Morgunblaðið - 27.01.1995, Page 32

Morgunblaðið - 27.01.1995, Page 32
32 FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ SVANLAUG SIG URÐARDÓTTIR + Svanlaug Sig- urðardóttir fæddist í Reylgavík 21. október 1929. Hún lést á Hjúkr- unarheimilinu Sunnuhlíð 18. janúar síðastiiðinn. For- eldrar hennar voru Sigurður Guð- mundsson ljósmynd- ari, f. 14. ágúst 1900, d. 24. desember 1986, og Ingibjörg Guðbjarnadóttir húsmóðir, f. 22. júlí 1903, d. 25. mars 1982. Systur Svan- laugar eru Guðný, f. 23. sept- ember 1943, og Sigríður, f. 3. janúar 1945. 26. mars 1949 giftist Svanlaug Pétri H. Siguijónssyni starfs- manni hjá Eimskip, f. 1. desem- ber 1926, d. 3. mars 1994. For- eldrar hans eru Maria Péturs- dóttir, f. 17. nóvember 1903, og Sigurjón Sigurðsson, f. 19. ágúst 1899, d. 26. mars 1980. Böm Svan- laugar og Péturs em Sigurður, f. 21. juní 1946, kvæntur Ólafíu K. Kristófers- dóttur; Siguijón Már, f. 22. ágúst 1949, kvæntur Birau Sverrisdóttur, Inga Hrönn, f. 18. febr- úar 1951, gift Áma Erlendssyni; María, f. 5. júní 1952, gift Sævari Hlöðvers- syni; Elínborg, f. 12. júlí 1953, gift Hjálm- ari Hlöðverssyni; Guðný Zíta, f. 30. september 1954, gift Jónasi Kristmunds- syni; Pétur, f. 25. nóvember 1956, kvæntur Jónínu G. Hall- dórsdóttur; og Hannes, f. 30. desember, kvæntur Halldóru Kristjánsdóttur. Bamabömin em 26 og barnabarnabömin em 8. Útför Svanlaugar fer fram í Kristskirkju, Landakoti, í dag. í DAG kveðjum við systur mína Svanlaugu Sigurðardóttur, en hún hafði átt við heilsuleysi að stríða síðustu 13 árin. Hallý eins og hún var kölluð fékk hjartaáfall er-leiddi til súrefnisskorts í heila, það gerði þessa lífsglöðu og athafnasömu konu ófæra um að tjá tilfinningar sínar öll þessi ár. Hallý var ung að árum þegar hún hitti lífsförunaut sinn Pétur Siguijónsson. Þau bjuggu fyrstu tvö árin á heimili foreldra minna, Sólbakka við Laugalæk, þar sem fæddist fyrsta bamið sem er einungis einu og hálfu ári yngra en ég. Þá var Sólbakki í úthverfi Reykjavíkur, lækurinn rann við hús- vegginn, og víðáttan óendanleg að manni fannst. Fyrsta íbúðin þeirra var í Mjóuhlíð 8, en þar sem bömin fæddust svo ört, varð hún fljótlega of lítil. Það var svo árið 1954 sem þau réðust í að kaupa húsið á Kárs- nesbraut 21 í Kópavogi. Þar bjuggu þau allan sinn búskap. Þegar systir mín var rúmlega þrítug eignaðist hún áttunda og síðasta bamið. Þau áttu bamaláni að fagna en það þurfti útsjónarsemi og dugnað til að hafa ofan í þau og á. Mágur minn vann hjá Eimskip svo lengi sem ég man, ég held að hann hafi nánast aldrei vantað til vinnu. Þau vom með hæn- ur, seldu egg til margra ára. Hallý hlífði sér aldrei, hún sat við sauma langt fram á nætur. Hún saumaði nánast allt á bömin og seinna meir vann hún við saumaskap bæði heima og úti á vinnumarkaðnum. Ég minn- ist þess þegar sauma þurfti jólafötin á allan hópinn, þá var oft reynt að létta undir með því að leyfa tveimur til þremur bömum að koma í heim- sókn í tvær, þijár nætur. Svo þegar aðfangadagur rann upp, fannst manni oft erfítt að bíða eftir að all- ur skarinn mætti í nýju jólafötunum. Þá var oft glatt á hjalla á Sólbakka, það þýddi lítið að reyna að hlusta á jólamessuna í útvarpinu þau árin. Já, það er margs að minnast þegar leitað er í minningasjóð liðinna ára. Síðustu árin sem Hallý var heil- brigð var róðurinn heldur farinn að léttast, börnin stofnuðu heimili eitt af öðru. Þá létu Hallý og Pétur það eftir sér, sem lengi hafði verið draumur, að eignast tjaldvagn. Þau nutu þess að vera úti í náttúmnni, því þar áttu þau sameiginlegt áhuga- mál. Þá slógumst við hjónin oft í hópinn, við áttum nokkra uppáhalds- staði eins og t.d. á Þingvöllum, í Grafningi, í Borgarfirði og Þjórsárd- al. Þá naut hin skemmtilega frá- sagnargleði Péturs sín, því hann var minnugur og fróður. Alltaf var harmoníkan með í ferð og þá var oft setið við varðeld, sungið og jafn- vel dansað. Elsku systir, það er margs að minnast, ég sótti alla tíð mikið til þín í Kópavoginn. Sem barn til að aðstoða við bamapössun því það þótti sjálfsagt að létta undir því næg voru verkefnin. Hvergi viidi ég frek- ar vera þegar foreldrar mínir fóru utan og sem unglingur leitaði ég til þín eftir ráðleggingum, þú tókst þátt í öllum mínum málum þrátt fyrir þinn stóra bamahóp. Þegar mig sem unga móður vantaði úrræði var hringt til þín, því þú áttir alltaf ráð. Seinni árin var Hallý virkur þátt- takandi í félagsmálum. Hún starfaði í nokkur ár í foreldrafélagi Öskju- hlíðarskóla og var einn af stofnend- um Urtanna en það var stofnað af mæðnim starfandi skáta í Kópa- vogi. í Urtunum eignaðist hún marg- ar góðar vinkonur sem öll þessi ár hafa haldið tryggð við hana. Mig langar að þakka þeim fyrir hönd fjöl- skyldunnar og einnig viljum við senda starfsfólki í Hjúkmnarheimil- inu Sunnuhlíð innilegar þakkir fyrir alla þá umhyggju sem henni hefur verið veitt. Kveðja. Sigríður Sigurðardóttir. Svanlaug Sigurðardóttir félagi okkar í kvennadeildinni Urtum er látin. Það kom engum á óvart. Að fá hvíld frá erfíðum veikindum sem staðið hafa í mörg ár er lausn þess, sem bíður, langþráð von um að það birti, og það sem okkar allra bíður að lokum, hin ljúfa hvíld að loknu dagsverki hér á jörðinni. Þar sem löng og erfíð veikindi hafa hijáð vin- konu okkar, fer ekki hjá því að sam- band minnki. Hún var á margan hátt sérstök kona. Við ræddum um hana okkar á milli eins og hún hefði verið með okkur öllu jafna. Oft minntumst við skemmtilegra stunda, sem við höfðum átt saman og hún átti stóran hlut að. Við vinkonumar viljum þakka 'henni margar gleði- stundir, þakka henni ósérhlífni í þeirri vinnu, sem hún lagði fram i félagsstarfí okkar, þakka henni þá fallegu hluti, sem hún gerði og allt okkar samstarf, bæði í leik og í starfi. Við þökkum henni gleðina og hláturinn, sem hún átti þátt í með okkur. Hún Hallý, eins og hún var kölluð á meðal vina, gleymdist okkur ekki þó svo að leiðir skildu allt of fljótt í lifanda lífí. Við höfum saknað hennar á meðal okkar, en erum þakklátar æðri máttarvöldum fyrir að veita henni að lokum langþráða hvíld. Við vinkonurnar kveðjum með virðingu og þökk. Fyrir hönd Urtanna, Dóra. MINNINGARKORT HGarðsApótek s. 568-0990 5TYKKTAKFÉLAG Reykjavíkur-Apótek s. 551-1760 KKABGAMLI'nSSIÚK.KA P.aRMA S. 567-6020 MINNINGAR ASTA KRISTIN KRISTENSEN -4- Ásta Kristín * Kristensen fæddist á Þormóðs- stöðum í Skeijafirði 10. desember 1923. Hún lést á Landspít- alanum 19. janúar 1995. Foreldrar hennar voru Ingi- björg Þórðardóttir frá Efraseli, Stokkseyrarhreppi, og Ame Kristensen frá Noregi. Hún var sjöunda í röðinni af tíu systkinum: Ing- var (látinn), Sigurl- ín, Anna, Eðvarð, Þórður, Hlín (látin), Friðrik, Baldur og Sonja. Hinn 8. febrúar 1958 giftist Ásta eftirlifandi manni sínum, Einari Kr. Jósteinssyni. Þau eignuðust fjögur böm. Þau em: Ingibjörg, Ami, Jósteinn ogLilja. Útför Ástu fer fram frá Nes- kirkju í dag. ELSKU AMMA. Okkur langar til að þakka þér allt sem þú hefur gert fyrir okkur, alla þá umhyggju sem þú hefur sýnt okkur. Þú ert farin í það langa ferðalag sem bíð- ur okkar allra og það er erfítt að kveðja þig. En við vitum að þér líð- ur vel núna. Þú ert komin til okkar himneska föður og ástvina þinna sem kvatt hafa á undan. Við gleym- um því aldrei hve gott var að koma heim til þín og borða góða matinn þinn og kökurnar þínar. Við þökkum þér fyrir öll fötin sem þú svo listilega saumaðir á okkur. Við fundum það svo vel að þú barst mikla umhyggju fyrir okk- ur og ávallt varstu boð- in og búin til að taka á móti okkur og hjálpa. Jólaboðin heima hjá þér og afa verða aldrei eins eftir að þú ert far- in, en við eigum dýr- mætar minningar um þig og þær stundir, elsku amma. Þær geymum við ávallt í hjarta okkar. Við biðjum Guð að taka vel á móti þér í sínum bústað og að blessa afa í hans sorg- um. Við kveðjum þig, elsku amma, með þessum ljóðlínum eftir Elínu Eiríksdóttur: Jörðin leggst í langan vetrardvala. Lífíð sefur rótt um myrkra stund. En seinna kemur sumarrós á bala og sólin kyssir lautir, hæðir, sund. Þannig lífið einlægt áfram heldur 9g ávallt sigrar myrkur, dauða, þraut. í sálu manns er óslökkvandi eldur og er í leit að nýrri þroskabraut. Einar Már, Lára Ósk og Sóley Birta. Við mæðgur vildum í fáeinum orðum minnast kærrar tengdamóð- ur og ömmu, Ástu K. Kristensen. Margar góðar minningar koma upp í hugann frá samverustundum liðinna ára. Ásta var ákaflega fé- lagslynd og hjálpsöm kona og naut sín vel í hópi ættingja og vina. Hún var alltaf tilbúin að rétta hjálpar- hönd, ekki síst ef það snart barna- bömin. Þau sóttu mikið í félagsskap afa og ömmu, því þar var vel tekið á móti þeim og margt skemmtilegt gert. SIGURBORG ARNY GUÐMUNDSDÓTTIR + Sigurborg Ámý Guðmundsdóttir var fædd á Eyri í Skötufirði 14. ágúst 1928. Hún lést í snjó- flóðinu sem féll á Súðavík 16. janúar síðastliðinn. For- eldrar hennar vom Sigríður Jónatans- dóttir og Guðmund- ur Finnbogi Helga- son bóndi á Eyri. Hún átti einn hálf- bróður, Matthías fs- fjörð Guðmundsson. Eiginmaður Sigur- borgar var Ingibjartur Jón Helgason, f. 26.12. 1906, d. 8.5. 1978. Þau eignuðust þijú böm, þau em: Barði, f. 17.7. 1955, hans kona er Oddný Elínborg Bergsdóttir. Böra þeirra em: Ingibjartur Már, f. 14.5. 1980, Gyða Borg, f. 5.1. 1984, og Haf- ÞAÐ VAR dapur dagur mánudagur- inn 16. janúar þegar útvarpið flutti þær fréttir að snjóflóð hefði fallið á Súðavík. Stuttu síðar fréttum við að húsið hennar Boggu hefði lent í flóð- inu og að hún væri dáin. Þrettán aðrir Súðvíkingar létu lífíð í þessum hræðilegu náttúruhamfömm. Ég vil votta öllum sem misstu þar ástvini innilega samúð mína og minnar fjöl- skyldu. Bogga, eins og hún var alítaf kölluð, ólst upp á Eyri í Skötufirði. Móður sína missti hún þegar hún var aðeins átta ára gömul. Eftir það ólst hún upp ásamt Matthíasi bróður sín- um hjá föður þeirra og ömmu, Maríu Elísabet Jónsdóttur, sem reyndist þeim systkinum eins og besta móðir. Hún gekk í bamaskóla á ísafirði. Um 18 ára aldur fór hún að heiman í atvinnuleit. Hún var á ísafirði vetr- arstúlka hjá sýslumannshjónunum Jóhanni Gunnari og hans konu, marga vetur hjá Hans Svane og Fríðu apótekarahjónum, einnig var hún í llði Emil, f. 6.9. 1993. María Sigríð- ur, f. 22.11. 1956. Hennar börn era: Kristján Haukur, f. 12.11. 1981, Sigur- borg Eva, f. 8.11. 1983, d. 4.3. 1984, og Ingibjört Eva, f. 16.3. 1986. Guðrún Björg, f. 11.7. 1958. Hennar börn era: Fjóla, f. 4.3. 1988, og Björk, f. 15.2. 1990. Áður átti Ingp- bjartur soninn Björa, sem á eina dóttur, þau búa í Reykjavík. Sig- urborg og Ingibjartur bjuggu á Hesti í Hestfirði.en fluttu síðan til Súðavíkur. Síðustu árin bjó Sigurborg í húsi sínu á Njarðar- braut 10. Útför Sigurborgar fer fram frá Súðavíkurkirkju í dag. vist í Reykjavík og kaupakona á Munkaþverá í Eyjafirði. Þangað til að hún stofnaði sitt eigið heimili var hún heima af og til hjá pabba sínum og bróður, fyrst á Eyri og síðan á Hvítanesi, enn þangað fluttu þeir feðgar vorið 1948. Mörg síðustu árin vann hún í Rækjuvinslunni í Súða- vík. Ég kynntist Boggu fyrst þegar við vorum ungar stúlkur á Ísafírði. Urðum við mjög góðar vinkonur og hélst sú vinátta æ síðan. Seinna átti hún eftir að verða mágkona mín, þegar ég giftist Matthíasi bróðir hennar. Bogga var ákaflega traust og góð manneskja, dul í skapi, hlé- dræg og flíkaði ekki tilfinningum sínum. Hún var ekki allra, en vinur vina sinna og í þeirra hópi kát og létt í máli, fyndin í tilsvörum, enda bráð- vel gefin. Hennar mesta hamingja og þeirra hjóna beggja, var að sjá bömin sín þrjú vaxa upp hraust og myndarleg, og verða að góðu og dugmiklu fólki, sem þau gátu verið Ásta var lærð saumakona og vann við það starf þar til fyrir fáein- um árum. Saumaskapurinn var hennar helsta áhugamál og hún naut sín vel við þá iðju enda afar lagin. Tengdadóttirin naut oft góðs af kunnáttu Ástu. Þá var líka gott að hafa tímann fyrir sér, því Ásta var mjög vandvirk og þrautseig og hætti ekki fyrr en hún sá að nem- andinn kæmist skammlaust frá verkinu. Það varð Ástu afar erfítt þegar hún vegna lömunar í hendi gat ekki lengur stundað sauma- skapinn. Einar afí hefur staðið eins og klettur við hlið Ástu í erfiðum veik- indum. Honum vottum við innilega samúð. Ástu þökkum við samfylgdina. Þóra, Ólöf Ásta og Hildur. Það var lærdómsríkt að fá að kynnast konu eins og Ástu. Við unnum saman í mörg ár og eftir því sem við kynntumst henni betur því meira mátum við hana. Hún kom í vinnuna á hveijum degi prúð- búin og fín. Háttvísi og prúð- mennska einkenndu hana. Hún var líka svo félagslynd og naut sín vel í góðum vinahóp. Oft sátum við í kaffítímanum og spjölluðum um heima og geima og aldrei var kímn- in langt undan. En alltaf var fjöl- skyldan henni efst í huga og margt skemmtilegt sagði hún okkur af barnabömunum. Ásta var kjólameistari að mennt og svo vandvirk og smekkvís að eftir var tekið. Eins var um önnur störf er hún leysti af hendi, allt var það einstakt og fengum við oft að njóta þess í góðgjörðum sem hún veitti okkur. Á kveðjustund er okkur þakklæti í huga. Það er yndislegt að eiga minninguna um hana Ástu. Við vottum eiginmanni hennar og fjöl- skyldu okkar dýpstu samúð. Samstarfsfólk. stolt af. Ég þakka Boggu fyrir ára- tuga langa vináttu, fyrir allar góðu og skemmtilegu stundirnar sem við áttum saman og líka fyrir hinar sem vom erfiðari , það var alltaf gott að hafa hana nálægt sér. Ég heyrði síð- ast í Boggu á jóladagskvöld þegar hún hringdi og átti við okkur óvenju langt símtal. Ekki gmnaði mig þá að þetta yrði það síðasta. Elsku Barði, Oddný, Maja, Gunna og öll ömmubömin, það er sárt að sjá á eftir elskulegri móður, tengdamóður og ömmu á svo sviplegan hátt, en tíminn sefar sorgina og minningarn- ar lifa þó maðurinn deyi. Bogga á eftir að lifa með okkur í minningun- um um ókomin ár, þar til við hittum hana aftur í eilífðarlandinu. Guð blessi minningu hennar og framtíð allra þeirra sem vom henni kærir. Ég læt hér fylgja lítið ljóð eftir föður hennar, Guðmund Finnboga Helga- son. Ég vil sofna sætt og rótt sofna i Jesú nafni. Dagur líður dimmir ótt drottinn lát mig sofa rótt, augum loka í Jesú náðar nafni. Bak við húmsins rökkurró roða af nýjum degi. Augun þreyttu eygja þó er það dýrust hjartans fró, ljós þitt Jesú lýsi mína vegi. (G.F.H.) Margrét Árnadóttir. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vöm í nótt. Æ, virzt mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofí rótt. (Þýð. S. Egilsson) Ég fel í forgá þína, Guð faðir, sálu mína því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll bömin þín, svo blundi rótt. (M. Joch.) Þórhallur, Amheiður, Guðmundur Ámi og Heiðar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.