Morgunblaðið - 03.02.1995, Side 6
6 FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1995
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Fiskistofa hefur áður haft afskipti af ólöglegum löndunum báta í 4-5 skipti
Kvótinn búinn
og til stóð að
úrelda bátinn
ÞÓRÐUR Ásgeirsson fiskstofustjóri
segir að Fiskistofa hafi fyrir Tjalda-
nesmálið haft afskipti af 4-5 bátum
sem staðnir hafí verið að ólöglegum
löndunum. Þau mál hafí hins vegar
ekki verið kærð. Hann segir að við-
urlög séu auk veiðileyfasviptinga,
sektir og jafnvel varðhald. Þá megi
svipta fiskmarkaði starfsleyfí sem
sannað þyki að hafí átt þátt í mis-
ferli af þessu tagi. Hólmgrímur Sig-
valdason útgerðarmaður Tjaldaness
ÍS, sem staðinn var að ólöglegri lönd-
un að næturþeli í Hafnarfírði, kveðst
mest hissa á því að ekki hafi verið
fjallað um þetta mál fyrr opinberlega
því löndunin hafí átt sér stað 12.
janúar sl. Hann segir að Fiskmark-
aður Hafnarfjarðar hafí enga aðild
átt að þessu máli en tekur sjálfur á
sig alia sök og kveðst hafa gengist
við brotinu strax. Hann gaf þær
skýringar að kvóti Tjaldaness hefði
verið búinn og til hefði staðið að
úrelda bátinn. Endurskoðandi Hólm-
gríms segir það forkastanlegt að
málsaðilum sé ekki tilkynnt um að
kæra hafí verið lögð fram í málinu
og þeir lesi_ fyrst um það í blöðum.
Þórður Ásgeirsson segir að 26
manns séu við veiðieftirlit um landið
allt og miðin. Hann segir það sína
skoðun að of fáir menn sinni veiðieft-
irliti.
Guðmundur Sophusson sýslumað-
ur í Hafnarfírði kvaðst lítið geta tjáð
sig um málið þar sem rannsóknin
væri á frumstigi. Seint í gær tók
embættið svo ákvörðun um að vísa
málinu til Rannsóknarlögreglu ríkis-
ins. Hjá sýslumannsembættinu kom
fram að viðurlög við ólöglegum lönd-
unum væru m.a. þau að afli væri
gerður upptækur en í tilvikum þar
sem aflinn væri kominn út á markað-
inn væri hann metinn til fjár og
þeirrar fjárhæðar krafist af sakbom-
ingi.
„Fiskmarkaðurinn hefur
engxi að leyna“
Reynir Benediktsson skipstjóri á
Tjaldanesi kvaðst ekki hafa verið við
stjórnvölinn í umræddri veiðiferð.
Hann segir að veiðileyfasviptingar
Fiskistofu séu orðnar geðþóttaá-
kvarðanir. Skipið hafí tvisvar sinn-
um verið svipt veiðileyfi á síðasta
ári fyrir sömu tvö körin af kola sem
voru fram yfir kvóta í veiðiferð
skipsins í nóvember síðastliðnum en
þó hefði veiðieftirlitsmaður þá verið
um borð í skipinu. Reynir kennir um
samskiptaleysi milli Fiskistofu og
sjávarútvegsráðuneytisins.
Grétar Friðriksson framkvæmda-
stjóri Fiskmarkaðar Hafnarfjarðar
segir að fískmarkaðurinn hafí engu
að leyna í þessu máli og hafí ekki
átt aðild að misferli. Hann hafí átt
gott samstarf við Fiskistofu.
Grétar segir að það sé ekki hlut-
verk Fiskmarkaðarins að hafa eftir-
lit með því að afli sé vigtaður ef
hann fer ekki í sölu á Fiskmarkaðn-
um. „Við sáum ekki um löndun úr
skipinu, það gerði útgerðarmaðurinn
sjálfur. Okkar starfsmaður tók á
móti þeim afla sem átti að fara í
sölu hér. Það er landað hér miklu
af físki sem kemur ekki til sölu á
Fiskmarkaði Hafnarfjarðar. Fiskur
er settur í gáma og keyrður út á
land. Landanirnar eru ekki okkar
mál. Hins vegar ber skipstjóra eða
útgerðarmanni að láta aflann fara á
vigt. Við höfum heimild til að taka
við afla úr skipum og vigta og við
gerum það við þann afla sem fer
hér til sölu,“ sagði Grétar.
Grétar sagði starfsmann físk-
markaðarins mæta jafnan til vinnu
klukkan sex að morgni og hefði þá
strax verið tekið við fiskinum úr
Tjaldnesi þennan morgun.
Grétar kvaðst vera ósáttur við það
að nafn Fiskmarkaðar Hafnarfjarðar
hafi verið nefnt 'við fjölmi^il í sam-
bandi við þetta mál, án þess að forr-
áðamönnum fyrirtækisins hefði verið
skýrt frá því af réttum aðilum, að
fyrirtækið eða starfsmaður 'þessi
lægi undir einhveijum grun. Hins
vegar gæfu þessir aðilar ekki upp
nafn fískvinnsluhússins, sem í hlut
ætti
Ætlaði að úrelda bátinn
Endurskoðandi Hólmgeirs Sig-
valdasonar, útgerðarmanns segir það
mjög alvarlegan hlut þegar Fiskistofa
tilkynni aðilum um það í blöðum að
þeir hafí verið kærðir til sýslumanns.
Útgerðarmaðurinn hafí fyrst frétt um
kæruna í Morgunblaðinu.
Hólmgeir sagði að hann vissi að
málið færi lengra en honum hefði
þó ekki verið greint frá því að kæra
TJALDANES hefur legið við bryggju í Hafnarfirði frá því um
miðjan janúar og nú stendur til að úrelda það.
hefði verið lögð fram. Hann kvaðst
hafa gripið til þess ráðs að landa
framhjá vigt vegna þess að hann
hefði verið búinn með sinn kvóta.
„Ég gerði þetta bara til þess eins
að halda lífí. Það er ekki öllum út-
gerðaraðilum gert kleift að bjarga
sér. Ef til vill var ég kærulausari
en ella vegna þess að ég ætlaði að
hætta með bátinn og úrelda hann,“
sagði Hólmgeir. Hann sagði að í sín-
um huga væri það meira afbrot að
henda fiski en að landa framhjá vigt.
„Það eru tugir ef ekki hundruð tonna
sem vertíðarbátarnir henda af léleg-
um físki. Það var fullur sjór af þorski
í kringum línubátana í fyrra sem
voru allir orðnir kvótalausir.“
Morgunblaðið/RAX
FISKMARKAÐUR Hafnarfjarðar hefur engu að leyna, segir
framkvæmdastjórinn og útgerðarmaður Tjaldaness ségir mark-
aðinn ekki eiga þátt í misferli.
Tyrkneskur undirréttur frestar réttarhöldum í
Islensk skjöl
ekki tekin gild
Hekla hf.
Hættir með
Rover eftir
hálfa öld
HEKLA hf. mun innan
skamms láta frá sér umboð
fyrir bresku Rover-bílaverk-
smiðjumar til Bifreiða & land-
búnaðarvéla hf. Frá þessu var
gengið í samningum B&L við
BMW-verksmiðjumar sem
hafa eignast meirihluta í Ro-
ver. Þar með lýkur nær hálfr-
ar aldar viðskiptasambandi
Heklu við breska fyrirtækið.
Sigfús Sigfússon, forstjóri
Heklu hf., segir að það hafi
legið fyrir eftir að BMW
keypti meirihlutann í Rover
að umboðið færðist til Bíla-
umboðsins hf., umboðsaðila
BMW. „Við höfum ekki selt
Range Rover bíla í fímm ár
vegna þess að verðið hefur
verið óhagstætt. Það er því
langt frá því að þetta sé áfall
fyrir okkur.“
TYRKNESKUR undirréttur hefur
frestað réttarhöldum í forræðis-
máli Sophiu Hansen fram til 16.
mars næstkomandi. Sophia segir
að dómarinn hafí rökstutt ákvörð-
un sína með því að hann geti tek-
ið gild málskjölin frá íslandi. Hún
segist ekki hafa fengið tækifæri
til að fá upplýsingar frá lögmanni
sínum um hvernig honum hafi
verið fyrirskipað að_ ganga frá
skjölunum. Þröstur Ólafsson, að-
stoðarmaður utanríkisráðherra,
segir að rök dómarans séu aðeins
fyrirsláttur til að fresta því að
taka ákvörðun í málinu.
Sophia var boðuð í dómshúsið
klukkan 7 að íslenskum tíma í
gærmorgun. Hún sagðist ekki hafa
fengið vemd, eins og óskað hefði
verið eftir, og töluvert af strangtrú-
uðu fólkið hefði verið í kringum
og inn í dómshúsinu. Faðir Halims
hefði verið þeirra á meðal.
Sophia sagði að dómarinn í
málinu hefði kveðið uppúr um að
hann gæti ekki tekið skjöl, t.d. um
ríkisborgararétt, giftingu og skiln-
að frá íslandi, gild enda hefðu
íslendingar ekki undirritað viðeig-
andi alþjóðlega samninga á þess-
um vettvangi. Hún sagði að henni
hefði komið afstaða hans mjög á
óvart. Hann hefði fengið skjölin
tvisvar og ekki gert athugasemd
við þau áður. Henni fyndist þar
að auki hæpið að hægt væri að
ganga framhjá skjölum með þess-
um hætti.
Halim ávíttur
Sophia sagði að dómarinn hefði
ávítað Halim fyrir að leyfa Sophiu
ekki að sjá dætur sínar. Hann
hefði svarað því til að þær vildu
ekki sjá hana. Hasíp, lögfræðingur
hennar, hefði blandað sér í umræð-
una og tekið fram að hann myndi
láta Halim gjalda fyrir brotin með
fangelsisvist. Hasíp mótmælti
ákvörðun dómarans að halda um-
gengnisrétti Sophiu óbreyttum um
hveija helgi enda væri bæði kostn-
aðarsamt og erfitt fyrir hana að
láta reyna á rétt sinn.
Sophia segist hafa tekið eftir
því að Halim hafi fengið byssu
sína afhenta áður en hann fór út
úr dómshúsinu. Hann kom til rétt-
arins í fylgd lögmanns síns. Hún
ræðir niðurstöðu réttarins við lög-
mann sinn í dag. Eftir þann fund
sagðist hún vita hvernig ganga
ætti frá skjölunum en þau eru með
staðfestingu íslenskra stjórnvalda
og tyrkneska sendiráðsins í Ósló.
„Hreint yfirvarp“
Þröstur Ólafsson, aðstoðarmað-
ur utanríkisráðherra, sagðist bíða
Verkfallssjóðir
kennarafélaganna
Kennarar
gagnrýna
ummæli
Davíðs
„FORSÆTISRÁÐHERRA er
að leggja til að opinberir
starfsmenn noti peninga sem
þeir eiga sjálfir til að borga
sjálfum sér sér laun,“ segir
Guðrún Ebba Ólafsdóttir,
varaformaður Kennarasam-
bands íslands, vegna þeirra
ummæla Davíðs Oddssonar
forsætisráðherra að skyn-
samlegast væri fyrir kennara
að úthluta þeim 450 millj. kr.
sem væru í verkfallssjóðum.
Að sögn Guðrúnar Ebbu
brugðust kennarar hart við
þessum orðum Davíðs í gær
og sagði hún að kennarar
óttuðust að þau tefðu samn-
ingaviðræðurnar.
„Við teljum þessi orð ekki
í anda viðræðna okkar við
samninganefnd ríkisins. Við
höfum talið vinnuna sem
fram hefur farið í vinnuhóp-
unum mjög gagnlega og höf-
um leyft okkur að vera bjart-
sýn. Við leggjum mikla
áherslu á að vinna stíft á
næstunni til að ná samning-
um og samninganefndin er
okkur sammála um það.
Verkfall er aldrei markmið,"
sagði hún.
Viðræður í vinnuhópum
eiga að geta leitt til
samninga
I vinnuhópunum er verið
að ræða um vinnutíma kenn-
ara og röðun starfsheita í
launaflokka með tilliti til
menntunar kennara og
hvernig einstakir liðir kröfu-
gerðarinnar í tengslum við
launaflokkaröðun samrýmast
hugmyndum samninganefnd-
arinnar. Guðrún Ebba sagði
að þessar viðræður snérust
um grundvallarmál og væru
í þeim farvegi að þær ættu
að geta leitttil samninga. „En
svona orð forsætisráðherra
eru ekki til þess fallin að flýta
fyrir gerð samninga," sagði
hún.
forræðismálinu
eftir ítarlegri fréttum af niðurstöð-
unni. Hann sagðist hins vegar líta
svo á að rök dómarans fyrir að
frestun málsins væru ekkert annað
en fyrirsláttur til að fresta því að
taka afstöðu. „Eitthvað hef ég
heyrt minnst á að ekki væru tekin
gild plögg frá þjóðum sem ekki
hefðu gert ákveðið tvíhliða sam-
komulag við Tyrkland en svona
röksemdarfærslu hef ég aldrei
heyrt áður. Ég er ekki í nokkrum
minnsta vafa um að þetta er að-
eins gert til að fresta málinu og
þurfa ekki að taka ákvörðun.
Finna eitthvað sem þeir geta hengt
hatt sinn á. Hreint yfirvarp," sagði
Þröstur.
Hann sagði að eftir að meira
yrði vitað yrði farið vandlega yfír
málið. „En ef ekki er hægt að
koma skjölum á hefðbundinn hátt,
sem fara frá ráðuneytum í gegnum
sendiráð til tyrknesku réttvísinnar,
veit ég eiginlega ekki hvernig
menn eiga að haga sér í málunum.
Hvað gera þarf til þess að þessir
menn taki gild skjöl frá okkur.
Eg man ekki eftir svona tilviki
áður.“
•t
! •
I
I
I
í
I
I
I
i
I
I
I
I
I
I
I
!
I
I
I
I
1
I
I
í
I