhringinn og það eykur
enn á biðina. Slík bið getur verið
ferskfiskútflytjendum dýrkeypt.
Því hefur verið gripið til þess
bragðs að eftirlitið fer einnig fram
við dönsku landamærin, sem stang-
ast á við reglugerðir ESB. A næstu
vikum er hins vegar von til þess
að fjölgað verði í landamæraeftirlit-
inu.
Fiskútflytjendur eru afar ósáttir
við ástandið, en reyna þó að sýna
biðlund. Þeir ítreka þó mikilvægi
þess að allar tímaáætlanir standist
með flutning á fiski. Berist liann
t.d. klukkustund of seint á fisk-
markað, náist ekki að bjóða hann
upp og liann bíði því næsta dags,
sem'valdi því að verðið hríðfalli.
Ávallt nýjar vörur
Dragtir, kjólar,
blússur og pils.
Odýr nóttfatnaSur
Nýbýlavegi 12, sími 44433
UNION
FOAM
EUROBATEX
PÍPU-
EINANGRUN
í sjálflímandi rúllum,
plötum og hólkum.
Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
ÁRMÚLA 29 - REYKJAVÍK - SÍMI 38640
STEINAR WAAGE
Moonboots
Verð frá: 2.795
Stærðir: 25-40
Litir: Svart/grænt/blátt,
Svar t/grænt/vínrautt
SKOVERSLUN
^DOMUS MEDICA - KRINGLUNNI
ff
li
3 f / T \
r / t
LL
Ath: Hægt að taka sokkinn úr
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS • 5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR
STEINAR WAAGE ^
SKÓVERSLUN jí3
fcíii srvSn i .3 «;ími 1 r 1 o cP
STEINAR WAAGE ^
SKÓVERSLUN ^
KRINGLAN 8-12 SÍMI 689212 ^
N
S
Auglýsing um upplýsingaskyldu einstaklinga
og lögaðila vegna gjaldeyrisviðskipta og milligöngu
um slík viðskipti í atvinnuskyni.
Hinn 1. janúar 1995 var aflétt flestum höml-
um á gjaldeyrisviðskiptum og fjármagns-
hreyfingum milli landa í samræmi við lög
um gjaldeyrismál nr. 87/1992 og reglugerð
um sama efni nr. 679/1994. Eftir standa
vissar takmarkanir á fjárfestingu erlendra
aðila í atvinnurekstri á íslandi, sbr. lög nr.
34/1991 með síðari breytingum, og einnig
eru takmarkanir á kaupurn og afnotarétti
erlendra aðila á fasteignum hér á landi, sbr.
lög nr. 19/1966.
Upplýsingaskylda
Samkvæmt gildandi lögum er eftir sem áður
skylt að veita Seðlabanka íslands upplýsing-
ar um gjaldeyrisviðskipti og annað er varðar
greiðslujöfnuð og stöðu þjóðarinnar við út-
lönd, til þess að bankinn geti sinnt nauðsyn-
legu eftirliti og hagskýrslugerð, sbr. 10. og
11. gr. laga um gjaldeyrismál og 22. og 24.
gr. laga nr. 36/1986 um Seðlabanka íslands.
Seðlabankinn hefur sett nánari reglur dags.
16. janúar 1995 um upplýsingaskyldu vegna
gjaldeyrisviðskipta og fjármagnshreyfinga
milli landa. Þar segir m.a. að aðilum, sem
hafa hcimild til milligöngu og verslunar með
erlendan gjaldeyri, sé skylt að skrá gjald-
eyrisviðskipti og flokka þau eftir eðli þeirra í
samræmi við flokkunarlykla Seðlabankans.
Viðskiptavinir fyrmefndra aðila þurfa því að
greina frá tilefni gjaldeyrisviðskipta sinna.
Sambærileg upplýsingaskylda hvílir á þeim
sem eiga viðskipti við erlenda aðila án milli-
göngu innlánsstofnana eða annarra sem hafa
heimild í lögum eða leyfi Seðlabankans til að
versla með erlendan gjaldeyri. í fyrmefndum
reglum Seðlabankans, sem birst hafa í B-deild
Stjómartíðinda, eru jafnframt tilgreindar þær
fjármagnshreyfingar við útlönd sem einstakl-
ingum og lögaðilum ber að tilkynna Seðla-
banka íslands.
Starfsleyfi til milligöngu um
gjaldeyrisviðskipti í atvinnuskyni
í l.gr. reglugerðar nr. 679/1994 er eftirfarandi
talið felast í milligöngu um gjaldeyrisviðskipti
og verslun með erlendan gjaldeyri:
1. að stunda gjaldeyrisviðskipti í atvinnuskyni
fyrir eigin reikning eða gegn endurgjaldi;
2. að koma á gjaldeyrisviðskiptum milli aðila
gegn endurgjaldi.
Samkvæmt 9. gr. sömu reglugerðar skulu þeir
aðilar sem hyggjast hafa milligöngu um gjald-
eyrisviðskipti og versla með erlendan gjaldeyri,
aðrir en þeir sem hafa til þess heimild í lögum
eða alþjóðasamningum sem ísland er aðili að,
hafa til þess starfsleyfi frá Seðlabankanum.
Sækja skal um slíkt leyfi til Seðlabankans.
Seðlabankanum er heimilt við veitingu slíkra
leyfa að afmarka þau við tiltekna þætti gjald-
eyrisviðskipta.
Reykjavík 16. janúar 1995
SEÐLABANKIÍSLANDS