Morgunblaðið - 27.01.1995, Page 22

Morgunblaðið - 27.01.1995, Page 22
MORGUNBLAÐIÐ 22 FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 1995 AÐSENDAR GREINAR Tengsl Háskóla ís- lands og atvinnulífs Framadagar OFT heyrist að auka þurfí tengsl Háskóla Islands og atvinnulífsins. Þeir sem ekki þekkja vel til fá ef til vill á tilfinninguna, að tengslin séu lítil. I raun eru þau meiri en margir geta ímyndað sér, en alltaf má þó auka þau. Nýlega komu fram tillögur Þróunamefndar háskólans og er þar gert ráð fyrir, að atvinnulífíð fái full- trúa í háskólaráði og á deildarfundum einstakra deilda. Vafalaust mun seta fulltrúa atvinnulífsins í nefndum og ráðum skólans auka þessi tengsl og hafa jákvæð áhrif á þróun skólans. Að öðrum deildum ólöstuðum hef- ur viðskipta- og hagfræðideild vænt- anlega einna sterkust tengsl við at- vinnulífíð. Nefna má eftirfarandi dæmi: - Mörg námskeiða deildarinnar, að sumra mati of mörg, eru kennd af stundakennurum, sem eru í aðalstarfí utan Háskólans. Sama á við um nokkra fasta kennara, sem eru í hlutastarfí við deildina. Kostur þessa er, að margir kenn- ara deildarinnar koma úr atvinnu- lífinu, en einn helsti gallinn er, að þetta kemur að einhverju leyti nið- ur á þjónustu við nemendur utan kennslustunda. - Margir af föstum kennurum deild- ■ arinnar sitja í ýmsum nefndum og stjómum utan Háskólans og tengj- ast atvinnulífinu með þeim hætti. - Verkefnavinna hefur aukist mjög á undanförnum árum í fiestum námskeiðum. Mörg þessara verk- efna eru hagnýt og fjalla um raun- hæf viðfangsefni eða eru jafnvel unnin í samvinnu við starfandi fyrirtæki eða stofn- anir. Oft óska fyrir- tæki eftir að fá nem- endur á ákveðnum sviðum til að leysa valin verkefni. - í ýmsum námskeið- um sérstaklega á íjórða ári eru fyrir- tæki og stofnanir heimsótt til að nem- endur kynnist af eigin raun hvemig aðferð- ir, sem verið er að kenna, era notaðar á íslandi. - Fastur liður í námi allra nemenda er gerð kandidatsritgerða. Ritgerðir þessar era af ýmsum toga, en í mörgum tilfellum er um að ræða verkefni, sem unnin era í náinni samvinnu við fyrirtæki eða stofnanir. - AIESEC, Alþjóðleg samtök við- skipta- og hagfræðinema, vinnur á hverju ári að ýmsum verkefnum, sem tengjast atvinnulífi, bæði á íslandi og erlendis, m.a. með námsmannaskiptum. - Innan viðskipta- og hagfræðideild- ar starfa bæði Hagfræðistofnun o g Viðskiptafræðistofnun. Allir fastir kennarar deildarinnar era sjálfkrafa starfsmenn stofnan- anna. Stofnanimar taka að sér verkefni fyrir aðila utan Háskól- ans. Um getur verið að ræða marg- vísleg viðfangsefni, sem leyst era á fræðilegum grandvelli fyrir ein- stök fyrirtæki, samtök fyrirtækja eða opinbera aðila. Innan Háskól- ans starfa fleiri slíkar stofnanir á fjölmörgum fræðisvið- um. Starfsemi þessara stofnana hefur leitt til aukinnar áhérslu á hag- nýtar rannsóknir á und- anfömum árum og hef- ur eflt tengsl Háskólans við atvinnulífið. Við- skiptafræðistofnun hef- ur í samvinnu við út- gáfufyrirtækið Fram- tíðarsýn hafið útgáfu á röð smárita, þar sem kennarar deildarinnar auk annarra koma á framfæri upplýsingum , sem erindi eiga til at- vinnulífsins. - Innan Háskóla íslands starfar Endurmenntunarstofnun, sem býður upp á mikið úrval nám- skeiða. Margir af kennuram við- skipta- og hagfræðideildar kenna á þessum námskeiðum og ná þannig sambandi við einstaklinga, sem starfa í atvinnulífínu. - Áhugi er á að auka þátt rannsókna í starfí deildarinnar, sem og í Há- skólanum öllum. Umfang rann- sókna er þó meira en margir gera sér grein fyrir. í septembermánuði síðastliðnum stóðu félagsvísinda- deild og viðskipta- og hagfræði- deild fyrir tveggja daga kynningu á rannsóknum starfsmanna deild- anna. Mörgum kom á óvart hversu fjölbreytilegar rannsóknirnar eru, en sjálfsagt hefur skort á að rann- sóknir væru kynntar nægjanlega vel, en úr því er vilji að bæta. Af þessu er ljóst, að samstarf við- skipta- og hagfræðideildar við at- vinnulífið er mikið. Það má auðvitað Ingjaldur Hannibalsson Framadagar, eða at- vinnulífsdagar, eru al- gengir erlendis, segir Ingjaldur Hannibals- son. Fyrirtæki nýta þá til að kynna starfsemi sína og leita að framtíð- arstarfsmönnum. auka, en þó sérstaklega bæta. Í Háskólanum er samankomin mikil þekking, sem atvinnulífíð getur feng- ið aðgang að. Því er haldið fram að hagvöxtur komandi ára muni í ríkari mæli byggja á þekkingu fremur en náttúraauðlindum. Mikilvægi Há- skólans mun því aukast bæði hvað varðar kennslu og rannsóknir. Starf- semi æ fleiri fyrirtækja mun í ríkari mæli en áður byggja á vinnuframlagi einstaklinga, sem lokið hafa háskóla- námi. Hagsmunir Háskólans og fyr- irtækja fara því í raun saman. Ein- hveijum kann að fínnast það varla erfíðisins virði að taka á móti há- skólanemum eða að veita þeim að- gang að upplýsingum vegna raun- hæfra verkefna. í lang flestum tilvik- um taka þó forsvarsmenn fyrirtækja vel í slíkar beiðnir. Fæst slíkra verk- efna hafa úrslitaáhrif á þróun við- komandi fyrirtækja, en í mörgum tilvikum kvikna þó hugmyndir, sem nýta má í fyrirtækjunum. Það sem skiptir meginmáli, er þó að með tengslum við atvinnulíf meðan á námi stendur aukast líkumar á því að einstaklingarnir nýtist atvinnulíf- inu vel þegar þeir koma út á vinu- markaðinn. Viðskipta- og hagfræðideild hefur á undanfömum áram leitast við að auka fjöibreytni námsframboðs. Fjöldi kjörsviða hefur verið aukinn, nú síðast með því að bjóða upp á tungumálakjörsvið. Einnig hefur ver- ið ákveðið að fjöldi eininga, sem nem- endur geta ráðstafað í valgreinar verði aukinn. Þetta gerir hveijum nemanda mögulegt að skipuleggja nám sitt þannig að nokkur sérstaða skapist. í byijun mars verða haldnir frama- dagar í Háskóla íslands. Að frama- dögunum standa AIESEC og IA- ESTE félög viðskiptafræðinema og verkfræðinema. Á framadögunum munu fyrirtæki, skólar og aðrir geta kynnt starfsemi sína. Stefnt er að því, að framadagamir efli skilning nemenda á atvinnulífínu og geri fyr- irtækjum kleift að ná til væntanlegra starfsmanna meðan á námi stendur. í samtölum við fulltrúa fyrirtækja er líklegt, að nemendur fái hugmynd- ir um á hvaða sviðum þeir þurfí að auka við þekkingu til að bæta at- vinnumöguleika sína. Ef svo skemmtilega vildi til, að samband kæmist á milli nemanda og fyrirtæk- is, gæti nemandinn tekið sérstakt tillit til þarfa fyrirtækisins í því námi, sem ólokið er, m.a. með vali á kjör- greinum. Nemandinn gæti í ýmsum námskeiðum unnið verkefni, sem tengjast fyrirtækinu og lokaritgerð nemandans myndi vafalaust íjalla um efni tengt fyrirtækinu og fram- tíðarstarfi nemandans. Framadagar eða atvinnulífsdagar era algengir erlendis. Fyrirtæki nýta þá til að kynna starfsemi sína og leita að framtíðarstarfsmönnum. Er þessi aðferð mun ódýrari en margar aðrar og gefur ekki verri árangur. Þeir, sem áhuga hafa á starfí í ákveðnu fyrirtæki gefa sig fram og verður auðveldara fyrir fyrirtækin at meta mögulega umsækjendur um störf. Þátttaka í framadögum veitir fyrirtækjum einnig tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á fram- færi varðandi æskilegt námsinnihald á hinum ýmsu sviðum. Ég vil hvetja sem flest fyrirtæki að taka þátt í framadögum, sem haldnir verða föstudaginn 3. mars í hátíðarsal Háskóla íslands. Höfundur er dósent við Háskóla íslands og formaður viðskiptaskorar. !' i ! I 1 ! í I I i í I 1 Dýrasti auðurinn ÉG Á ÞÁ ósk að böm okkar og unglingar hafi ánægðar manneskjur til að leiðbeina sér og leiða í gegnum völdunarhús viskunnar. Manneskjur sem era tilbúnar að gefa af sér, vegna þess að samfélagið kann að meta störf þeirra og ábyrgð. Það vantar ekkert á að við geram kröfur, og þær sífellt meiri, til upp- eldismenntaðra starfsmanna og þeirra sem við treystum fyrir okkar dýrmætasta auði - bömunum okkar; og þannig á það auðvitað að vera. Nútíma þjóðfélag gerir líka meiri og meiri kröfur til menntunar á nánast öllum sviðum. Til eru þeir sem taka svo djúpt í árinni að telja að framtíð þjóðarinnar og sjálfstæði beinlínis velti á góðri menntun og þekkingu þegnanna og vegi þyngra en náttúru- auðlindir. Vel upplýst þjóð sé dýrasti auðurinn. Ég tek undir þetta sjónarmið og eflaust getum við öll verið sammála um að við viljum að kennarar og aðrir þeir sem hafa með uppeldi að gera: - þjálfí hæfíleika bama og Unglinga til sköpun- ar, þroskandi félags- starfs og gagnrýnnar hugsunar; - auki þroska einstakl- inga til að njóta tóm- stunda, - bjóði upp á námsleið- ir sem miðist við hæfí- leika og áhuga hvers og eins, - varðveiti og ávaxti menningararfinn, einkum tungu okk- ar, sögu og þjóðemi, - efli andlegan, sið- gæðislegan og líkam- legan þroska einstakl- inga, þannig að þjóðfélagið eigi jafnan kost á fólki með góða almenna menntun og sérþjálfun á ýmsum sviðum. En hvemig getum við tryggt að þessum mark- miðum verði framfylgt? Mín skoðun er sú að það geram við best með því að koma til móts við kennarana okkar, hefja þá til vegs og virðingar og sýna það í verki að við kunnum að meta þau mikilvægu ábyrgðarstörf sem við fel- Ingunn St. Svavarsdóttir. Framlög til menntamála eiga að hafa forgang, segir Ingunn St. Svav- arsdóttir, sem telur illa búið að kennurum í launum. um þeim. Ég tek heilshugar undir með flokksþingi framsóknarmanna sem haldið var í nóvember sl. sem telur að í ljósi ofangreindra markmiða skuli framlög til menntamála hafa forgang í útgjöldum ríkissjóðs. For- seti okkar, frú Vigdís Finnbogadóttir, vék einnig að gildi menntunarinnar í áramótaræðu sinni og hvatti okkur sérstaklega til dáða á sviði menning- ar- og menntamála. Hér áður fyrr þótti það virðingar- staða að vera kennari. Einhvern veg- inn fínnst mér eins og virðing gagn- vart kennurum í samfélagi okkar hafí glutrast niður og laun þeirra með og er það miður. Virðingarleysi og agaleysti virðist algengara í seinni tið. Eflaust er hér um víxlverkun að ræða, en allt má þó bæta, ef vilji er fyrir hendi og samstilltu átaki er beitt. Við foreldrar getum tekið upp hanskann fyrir kennara barnanna okkar. Þetta eru samstarfsmenn okk- ar í uppeldinu og það er okkur í hgg að þeir séu ánægðir í starfí. Bömun- um líður þá betur, andrúmsloftið í skólunum verður léttara og það skil- ar sér í náminu. Ég skora á foreldra í landinu að sýna í verki að við kunnum að meta störf meðuppalenda okkar og styðj- um kennara í þeirri varnarstöðu sem þeir virðast komnir í - þeir eiga það skilið. Höfundur er sálfræðingur og sveitarstjóri í Öxarfirði. Nezeril* losar um nefstíflur Nezeril* er lyf sem losar um nefstíflur af völdum bólgu í nefslímhúö, t.d. vegna kvefs. Einnig er Nezeril' notaö sem stuöningsmeöferö viö miöeyrnabólgu og ofnæmisbólgum í nefi. Nezerif verkar fljótt og minnkar bólgur í nefi sem gerir þér kleift aö anda eölilega. Mikilvægt er að lesa vandlega leiðbeiningar um skömmtun sem eru á fylgiseöli meö lyfinu. Grœnt Nezeril® ffyrir ung böm Bleikt Nezeril® ffyrir böm mm 05 - W Blátt Nezeril® ffyrir fulloröna Nezerir fæst iapótekinu A Nezerii (oxymetazolin) er lyf oem losar nefstíflur at völdum kvefs Verkun kemur fljótt og varir I 6-8 klst. Aukaverkanir: Staðbundin ertíng kemur fyrir. Varúö: Ekki er ráðlagt að taka lyfiö oftar en 3svar á dag né lengur en 10 daga í senn Aö öörum kosti er hœtta ð myndun lyfjatengdrar nefsltmhimnubólgu. Ne2eril á ekki aö nota yið ofnœmisbólgum f nefi eða langvarandl nefstíflu af öörum toga nema f samráði vlö læknl leitið ttl læknis ef ffkamshiti er hærri en 38.5° C lengur en 3 daga. £f mikill verkur er til staðar, t.d. eyrnaverkur. ber elnníg að leita iæknis. Skömmtun: Skömmtun er einstaklingsbundir.. Lesiö leiðbeiningar sem fyigja hverri pakkníngu lyföins Umboö og dreifing: Pharmaco hf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.