Morgunblaðið - 27.01.1995, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 1995 4L
BRÉF TIL BLAÐSINS
Athugasemd við Arbók
Ferðafélags Islands 1994
„Kjarkmaður Kolbeinn í Dal“
Frá Darn'el Ágústínussýni:
í MBL. 15. janúar sl. er ítarleg at-
hugasemd við frásögn í nefndu ársriti
af strandi Goðafoss við Straumnes-
íjall 1916. Hún rifjaði upp fyrir mér
aðra frásögn er ég varð var við nokkru
eftir að ritið kom út á sl. vori. Sú var
af Kolbeini Jakobssyni bónda í Un-
aðsdal á Snæijaliaströnd og hvernig
orðtakið „kjarkmaður Kolbeinn í Dal“
varð til. Sagan um Kolbein í Dal í
ársriti Ferðafélagsins er algert rugl
og visar í engu til uppruna orðtaksins.
í ársritinu er sagan þannig: Kol-
beinn var formaður á árabát og rær
eldsnemma að morgni frá ströndinni
neðan við Unaðsdal. Fljótlega verður
hann þess var að sjóvettlingum sínum
hafði hann gleymt heima í bæ. Var
nú snúið aftur til lands. Kolbeinn skýst
heim eftir vettlingunum og mætir árr-
isulli vinnukonu sinni í göngunum
fyrir framan hjónaherbergið, þar sem
kona hans svaf enn. Það skipti engum
togum að hann gerir vinnukonunni
bam í göngunum og fór síðan í róður
eins og ætlað var. Af mörgum ástæð-
um er saga þessi alveg fráleit. Skal
bent á eftirgreind atriði:
1. Það er mjög ólíklegt að Kol-
beinn, sem var dugnaðarforkur og
hugmaður mikill, hefði snúið við af
ekki meira tilefni, enda sjálfsagt nóg
af vettlingum um borð.
2. Það er alllangur vegur frá
ströndinni upp að Unaðsdal og tekur
vafalaust klukkustund eða meir að
ganga þá ieið fram og til baka.
3. Hefði Kolbeinn ekki getað róið
án vettlinganna er líklegast að hann
hefði sent sporléttan ungling eftir
þeim og beðið sjálfur með áhöfninni
í bátnum.
4. Það er ótrúlegt að Kolbeinn hefði
gefíð sér tíma til að bauka við kven-
mann eftir langa göngu, vitandi að
öll skipshöfnin beið eftir honum. Slík-
ur höfðingi sem Kolbeinn var, hefði
heldur aldrei valið þennan stað til
slíkra verka.
5. Og það sem mestu máli skiptir:
Frásögn þessi gefur ekki nokkurt til-
efni til hinna fleygu orða Magnúsar
sýslumanns: Kjarkmaður Kolbeinn í
Dal.
Mag-nús Torfason segir frá
Það vill svo til að ég hlustaði á
Magnús Torfason segja frá atburði
þessum í febrúar eða mars 1941.
Hann var þá 72 ára að aldri og skil-
merkilegasti í allri frásögn. Við urðum
samferða í bifreið frá Reykjavík aust-
ur að Selfossi, en vinur hans hafði
boðið honum með. Auk þess var sér-
stakur bifreiðastjóri. Við Magnús sát-
um saman í aftursætinu. Vinur Magn-
úsar var einstaklega laginn við að fá
upp hjá honum sögur af ýmsum réttar-
höldum á 42 ára sýslumannsferli hans
í 3 lögsagnarumdæmum, einkum
bamsfaðemismálum, sem hann var
kunnur fyrir. Þetta var því afar fróð-
leg og eftirminnileg ferð. Magnúsi var
ekki nægilegt að einhver maður sem
kona visaði á sem föður að bami sínu
játaði faðemið heldur vildi hann fá
nákvæma lýsingu á þvi hvemig samf-
arimar hefðu gengið fyrir sig og lét
bóka allt slíkt mjög nákvæmlega. Með
þessu taldi Magnús minni hættu á því
að viðkomandi breytti framburði sín-
um síðar.
Magnús Torfason var sýslumaður
í ísafjarðarsýslum og bæjarfógeti á
ísafirði 1904-1921. Eftir það í Ames-
sýslu til 1937. Vel metinn og röggsam-
ur sýslumaður, sem kom víða við á
löngum starfsferli sínum. í stuttu
máli var frásögn Magnúsar á þessa
leið:
Kolbeinn Jakobsson hreppstjóri í
Unaðsdal á Snæijallaströnd var karl-
menni mikið og dugnaðarbóndi. Vel
greindur og harðskeyttur. Jafnframt
gerði hann út áraskip og var formað-
ur á einu þeirra. Hann byggði sjóbúð
niður við ströndina, sem var ein hæð
og ris. Veggir vom hlaðnir úr gijóti
en risið var gert úr timbri. Bæði hæð-
inni og risinu var skipt í tvennt með
þunnu panilþili. Á neðri hæðinni var
suðurendinn notaður fyrir aflann, sem
að mestum hluta var saltaður, en
norðurhlutinn fyrir eldamennsku og
þar var borðað í landlegum. Á loftinu
sváfu sjómenn í norðurendanum. Þar
vom rúm meðfram veggjum báðum
megin og sváfu 2 í hverju þeirra. Á
suðurloftinu vom geymd veiðarfæri
og í landlegum unnu sjómenn þar að
lagfæringu þeirra og endurbótum.
Ráðskona var í sjóbúðinni, sem annað-
ist matseld fyrir sjómennina, ennfrem-
ur þrifnað og þjónustubrögð að ein-
hveiju leyti.
Það skeður svo eitt árið að ráðskon-
an verður ófrísk og nefnir Kolbein sem
föður að bami sínu. „Ég kallaði Kol-
bein fyrir rétt nokkm síðar,“ sagði
Magnús. „Hann meðgekk bamið eftir
nokkrar vifillengjur. Eg lét hann lýsa
nákvæmlega hvemig samfarir þeirra
fóm fram og hvar, svo þar færi ekk-
ert á milli mála. Kolbeinn lýsti þeim
þannig: Það var vont veður þennan
dag og því ekki farið á sjó. Piltanir
vom allir að vinna á suðurloftinu við
endurbætur á veiðarfæmm en ég var
að vinna úti við. Nokkm fyrir hádegi
kem ég inn og bið ráðskonuna um
kaffísopa. Að því búnu bið ég hana
að koma með mér upp á norðurloftið,
sem var svefnstaður piltanna og kom-
um við okkur fyrir í rúmi því sem var
á bakvið hurðina, sem þá stóð í hálfa
gátt. Þar gerðist þetta. Ég spurði
Kolbein: „Léstu ekki hurðina aftur
meðan athöfnin stóð yfir?“ „Nei,“
svaraði Kolbeinn. „Ég lét hana standa
í áfram í hálfa gátt, því þá gmnaði
piltana ekki neitt. Annars hefðu þeir
farið að forvitnast um það, sem væri
að gerast á norðurloftinu." Þá sagði
ég að bragði: „Ja, kjarkmaður Kol-
beinn í Dal.““ Með þessum hætti varð
hin fleyga setning til.
Ég heyrði setningu þessa fyrst af
vömm ræðumanns á Selfossi 1935,
sem taldi andstæðing sinn óþarflega
kokhraustan. Vissi ekkert hvaðan hún
var uppmnnin. Því lagði ég hlustimar
vel við framangreindri frásögn Magn-
úsar Torfasonar. Kolbeinn í Dal mun
einnig hafa gert út frá Gullhúsá á
Snæfjallaströnd, sem er miklu utar og
nær fískimiðunum. Hugsanlegt er að
umrædd sjóbúð hafi staðið þar. Það
skiptir þó ekki máli í sambandi við þær
skýringar sem hér em settar fram.
DANÍEL ÁGÚSTÍNUSSON,
Háholti 7, Akranesi.
RAÐAUGi YSINGAR
Kvóti til sölu
Eftirtaldar varanlegar aflaheimildir eru
til sölu:
Þorskur 11.672 kg., ýsa 1.338 kg., ufsi 766
kg., skarkoli 2.200 kg. Allt óveitt innan ársins.
Upplýsingar í síma 94-4144.
HEIMILI OG SKÓLI
Aðalfundur
Aðalfundur Heimilis og skóla verður haldinn
í Litlu Brekku við Lækjargötu fimmtudaginn
9. febrúar kl. 20.30.
Nánar auglýst síðar.
Pels misfórst í Perlunni
Svo virðist sem pels hafi verið tekinn í mis-
gripum sunnudaginn 15. janúar. Pelsinn er
hálfsíður minkapels, dökkbrúnn að lit, með
mjög stórum kraga. Er sárt saknað - hér
er um erfðagrip að ræða.
Góðum fundarlaunum heitið.
Upplýsingar í síma 5620-200.
P E R L A N
' ^ NAUÐUNGARSAÍA
Byrjun uppboðs
Byrjun uppboðs á neðangreindum fasteignum í Vestmannaeyjum
verður háð á skrifstofu sýslumannsins f Vestmannaeyjum, Heiðar-
vegi 15, 2. hæð, fimmtudaginn 2. febrúar 1995, kl. 10.00:
1. Faxastígur 4, risíbúð, þinglýst eign Önnu Margrethe Klein, eftir
kröfu Búnaðarbanka fslands.
2. Hásteinsvegur 11, þinglýst eign Guðbjarts Andréssonar, eftir
kröfu Vouge hf.
3. Kirkjuvegur 17, þinglýst eign Ölvers Jónssonar, eftir kröfu Ríkis-
sjóðs.
Sýstumaðurinn í Vestmannaeyjum,
27. janúar 1995.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Hörðuvöllum 1,
Selfossi, þriðjudaginn 31. janúar 1995, kl. 10.00, á eftirfarandi eignum:
Arnarheiði 27, Hveragerði, þingl. eig. Hveragerðisbær, gerðarbeið-
andi er Byggingarsjóður verkamanna.
Hreiður, Laugarvatni, þingl. eig. Haukur Helgason, Svala Helgadótt-
ir, Erla Helgadóttir, Valur Helgason og Þröstur Helgason, gerðarbeið-
andi er Búnaðarbanki (slands.
Háeyrarvellir 16, Eyrarbakka, þingl. eig. Kjartan Valdimarsson og
Aðalheiður Harðardóttir, gerðarbeiðandi er Byggingarsjóður ríkisins,
húsbréfadeild.
Högnastígur 21, Flúðum, Hrun., þingl. eig. Guðmundur Jónasson,
gerðarþeiðendur eru Byggingarsjóður rfkisins og Húsasmiöjan hf.
Kléberg 3, Þorlákshöfn, þingl. eig. Gísli G. Jónsson og Vigdís Helga-
dóttir, gerðarbeiðendur eru Byggingarsjóður ríkisins, Tryggingamið-
stöðin og Sameinaði lífeyrissjóðurinn.
Jörðin Kjóastaðir II, Bisk. þingl. eig. Árni Leósson, gerðarþeiðendur
eru Stofnlánadeild landþúnaðarins og Biskupstungnahreppur.
Laufskógar 33, Hveragerði, þingl, eig. Sigurbjörg Birgisdóttir, gerðar-
beiðendur eru Gjaldheimtan i Reykjavík og tollstjórinn í Reykjavík.
Laufskógar 9, Hveragerði, þingl. eig. Sveinþjörg Brynja Jónsdóttir,
gerðarbeiðendur eru sýslumaðurinn á Selfossi og Sameinaði lífeyris-
sjóðurinn.
Lyngheiði 23, Hveragerði, þingl. eig. Sigurður Þ. Jakoþsson, gerðar-
beiöendur eru sýslumaðurinn á Selfossi og Lífeyrissj. Tæknifræðinga-
félags Islands.
Merkisteinn, A-hluti, Eyrarbakka, þingl. eig. Helgi Guðmundsson,
gerðarþeiðandi er Byggingarsjóður ríkisins.
Nesbrú 3, Eyrarbakka, þingl. eig. Nesþrún hf., gerðarbeiðandi er
Eyrarbakkahreppur.
Oddabraut 4, n.h., Þorlákshöfn, þingl. eig. Selma Hrönn Róbertsdótt-
ir, gerðarbeiðendur eru Lífeyrissj. hjúkrunarkvenna og Búnaöarbanki
Islands.
Reykjabraut 3, Þorlákshöfn, þingl. eig. Selma Hrönn Róþertsdóttir,
gerðarbeiðendur eru Byggingarsjóður ríkisins, Lögmenn Suðurlandi
og sýslumaðurinn á Selfossi.
Reykjamörk 2B, íbúð 0102, Hverageröi, þingl. eig. Hveragerðisbær,
gerðarbeiðandi er Byggingarsjóður verkamanna.
Smiðjustígur 6, Flúðum, Hrun., þingl. eig. Sigurður H. Jónsson, gerð-
arbeiðendur eru Sameinaði lífeyrissjóðurinn, Stofnlánadeild landbún-
aðarins og Islandsbanki hf.
Starengi 12, Selfossi, þingl. 'eig. Þorsteinn Jóhannsson og Jóna Þ.
Tómasdóttir, gerðarbeiðandi er Lífeyrissjóöur verkalýðsfél. á Suður-
landi.
Stekkjarvað 12, Eyrarbakka, þingl. eig. Jóhann B. Guðmundsson,
gerðarbeiðendur eru Islandsbanki hf. og Raftak Kf.
Framhald uppboðs á eftlrfarandl eign verður háð á eigninni sjáifri
sem hér segir:
Unubakki 3, suöurhl., Þorlákshöfn, þingl. eig. Rafvör sf., gerðarbeið-
andi er sýslumaðurinn á Selfossi, fimmtudaginn 2. febrúar 1995,
kl. 15.00.
Sýstumaðurinn á Selfossi,
26. janúar 1995.
Uppboð
Eftirtaldar bifreiðir verða boðnar upp á Elds-
höfða 4, á athafnasvæði Vöku hf., laugardag-
inn 28. janúar 1995, kl. 13.30:
Chevrolet árg. ’52,
A-11455 HL-401 LT-456 R-51874
DN-095 HT-214 MA-264 R-54084
DS-049 HZ-697 NK-393 R-55547
FA-101 IB-369 NV-400 R-62682
FE-286 IH-148 PB-307 R-67339
FE-993 11-515 PM-389 R-72455
FF-935 11-931 PN-151 R-8969
FI-934 IJ-229 R-19209 S-522
G-26219 IV-191 R-194 TM-856
GH-980 í-5601 R-20186 TP-273
GN-653 JA-020 R-26102 U-1961
GT-915 JE-152 R-31621 UF-856
H-3225 JI-362 R-3302 UY-280
H-3885 JK-093 R-368 VX-569
HB-003 JP-227 R-3777 X-8388
HB-304 K-821 R-39541 X-8422
HB-523 KV-779 R-43929 Y-14816
HK-218 LD-090 R-49480 Y-14972
Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla
nema með samþykki uppboðshaldara eða
gjaldkera.
Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn í Reykjavík.
Kópavogsbúar - opið hús
Munið að opið hús er á hverjum laugardegi á milli kl. 10-121 Hamra-
borg 1, 3. hæð. Á staðnum eru ávallt einhverjir bæjarfulltrúar og
aðrir fulltrúar Sjálfstæðisflokksins. Árni Ragnar Arnason, alþingis-
maður, verður til viðtals næstkomandi laugardag 18. janúar.
Kópavogsbúar eru hvattir til að llta við, því þetta er rétti staðurinn
til að ræða bæjarmálin og landsmálin.
Ávallt heitt kaffi á könnunni.
Sjálfstæðisfélag Kópavogs.
Sjálfstæðisfólk Hafnarfirði
Þorrablót í Sjálf-
stæðishúsinu við
Strandgötu laugar-
daginn 28. janúar kl.
12.00.
Ávarp: Ólafur G.
Einarsson, mennta-
málaráðherra.
Veislustjóri: Árni M.
Mathiesen, alþing-
ismaður.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Sjáifstæðisfélögin í Hafnarfirði.