Morgunblaðið - 18.01.1995, Síða 56
L#T¥#
alltaf á
Miövikudögum
MORGUmLADlD, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@ CENTR UM. IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 1995
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Flest allir björgunarmenn yfirgáfu Súðavík að lokinni leit í gærkvöldi
HOPUR björgunarmanna að störfum í Súðavík í gær. Þeir voru 10 saman og grófu í klukkutíma í senn en hvíldu sig þess á milli.
Tóku óþreyttir menn þá við. Aðstæður voru mjög erfiðar, því grafa þurfti niður allt að þrjár mannhæðir, í foráttuveðri allan tímann.
Tíu ára drengur fannst á lífi 23 tímum eftir snjóflóðið
Vafinn í sæng
í rúmi sínu sem
lenti úti í garði
„HANN vissi ekki hvað hafði gerst
og spurði hvar hann væri. Ég sagði
honum eins og var, að hann væri
niðri í garði,“ segir Rafn Pálsson,
24 ára björgunarmaður tíu ára
drengs, Tomasz Lupinski, sem
fannst á lífi í rústum hússins að
Túngötu 7 á Súðavík í gærmorg-
un, þegar 23 klukkustundir voru
liðnar frá því að snjóflóðið féll.
Tomasz er frá Póllandi, en hefur
búið í Súðavík í rúmt ár, ásamt
móður sinni. Hún komst af eigin
rammleik út úr húsinu eftir að
flóðið féll.
Rafn fór til björgunarstarfa frá
ísafirði eftir hádegi á mánudag.
„Ég var búinn að fara einu sinni
til leitar og var þá í þrjá tíma,“
segir hann. „Svo fór ég að aðstoða
við að reyna að koma rafmagninu
á aftur, eftir að seinna flóðið féll
á mánudagskvöld. Önnur leit mín
hófst svo á þriðjudagsmorgun. Ég
var nýkominn á vakt og þeir sem
höfðu verið að moka við Túngötu
7 voru búnir að moka ofan af
millivegg, sem lá í hallanum fyrir
neðan grunn hússins. Ég mokaði
undan horni veggjarins og kallaði
á strákana að hjálpa mér að lyfta
honum. Þegar við hnikuðum
veggnum til heyrðist óp undan
honum og þar lá Tomasz. Snjóflóð-
ið hafði farið í gegnum húsið, svo
aðeins tveir útveggir standa eftir,
og sópað öllu sem í húsinú var út
úr því.“
Vafinn í sæng í rúminu
Rafn segir að Tomasz hafi legið
í rúmi sínu, vafinn inn í sæng, um
30 sentimetrum fyrir neðan milli-
vegginn. „Flóðið virðist hafa sópað
milliveggnum úr húsinu og vegg-
urinn og ýmislegt lauslegt drasl
lagst ofan á rúm stráksins. Hann
var vafinn inn í sæng og virtist
hinn hressasti."
Rafn segir að Tomasz hafi talað
við björgunarmennina þann tíma
sem það tók þá að ryðja ofan af
honum. „Hann var greinilega bú-
inn að heyra í okkur lengi, enda
höfðu margir gengið yfir vegginn.
Hann spurði margs og vissi greini-
lega ekkert hvar hann var eða
hvað hefði gerst. Þegar hann
spurði hvar hann væri ákvað ég
að segja honum eins og er, að
Morgunblaðið/Ingibjörg
ÞEGAR við hnikuðum
veggnum til heyrðist óp und-
an honum og þar lá Tomasz,
segir Rafn Pálsson.
hann væri úti í garði, því þangað
hafði flóðið borið hann í rúminu.“
Hleypti nýjum krafti í
björgunarmenn
Rafn segir að það hafi verið
ótrúleg tilfinning að finna Tom-
asz. „Hann var illa marinn í and-
liti og kaldur á fótum, en virtist
annars vel heitur. í fyrstu ætlaði
enginn að trúa því að einhver hefði
fundist á lífi eftir ailan þennan
tíma. Þetta hleypti nýjum krafti í
alla björgunarmenn og var eins
og vítamínsprauta."
Tomasz Lupinski var fluttur á
Fjórðungssjúkrahúsið á ísafirði og
er líðan hans eftir atvikum.
Enn illviðri
o g hætta á
snjóflóðum
FLEST allir björgunarmenn, læknar og hjúkrunarfólk, sem voru við leit
og önnur hjálparstörf í Súðavík í gær fóru til ísafjarðar í gærkvöldi þeg-
ar leit var lokið með skipunum Haffara og Fagranesi. Síðdegis versnaði
veður og í gærkvöldi var komið ofsaveður um alla Vestfirði og talið var
að snjóflóðahætta hefði aukist. 15-20 björgunarsveitarmenn, læknir og
starfsmenn Orkubús Vestfjarða urðu eftir í Súðavík í gærkvöldi.
Snjóflóð hafa fallið víða á Vest-
fjörðum og var hættuástand á
mörgum stöðum í gær þar sem al-
mannavarnasveitir voru í við-
bragðsstöðu. Talið er að um 800
manns hafi yfirgefið heimili sín
vegna snjóflóðahættu, flestir á Pat-
reksfirði eða tæplega 300 manns.
Kristján Þór Júlíusson bæjar-
stjóri á ísafirði og fulltrúi í al-
mannavarnanefnd, sagði að björg-
un mannslífa hefði haft algjöran
forgang í Súðavík en nú þegar þeirri
leit væri lokið tækju við önnur verk-
efni. Það þyrfti að forða húsum frá
frekari skemmdum.
Um 230 björgunarsveitarmenn
voru við leit í Súðavík þegar mest
var síðdegis í gær við mjög erfiðar
aðstæður. Ekkert rafmagn var á
bænum og síminn datt út í um tólf
tíma í gær. Björgunarsveitarmenn
urðu að hafa talstöðvarsamband við
almannavarnanefnd á ísafirði fyrir
milligöngu Hafrafellsins og varð-
skipsins Týs sem kom til Súðavíkur
um kl. hálf þrjú í gær með 60
manna björgunarlið. Björgunar-
sveitarmenn sem höfðu verið við
leitarstörf í Súðavík á annan sólar-
hring voru í mikilli þörf fyrir hvíld
þegar aðstoð barst.
Múlafoss í 10-12
vindstigum og stórsjó
Engey RE kom til ísafjarðar á
níunda tímanum í gærkvöldi með
hóp björgunarsveitarmanna eftir að
hafa verið rúman sólarhring á leið-
inni frá Reykjavík. Týr liggur fyrir
akkerum í Isafjarðardjúpi og Múla-
foss var í gærkvöldi statt norðaust-
ur af Hornbjargi í norðaustan tíu
til tólf vindstigum og stórsjó með
32 menn um borð. Komst skipið
ekki fýrir Horn vegna óveðurs.