Morgunblaðið - 19.01.1995, Blaðsíða 38
Mlutvís Htuthafar
ttnnir Umhvrrli (íluoan
|3EXBRJalDBBlnlDFl
p— 101069*4869 Ólafur Valsson
wfy^utiiBT
tli&lp
H AA BOOOOt
S 08 ooooo;
r Sji<
120645» 1299 Ainar Airvarston
020239-2399 3ón J ónsson
©120468 6269 Kán Bergston
201243-5489 Léru* Láruwon
© 101069-4869 Olafur Valsson
' 270855-1999 Pétur Péturston
©280967-5569 Sigrtður Kristfti SigurftMdótlir
©190467-5899 SigurAur Gauti Hauksson
R S,4 Jl,
(Í Haln
C Kanralala
Hlutolélog. Huglistht Notond,: LAUJ Heimild 3
HÉR má sjá skjámynd úr hugbúnaðinum Hlutvís sem sýnir lista
yfir hluthafa í imynduðu hlutafélagi.
Hugbúnaður fyrir umsýslu hlutafélaga
Haldið utan um
hlutaskrár
UM síðustu áramót setti hug-
búnaðarfyrirtækið Huglist hf. sem
sérhæft er í þróun og þjónustu á
Windows-hugbúnaði, á markað
nýjan hugbúnað til þess að halda
utan um hlutaskrá hlutafélaga. í
kerfið, sem hefur hlotið heitið
Hlutvís, eru skráðar allar sölur á
hlutabréfum í viðkomandi fyrir-
tæki, svo og breytingar á heildar-
hlutafé fyrirtækisins.
„Þar sem allar sölur hlutabréfa
eru skráðar í kerfið, er hægt að
fylgjast með því hvað hver hlut-
hafi á mikið og hvar og hvenær
hann eignaðist hlutaféð," sagði
Ólafur Valsson hjá Huglist.
Hann sagði ennfremur að hægt
væri að nota kerfíð til þess að
prenta út fundarboð, aðgöngumiða
og atkvæðaseðla fyrir hluthafa-
fundi auk þess sem kerfið reiknaði
út hlutafjáraukningar, arð og jöfn-
un. Einnig væri hægt að hafa
umsjón og eftirlit með hlutafjárút-
boðum og öllum eignatilfærslum á
hl.utafé fyrirtækisins.
Jffitargtmfrfciðifr
- kjarnl málsiml
„Með notkun Hlutvíss verður
öll vinna í kringum hluthafafundi
og hlutafjáraukningar auðveldari
og skilvirkari,“ sagði Ólafur. „Það
er hægt að prenta hlutabréf beint
út úr kerfínu, hvort sem er á for-
prentuð blöð eða auð.“
Ólafur sagði að hægt væri að
halda utan um mörg fyrirtæki með
sama kerfínu og takmarka aðgang
notenda að hveiju fyrirtæki fyrir
sig. Þá notaði Hlutvís öflugt út-
prentunarkerfi þar sem notandi
gæti breytt útliti útprentana.
Notkun
í Hlutvís er notast við svokall-
aða MDI-glugga við innslátt og
úrvinnslu gagna, þannig að not-
andinn getur farið á milli aðgerða
án þess að loka þeirri aðgerð sem
hann var að vinna í.
Hlutvís er forritað í Microsoft
Visual C++ fyrir Windows 3.1 og
notar ODBC-gagnatengingu sem
gerir mögulegt að geyma gögn
kerfísins í mismunandi gagna-
grunnum.
„Við þróun kerfisins var mikið
lagt upp úr því að kerfíð væri ein-
falt og þægilegt í notkun," sagði
Ólafur, og ennfremur að menn
væru sammála um að það hefði
tekist vel. Eftir að kerfið fór á
markað um áramótið hafí áhugi
hlutafélaga og endurskoðenda ver-
ið mikill.
Jack Trout á námstefnu
hjá Stjórnunarfélaginu
JACK Trout, einn kunnasti mark-
aðsmaður heims, verður aðalfyrir-
lesari á námstefnu sem Stjóm-
unarfélag íslands efnir til á Hótel
Loftleiðum fímmtudaginn 23.
febrúar. Þetta er í annað sinn sem
Jack Trout kemur til íslands, en
síðast var hann hér á landi fyrir
fímm árum og þá komust færri
að en vildu.
Jack Trout er ásamt félaga sín-
um A1 Ries höfundur byltingar-
kenndra kenninga um markaðs-
setningu þar sem þeir vega harka-
lega að ýmsum áratuga gömlum
kenningum markaðsfræðinnar.
Bækur Jack Trout og A1 Ries,
Positoning, Marketing Warfare og
Bottom-up Marketing, þar sem
kenningar þeirra eru útlistaðar,
eru taldar í hópi áhrifaríkustu
bóka sem komu fram á síðasta
áratug. Frá því að þeir gáfu kenn-
ingum prússneska hershöfðingj-
ans Clausewitz nýtt líf, hefur stað-
færing vöru og þjónustu verið tal-
inn sjálfsagður þáttur í nútímalegu
markaðsstarfi, segir í frétt frá
Stjórnunarfélaginu.
Á námstefnunni, sem stendur
frá kl. 9 til 15 á Hótel Loftleiðum,
fímmtudaginn 23. febrúar nk.,
ijallar Jack Trout um þau áherslu-
atriði sem fram koma í nýjustu
bók hans og A1 Ries. Þar er um
að ræða 22 lögmál markaðarins
sem skilja á milli sigurs eða skip-
brots í nútíma viðskiptalífi. Þeir
félagar hafa nú tekið saman þá
þekkingu og reynslu sem fram
kemur í fyrri bókum þeirra og
greint 22 lögmál sem ráða vel-
gengni á markaðnum. Segir í
fréttinni að forsvarsmönnum ís-
lenskra fyrirtækja og stofnana
MARKAÐSMAÐURINN kunni, Jack Trout, verður fyrirlesari á
námstefnu Stjórnunarfélags íslands i næsta mánuði.
gefíst hér einstakt tækifæri til að
kynnast þeim hugmyndum sem
nú hristi upp í markaðsstefnu
flestra leiðandi fyrirtækja í heim-
inum. Jack Trout sé liflegur og
hrífandi fyrirlesari sem beiti nýj-
ustu tækni við framsetningu hug-
mynda sinna.
Skráning á námstefnuna fer
fram hjá Stjórnunarfélagi ísland
í síma 621066, meðan húsrúm
leyfir.
Ráðstefna um gæðamál
GÆÐASTJÓRNUNARFÉLAG ís-
lands heldur ráðstefnu og sýningu
um gæðastjórnun á Hótel Loftleið-
um 2. febrúar nk. undir heitinu
Gæði í þágu þjóðar.
Tilgangurinn með ráðstefnunni
■er að efla gæðavitund í atvinnulíf-
inu og örva umræðu um mikilvægi
gæðastjómunar.
Ráðstefnan er uppsett af sam-
eiginlegri dagskrá fyrir hádegi,
fyrirlestrum í fjórum sölum eftir
hádegi og sýningu þar sem kynnt-
ar verða niðurstöður gæðarann-
sókna og vöruþróunar. Fjallað
verður um gæðastjórnun út frá
sjónarhorni markaðsmála, starfs-
mannastjórnunar, vöruþróunar
o.fl.
Meðal fyrirlesara verður Dr.
Willi Railo, prófessor við Við-
skiptaháskólann í Bergen. Þá
munu ýmsir íslenskir sérfræðingar
flytja erindi.
Plastumslög
fyrir póstinn
PLASTOS hf. hefur þróað nýja
gerð af umslögum sem eru
framleidd úr polyethylen plasti.
í frétt frá fyrirtækinu segir
að nýju umslögin séu allt í senn;
umhverfisvæn, póstburðarvæn
og lauflétt. Polyethylen plast er
úr frumefnunum vetni og kol-
efni og brennur án þess að
mynda eitraðar lofttegundir. í
náttúrunni brotnar það smám
saman niður án nokkurrar efna-
mengunar eða skaða fyrir t.d.
grunnvatn. Polyethylen plast er
endurvinnanlegt.
í frétt Plastos segir ennfrem-
ur að póstburðarpakki með
1.000 umslögum léttist um 2,3
kg. með notkun umslaga frá
Plastos. Þau vegi aðeins 2,5 g
en hefðbundin bréfumslög 4,8 g.
Hjá Plastos er prentað á plast-
umslög í allt að 6 litum og öllum
stærðum.
MARGMIÐLUN
1. ÚTYARPSREKSTUR: SÍGILT FM 94.3 Reykjavík
nú allan sólarhringinn.
2. SJÓNYARPSÚTSENDING á bestu hótelin með
Ijósleiðara til notkunar í hverju
hótelherbergi allan sólarhringinn.
3. GERÐ HEIMILDA-, KYNNINGA- OG
FRÆÐSLUMYNDA OG SJÓNVARPS-
AUGLÝSINGA.
4. GERÐ OG DREIFING Á VHS FRÆÐSLU-
MYNDBÖNDUM.
5. KYNNINGARSTARFSEMI.
6. ÚTGÁFA FRÉTTABLAÐA OG BÆKLINGA
Suburlandsbraut 20, símar 351SO og 31920, símbréf 688408.
Til hamingju
n
með að vera komin í hóp fyrirtœkja
með vottað gœðakerfi
Fyrirtæki sem hafa áður byggt upp vottuð
gæðakerfi með aðstoð Ráðgarðs hf.
Lýsi hf. ISO 9002
Bakkavör hf. ISO 9002
Borgarplast hf.ISO 9001
Osta- og smjörsalan sf. ISO 9002
íslenskar sjávarafurðir hf. ISO 9001
RÁÐGARÐURhf.
5TJÓRNUNAROG REKSTRARRÁÐGJÖF
SÍMI: 561 66 88 FAX: 562 36 88
Aðeins það besta
fyrir
bankamenn
hagfræöinga
enaurskoðendur
verkfræðinga
SÆVAR KARL
Bankastræti 9, s. 13470.
Sjábu
hlutina
í víbara
samhengi!
- kjarni málsins!