Morgunblaðið - 27.01.1995, Side 25

Morgunblaðið - 27.01.1995, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 1995 25 AÐSEIMDAR GREINAR Tilvísun á sannleikann GUNNAR Ingi Gunnarsson heilsu- gæzlulæknir, sendir mér ókeypis tilvísun í Morgunblaðinu 18. janúar 1995, sem ég þakka. Vill hann að ég taki frekari þátt í um- ræðunni um fyrir- .komulag læknaþjón- ustu. Umræðan rugl- ingsleg fyrir almenn- ing, en hin sorglega sjálfseyðingarhvöt Al- þýðuflokksins er nú slík, að til allra ráða er gripið til að sýnast. Heilbrigðiskerfið og Tryggingarstofnun ríkisin hafa löngum verið helzta áhugamál þessa flokks, sem hefir eignað sér það, rétt eins og öðrum kæmi þetta ekki við. Ég lýsti því í Morgunblaðinu 15. janúar, hvernig sjúkir og heilbrigðir hafa verið sviptir sjálfræði og þeim aukinn kostnaður að áæstðulausu til að þóknast einhveijum dillum í kerfinu og er núverandi umræða um nýtt tilvísanakefi framhald þessa, og engum sjúklingum til gagns né góðs. Auðvitað hefir Al- þýðuflokkurinn ekki byggt upp heilbrigði- skerfið, heldur hefir það verið gert af lækn- um, sem séð hafa um alla læknisþjónustu sjúkra sem heilbrigðra. Þróun í læknisfræði hefir orðið slík á undaf- örnum áratugum, að enginn einn læknir get- ur fylgt þessu eftir. Menntun einstakra lækna, kostuð af þeim sjálfum, hefir fylgt þessari þróun með stöðugt aukinni sérhæfingu, og er fyrirsjáanlegt að framhald verður á þeirri þróun. Það er þannig aug- ljóst, að ósérhæfðir læknar, sem eigi að stjórna og „mjólka“ vinnu sérfræðinganna með tilvísunum, er beint spor afturábak og að setja upp sérstakt kerfi myndi fyrirsjáan- lega falla um sjálft sig, því að inn- an skamms verða allir læknar sér- fræðingar. Engar takmarkanir eru Umræðan um bindandi tilvísanir er alltof ruglingsleg, að mati Önundar Ásgeirsson- ar, sem telur yfirstjórn heilbrigðismála í dapur- legum örlögum. settar um hversu oft ósérhæfðir læknar megi vísa sjúklingi til sér- fræðings. Þeir gætu þannig „mjólk- að“ sérfræðinga sem sjúklinga að vild. Spítalaþjónusta Spítaiar og læknastofur sérfræð- inga eru mjög sérhæfðar stofnanir. Allir sem slasast eða sýkjast vilja njóta þessarar sérhæfingar. Með batnandi samgöngum er nú hægt að koma sjúklingum um langan veg á fullkomna spítala, með sjúkrabíl- um eða þyrlum. Af þessu leiðir að jafnframt fækkar sjúkrahúsum í dreifbýli. Þetta er eðlileg þróun, sem ekki verður stöðvuð, þótt nauð- synlegt verði jafnan að sjá fólki fyrir bráðahjálp. Stjórnun heilbrigðisþjónustu Dapurleg örlög hafa hent yfir- stjórn heilbrigðismálanna á undan- förnum mánuðum og misserum. Fjármálasukk, fláræði og lygar hafa þar verið efst á blaði og meir en nóg af þessu öllu. Hefi ég drep- ið mann, eða hefi ég ekki drepið mann? spurði Jón Hreggviðsson. En það vita allir hveijir sögðu ósatt í ráðuneyti heilbrigðismála, þótt ekkert sé gert í því. Hvernig stendur á þessu? Tveir heilsuráðgjafar segja ríkislögmann og ráðherra fara með rangt mál. Er allt í lagi, þótt yfirstjórn heil- brigðismála og heilt ráðuneyti, allt upp í ráðherra, sé gert fullkomlega ótrúverðugt? Þar er engum að treysta. Þetta eru óviðunandi óheil- indi. Það eru engir peningar til að greiða sjúkraliðum laun (60.000), hjúkrunarkonum (100.000), lækn- Önundur Ásgeirsson Skoðanakannanir meðal íslenskra grunnskólaslg óra og Kúbumanna FLÓTTAMENN frá Kúbu, andstæðingar Castrós, létu gera skoðanakönnun á Kúbu á vegum Gallup, um viðhorf íbúanna til stjómar Castros, eftir 30 ára valdaferil. Nið- urstöðurnar urðu frumkvöðlum skoð- anakönnunarinnar vonbrigði (Spiegel 9.1. ’95). Nokkur meiri- hluti svarenda var ánægður með mat- vælaframboðið. Mikill meirihluti ánægður með heilbrigðisþjón- ustuna og meginhluti þeirra sem svöruðu, harla ánægður með uppeldi og fræðslukerfi. Þetta var fyrsta óhlutdræga skoðana- könnunin sem gerð var á Kúbu undanfarin 30 ár. íbúarnir virðast mjög óánægðir með fræðslukerfið og þar með sáttir við þá heimsmynd sem þar er dregin upp, sem er vita- skuld heimsmyna hins „vísindalega sósíali_sma“, félagshyggju og jafn- aðar. í 30 ár hefur skólakerfið ver- ið ríkisrekið og námsgögn og kennslubækur mótaðar í anda sögu- legrar efnishyggju, marxisma og lenínisma. Innrætingin hefur tekist vel og þrátt fyrir að hluti íbúanna kjósi ekk- ert frekar en að hverfa úr landi, þá virðist meiri hluti þeirra una glaður við sitt, ekki síst við uppfræðsluna, ánægður með kennsl- una og kennslubæk- urnar, sem kúbversk námsgagnastofnun lætur gera samkvæmt ríkjandi fræðslustefnu „til nýrrar aldar á Kúbu“ og dreifir ókeypis meðal nem- enda og kennara. Á sömu misserum og skoðanakönnunin fór fram á Kúbu, fór fram skoðana- könnun að tilhlutan Námsgagna- stofnunar á íslandi (Ný menntamál 4. tbl. ’94). Sérfræðingur um áhrif kennslubóka á nám við Kennarahá- skóla íslands, var fenginn til þess að vinna þetta verkefni fyrir Náms- gagnastofnun, „sem veitti styrk til verkefnisins". Spurt var um þjón- ustu stofnunarinnar við grunnskóla, allt frá sölu blýanta og pappírs, stílabóka og hringfara til náms- bókagerðar og útgáfubóka. Könnuð voru viðbrögð skólastjóra 200 grunnskóla, aðstoðarskólastjóra og Leitast er við að innræta andúð á borgaralegu lýðræði, eignarrétti og persónufrelsi, segir Siglaugur Brynleifs- son, í anda blaut- hyggju-marxisma. 5 kennara, „þar af eins leiðbein- anda“. Niðurstöðurnar voru mjög já- kvæðar fyrir Námsgagnastofnun, því að „90% viðmælenda töldu stofnunina rækja hlutverk sitt vel eða mjög vel“. Námsgagnastofnun er ríkisrekið fyrirtæki og hefur undanfarna tvo áratugi verið mótuð af ríkjandi fræðslustefnu, sem hefur skilað þeim árangri að fallprósentan er um 25% eftir grunnskóla og mark- tæk afturför virðist einkenna lestr- arkunnáttu og þekkingu á sögu þjóðarinnar og bókmenntum. En hinir 200 skólastjórar og aðstoðar- skólastjórar ásamt 4 kennurum og einum leiðbeinanda, sem leitað var svara hjá, virðist flestir ánægðir með fræðslustefnuna og námsbæk- urnar og kjósa sér framhald starf- seminnar. Hver er þessi fræðslustefna? Sé námsefni í samfélagsfræði athugað, þá markast það af hugmyndafræð- um marxista, sögulegri efnishyggju ásamt blauthyggju-marxisma ’68 kynslóðarinnar. Þessi stefna er ber- lega ljós í kennslubókum í íslands- sögu og mannkynssögu, sem gefnar eru út af Námsgagnastofnun eða keyptar að, til dreifingar frá stofn- uninni. Leitast er við að innræta nemendum andúð á borgaralegu lýðræð, persónufrelsi, eignarrétti, jafnrétti fyrir lögunum og fulltrúa- lýðræði. Saga liðinna alda er skekkt og björguð og metin frá pólitískum viðhorfum marxista. í bókmenntum er enginn áherslumunur gerður á vönduðu og óvönduðu efni og í „sið- fræði“ er enginn munur góðs og ills. Hliðstæð hugmyndafræði hefur markað kúbverskt samfélag undan- . farin 30 ár. Innrætingin hefur tek- ist vel á Kúbu og undanfarna ára- tugi hefur samskonar innræting tekist ámóta vel innan samfélags íslenskra grunnskólastjóra. Náms- gagnastofnun má vel við una. Höfundur er rithöfundur. Siglaugur Brynleifsson um á spítölum (140.000), prófessor- um eða yfirlæknum (180.000) en það eru til nógir peningar í allskon- ar óþarfar byggingar. Hér koma nokkur dæmi um ruglið: Landakotsspítali. Elsti spítali landsins og einn sérhæfðasti. Gjafa- bréfi nunnanna brigðað og troðið á rétti þeirra. Öll þjóðin fyrirverður sig fyrir ófyrirleitnina. Afnot nú óljóst klúður. Nýbygging við Fjórðungssjúkra- húsið á Akureyri. Nokkur hundruð milljónir. Þörf og afnot óljós, enda ekki gerð grein fyrir þessu. Nýr barnaspítali Hringsins í Reykjavík. Áætlað 600-800 millj- ónir. Þörfin óljós, en Kvenfélagið Hringurinn hefir saknað 100 millj- ónum. Hæglega mætti koma barna- deildinni fyrir á Landakoti eða arin- ars staðar. Fæðingarheimili Reykjavíkur. Sett í bann eða leyst úr banni hálfs- árslega, til að sýna almenningi vald og vizku stjórnendanna. Nýleg heilsugæzlustöð í Breið- holti í Reykjavík. 150 milljónir. Sérgrein: Tilvísanir á eyðublöðum TR til sérfræðinga. Við Læknasetr- ið í Breiðholti starfa 29 sérfræðing- ar í eigin húsnæði, útgjaldalaust fyrir ríkissjóð og þjóna öllum, með eða án tilvísunar. Ég læt þessari upptalningu lokið. Hinn djúpvitri hugsuður, G.I.G., getur sjálfur bætt við. Hann er nefnilega „einn af þeim, sem vill koma stjórnun á alla þá læknisþjón- ustu, sem er niðurgreidd af skatt- greiðendum“. Hann fær kveðju mína og samúð, en ekki annað. Ég held hann hafi dagað uppi. Sann- leikurinn er alltaf sagna beztur, þótt hér sem oftar sé hann allt of hljóðlátur. Höfundur er fyrrverandi forstjóri Olís. WILO Miðstöðvardælur Haqstætt verð SINDRI - sterkur í verki BORGARTÚNI 31 ■ SÍMI 562 72 22 sparískírteina 10. febrúar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.