Morgunblaðið - 18.01.1995, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 1995 23
Guðrún Sigtryggur
Hjartardóttir Balclvinsson
Styrk-
veiting úr
Listasjóði
Pennans
ÁRLEG styrkveiting úr Listasjóði
Pennans fór fram 12. janúar síðast-
liðinn. Sjóðurinn var stofnaður árið
1992 í minningu hjónanna Margrét-
ar og Baldvins Pálssonar Dungal.
Markmið sjóðsins er meðal annars
að styðja við bakið á ungu myndlist-
arfólki sem hefur staðið sig vel í
námi og er að leggja á listabrautina.
300 þús. króna styrk hlaut að
þessu sinni Guðrún Hjartardóttir.
Guðrún stundaði nám við Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands,
skúlptúrdeild, 1987 til 1991 og
framhaldsnám í fjöltækni í Ensch-
ede í Hollandi 1991-1994. Guðrún
hefur tekið þátt í fjölda sýninga.
Það er einróma álit stjórnar
sjóðsins að Guðrún sé verðugur
fulltrúi yngri listamanna sem ný-
komnir eru úr námi. Hún hafi sýnt
óvenju mikla fjölhæfni og fram-
sækni í verkum sínum og er órög
að tefla saman huglægu efni og
hlutlægum formum.
Málverk keypt eftir Sigtrygg
Bjarna Baldvinsson
Sigtryggur Bjarni stundaði nám
í MHI, málaradeild, og lauk þaðan
námi 1990. Hann stundaði síðan
nám í fjöltækni í Strasbourg í
Frakklandi, sem hann lauk vorið
1994.
Sigtryggur hefur haldið eina
einkasýningu og tekið þátt í nokkr-
um samsýningum. Sigtryggur setur
fram í verkum sínum mjög ákveðna
hugmyndafræði sem hann kemur
til skila á hefðbundinn hátt.
Stjórn Listasjóðs Pennans skipa
Hringur Jóhannesson listmálari,
Gunnsteinn Gíslason skólastjóri
Myndlista- og handíðaskólans og
Gunnar B. Dungal.
------»--»■-♦---
Söngtónleikar
í New York
Olafur Arni
forfallast
New York. Morgnnblaöið.
SÖKUM veikinda gat Ólafur Árni
Bjarnason, tenórsöngvari, ekki
komið fram á árlegum söngtónleik-
um Stofnunar Marilyn Horne í New
York á mánudagskvöldið eins og
fyrirhugað var. Olafur Árni er ann-
ar tveggja skjólstæðinga sem hin
heimskunna söngkona ætlaði sér
að kynna áhorfendum sem fjöl-
menntu í tónleikasalinn, en við upp-
haf dagskrárinnar steig Horne fram
á sviðið, greindi frá veikindum Ól-
afs og söng síðan fímm lög við ljóð
eftir Shakespeare, „til að draga úr
vonbrigðunum", eins og hún orðaði
það.
Hinn tenórinn sem fyrirhugað
var að tæki lagið, Stanford Olsen,
var einnig forfallaður, en margir
kunnir listamenn komu fram; þeirra
á meðal píanóleikararnir John
Browning og Warren Jones, fiðlu-
leikarinn Pinchas Zukerman og
söngvararnir Marvis Marin og Hák-
an Hagegárd.
Sinf óníuhlj ómsveitin
Verk eftir Kokkonen, Elgar og Stravinskíj
Á TÓNLEIKUM Sinfóníuhljómsveitar
íslands í Háskólabíói á morgun,
fimmtudag kl. 20, verða flutt verkin
Sinfónía nr. 4 eftir J. Kokkonen, Selló-
konsert eftir E. Elgar og Dísarkossinn
eftir I. Stravinskíj. Hljómsveitarstjóri
er Osmo Vanská og einleikari á tón-
leikunum er Gaiy Hoffman.
Gary Hoffman er einn af eftirsótt-
ustu ungu sellóleikurum heimsins í
dag. Hann hlaut alþjóðlega frægð
þegar hann fyrstu Bandaríkjamanna
vann Rostropovitsj-sellókeppnina í
París 1986. Hoffman er tíður gestur
á alþjóðlegum listahátíðum og hefur
hann komið fram með þekktustu
hljómsveitum í Evrópu, Bandaríkjun-
um og Japan.
Óhætt er að skipa selló-
konsert Elgars á sess með
helstu konsertum sinnar
tegundar. Elgar hlaut tón-
listarmenntun síðan aðal-
lega hjá föður sínum sem
var orgelleikari í Worcester
á Englandi. í kringum árið
1890 ákvað Elgar að helga
sig einvörðungu tónskáld-
skap og skipaði hann sér
-fljótt í fremstu röð enskra
tónskálda með verkum sínum En-
igma-tilbrigðunum, óratóríunni
Draumur Gerontíusar og síðar selló-
konsertinum. Sennilega er Elgar
GARY Hoffman
sellóleikari.
þekktastur hér á landio fyr-
ir tónverkið Pomp and Circ-
umstance sem er nokkurs
konar þjóðsöngur Breta.
.Finnska tónskáldið Joon-
as Kokkonen fæddist árið
1921. Hann hefur verið
mjög virkur í fínnsku tón-
listarlífi og er eitt virtasta
tónskáld Finna í dag. Meðal
verka hans eru kammer-
verk, hljómsveitarverk og
óperur. Fjórða sinfónía
hans var frumflutt á fimmtugsaf-
mæli tónskáldsins árið 1971.
Það var fyrir tilstilli. ballettmeist-
arans fræga Diagíleff að Stravinskíj
flutti til Parísar stuttu eftir aldamótin
1900. Samvinna þeirra bar ríkulegan
ávöxt s.s. ballettana Eldfuglinn, Pe-
trushka og Vorblótið. Árið 1928 þeg-
ar slitnað hafði upp úr vináttu og
samstarfi þeirra bað dansmær nokk-
ur, Ida Rubinstein að nafni, Stra-
vinskíj um að semja fyrir sig bailett-
tónlist við ævintýri H.C. Andersens,
Snædrottninguna. Ballettinn náði
aldrei verulegum vinsældum en tón-
listin við hann hefur haldið velli og
er oft flutt á tónleikum.
Hljómsveitarstjóri tónleikanna er
sem fyrr segir Osmo Vánská en hann
er aðalhljómsveitarstjóri Sinfón-
íuhljómsveitar íslands.
Dagana
bjóðum
18. til 22. janúar
við notaða bíla
með xtalausu láni að
hán X 600.000 kr. til
alltl 24 mánaða.
NOTAÐIR BILAR
SUÐURLANDSBRAUT 12
SÍMI: 568 1200 beint 581 4060
Opíð laugardag kl. 10-16
og sunnudag kl 13-16.
Fólksbílamir eru
afhentir á sóluðum og
negldum vetrardekkjum
frá Norðdekk.
...V, ’u'
NOTAÐIR BIÍAR • NOTAÐIR fílIAR • NOTAÐIR BILAR • NOTADIR BILAR • NOTAÐIR BILAR