Morgunblaðið - 27.01.1995, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 1995
MORGUNBLÁÐIÐ
FRÉTTIR
Hreppsnefnd Súðavíkur
leitar eftir deiliskipulagi
Morgunblaðið/Þorkell
ÍBÚAR Súðavíkur hafa undanfama daga snúið aftur heim og
leitað persónulegra muna í rústum húsa sinna.
Isafirði. Morgunblaðið.
HREPPSNEFND Súðavíkur hefur falið Jóni Gauta Jónssyni, sveitar-
stjóra, að fá arkitekta til að gera tillögur að deiliskipulagi fyrir nýja
byggð á svokölluðu Eyrardalssvæði. Honum var jafnframt falið að fá
arkitekta og verkfræðinga til að gera tillögur að hönnun leikskóla. Jón
Gauti sagði að fyrst yrði skoðað hvort hægt sé að tengja nýja leikskól-
ann þeim grunnskóla og íþróttamannvirkjum sem eru á svæðinu.
Hreppsnefndin fól Jóni Gauta
verkefnin á fundi í Súðavík í gær.
Jafnframt var rætt um mögulegar
lausnir á vanda húsnæðislausra. Jón
Gauti sagði að hann myndi hefjast
handa sem fyrst og væntanlega
byija á því að leita til arkitekta
vegna lokaðrar samkeppni um leik-
skólann. Markmiðið væri að hægt
yrði að opna hann í haust.
Almenn hreinsun á götum og
opnum svæðum hefst af krafti í
kvöld og stendur fram á sunnudags-
kvöld. Svæðisstjórn hjálparsveita
og fulltrúi í framkvæmdanefnd hafa
yfirumsjón með hreinsuninni og er
áætlað að um 80 hjálparsveitar-
menn frá Þingeyri allt til Bolungar-
víkur, auk heimamanna, taki þátt
í henni. Borgarafundur verður í
Súðavík kl. 14 á sunnudag.
Jón Gauti sagði að mikilvægt
væri að böm af flóðasvæðinu yrðu
ekki fyrir langvarandi skaða. Því
ætti mat fagfólks að ráða hvenær
flytja ætti grunnskólann til Súða-
víkur. Hann sagði að þegar væri
hafínn undirbúningur að heilsdags-
vistun fyrir böm frá Súðavík á
ísafírði í þeim tilgangi að vernda
og aðstoða bömin í nýju umhverfi
og hjálpa foreldrunum að snúa
áhyggjuíausum aftur til vinnu.
Sjóðstjórn ákveður reglur
Pétur Hafstein, formaður stjóm-
ar söfnunarinnar Samhugur í verki,
sagði að stjórnin hefði kynnt sér
aðstæður og átt tal við heimamenn.
Þá hefði nefndin komið sér niður á
ákveðnar verklagsreglur. „Okkur
þykir eðlilegt að veija fénu til að
styrkja einstaklinga og fjölskyldur
að svo miklu leyti sem tjónið verður
ekki bætt af öðrum aðilum, t.d. við-
lagatryggingu eða bjargráðasjóði.
Þá hugum við líka að óbeinu tjóni
sem getur verið með margvíslegum
hætti,“ sagði Pétur.
Veitt verður úr sjóðnum til neyð-
araðstoðar og hann greiðir neyðar-
aðstoð sem Rauði krossinn og
Hjálparstofnun kirkjunnar hafa
þegar veitt.
Lagaheimild ofanflóðasjóðs tíl fasteignakaupa hefur aldrei verið nýtt
Ovissa um framkvæmd kaupa
I LOGUM um vamir gegn snjóflóðum og
skriðuföllum er heimild til að kaupa eignir í
stað þess að koma upp vörnum gegn ofanflóð-
urri. Þessu ákvæði hefur, að sögn Helga Hall-
grímssonar, formanns ofanflóðanefndar, lítið
sem ekkert verið beitt.
í núgildandi lögum segir að greiða megi allt
að 80% kostnaðar. Húnbogi Þorsteinsson, skrif-
stofustjóri í félagsmálaráðuneytinu, er formað-
ur nefndar sem samdi frumvarp til breytinga
á lögunum. í því frumvarpi er gert ráð fyrir
að hækka kostnaðarhlut sjóðsins í 90%, að
sögn Húnboga.
Val um varnir eða fasteignakaup
Húnbogi hyggur að sveitarstjómir hefðu
mikið með ákvarðanir um það að gera, hvort
koma eigi upp snjóflóðavörnum eða hvort betra
sé og hagkvæmara að kaupa eignir. „Það hef-
ur ekki reynt á þetta en þama er val um að
koma upp vömum, sem eru yfirleitt mjög dýr-
ar, eða kaupa upp fasteignir. Sá kostur er al-
veg eins inni í myndinni vegna þess, eins og
kemur fram í lögunum, að þegar var gert ráð
fyrir þeim möguleika."
Fyrirspurnum verði beint
til sveitarsljóraa
Helgi Hallgrímsson segir litlu hægt að svara
til um það nú hvemig kaup á fasteignum yrðu
framkvæmd, ef til þeirra kæmi, þessi mál
væru afskaplega flókin og ofanflóðanefnd hefði
engin völd þótt heimild væri í lögum til þess
að kaupa fasteignir í stað þess að koma upp
vömum. Hann sagðist telja eðlilegast að íbúar
leituðu til sveitarstjómar með fyrirspumir.
Áhersla á samstarf
Berglind Ásgeirsdóttir, ráðuneytisstjóri í fé-
lagsmálaráðuneytinu, á sæti í vinnuhópi ráðu-
neytisstjóra sem ríkisstjómin skipaði vegna snjó-
flóðanna í Súðavík. Vinnuhópnum hefur verið
skipt í tvo hópa og fer annar með fyrstu við-
brögð við snjóflóðunum og hinn fjallar um áður-
nefnt framvarp. Berglind segir að kaup á fast-
eignum séu ekki komin til umfjöllunar en með
fyrirspumir um slíkt ættu menn að snúa sér
til viðkomandi sveitarstjómar. í vinnuhópnum
væri rík áhersla lögð á samstarf við sveitar-
stjóm Súðavíkur og íbúar þar gætu komið
ábendingum á framfæri í gegnum hana.
Rússneskt
flutninga-
skip landar á
Þórshöfn
Þórshöfn. Morgunblaðið.
RÚSSNESKA flutningaskipið
Mangali frá Múrmansk landaði
á Þórshöfn tæpum 180 tonnum
af frystum fiski í vikunni. Meiri-
hlutinn var þorskur, en einnig
ýsa sem verður að hluta seld til
Dalvíkur. Frá Þórshöfn siglir
skipið til Djúpavogs og selur
þartæp lOOtonn.
Rússafiskurinn er ágætt hrá-
efni, að sögn Gunnlaugs Hreins-
sonar, verkstjóra hjá Hrað-
frystistöð Þórshafnar hf., og
verðið viðunandi, heldur hærra
en áður en þó undir heimsmark-
aðsverði. Hraðfrystistöðin
greiðir 1.600 dollara fyrir tonn-
ið af fiski sem er yfir 1 kg að
þyngd en 1.475 dollara fyrir
tonnið af fiski sem er undir
þeim þyngdarmörkum og er
allur fiskurinn hausaður.
Aðspurður kvaðst Gunnlaug-
ur ekki hafa áhyggjur af þeim
áformum rússneskra útgerða
að setja íslendinga í sölubann
vegna Smuguveiðanna. Það hafi
alltaf gengið vandræðalaust
fyrir Hraðfrystistöðina að fá
Rússafisk keyptan.
Næg vinna hefur verið hjá
stöðinni undanfarið og atvinnu-
ástand í plássinu er í heildina
sagt gott. Um það bil sjötíu
manns vinna nú hjá Hraðfrysti-
stöðinni og hefur verið samfelld
átta tíma vinna við snyrtingu
og heldur meira í saltfiskinum.
Bankamaður
ákærður fyrir
auðgunarbrot
RÍKISSAKSÓKNARI hefur ákært
Kristján Gunnarsson, fv. forstöðu-
mann hagdeildar Búnaðarbankans,
fyrir umboðssvik með því að hafa
í starfí sínu hagnast á því að nýta
sér gengisupplýsingar Reuters og
færa inneign sína á milli gjaldeyr-
isreikninga í bankanum.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er honum gefið að sök að
hafa hagnast um allt að 20 millj.
á kostnað bankans. RLR og sak-
sóknari hófu rannsókn eftir að
málið kom upp og um það var fjall-
að í Morgunblaðinu, en kæra barst
ekki frá bankanum, samkvæmt
heimildum blaðsins.
Ríkissaksóknari telur Kristján
hafa gerst brotlegan við 249. grein
hegningarlaga. Þar er lagt 2 ára
fangelsi — en allt að 6 ára fang-
elsi, séu sakir mjög miklar — við
því að maður sem hefur á hendi
fjárreiður fyrir aðra eða hefur að-
stöðu til að gera eitthvað sem ann-
ar maður verði bundinn við, mis-
noti þá aðstöðu sína.
30 fundir
á tveim
vikum
VINNUVEITENDUR hafa
átt liðlega 30 samningafundi
með ýmsum verkalýðsfélög-
um og landssamböndum
vegna komandi kjarasamn-
inga á undanfömum tveimur
vikum, að sögn Þórarins V.
Þórarinssonar, framkvæmda-
sijóra VSÍ.
Þórarinn sagði að viðræð-
urnar væra mislangt komnar
með einstökum félögum. „Við
teljum að það sé að koma
fram áhugi af allra hálfu að
setjast í alvöra yfir megin-
stefnumótun varðandi launa-
og verðlagsþróun annars veg-
ar og um samskiptin við
stjórnvöld hins vegar,“ sagði
hann.
Þórarinn sagði að sam-
skiptin við Dagsbrún, Hlíf og
Verkalýðs- og sjómannafélag
Keflavíkur (Flóabandalagið)
hefðu aftur á móti gengið
erfiðlega.
Bensínaf-
greiðslu mót-
mælt
FJÖLMÖRG mótmæli og at-
hugasemdir hafa borist borg-
aryfirvöldum vegna fyrirhug-
aðrar sölu þriggja lóða undir
bensínafgreiðslur við Stekkj-
arbakka, Bæjarháls og Eiðis-
granda til kanadíska olíufyrir-
tækisins Irving Oil, að sögn
Þorvaldar S. Þorvaldssonar
forstöðumanns borgarskipu-
lags.
Þá hefur meirihluti um-
hverfismálaráðs samþykkt
mótmæli g’egn fyrirhugaðri
bensínafgreiðslu neðan við
Stekkjarbakka í nágrenni við
Elliðaár.
í bókun meirihluta um-
hverfismálaráðs segir að ekki
sé hægt að fallast á að heimil-
að verði að reisa bensínstöð
við Stekkjarbakka. Að sögn j
Þorvaldar hefur einnig borist
töluverður fjöldi mótmæla og
ábendinga vegna lóðanna við
Bæjarháls og Eiðisgranda.
Alþýðusamband
Austurlands
Hrafnkell úr
stjórninni
TILLAGA Hrafnkels A. Jóns-
sonar, formanns Verkamanna-
félagsins Árvakurs á Eskifirði,
um að ASÍ hefji nú þegar við-
ræður við ríkisvaldið um sám-
eiginleg mál verkalýðshreyf-
ingar sem snúa að stjórnvöld-
um, samhliða öðrum kjaravið-
ræðum, var felld á stjómar-
fundi Alþýðusambands Aust-
urlands í gær með sex atkvæð-
um gegn tveimur. Tveir stjórn-
armenn sátu hjá. Þegar niður-
staðan lá fyrir sagði Hrafnkell
sig úr stjórn sambandsins.
..Að mínum dómi hefði
verkalýðshreyfingin átt að
vera búin að taka upp viðræð-
ur við ríkisvaldið um þessi mál
og ég tel að þarna séu í húfi
braðir hagsmunir margra 1
launþega í landinu og það sé
abyrgðarlaust að hefja ekki
viðræður um þessi mál,“ sagði I
Hrafnkell.