Morgunblaðið - 27.01.1995, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 27.01.1995, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR HR mun eiga 4,5% í hitaveitu í Slóvakíu HITAVEITA Reykjavíkur mun eiga 4,5% hlutafjár í hitaveitu, sem verið er að koma upp á jarðhita- svæði í bænum Galanta í Slóvakíu. 10 milljónum króna verður varið til hlutafjárkaupanna. Virkir-Ork- int, sem Hitaveitan á hlut í ásamt Orkustofnun og 35 íslenskum verkfræðistofum, hefur verið ráð- gjafi Slóvaka við virkjun tveggja borhola í Galanta og hefur unnið að öðrum verkefnum um virkjun jarðhita í landinu. Að sögn Gunnars Kristinssonar, hitaveitustjóra, hefur Norræni fjárfestingabankinn, NIB, sam- þykkt lánveitingar til þessarar hitaveitu, en auk Hitaveitunnar mun Nefco, dótturfyrirtæki NIB, eiga hlut í fyrirtækinu, sem að öðru leyti verður í eigu Slóvaka, en hlutafé verður alls rúmar 200 milljónir króna. Gunnar Kristinsson sagði að Virkir-Orkint hefði undanfarin ár unnið að ýmsum verkefnum á stöð- um í Austur-Evrópu þar sem verið væri virkja jarðhita en þetta verk- efni í Slóvakíu væri lengst komið. Virkir-Orkint á m.a. dótturfyrir- tækið Slogeoterm á móti þarlend- um aðilum. Upphaflega hefði verið ráðgert að virkjun borholanna í Galanta yrði lokið í haust, en það hefði dregist og einnig hefði dreg- ist að ganga frá stofnun félagsins um reksturinn. Borun væri hins vegar lokið fyrir nokkru. Nú væri hönnun lokið, útboð stæðu fyrir dyrum, og stefnt væri/ að því að ljúka framkvæmdum í ár. íslensk hönnun Gunnar Kristinsson sagði að hönnun þessarar hitaveitu væri að mestu leyti unnin af íslenskum verkfræðingum. „Slóvakarnir hafa annast útfærslu á ýmsu en hug- myndimar og allt annað kemur frá Virki-Orkint,“ sagði Gunnar. Hann sagði hugsanlegt að menn frá Hitaveitunni yrðu sendir til Slóvakíu þegar kæmi að gangsetn- ingu hitaveitunnar í Galanta til að segja þarlendum til. Stórmeist- ararí skólunum SKÁKSKÓLI íslands gekkst fyrir fjöltefli í fjórum skólum á höfuðborgarsvæðinu í vikunni þar sem nemendur fengu að etja kappi við stórmeistara sem kenna við skólann. Helgi Ólafs- son tefldi við nemendur í Breið- holtsskóla, Jóhann Hjartarson í Hofsstaðaskóla í Garðabæ, Margeir Pétursson í Digranes- skóla í Kópavogi og á myndinni sést Hannes Hlífar Stefánsson tefla við nemendur í Melaskóla, en hann tefldi 33 skákir og vann þær allar. Þá tefldi Jó- hann Hjartarson við 38 nem- endur í Álftamýrarskóla í gær. Að sögn Braga Kristjánssonar, skólastjóra Skákskóla íslands, hefur í vetur verið gert átak í því að stórmeistararnir tefli í skólum landsins, en undanfarin ár hafa þeir á hverjum vetri teflt í nokkrum skólum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Islendingur flugmáiastjóri í IMamibíu Spennandi og skemmtilegt verkefni Grétar H. Óskarsson EFTIR tæplega þijá- tíu ára starf hjá Flugmálastjórn fannst Grétari H. Óskars- syni, fyrrum framkvæmda- stjóra loftferðaeftirlits, kominn tími til að reyna eitthvað nýtt. Hann tók fyrsta skrefið með því að vera með í sænsku þróun- arverkefni á sviði flugmála í Eystrasaltslöndunum árið 1992 og tveimur árum síð- ar barst honum annað til- boð um verkefni á enn ijar- lægari slóðum, þ.e. í Afr- íkuríkinu Namibíu. „Ríkisstjórnin í Namibíu hafði óskað eftir aðstoð Svía við að velja flugmála- stjóra í landinu. Namibía hafði ekki verið með flug- málastjóra frá því landið fékk sjáifstæði frá Suður- Afríku árið 1990 og yfirvöld sneru sér til Svíanna því þeir hafa verið að hjálpa Namibíumönnum í sam- göngumálum á sama hátt og Is- lendingar hafa veitt þeim aðstoð í fiskyeiðimálum. Svíarnir töldu að sex til átta manns gætu komið til greina og hringdu í mig í mars í fyrra til að spyija mig hvort ég væri tilbú- inn að taka að mér starfið ef til kæmi. Þeir hringdu aftur í mig í maí og spurðu hvort enn væri hægt að reikna með mér. Ég sagði já, já. Síðan hringdu þeir í júlí í fyrra og sögðu að þrír væru eftir og báðu mig að koma í viðtal út til Stokkhólms. Eftir viðtalið hringdu þeir í ágúst til að segja mér að nú væru aðeins tveir eft- ir. Hvort ég gæti farið til Namib- íu og talað við ráðherra þar nið- urfrá. Við fórum tveir, ég og Svíi, til Namibíu og út úr því kom að ég var ráðinn til þriggja ára sem flugmálastjóri hér í Namibíu. Svona byijaði ævintýrið," sagði Grétar. - Hvernig verður starfsemin byggð upp? „Uppbyggingin hérna er spenn- andi og skemmtilegt verkefni. Starfið er byggt upp eftir alþjóð- legu kerfi. Hérna var töluvert starfsfólk, Suður-Afríkubúar, inn- fæddir og aðfluttir. En allt stjórn- kerfið var skorið ofan af þegar landið öðlaðist sjálfstæði. Breyt- ingin var svona álíka og ef Vest- firðir yrðu skyndilega að standa á eigin fótum. Flugvell- irnir og starfsmennimir yrðu áfram en alla yfír- stjórn vantaði. Við erum hérna með 300 stöðuheimildir. En starfsfólkið er ennþá ekki nema 240 manns. Lægri stöðumar era skipaðar en efri stöðurnar enn ómannaðar." - Finnst þér koma til greina að ráða Islendinga í eitthvað af þessum stöðum? „Ég byijaði hérna nú um ára- mótin og þarf auðvitað nokkra mánuði til að koma mér inn í allt. En það gæti alveg eins komi til greina að ráða Islendinga." - Hvernig hefur þér fundist að búa í Namibíu frá því þú tókst við starfinu / byrjun janúar? „Namibíubúar eru afar yndis- legt og huggulegt fólk, allir hafa tekið vel á móti mér. Þeir virðast ekkert hafa á móti eskimóanum frá íslandi. Landið er ákaflega fallegt og hreinlegt. Hér er regla á öllum hlutum. Landið var þýsk nýlenda til 1915 og þýsk áhrif eru áberandi. Margir íbúanna tala þýsku. Ef maður fer til að mynda ►Grétar H. Óskarsson, flug- málastjóri í Namibíu, er fæddur 3. mars árið 1938 í Reykjavík. Grétar lauk stúdentsprófi árið 1957 og námi í vélaverkfræði við Tækniskólann í Braunsch- weig í Þýskalandi árið 1961. Hann tók lokapróf í flugvéla- verkfræði, MS, frá Konunglega tækniháskóianum í Stokkhólmi árið 1966 og sérnámi i flug- eftirliti hjá flugmálasíjórn Bandaríkjanna, FAA, í Okla- homaárið 1967. Grétar var eftirlitsmaður með lofthæfi íslenskra loftfara hjá Flugmálastjórn 1967 til 1975. Hann var framkvæmda- sljóri loftferðaeftirlits Flug- málastjórnar frá árinu 1976 og var ráðinn flugmálastjóri í Namibíu árið 1994. Eiginkona Grétars er Ingibjörg G. Har- aldsdóttir og eiga þau þrjú börn. í verslun er sagt við mann „Guten Tag“ og á veitingastað „Speise- karte Bitte“. Á sama hátt eru þýsk áhrif áberandi í menningu og menntun." - Hvað með fátækt? „Ég hef enn aðeins verið í höf- uðborginni Windhoek og ekki tek- ið eftir mikilli fátækt. Borgin er eins og hver önnur borg í Evrópu nema miklu hreinni og fallegri og glæpir eru nærri óþekktir. Hér er raunar mikil velmegun og land- ið útaf fyrir sig ríkt, en fyrir utan borgina býr fólk enn í strákofum," segir Grét- ar. Hann segir að borgin standi í um 1.650 m hæð yfir sjávarmáli og loftið sé afar hreint. „Rigningartíminn á að vera kom- inn en lætur standa á sér. Hér hefur verið sólskin og 35 stiga hiti á daginn og 18 til 20 stig á nóttunni." - Hvernig er staða flugmála í Namibíu ? „Aðalflugfélagið Air Namibía flýgur þrisvar sinnum í viku til London og Frankfurt með Boeing 747 Jumbo þotu. Síðan fljúga þeir með Boeing 737 til nágranna- iandanna, Suður-Afríku, Zim- babwe, Zambíu o.fl. Innanlands flýgur flugfélagið með Beech 1900. Leiguflug með litlum flug- vélum, tveggja hreyfla Piper, Cessnu o.fl. er töluvert mikið enda er landið stórt, átta sinnum stærra en ísland, og alltaf gott flugveð- ur, t.d. era sólardagar 360 á ári. Flugvellir eru oft ómalbikaðir eins og á Islandi en þó mjög góðir, úr góðu jarðefni." Ekki hefur enn uerið ráðið í 60 stöður

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.