Morgunblaðið - 27.01.1995, Síða 52

Morgunblaðið - 27.01.1995, Síða 52
MORGVNBLADID, KRINGLÁN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUSCENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 1995 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Akvörðun í UA-málinu um helgina IS skoðar hús og lóðir fyrir höfuðstöðvar BENEDIKT Sveinsson, fram- kvæmdastjóri Islenskra sjávaraf- urða, segir að fyrirtækið sé að kanna alla möguleika á framtíðarhúsnæði fyrir höfuðstöðvar sínar, flytji fyrir- tækið ekki til Akureyrar. Svipast hafi verið um eftir lóðum og hús- næði á höfuðborgarsvæðinu. Við- ræðuhópur bæjarstjórnar Akureyrar * fær lokagögn ráðgjafa í málinu í hendur í dag og búist er við ákvörð- un um helgina. íslenskar sjávarafurðir hyggjast flytja höfuðstöðvar sínar til Akur- eyrar, ákveði Akureyrarbær að selja fyrirtækinu hlut sinn í Útgerðarfé- lagi Akureyringa. ÍS þurfa að rýma húsnæði sitt við Kirkjusand fyrir júlílok, þar sem það var nýverið selt. Benedikt segir að hann vonist til að um helgina skýr- ist hvort af viðskiptunum á Akur- -ayri verður. „Við erum hins vegar farnir að kanna ýmsa aðra mögu- leika, enda ljóst fyrir áramót að við yrðum að flytja úr húsinu við Kirkju- sand,“ sagði Benedikt. „Núna erum við að skima í kring- um okkur á höfuðborgarsvæðinu, í Hafnarfirði, Kópavogi og Reykjavík. Við höfum meðal annars spurst fyr- ir um það hjá Reykjavíkurborg hvaða lóðir séu til ráðstöfunar, ef við ákveðum að byggja nýtt hús. Við höldum öllum möguleikum opnum, svo enn er ekki ljóst hvort við byggj- um, kaupum eða leigjum." Stórt og vandað húsnæði ekki á hverju strái Benedikt sagði að töluvert væri af lausu skrifstofuhúsnæði á höfuð- borgarsvæðinu, en stórt og vandað húsnæði væri þó ekki á hveiju strái. „Ég vona að þetta fari að skýrast. Starfsfólk' okkar er að vonum óþreyjufullt að fá úr því skorið hvar það mun starfa.“ ■ Viðræðuhópur fær/12 Vinnslustöð og SH skilja 1. febrúar VINNSLUSTÖÐIN í Vestmanna- eyjum og Sölumiðstöð hraðfrysti- húsanna munu hætta viðskiptum 1. febrúar næstkomandi, en ís- lenzkar sjávarafurðir hafa keypt hlut í Vinnslustöðinni og munu selja afurðir fyrirtækisins. Að sögn Jóns Ingvarssonar, stjómarformanns SH, sagði Vinnslustöðin sig úr SH með bréfi 16. janúar og óskaði eftir að afurða- söluskylda yrði felld niður 1. febrúar. Hann sagði að samkvæmt sam- þykktum SH væri yfirleitt níu mán- aða frestur til að ljúka viðskiptum eftir að fyrirtæki ákvæði að segja sig úr viðskiptum við SH, en á stjómarfundi, sem haldinn var í gær, hefði ákveðið að ljúka viðskipt- unum um mánaðamótin. -----» ♦ ♦----- Bréf í Lyfja- verslun rifin út GÍFURLEG eftirspurn var eftir hlutabréfum ríkissjóðs í Lyfjaverslun íslands í gær, sem seldust upp á fyrsta söludegi. Hjá Kaupþingi hf., helsta söluaðila bréfanna, vora 100 manns i biðröð fyrir utan afgreiðsl- una þegar sala hófst í gærmorgun og voru bréfin uppseld eftir tvær klukkustundir. Þingmenn Suðurlands ■ Um 800 manns/12 Mannvirki metin á ný ÞINGMENN Suðurlands leggja til að Alþingi feli ríkisstjóm að láta gera ítarlega úttekt á húsum og öðr- um mannvirkjum á Suðurlandi með tilliti til jarðskjálftahættu og í fram- haldi af því verði gerð áætlun um úrbætur til að styrkja eða úrelda mannvirki sem talin eru ótraust. í tillögnnni er einnig lagt til að jarðskjálfta- og jarðfræðingum verði falið, í samvinnu við sveitarfélög á Súðurlandi, að kortleggja nákvæm- lega svæði með tilliti til staðbundinn- ar jarðskjálftahættu. I greinargerð segir að þótt farið sé eftir byggingarstaðli við byggingu húsa sé ekki öraggt að þau muni þola stóran jarðskjálfta. Þekkingu, sem staðlar séu grandaðir á, fleygi fram og oft myndu menn hafa byggt öðravísi ef þekking hefði verið meiri. Þá sé ekki ólíklegt að reglugerðum hafi stundum ekki verið fylgt nægi- lega vel eftir við byggingar húsa og dæmi séu um að burðarvirki húsa hafí verið veikt með breytingum. Morgunblaðið/Svemr Góð byijun UNNSTEINN Líndal, skipstjóri á Sighvati GK, á tali við útgerð- armann sinn, Pétur Pálsson í Vísi hf. í Grindavík. Sighvatur var að koma að landi með 60 tonn, mest þorsk, og hefur veiðst vel það sem af er vertíðinni. Sjómenn á Suður- nesjum segja að vertíðin hafi ver- ið góð fram að þessu, en stutt er eftir af línutvöfölduninni svoköll- uðu, þegar aðeins helmingur af afla línubáta er dreginn frá kvótanum. Aður hófst vetrarver- á vertíðinni tíð á Suðurlandi fyrsta virkan dag eftir kyndilmessu, sem var 2. febrúar, og hafa reglur um kvóta og Iínutvöföldun likast til verið fjarlægar sjómönnunum, sem áttu að vera komnir í verbúð sína á kyndilmessudaginn. Ennþá er handagangur í öskjunni á vetrar- vertíð en ekki þarf skóflur til að moka ís f kör þegar stórvirkari vélar eru til hjálpar. ■ Keyrðu með allar lúgur/4 Viðskiptajöfnuður hag- stæður um 8-10 milljarða ----» ♦ ♦--- Flóabanda- lag fær verk- fallsheimild FÉLÖGIN þijú í svokölluðu Flóa- bandalagi, Dagsbrún í Reykjavík, Hlíf í Hafnarfirði og Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur, sam- þykktu í gær að veita stjórnum og trúnaðarmannaráðum heimild til verkfallsboðunar. Á fundi Dagsbrún- ar var heimildin samþykkt mótat- kvæðalaust, í Hafnarfirði með 49 atkvæðum gegn sjö og á Suðumesj- um með um 100 atkvæðum gegn níu. ■ Einhugur/7 LÍKUR eru til þess að viðskiptajöfnuðurinn hafi verið hagstæður um 8-10 milljarða króna á síð- asta ári, sem jafngildir um 2% af landsfram- leiðslu. Þetta er hagstæðari útkoma en áður hefur verið reiknað með, en samkvæmt endurskoðaðri þjóðhagsáætlun vegna afgreiðslu fjárlaga í desem- ber var reiknað með að viðskiptajöfnuðurinn yrði hagstæður um 6 milljarða króna. Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóðhagsstofnun- ar, segir að þetta hafi ekki gerst að minnsta kosti síðastliðinn aldarfjórðung eða'frá árinu 1970. Til samanburðar var viðskiptajöfnuðurinn í járnum á árinu 1993 eða hagstæður um rúmar 150 milljón- ir króna og á árinu 1986 var viðskiptajöfnuðurinn hagstæður um 0,5% af landsframleiðslu. Hagstofan birti í gær bráðabirgðatölur um vöru- skiptajöfnuðinn á síðasta ári. Þar kemur fram að hann er hagstæður um 20,3 milljarða króna, sam- anborið við 12,7 milljarða á árinu 1993. Alls voru fluttar út vörur fyrir tæpa 113,5 milljarða króna í fyrra og er verðmætið 14% meira á föstu gengi en árið áður. Verðmæti vöruinnflutnings jókst einnig á milli ára, en ekki eins mikið, eða um 7% á föstu gengi. Þórður sagði að hagstæður viðskiptajöfnuður vætí sérstaklega mikilvægur vegna þess að við byggjum nú við opinn markaðsbúskap og frjálsar fjármagnshreyfingar milli landa. 15% aukning útflutnings iðnaðarvöru Þórður sagði að það væru einkum þrjú atriði sem gerðu það að verkum að árið 1994 hefði orð- ið miklu hagstæðara efnahagslífmu en gert hefði verið ráð fyrir í upphafi ársins. í fyrsta lagi hefði ekki verið reiknað með að aflinn úr Barentshafi yrði jafnmikill og hann hefði orðið á síðasta ári. Aflinn þaðan 1993 hefði verið í kringum tíu þús- und tonn en í fyrra á bilinu 35-40 þúsund tonn. í öðru lagi hefðu menn ekki séð fyrir að loðnu- frysting fyrir Japansmarkað gæfi jafnmikið af sér og raun hefði orðið á, en hún hefði gefið af sér 4 milljarða króna til viðbótar við það sem aðrar loðnuafurðir gæfu af sér. Þórður sagði ennfremur að í þriðja lagi hefði - orðið mun meiri aukning á útflutningi iðnaðarvara en reiknað hefði verið með. Aukningin milli ár- anna 1993 og 1994, ef undan er skilinn útflutning- ur áls og kísiljárns, sé um 15%. Þetta sé mjög mikilvægt og skýrist annars vegar af góðum starfsskilyrðum innanlands, stöðugleika og lágu raungengi, og hins vegar af hagstæðu árferði á alþjóðavettvangi. Hann sagði að í áætlunum Þjóðhagsstofnunar til lengri tíma væri gert ráð fyrir að þessar grein- ar, iðnaðarvöruútflutningur og ferðaþjónusta, myndu bera uppi hagvöxt á allra næstu árum, eða þar til hægt yrði að auka sókn í þorsk á nýjan leik. „Þess vegna er mjög mikilvægt að skilyrði ann- arra greina en sjávarútvegs verði með þeim hætti að þær dafni áfram. Það er grandvallaratriði að viðhalda þessum hagstæðu starfsskilyrðum og stöðugleikanum sem hefur verið ríkjandi í þjóðar- búskapnum," sagði Þórður einnig. ■ Afgangur af vöruskiptum/12

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.