Morgunblaðið - 27.01.1995, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 27.01.1995, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaöiö/Porkeli í LEIKSKÓLANUM Engjaseli voru m.a. þau Gunnar Guðbjörn, Runný og Anna Elísa. Grimnskólinn í Súðavík verður enn um sinn á ísafirði Skólinn fluttur þegar nemendur verða tilbúnir ísafirði. Morgnnblaðið. GRUNNSKÓLINN í Súðavík verð- ur ekki fluttur aftur til Súðavíkur fyrr en nemendur verða taldir til- búnir til þess að hverfa heim aft- ur, húsnæði skólans verður komið í viðunandi horf og bærinn hreins- aður eins og hægt er að sögn skóla- stjórans, Bergljótar V. Jónsdóttur. Áfallahjálp fyrstu vikuna Hún segir að fyrstu skólavikuna í Húsmæðraskólanum á ísafirði hafi áhersla verið lögð á að vinna úr erfiðri reynslu bamanna með áfallahjálp og í gegnum listtján- ingu, íþróttakennslu og tónlist. Stundatafla fyrir næstu viku ger-i ráð fyrir að hægt og sígandi verði farið meira yfir í bóklega kennslu. Bergljót sagði að staðsetning Húsmæðraskólans kæmi sér afar vel því grunnskólinn og sundlaugin væru á næsta leiti og ýttu undir samgang barnanna við börn frá ísafirði. Þeim væru einnig kenndar sérgreinar í grunnskóla Isafjarðar. Eflaust ættu einhver bamanna eftir að halda áfram skólagöngu sinni á ísafirði a.m.k. í vetur. Berg- ljót sagðist ekki vita hvort einhveij- ar fjölskyldur með böm á gmnn- skólaaldri hygðust flytja aftur til Súðavíkur áður en vinnsla hæfist í frystihúsinu á mánudag. En gmnn- skólinn yrði ekki fluttur fyrr en börnin væm búin að jafna sig og bærinn tilbúinn að taka á móti þeim. Bergljót sagði að langflest barn- anna frá Súðavík sæktu skólann á ísafírði, kennaramir væru þeir sömu og í Súðavík, og kennt væri í sömu hópum fyrir utan að níunda og tíunda bekk væri nú kennt sam- an í stað áttunda og níunda bekkj- ar áður. Hún sagði að skólastarfið hefði gengið afar vel þó börnin væru þreytt og ættu erfitt með að einbeita sér. Kennararnir hefðu líka staðið sig ákaflega vel. Engjasel, leikskólinn í Súðavík, hefur fengið aðstöðu í skólaskjólinu á ísafirði og sagði Steinunn Einars- dóttir, leikskólakennari, að starfið hefði gengið vonum framar. Nýlegt hverfi í Hnífsdal „Við verðum ekki í húsunum annan veturu ísafirði. Morgunblaðið. „ÍBÚARNIR í hverfinu virðast á einu máli um að þeir ætli ekki að vera hérna annan vetur,“ segir Al- bert Högnason, íbúi í Teigahverfi í Hnífsdal. Þegar hann og eiginkona hans, Gunnhildur Gestsdóttir, byggðu sér einbýlishús við Smárateig 2 árið 1979 var byggingarsvæðið talið ör- yggt. Síðar kom í ljós að hverfið var byggt á svokölluðu rauðu svæði, þ.e. hætta er á snjóflóðum úr fjall- inu fyrir ofan. Þetta hefur leitt til þess að húsið hefur fallið í verði og ekki tekist að selja það. Albert sagði að hjónin hefðu, vegna vinnu sinnar á ísafirði, ákveð- ið að selja húsið. Síðan væm liðin þijú ár og ekki hefði einn maður komið til að líta á það. Ellefu hús við tvær götur em í hverfinu. Húsin em öll álíka gömul, þ.e. frá því um 1979, og í þeim býr mikið af barnafólki. Albert segir að þegar byggja hafi átt á svæðinu hafí gamlir menn varað við því vegna snjóflóðahættu. íbúamir hefðu lengi ekki viljað viðurkenna hættuna og sumir hefðu jafnvel neitað að færa sig þegar rýma hefði átt húsin. Húsin rýmd oft á vetri Albert sagði að húsin hefðu að jafnaði verið rýmd þrisvar til fjórum sinnum á vetri og ástandið væri farið að hafa veruleg sálarleg áhrif á íbúana og þá sérstaklega börnin. Hnn var nýkominn af foreldrafundi með skólasálfræðingi. „Okkur kom á óvart hvað börnin, sérstaklega eldri en 10 ára, virðast hafa farið illa sálarlega," sagði hann. Albert sagði að fyrir um ári hafi verið kynntar fyrir íbúunum hug- ALBERT Högnason við hús sitt við Smárateig 2. Óttast er að snjóflóð geti fallið úr Traðargilinu fyrir ofan. myndir um 16 m háan vamargarð vegna snjóflóðanna fyrir ofan hverf- ið. íbúarnir hefðu beint þeirri spurn- ingu til tæknifræðingsins hvort varnargarðurinn, sem átt hefði að kosta 70 milljónir, væri 100% ömgg- ur og fengu þau svör að svo væri ekki. Með þá vitneskju hefðu þeir ekki getað stutt framkvæmdina. Auk þess hefði spilað inn í að varnargarðurinn hefði átt að standa aðeins 4 m fyrir ofan hverfið og hefði líklega haft þau áhrif að allt yrði þar fullt af snjó. Albert sagði að eftir að fyrir hefði legið hálfgild- ings loforð frá bænum um að Ofan- flóðasjóður keypti húsin hefði komið í ljós að ekki væri fyrir því heimild. Hann vonaðist hins vegar til að gerðar yrðu viðeigandi breytingar á lögum um sjóðinn. Morgunblaðið/Kristinn VIÐSKIPTAVINUR Hagkaups skoðar skíðaúrvalið í Hagkaup í Skeifunni í gær eftir að vörunum hafði verið komið fyrir. Sala á þeim hefst í dag og stendur í viku. Hagkaup selur skíðabúnað í viku HAGKAUP byijar í dag að selja skíðavörar í verslunum sínum í Skeifunni og Kringlunni. Hagkaup flytur vömrnar inn beint og stend- ur tilboðið í viku. Seld verða Head-skíði, Salomon- skíðaskór og bindingar og Swix- skíðastafir. Að sögn Halldórs Kristinssonar hjá Hagkaup em þetta þekkt merki. Sem dæmi um verð nefnir hann skíðapakka fyrir krakka á 14.000 krónur og fyrir fullorðna á 20.000. Innifalin eru skíði, skór, bindingar, stafir og ásetning bindinga. Þá segir Hall- dór að skíðastafir fyrir börn fáist á innan við þúsund krónur, skíð- askó á böm fyrir 5.000 og á full- orðna fyrir 7.000 krónur. í dag og á morgun verður skíða- kennari í versluninni í Skeifunni sem leiðbeinir fólki um kaupin. Safna fyrir snjóflóða- leitartæki FLUGBJÖRGUNARSVEITIN í Reykjavík er nú að beita sér fyrir því að láta gefa á helstu snjóflóðasvæði landsins tæki sem miða út og staðselja með mikilli nákvæmni fólk sem lendir undir snjóflóðum. Fyrsta tækið er komið til landsins og verður afhent á ísafirði i dag. Ingi Þór Þorgrímsson, for- maður Flugbjörgunarsveitar- innar, sagði að strax eftir að snjóflóðið féll í Súðavík hefðu sveitarmenn farið að kanna möguleika á að útvega og stað- setja tækin víða um landið. Flugbjörgunarsveitin mundi fela Almannavörnum að ráðstafa tækjunum en teldi rétt að einu yrði komið fyrir á ísafirði, öðru á Patreksfirði, þriðja á Siglufirði og fjórða í Neskaupstað. Ingi Þór sagði að aðeins hefði verið unnt að fá eitt tæki til landsins strax og Magnus Granhed, sérfræðing- ur frá verksmiðjunum, kom með það til landsins fyrr í vik- unni. Til að tækið komi að notum þarf sá sem leitað er að bera á sér litla díóðu, sem þegar eru orðnar staðalbúnað- ur í skíðaskóm og -göllum. Morgunblaðið/Julius SÉRFRÆÐINGUR sænsku Recco-verksmiðjanna, Magnus Granhed, sýnir starfsmönnum skíðasvæðisins í Bláfjöllum notkun tækisins í gærmorgun. Á innfelldu myndinni er díóða sú sem tækið nemur merki frá. Ingi Þór sagði m.a. koma til greina að sveitarfélög eða opinberir aðilar eignuðust díóður sem fólki yrði úthlutað til að bera á sér þegar hætta virtist vera á snjóflóðum. Einnig yki tækið mjög öryggi leitarmanna og gagnast þeim sem eru á ferð um vegi þar sem snjóflóða er von. Ingi Þór sagði að leitartæk- ið væri viðbót við þau björgun- arúrræði sem fyrir eru og ætti að geta aukið enn mögu- leika á að bjarga fólki lifandi úr snjóflóðum. Tækið nemur merki í allt að 150 metra fjar- lægð og getur staðsett það af nákvæmni og þannig gert kleift að leita á fáeinum klukkustundum yfir flóða- svæði sem tekið gæti 2-3 daga að leita með hefðbundnum hætti. Hvert tæki kostar um 500 þúsund krónur og er unnið að því að afla framlaga til kaupa á tækjum fyrir Patreksfjörð, Siglufjörð og Neskaupstað en Apple-umboðið keypti tækið sem afhent verður á ísafirði í dag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.