Morgunblaðið - 01.02.1995, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
MIINININGAR
MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 1995 31
systkinum mínum og vona að þið
berið gæfu til að lifa áfram eins
og ykkar góðu foreldrar hafa sáð
í hjörtu ykkar. Blessuð sé minning
Elísabetar Sveinbjörnsdóttur.
Asgerður Gísladóttir.
Elsku amma okkar er horfín yfír
móðuna miklu eftir erfíð veikindi
sem hún barðist við eins og hetja
og lét ekki buga sig. Parkinsons-
veikin hefur hrjáð hana í fjölda
ára, en alltaf var hún jafn sterk.
Jafn góða og hjartahlýja mann-
eskju er vart hægt að hugsa sér.
Avallt voru allir velkomnir til henn-
ar og áttu þar ánægjustundir.
Þegar við bræðumir vorum yngri
var heimili ömmu og afa okkar
annað heimili. Alltaf á leið heim
úr skóla var gott að koma við hjá
ömmu og fá eitthvað í svanginn.
Alltaf var amma boðin og búin
til að gera öllum barnabörnum sín-
um vel.
Elsku amma okkar, við munum
sakna þín sárt. Guð geymi þig og
líði þér sem best með afa.
I minning vorri munt þú lifa,
við munum þína blfðu lund.
Nú lítum landamærin yfir
og ljúft við söknum þín um stund,
en fyrr en varir finnumst við
á friðarstund við lífsins hlið.
(Bergþóra Pálsdóttir)
Ólafur Þór og Einar Kristinn
Gíslasynir- og fjölskyldur
þeirra.
Mig langar að setja hér niður
nokkur kveðjuorð um þessa sér-
stæðu konu, sem nú hefur lokið
sinni farsælu göngu með okkur hér
á þessu tilvistarsviði. Ég man svo
langt, að þegar afi minn Gísli og
amma Sesselja bjuggu á loftinu hjá
okkur heima í Bolungarvík og elsk-
an hann Einar frændi minn, hvers
manns hugljúfi, kom með þessa
fallegu stúlku heim og kynnti fyrir
fjölskyldu sinni, það var ekki að
sökum að spyija, hún og tilvonandi
mágkona hennar, móðir mín,
mannþekkjari eins og hún var, urðu
samstundis vinkonur og varð það
ævilöng vinátta.
Einar og Beta kysstust og kysst-
ust, þau gerðu það alla tíð og aldr-
ei bar skugga á, þar til hann alltof
snemma hvarf héðan 1. október
1979, er ættarsjúkdómurinn náði
honum. Ég leyfí mér að fullyrða
að þau hafí frá því þau giftust árið
1943 og oft þrátt fyrir harða lífs-
baráttu, verið hamingjusöm og skil-
að betra dagsverki en margir aðr-
ir, þó ekki hafí ómað hátt.
Hún Elísabet var úr stórum
systkinahópi, foreldrar hennar,
Kristín og Sveinbjöm, voru þær
lífsglöðustu manneksjur, sem ég
hefí enn kynnst, svo engan þarf
að undra að börnin Betu og Einars
séu gott fólk. Tilveran er svo góð,
að þau hafa öll erft bestu eiginleika
foreldranna, gæsku og farsæld á
lífsbrautinni.
Hún Beta hans Enna frænda var
svo einstök, hún fylgdist með öllu,
hún kunni öll ljóð, þú gast flett
uppí henni, hún heyrði óperuaríu
eða sinfóníubrot í útvarpinu, hún
vissi samstundis hver hefði samið
tónverkið. Ég man líka þegar
myndarkona kom til Betu og ekki
var búið að ganga frá eftir hádegis-
matinn, Beta sat og rabbaði við
dóttur sína og konan spurði af
hveiju hún léti ekki telpuna ganga
frá, Beta svaraði að telpan væri í
skóla og þær hefðu svo lítinn tíma
til að tala saman. Ég trúi að þessi
litla saga lýsi í nokkru því sem ég
er að reyna að segja, hún Elísabet
Sveinbjörnsdóttir vissi hvað skipti
máli og ég vil þakka henni góð
kynni. Fólk eins og hún verður
ekki á vegi manns nema einstöku
sinnum.
Ég og Jón Oddsson vottum börn-
um hennar og afkomendum inni-
lega samúð, en veit að hún, sátt
við allt og allt, taldi tímabært að
fara til hans Einars síns.
Valgerður Bára
Guðmundsdóttir.
t
REKBEKKA EIRÍKSDÓTTIR
frá Sandhaugum,
andaöist í Landspítalanum 28. janúar.
Halldór Kristjánsson frá Kirkjubóli
og fósturbörn.
t
Eiginmaöur minn,
PÉTUR GUÐJÓNSSON
rakari,
Grundarlandi 10,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans
þriðjudaginn 31. janúar sl.
Jarðarförin auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hjördís Ágústsdóttir.
t
Elsku faöir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
HÉÐINN VILHJÁLMSSON
loftskeytamaður,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni
í Hafnarfirði föstudaginn 3. febrúar
kl. 15.00.
Birna Héðinsdóttir Carvalho, Alfred Carvatho,
Rósa Héðinsdóttir, Gils Stefánsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Hjartkær eiginkona, dóttir, móðir og
amma,
ARNFRÍÐUR ÓLAFSDÓTTIR
HJALTESTED,
sem lést 26. janúar sl. í Landakotsspft-
ala, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju
fimmtudaginn 2. febrúar kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakk-
aðir, en þeim, sem vilja minnast hinnar
látnu, er bent á Krabbameinsfélagið.
Bruno Hjaltested,
Kristfn M. Árnadóttir,
Þórður Árni Hjaltested, Kristín Guðmundsdóttir,
Guðmundur Arnar og Fanney.
+
Látinn er hjartkær faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
SVAVAR HJALTI GUÐMUNDSSON
vélstjóri,
Hrafnistu f Hafnarfiði.
Hann lést f Sánkti Jósefsspítala þann
28. janúar.
Svavar G. Svavarsson,
Guðmundur H. Svavarsson,
Guörún A. Sævarsdóttir.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir,
EINAR STEFÁNSSON,
Laufásvegi 25,
lést í Landspítalanum 30. janúar sl.
Jarðarförin fer fram frá Fossvogskapellu föstudaginn 3. febrúar
kl. 13.30.
Halla Jónatansdóttir,
Stefán Einarsson,
Louísa Einarsdóttir, Vilhjálmur Guðjónsson,
Ásgeir S. Einarsson, Oddný Gunnarsdóttir,
Þórdís K. Einarsdóttir
og barnabörn.
Unnur Þórðardóttir,
Einar Friðfinnsson,
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
SOFFÍA ÓLAFSDÓTTIR,
Sólvangi, Hafnarfirði,
áðurtil heimilis
á Hverfisgötu 8, Hafnarfirði,
verður jarðsungin frá kapellunni í Hafnarfirði fimmtudaginn
2. febrúar kl. 13.30.
Halldóra Júlíusdóttir, Karel Karelsson,
Sverrir Júlíusson,
Ingibjörg Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
JÓHANN S. SIGURÐSSON,
Hóli,
Hauganesi,
andaðist á heimili sínu 27. janúar.
Jarðsett verður frá Stærri Árskógskirkju
fimmtudaginn 2. febcúar kl. 14.00.
Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeir,
sem vilja minnast hans, vinsamlegast
láti Krabbameinsfélagið njóta þess.
Jónma Heigadóttir,
Magnús Jóhannsson,
Svava Jóhannsdóttir, Björn Kjartansson,
Aðalheiður Jóhannsdóttir, Rúnar Sigvaldason,
Sæunn Jóhannsdóttir, Rúnar Steingrimsson,
Bergþóra Jóhannsdóttir, Jón Sverrisson,
Kristín Jóhannsdóttir, Kristinn Snæbjörnsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
+
Útför afa okkar og fósturföður,
STEFÁNS GUNNBJÖRNS EGILSSONAR
tækjafræðings,
Nökkvavogi 41,
fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 2. febrúar kl. 15.00.
Þeir, sem vilja minnast hans, eru beðnir um að láta líknastofnan-
ir njóta þess.
Arnþrúður Lilja Þorbjörnsdóttir, Sólveig Jakobsdóttir,
Sigrún Pétursdóttir, Oddur Jakobsson,
Auðbjörg Jakobsdóttir.
+
Útför elskulegrar móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
GUÐRÚNAR ARNBJARGAR
HJALTADÓTTUR,
dvalarheimilinu Hlíf,
ísafirði,
fer fram frá Isafjarðarkirkju föstudaginn
3. febrúar kl. 15.00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast af-
þakkaðir, en þeim, sem vildu minnast
hennar, er bent á slysavarnasveitina Karla, ísafirði.
Kveðjuathöfn fer fram í Fossvogskapellu miðvikudaginn 8. febrúar
kl. 13.30.
Hjalti Ragnarsson, Sigríður Konráðsdóttir,
Jóhann P. Ragnarsson,
Ragna G. Ragnarsdóttir,
Jóhannes Ragnarsson, Steinunn Guðmundsdóttir,
Þórunn M. Guðmundsdóttir,
Stefán Ævar Ragnarsson, Agnes Óskarsdóttir,
Karen Ragnarsdóttir, Kristinn Haraldsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær móðir mín, tengdamóðir og
amma,
ÓLÖF ÓLAFSDÓTTIR,
Norðurbrún 30,
sem andaðist þann 26. janúar, verður
jarðsungin frá Dómkirkjunni föstudag-
inn 3. febrúar kl. 13.30.
Þórunn Ragnarsdóttir, Hrafn Sturluson,
Sturla Bjarki Hrafnsson,
Ólöf Kolbrún Hrafnsdóttir.
+
Elskulegur eiginmaður minn og faðir okkar,
ÓLAFUR SVEINSSON
bóndi,
Grund,
Reykhólasveit,
verður jarðsettur frá Reykhólakirkju laugardaginn 4. febrúar
kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim, sem vildu minn-
ast hans, er bent á dvalarheimilið Barmahlíð, Reykhólum.
Minningarkort fóst ó símstööinni í Króksfjarðarnesi, s. 93-47701,
og Barmahlíð, s. 93-47816.
Kveðjustund verður í Fossvogskapellu fimmtudaginn 2. febrúar
kl. 10.30.
Lilja Þórarinsdóttir,
Guðmundur Ólafsson,
Unnsteinn Hjálmar Ólafsson.
+
Innilegustu þakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát og útför
HULDU JÓNSDÓTTUR,
Aðalbraut 41 b,
Raufarhöfn.
Sérstakar þakkir til hjúkrunarfólks á lyfjadeild FSA.
Magnús Jónsson,
börn, tengdabörn og barnabörn.