Morgunblaðið - 27.01.1995, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 27.01.1995, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 1995 13 VIÐSKIPTI Sjávarafurðir voru alls 76% vöruútflutningsins og verðmætið 9% meira Afgangur af vöruskiptum 20,3 milljarðar ALLS voru fluttar út vörur fyrir 113,5 milljarða króna allt árið 1994 en inn fyrir 93,2 milljarða króna fob, samkvæmt bráðabirgðatölum. Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd sem nam 20,3 milljörð- um króna en árið áður voru þau hagstæð um 12,7 milljarða króna á föstu gengi. Miðað er við meðalgengi á viðskiptavog en á þann mælikvarða var meðalverð erlends gjaldeyris í janúar-desember 1994 5,2% hærra en árið áður, segir í tilkynningu frá Hagstofunni. í desember sl. voru fluttar út vörur fyrir 10,9 milljarða kr. og inn fyrir 8,7 milljarða kr. fob. Vöruskiptin í desember voru því hagstæð um 2,2 milljarða kr. en í desember 1993 voru þau hagstæð um 0,8 milljarða kr. á föstu gengi. Álverðmæti jókst um 25% Árið 1994 var verðmæti vöruút- flutningsins 14% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 76% alls vöruútflutningsins og var verð- mæti þeirra 9% meira en á sama tíma í fyrra. Þá var verðmæti út- flutts áls 25% meira en árið áður og kísiljárns 8% meira. Heildarverðmæti vöruinnflutn- ingsins árið 1994 var 7% meira á föstu gengi en árið áður. Innflutn- ingur sérstakrar fjárfestingarvöru (skip, flugvélar, Landsvirkjun), innflutningur til stóriðju og olíu- innflutningur er jafnan mjög breytilegur frá einu tímabili til annars. Að þessum liðum frátöld- um reyndist annar vöruinnflutn- ingur hafa orðið 7% meiri á föstu gengi en á árinu 1993. Þar af jókst innflutningur á matvöru og drykkjarvöru um 8%, fólksbílainn- flutningur dróst saman um 2%, innflutningur annarrar neysluvöru var 3% meiri en árinu áður en innflutningur annarrar vöru jókst um 9%. VÖRUSKIPTIfí VIÐ ÚTLÖNDH Verðmæti vöruút- og innflutning í jan.-des. 1993 og 1994 1993 (fob virði í milljónum króna) jan.-des. ^ 'J- - ’ -r ’ ,s ' 'í 1994 breyting á jan.-des. föstu gengi' Útflutningur alls (fob) 94.657,6 113.472,2 14,0 Sjávarafurðir 74.570,7 85.735,3 9,3 Ál 8.258,7 10.833,0 24,7 Kísiljárn 2.360,5 2.689,3 8,3 Skip og flugvélar 1.308,6 3.334,4 Annað 8.159,1 10.880,2 26,8 Innflutningur alls (fob) 82.576,2 93.204,1 7,3 Sérstakar fjárfestingarvörur 2.213,3 4.203,6 80,5 Skip 1.635,0 3.983,7 Flugvélar 174,3 170,8 Landsvirkjun 404,0 49,1 77/ stóriðju 4.885,3 5.262,2 2,4 íslenska álfélagið 4.299,4 4.479,7 -1,0 íslenska járnblendifélagið 585,9 782,5 27,0 Almennur innflutningur 75.477,6 83.738,3 5,5 Oiía 7.373,4 7.256,9 -6,4 Almennur innflutningur án olíu 68.104,2 76.481,4 6,7 Vöruskiptajöfnuður 12.081,4 20.268,1 Án viðskipta islenska álfélagsins Án viðskipta íslenska álfélagsins, 8.122,1 13.914,8 íslenska járnblendifélagsins og sérstakrar fjárfestingarvöru 7.252,2 12.877,2 • Miðaö er við meðalgengi á viöskiptavog; é þann mœlikvarða vat meðalverð erlends gjaldeyris 5,2% hærra i jan.-des. 1994 en á sama tima árlð áður. Lyfjaverslunin Um 800nmims keyptu hlut Aldrei selst jafnmikið af hlutabréfum ájafn skömmum tíma HLUTABRÉF ríkissjóðs í Lyfjaverslun íslands hf. fyrir 201 milljónir króna seidust upp á ör- skömmum tíma í gær, þrátt fyrir að leyfíleg há- markskaup hafi aðeins verið 500.000 krónur á mann og ekki hafi verið tekið á móti pöntunum í gegnum síma eða fax. Það tók aðeins liðlega tvær klukkustundir að selja öll bréf hjá Kaup- þingi hf., sem var aðalsöluaðili þeirra. Guðmundur Hauksson, forstjóri Kaupþings, sagðist telja að hluthöfum Lyfjaverslunar hefði fjölgað um 700-800 í gær i viðbót við þá 825 sem keyptu hlut í fyrirtækinu í nóvember. Þá var boðinn út helmingur af hlut ríkisins á sömu kjör- um og nú, þ.e. hlutabréf að nafnvirði 150 milljón- ir á genginu 1,34. Fyrri hlutinn seldist upp á ein- um degi, en salan í gær gekk jafnvel enn hraðar fyrir sig. 100 manns í biðröð „Þetta er náttúrulega algjör metsala," sagði Guðmundur. „Við vorum óvenjuvel undir þetta Morgunblaðið/Sverrir BIÐRÖÐIN hjá Kaupþingi. búin og vorum með níu aðila sem afgreiddu þetta jafnharðan. Það voru hundrað manns hérna við dyrnar í morgun klukkan níu. Ég held að ég geti fullyrt að það hafi aldrei selst jafn mik- ið af hlutabréfum á íslandi á jafn skömmum tíma.“ Verðið ekki of lágt Steingrímur Ari Arason, aðstoðarmaður fjár- málaráðherra og fulltrúi hans í einkavæðingar- nefnd, sagði að hann hefði átt von á að bréfin nú seldust upp á einum degi nú eins og í nóvem- ber. Hann sagðist ekki telja að verðið á bréfunum væri óeðlilega lágt, heldur væri það sanngjarnt miðað við stöðu fyrirtækisins. „Það var ákveðið að gefa almenningi forgang að bréfunum með þessum hætti og ef allt seldist ekki fengju stærri aðilar að kaupa,“ sagði Stein- grímur Ari. Verðlagning hlutabréfanna væri byggt á mati á stöðu fyrirtækisins og með það fyrir augum að stór hluti þeirra seldist til almenn- ings. Það hefði svo komið í ljós að fólk treysti því að þetta mat ríkisins og verðbréfafyrirtækj- anna væri sanngjarnt. Það væri mikilvægt að eyðileggja ekki það traust og það var ein af ástæð- unum fyrir að menn vildu ekki hrófla við verðinu í seinni sölunni. Fjárfest- ingarfé- lagið greiði lán Vogalax HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest dóm undirréttar í máli Fram- kvæmdasjóðs íslands gegn Fjárfest- ingarfélagi íslands hf. vegna sjálf- skuldarábyrgðar félagsins á láni sjóðsins til Vogalax hf. frá 1987. Fjárfestingarfélagið var í undirrétti dæmt til að greiða Framkvæmda- sjóði 314 þús. dollara, auk vaxta og málskostnaðar. Höfuðstóll lánsins samsvarar um 21 millj. á núgildandi gengi. Vogalax var stofnað 1985 um rekstur hafbeitarstöðvar í Vogum. Félagið var að stærstum hluta í eigu Fjárfestingarfélagsins en einnig var bandaríska fyrirtækið Weierhauser Company stór hluthafi. Þá áttu ein- staklingar í stjórn og varastjórn Fjárfestingarfélagsins hlut, svo og framkvæmdastjóri þess. Fjárfestingarfélagið tókst á hend- ur sjálfskuldarábyrgð á láni Fram- kvæmdasjóðs til Vogalax í júní 1987 og gaf út yfirlýsingu um að hún félli úr gildi þegar framkvæmdum við 2,5 milljóna seiðastöð lyki þá um haustið og nýtt mat um fullnægj- andi veðhæfni lægi fyrir. Ágreiningur um ábyrgðina Vogalax komst í þrot 1989 og fór þess á leit við Framkvæmdasjóð að hann tæki þátt í fjárhagslegri endur- skipulagningu en því var hafnað. Um svipað leyti kom upp ágreining- ur milli Fjárfestingarfélagsins og Framkvæmdasjóðs um sjálfskuldar- ábyrgð félagsins. Framkvæmdasjóð- ur hélt því fram að hún væri ekki tímabundin heldur hefði verið ætlað að vara út greiðslutíma skuldabréfs- ins ef lausnarskilyrði ábyrgðarinnar kæmu ekki fram. Fjárfestingarfé- lagið hélt því fram að skilyrðin hefðu þegar verið komin fram við útgáfu skuldabréfsins í september 1987. Vogalax var úrskurðað gjaldþrota árið 1990 og í kjölfarið stefndi Fram- kvæmdasjóður Fjárfestingarfélag- inu til greiðslu lánsins. Áfrýjandi beri halla af óljósu orðalagi I dómi Hæstaréttar segir m.a. að báðir aðilar málsins hafí farið með umfangsmikla fésýslu og haft yfír að ráða sérfræðilegri þekkingu og reynslu í viðskiptum af því tagi. Gera verði þá kröfu til slíkra stofn- ana að fjármunasamningar af þeirra hendi séu glöggir. Óumdeilt sé að ábyrgðaryfirlýsing áfrýjanda frá 30. júní 1987 hafí verið samin af honum sjálfum. Þyki hann verða að bera hallann af því ef orðalag taki ekki af tvímæli um tilætlan hans. Hæsti- réttur dæmdi auk þess Fjárfest- ingarfélagið til að greiða eina millj- óna króna í málskostnað. Laugardagskynning á morgun íTæknivali: Hugbúnaður fyrir kröfuharða! Uugarda9S 90% á'f0"táðTða vmndows,®68 aðe'msáW- 31.125 ■ Ráðhugbúnaður (fjárhagsbókhald, viðskiptamanna- lager og sölukerfi, launakerfi). Q{ 1 Tollráð fyrir Windows (eina íslenska tollskýrsluforritið fyrir Windows). 1 Fullkomið bókunarkerfi fyrir hótel og gistihús • Smáráð (hentugt bókhaldskerfi f. smærri fyrirtæki) 1 Kompass markaðs- og leitarforrit • Bifreiðakerfi fyrir bílaverkstæði (viðgerða- og ferilskrá bifreiða) Kynning í verslun Tæknivals frá 10.00 til 14.00 á morgun laugardag. Misstu ekki af einstakri laugardagskynningu. Tæknival i samstarfi við: YRÁÐHUGBÚNAÐUR stgt.m vsK. Skeifunni 17 • Sími 568-1665 • Fax 568-0664 m......... Í|ÍÍ|||ii

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.