Morgunblaðið - 18.01.1995, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 1995 39
SIGFÚS JÓNSSON
+ Sigfús Jónsson, fyrrverandi
bóndi, fæddist á Einarsstöð-
um í Reykjadal 27. október
1913. Hann lést á sjúkrahúsinu
á Húsavík 24. desember síðast-
liðinn og fór útför hans fram
frá Einarsstaðakirkju 3. janúar.
SEGJA má að líf hvers manns sé
í eðli sínu sérstakt og stórmerki-
legt. Út frá lífinu stafa geislar og
þræðir spinnast um orð og athafnir.
íslenskar sveitir hafa átt marga
glæsta syni og dAætur en örlögin
haga því svo að öllum þarf að sjá
á eftir til hinnar hinstu hvílu, fólki
sem kemur aldrei aftur.
Við fráfail Sigfúsar Jónssonar á
Einarsstöðum í Reykjadal kveðjum
við enn einn athafna- og hugsjóna-
bóndann sem skilað hefur annasöm-
um og árangursríkum starfsdegi til
þjóðarinnar.
Þingeyingar kveðja Sigfús með
þökk og virðingu, manninn sem
trúði á möguleikana í héraðinu,
manninn sem þorði að hafa skoðan-
ir og manninn sem trúði því og
sannaði að hér væri allt til þess að
lifa og dafna.
Auðvitað er það alltaf einkenni-
leg tilfinning að uppgötva þá stað-
reynd aftur og aftur að smám sam-
an hverfa samtíðarmennirnir hver
af öðrum, en eftirsjáin er alltaf sú
sama. Dauðinn er að vísu jafn eðli-
legur fæðingunni og hægt er að
sætta sig við orðinn hlut þegar
þeir sem þreyttir eru lífdaga kveðja
okkur hin.
Minningin um manninn sem var
heimilisvinur og kom oft á Land-
Rover-jeppanum með mikilvæg er-
indi, skjöl og alls konar mál er að
sönnu ljóslifandi og á sér langa líf-
daga framundan. Manninn sem stóð
á hlaðinu á Einarsstöðum og heils-
aði svo glaðlega og sýndi fjósið sitt
með svo mikilli ánægju.
„Sálin er ung,“ sagði Sigfús einu
sinni við mig er hann fyrir réttu
ári fékk mig til þess að aka sér
heim í Einarsstaði frá dvalarheimil-
inu Hvammi á Húsavík þar sem
hann bjó síðast.
Þetta var skemmtiferð sem í senn
var fróðleg því Sigfús talaði mikið
á leiðinni og sagði frá lífshlaupi
sínu og æskuárum. í huganum
byggði hann skíðahótel í Kinnar-
íjöllum, lagði vegi í sumarhúsalönd-
um vestan í Fljótsheiði, virkjaði ár
og læki í Reykjadal til fiskeldis,
lagði drög að nýjum kennsluháttum
við Laugaskóla og plantaði skógi á
heimajörðinni. Hann brosti yfir
þessum áætlunum sínum og horfði
enn einu sinni yfir dalinn sinn, dal-
inn sem átti hug hans allan.
„Fólk þarf að trúa á það sem það
er að gera,“ sagði Sigfús þegar
hann sté út úr bílnum. Við héldum
áleiðis austur í túnið og enn sagði
hann mér sögur, sögur af hestum,
íþróttum, búnaðarfélögum o.m.fl.
Það var gaman að horfa yfir
þennan stað, þar sem allt var svo
vel upp byggt og skipulagt af mann-
anna höndum. Sigfús sagðist þurfa
að stækka skjólbeltið lengra út í
túnið, þarna yxu tré ef plægð væri
jörðin og lagði á ráðin um fram-
kvæmdina. - Geislinn í andlitinu
sagði meira en orð.
Sigfús þarf ekki að kynna fyrir
þeim er til þekktu. Áhugi hans á
landbúnaði var óþijótandi og allt
fram á þennan dag kvaddi hann sér
hljóðs á fundum, gerði athugasemd-
ir og hvatti til dáða.
Stóra fjósið hans var honum
ætíð hugleikið rétt eins og jörðin
sem var hluti af sálinni og þó heils-
unni hrakaði hafði hann enn hug-
ann við mörg stór verkefni. Seinast
vildi hann fá fólk í umfangsmikla
kynningu á reyktu sauðakjöti. -
Svona var Sigfús.
Það var skammdegislegt jarðar-
farardaginn er hann var lagður til
hinstu hvílu í Einarsstaða-kirkju-
garði. Þama liggja sporin hans,
sporin hans sem nú em grasi gróin
en byggðu upp stórt og glæsilegt
býli.
Reykjadalur sér á eftir einum af
sínum bestu sonum en svolítill geisli
á suðurhimninum gaf okkur sem
eftir stöndum von um sól á himni
og bjarta daga. - Það boðar nýja
geisla, ný orð og nýjar athafnir.
Atli Vigfússon.
VIGFÚSÍNA
GUÐLA UGSDÓTTIR
hjá Guði. Við tókum undir það og
trúum því að nú sé hún skærasta
stjarnan sem lýsir litlu heimsljósun-
um sínum þrem, fram um veg í átt
til þroska og vaki yfir velferð þeirra.
+ Vigfúsína Guðlaugsdóttir
var fædd í Vestmannaeyjum
27. nóvember 1934. Foreldrar
hennar voru Guðlaugur Hall-
dórsson og Ragnhildur Friðriks-
dóttir. Vigfúsína bjó í Vest-
mannaeyjum til 16 ára aldurs
og fluttist þá búferlum til
Reykjavíkur. Vigfúsína giftist
Pétri Hamar Thorarensen 1952
og eiga þau eftirlifandi börn:
Anita Patterson, f. 3. ágúst
1957, gift Greg Patterson. Þau
eiga tvö börn. Sigurður Hamar
Pétursson, f. 14. júlí 1970, í sam-
búð með Hrund Guðmundsdótt-
ur. Þau eiga eitt barn. Vigfúsína
lést í Landspítalanum 26. desem-
ber sl. Útför hennar fór fram
frá Fossvogskirkju 5. janúar sl.
HÚN elsku Lilla okkar er dáin, eftir
erfið veikindi, farin frá okkur alltof
fljótt. Undirrituð og hún Lilla eiga
eitt sameiginlegt. Það er lítill fimm
ára yndislegur drengur, bamabarn,
hann litli Hlynur. Okkur var falið
mikið og mjög merkilegt hlutverk,
að vera Lilla amma og Alla amma.
Hann litli Hlynur er heimsljós
númer þijú eins og hún kallaði hann
gjarnan. Hin heimsljósin hennar
númer eitt og tvö eru Pjétur Ham-
ar, 14 ára, og Nikkita Hamar 7 ára,
búsett í Los Angeles.
Henni þótti ákaflega vænt um
heimsljósin sín, og síðastliðið sumar
dvaldi Pjétur Hamar hjá ömmu sinni
í mánuð, og nokkrum árum áður
voni bæði systkinin í heimsókn
ásamt móður sinni. Nú er ömmu
Lillu sárt saknað af þeim tveim
svona langt í burtu.
Samband Lillu ömmu og Hlyns
var mjög gott og fallegt. Hann gisti
oft hjá henni og þau áttu mjög góð-
ar stundir saman. Nú undir lokin
þegar Lilla amma var orðin mikið
veik, skildi litli vinurinn hennar ekki
alveg að hann gæti ekki sofið í henn-
ar rúmi, en lagðist þá hjá henni og
sagði að þá batnaði henni fljótt.
Uppáhaldstími þeirra var að vera
saman á gamlárskvöld, nýársnótt
og fram eftir degi á nýársdag. Þann
dag notuðu þau gjarnan til að fara
út í snjóinn með sleðann.
Um nýliðin áramót var ég að rifja
upp þessar samverustundir þeirra,
en stundum kom ég í heimsókn þeg-
ar þær stóðu yfir. Lilla var falleg
kona, með þessi stóru fallegu augu
full af góðvild og alltaf brosandi eða
hlæjandi við sínum litla vini og öllum
öðrum.
Hlynur litli var ömmu sinni þægur
og góður og virtist heillaður af henn-
ar einstöku framkomu. Þótt Hlynur
sé ungur, þá veit hann að Lilla amma
er dáin.
Þegar við ræddum það að hún
væri dáin þá sagði hann að nú væri
hún komin til Guðs. Stuttu seinna
sagði hann, amma Lilla lifir áfram
Sofðu vært hinn síðsta blund,
unz hinn dýri dagur Ijómar,
Drottins lúður þegar hljómar
hina miklu morgunstund.
Verði, Drottinn, vilji þinn,
vér oss fyrir honum hneigjum,
hvort vér lifum eða deyjum,
veri hann oss velkomínn.
(Sb. 1886 - V. Briem.)
Álfheiður Guðjónsdóttir.
+
Minningarathöfn
STEINUNNAR LIUU BJARNADÓTTUR
CUMINE,
sem lést þann 27. desember og var
jarðsungin í Lundúnum 7. janúar, verð-
ur haldin í Dómkirkjunni föstudaginn
20. janúar kl. 15.00.
Douglas Cumine,
Bjarni G. Alfreðsson,
Kristinn H. Alfreðsson
og barnabörn.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengamóðir og amma,
MARGRÉT JÓHANNSDÓTTIR,
Norðurbraut 4,
Höfn, Hornafirði,
andaðist á heimili sínu aðfaranótt laugardagsins 14. janúar.
Útförin fer fram frá Hafnarkirkju fimmtudaginn 19. janúar kl. 14.00.
Sigfús Benediktsson,
Ásþór Guðmundsson, Elín Helgadóttir,
Benedikt Sigfússon, Ólöf Gunnarsdóttir,
Guðbjörg Sigfúsdóttir, Jón Gunnsteinsson,
Ásta Sigfúsdóttir, Oddur Sveinsson
og barnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
GESTS H. SIGURJÓNSSONAR.
Guðný Nikulásdóttir,
Svava Sigrfður Gestsdóttir, Trausti Gislason,
Sigurjón Gestsson, Svanborg Guðjónsdóttir,
Rósa Gestsdóttir, Kristján Jón Hafsteinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
BJARNI SIGURÐSSON
skipstjóri,
er lést 12. janúar sl., verður jarðsunginn
frá Fossvogskirkju á morgun, fimmtu-
daginn 19. janúar, kl. 13.30.
Svanhvít Svala Kristbjörnsdóttir,
Skúli Bjarnason, Hugrún Ólafsdóttir,
Guðlaugur Bjarnason, Guðlaug Harðardóttir,
Karólína Bjarnadóttir, Brynjar Smári Rúnarsson,
Sigrún Bjarnadóttir, Magnús Viðar Magnússon,
Guðbjörg Bjarnadóttir,
Guðrún Bjarnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okk-
ar, tengdafaðir, afi og langafi,
HÓLMSTEINN EGILSSON,
Víðilundi 25,
Akureyri,
sem lést þann 10. þ.m., verður jarð-
sunginn frá Akureyrarkirkju föstudaginn
20. janúar kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent
á líknarfélög.
Margrét Sveinbjörnsdóttir,
Erla Hólmsteinsdóttir, Svanur Eiríksson,
Hugrún Hólmsteinsdóttir,
Hólmsteinn T. Hólmsteinsson, Rut Ófeigsdóttir,
Margrét Hólmsteinsdóttir, Haukur Kristjánsson
og afabörnin.
Þökkum innilega okkar, + auðsýnda samúð við fráfall og jarðaför bróður SIGURJÓNS EGILSSONAR úrsmiðs. Jóhannes Egilsson, Gunnbjörn Egilsson.
+
Við þökkum af alhug öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð og vinarhug við
andlát og útför
ZÓPHÓNÍASAR ÁRNA
GYLFASONAR,
Miðgörðum 6,
Grenivík.
Helga Magnúsdóttir,
Þröstur Gylfason,
Lovfsa Gylfadóttir,
Ragnheiður Björg Svavarsdóttir.
+
Við þökkum auðsýnda samúð við frá-
fall og útför föður okkar, tengdaföður
og afa,
GEORGS SIGURÐSSONAR
cand. mag.
Sigurður Georgsson,
Steinunn Georgsdóttir, Jón Baldur Lorange,
Bergsteinn Georgsson, Unnur Sverrisdóttir
og barnabörn.
+
Hjartans þakkir fyrir samúð og kveðjur.
Innilegustu þakkir til allra þeirra, sem
sýndu okkur hlýju, samúð og vinarhug
vegna fráfalls okkar heittelskuðu
GUÐNÝJAR ÓLAFSDÓTTUR,
Skólagerði 37,
Kópavogi.
Ásta Jónsdóttir, Óiafur Guðjónsson,
Jónína Vilborg Ólafsdóttir, Karl Olsen
og börnin,
Oddur Ólafsson, Elsa Sigtryggsdóttir
og dætur.