Morgunblaðið - 18.01.1995, Qupperneq 44
44 MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Tommi og Jenni
Ljóska
( þinnC,og ,
> þar StmnLf
er matar,-
yi&pK.
þettouerJÓ,
aarntöstóteu-,)
’IMíMí
K7~\ Hvab fr' _
aJdrC /
Ferdinand
Smáfólk
Jæja, hvað eigum við að lesa í
kvöld?
„Á hverfanda hundi“, „Möltu-
hundinn", eða „Mjallhvíti og
hundana fimm“?
Við komumst aldrei að „Þriðja
hundinum" . . .
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 691100 • Símbréf 691329
Afturhvarfið
í fiskveiðunum
Frá Önundi Ásgeirssyni:
S JÁ V ARÚTVEGSRÁÐUNE YTIÐ
valdi föstudaginn 13. (janúar
1995) til að halda ráðstefnu um
viðreisn þorskstofnsins en sumir
hafa talið það orðið tímabært að
leiða hugann að
því verkefni.
Síðustu 700 ár
eða svo, hefir
þessi dagsetning
verið talin und-
anfari hruns og
endaloka, og er
vonandi að svo
fari ekki um ís-
lenzka þorskinn.
Ráðstefnuna
sóttu um 200
manns úr öllum
greinum útgerðar, vinnslu, þjón-
ustu og ráðgjöf, svo og mikill fjöldi
manna úr stjórnsýslunni. Ráðu-
neytið á þakkir skildar fyrir fram-
takið, en eftir stendur að sanna
að hugur fylgi máli, svo og að
viðreisn takist. Til þess að það
gerist, verður að taka af meiri
ákveðni á málum, en fram til
þessa.
Meginefni ráðstefnunnar var
kynning á nýrri aflareglu í Hafró,
sem ætlað er að skuli skila hag-
kvæmari nýtingu fiskistofna. Afla-
reglan var ýtarlega kynnt af fram-
sögumönnum og dyggilega studd
af liði Hafró. Vonandi kemur þetta
að einhveiju gagni, en hingað til
hafa útgerðir og áhafnir ekki farið
að ráðgjöf Hafró, og þarf því harð-
ari framkvæmd en hingað til.
Viðvörun Brians Tobin
Ráðstefnan myndi sennilega hafa
komið að litlu gagni, miðað við fyrri
reynzlu, ef ekki hefði komi til hið
stórkostlega og lærdómsríka fram-
lag sjávarútvegsráðherra Kanada,
Brians Tobin. Hann rakti af miklum
kunnugleika og íþrótt hvernig fiski-
stofnum við Nýfundnaland var eytt
með ofveiði og smáfískadrápi allra
fiskistofna, hvernig lygum og
blekkingum hann var endalaust
beittur til að leyna réttu ástandi
fiskistofna, þar til algjört hrun var
skollið á, og 40.000 manns í 300
fiskibyggðum stóðu uppi atvinnu-
laus, ráðþrota og örvilnuð. Hann
benti Islendingum á að athuga sinn
gang áður en slíkir hlutir gerðust
hér við land. Þessi ræða ráðherrans
á erindi til hvers manns hér á landi,
og hana ætti að flytja vikulega í
sjónvarpi og útvarpi fram til næstu
alþingiskosninga, því að þetta eru
síðustu kosningarnar fyrir hrunið
hér, ef ekki kemur til breyttra fiski-
stefnu. Kanada er stórt land með
mikla atvinnumöguleika, og getur
því tekið á sig slíkan skell í fiskveið-
um, þótt erfitt sé. Hér gegnir öðru
máli. Hið fyrirsjáanlega hrun fiski-
stofnana hér, er hruns alls samfé-
lagsins, því að menn hafa ekki aðra
möguleika. Fiskveiðarnar eru fjör-
egg íslenzks samfélags. Að spilla
þeim af ábyrgðarleysi, svo sem nú
er gert, er glæpur glæpanna.
Burt með kvótakerfið
Alveg sérstaklega var athyglis-
vert að hlýða á þennan kanadíska
ráðherra lýsa því, hvernig hann
varð að beita ráðherravaldi sínu til
að stöðva gjöreyðinguna. Skyldum
við hafa kjark til að taka slíkar
ákvarðanir? Þetta er í höndum ráð-
herra hér eins og þar. Það verður
að taka ákvarðanir hér strax. Við
getum ekki látið 9. samfellda árið
líða án eyðileggingar nýliðunar
þorsksins. Við getum ekki geymt
þessar ákvarðanir fram yfir kosn-
ingar, því að vertíðin fer nú í hönd.
Það kom ekki fram á ráðstefnunni
að neinar nýjar ákvarðanir séu í
undirbúningi. Ég sting upp á að við
gerum alvarlega tilraun með því að
fella strax niður kvótakerfíð, stöðva
allar togveiðar innan 5 mílnanna,
gefa allar veiðar með línu og færi
frjálsar og banna allar netaveiðar
á helztu hrygningastöðvum.
Ákvörðunin verður tekin strax og
þing kemur saman. Hrygningin er
að byija. Ráðherrann hefír nokkra
daga til að útfæra þetta nánar.
ÖNUNDUR ÁSGEIRSSON,
fyrrverandi forstjóri OLÍS.
Önundur
Ásgeirsson
Allt efni sem birtist f Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.