Morgunblaðið - 27.01.1995, Síða 4

Morgunblaðið - 27.01.1995, Síða 4
MORGUNBLAÐIÐ VERTÍÐARSTEMMIMIIMG Sýslubíll- inn sagður vera mánu- dagsbíll „SKÝRINGIN er einfaldlega sú að þetta er mánudagsbíll," sagði Rík- arður Másson sýslumaður á Hólma- vík en ríkisendurskoðun hefur gert athugasemdir við rekstrarkostnað Ford Econoline, árgerð 1991, sem var keyptur nýr til embættisins. Bíllinn hefur verið á verkstæði 17 sinnum á 14 mánuðum og kostnaður er á bilinu 73-95 þúsund á mánuði. Sagðist Ríkarður vonast til að emb- ættið fengi annan bíl á næstunni en að vísu ekki nýjan. „Bíllinn byijaði að bila rétt eftir að hann kom hingað norður," sagði Ríkarður. „Hann er búinn að vera til vandræða síðan hann kom eins og sést af því að það þurfí að fara með hann 17 sinnum á verkstæði. Ég er fyrir löngu búinn að biðja um að losna við þennan kross. Þessi rosa- legi kostnaður háir embættinu." Bílnum breytt Að sögn Ríkarðs var bílnum breytt við komuna til landsins, hann hækk- aður upp og sett í hann framdrif. Svo virtist sem bíllinn hafi ekki þolað þessar breytingar og mikið af bilun- unum væru vegna þeirra. ------» ♦------- Læknafélag Reykiavíkur Tilvísanakerf- ið kynnt fé- lagsmönnum Á FUNDI í Læknafélagi Reykjavíkur voru reglugerðardrög heilbrigðis- ráðuneytisins um tilvísanakerfi kynnt félagsmönnum. Á fundinn mætti Guðjón Magnússon, skrif- stofustjóri í ráðuneytinu, sem flutti framsöguerindi ásamt Sigurði Björnssyni lækni. Ekki nægjanleg rök Að sögn Gests Þorgeirssonar, for- manns félagsins, tóku margir fund- armanna til máls, og sagði hann að í máli flestra hefði komið fram að ekki lægju fyrir nægjanleg rök sem sýndu að sparnaður yrði fyrir ríkið af tilvísanakerfi. Hagfræðilega út- tekt vantaði og einnig nægileg gögn til að sýna fram á að upplýsinga- flæði milli lækna myndi aukast. Reglugerðardrögin eru nú til um- sagnar hjá Læknafélagi Reykjavíkur og sagði Gestur að enn hefði ekki verið ályktað formlega um þau. Frumumsögn hefði verið send ráðu- neytinu og óskað frekari gagna. ------♦ -------- 200 sóttu stofnfund Lífsvogar TVÖ HUNDRUÐ manns mættu á stofnfund Lífsvogar, samtaka gegn læknamistökum, sem haldinn var á Hótel Lind í fyrrakvöld. Amheiður Vala Magnúsdóttir var kjörinn for- maður. Amheiður segir að fundargestir hafí bæði verið úr röðum þeirra sem orðið hafi fyrir mistökum læknis og aðstandendur þeirra. Næsta skref sé opna skrifstofu, sem verði í húsnæði Neytendasamtakanna, og er stefnt að því að hún verði opin allan dagirin. Samtökin Lífsvog em stofnuð til þess að ná til þeirra sem orðið hafa fyrir læknamistökum og annarra sem áhuga kunna að hafa á málefninu. 3-4 starfsmenn verða á skrifstofunni að sögn Arnheiðar en auk hennar eru fjórir meðstjómendur í stjóm. KEYRÐU með allar lúgur opnar og eitthvað tilbúið í hífíngu," sagði Pétur Pálsson framkvæmda- stjóri fiskvinnslunnar Vísis hf. í Grindavík sem gerir m.a. út Sig- hvat GK sem var að koma úr sex daga línuróðri með 60 tonna afla, mest af þorski. Hann var að tala við skipstjóra sinn á Sighvati í far- síma. Það lá á að landa fískinum því uppboðsmarkaðurinn átti að hefjast klukkan þijú og það var að verða hráefnislaust í vinnslunni. Rétt upp úr klukkan eitt sigldi Sighvatur svo inn innsiglinguna í koppalogni, en talsverðu frosti, og það var ekki fyrr búið að festa land- festar en löndunargengið var farið að hífa. Sighvatur er búinn að gera það gott á vertíðinni, verið með á bilinu 60-80 tonn í úthaldi. Aflinn frá áramótum er 195 tonn og er hann einn af aflahæstu vertíðarbátunum. Það er 23 ára piltur frá Patreks- fírði, Unnsteinn Líndal, sem stýrir fleyinu og hefur gert það síðustu sjö mánuðina. „Þetta hefur gengið mjög vel miðað við veður. Þetta er frekar í lakari kantinum samt núna. Vel- gengnin byggist á góðum mann- skap og samheldni," sagði Unn- steinn. Honum varð tíðrætt um ákvörðun Þorsteins Pálssonar sjáv- arútvegsráðherra um að fella undir- málsfisk inn í heildarkvótann. „Það hlaut að koma að þessu því maður hefur heyrt af því að menn hafí misnotað þessar reglur og jafnvel legið í smáfíski." í 10 vindstigum og 8 metra ölduhæð Unnsteinn sagði að vertíðin hefði verið góð.fram að þessu en nú væri skammt eftir af línutvöföldun- inni, en þá er aðeins helmingur afl- ans dreginn frá kvóta viðkomandi skips. Hann sagði að í þessum túr hefði verið viðunandi veður í tvo daga en aðra daga frá 8—10 vind- stig og ölduhæð 7-8 metrar. Það er stíft sótt og stoppað aðeins fjóra daga í mánuði, sólarhringur á milli túra. ' " „Síðasti túr var líka mjög erfíð- ur, þá vorum við fímm daga að veiðum og þijá daga voru um og yfir tíu vindstig. Margir segja að við stoppum ekki fyrr en það verður slys, en það ber að taka það fram að við erum á mjög góðu sjóskipi og með vakandi áhöfn.“ Meiri vinnu Niðri í vinnslusal Vísis var verið að pakka saltfiski. Sigurður Jóns- son, 17 ára, gaf sér tíma í smá- spjall. „Það er búið að vera frekar rólegt og ég væri til í að vinna meira. Það fer að verða meira að gera þegar bátarnir fara að geta sótt meira,“ sagði Sigurður og svo var hann rokinn. Vísir hóf starfsemi fyrir um 30 árum og hefur verið í eigu sömu Qölskyldunnar alla tíð. Faðir Pét- urs, Páll Pálsson, ereigandi fyrir- tækisins og sér hann um öll inn- kaup á fiskmarkaðnum, þ.e.a.s. á Morgunblaðið/Sverrir Undir þungu fargiságulivaríflestum körum hjá Sighvati GK en eitthvað er þessi þorskur þó dasaður. í páSU Starfsmenn fiskvinnslunnar Vísis í Grindavík nutu hvíidarinnar og hentu að mörgu gaman þegar færi gafst. Löndun hafin Sighvatur var ekki fyrr lagstur að bryggju en löndunarmenn hófu að skipa upp fiskkörunum. Sighvatur kom með um 67 tonn að landi eftir sex daga veiðiferð. þeim físki sem ekki er tekinn beint inn á gólf úr þeim fjórum bátum sem Vísir gerir út, Sighvati, Hrugni, Sæborg og Mána. „Þetta hefur gengið vel hjá Unn- steini, hann hefur alveg rotað gömlu jálkana,“ sagði Pétur. Unnið var úr 4 þúsund tonnum af fiski hjá Vísi á síðasta ári og seldi fyrirtækið í gegnum Sölusam- band íslenskra fiskframleiðenda 1.700 tonn af saltfiski. Aldrei hefur verið meiri vinnsla hjá Vísi hf. en á síðasta ári. Eina konan ísalnum Hanna Helgadóttir á og rekur fiskvinnsluna Sæstjörnuna í Vogum I saltfiski Unnið við að pakka saltfiski hjá Vísi hf. og var hún mætt í uppboðssal Fisk- markaðs Suðurnesja stundvíslega klukkan þijú til að kaupa hráefni til vinnslunnar. Hanna var eini kvenmaðurinn í salnum og sagði hún að aðrar konur sæjust ekki þar á ferli. Hanna hefur rekið Sæstjörnuna síðustu tvö ár og kaupir mest ýsu til frystingar sem hún selur til Frakklands. „Ég vann áður í físki en mér stóð það til boða að stofna þetta fyrirtæki upp úr öðru sem fór á hausinn." Hún segir að fískverð sé afar hátt og hlutfall hráefnis- kostnaðar í frystingunni sé mun hærra en í flugi til Bandaríkjanna. „Ég er að rembast við undirmáls- físk og smáfísk svo þetta beri sig. Þetta er allt handflakað hjá mér,“ sagði Hanna. Þarna var líka Hallgrímur Jó- hannesson físksali í Keflavík. Hann kemur á hveijum degi að kaupa físk óséðan á uppboðinu og sækir hann svo þegar dagróðrabátarnir koma inn um kvöldmatarleytið. Hann kaupir 1 'h til 2 tonn af ýsu á viku og eitthvað af öðrum tegund- um. Segja má að þetta sé nálægt því að vera heildameysla Keflvík- inga og næstu nágranna af físki á viku því Hallgrímur er eini físksal- inn þar um slóðir. Hallgrímur segir að lífíð sé vinna frá morgni til kvölds. Hann vaknar klukkan fimm á morgnana og er að þar til hann fer að sofa á mið- nætti. „Það er mikill slagur um þessi fáu kíló sem eru boðin upp. Ég er nær eingöngu með ýsu og það hefur verið lítið framboð vegna veðurs og hátt verð. Verðið er árs- tíðabundið og hækkar alltaf um þetta leyti, veðrið spilar svo stórt hlutverk. Ég hækka verðið á fiskin- um tímabundið út úr fískbúðinni meðan þetta ástand varir. Maður verður að vera samkeppnishæfur og flestir skilja þetta,“ sagði Hall- grímur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.