Morgunblaðið - 03.02.1995, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1995 25
AÐSEMPAR GREIIMAR
Von um betri
afkomu „ekki
á dagskrá“
Efnahagsmál þjóð-
arinnar og afkoma
heimilanna eru undir-
staða allrar velferðar
í landinu. Það er því
vægast sagt undarlegt
þegar stór hópur ráð-
andi manna og
kvenna, þar á meðal
forsætisráðherra og
forystumanna allra
stjómmálaflokka
nema Alþýðuflokks-
ins, vilja ekki kanna
hvort viðunandi samn-
ingar náðist um aðild
að ESB. Þeir kasta
þannig frá sér ein-
hverri bestu von
manna um bætt lífskjör almennings
hér á landi að algjörlega óathuguðu
máli og segja það „ekki vera á dag-
skrá“.
Það er sem sagt ekki „á dag-
skrá“ að athuga hvort hægt sé að
lækka matarkostnað heimilanna um
allt að 30-40%.
Það er sem sagt „ekki á dag-
skrá“ að ná samningum sem í raun
tryggir að lægstu laun hækki til
samræmis við það sem gengur og
gerist umhverfís okkur.
Það er sem sagt „ekki á dag-
skrá“ að reyna að ná samningum
sem tryggja okkur algerlega tolla-
og haftalausan aðgang að markaði
sem tekur við 85% af vöruútflutn-
ingi okkar.
Það er sem sagt ekki „á dag-
skrá“ að tryggja æskunni óheftan
aðgang að öllum helstu mennta-
stofnunum Evrópu sem við sökum
fámennis erum svo háð sem raun
ber vitni.
Nei, það sem er „á dagskrá" hjá
þessu góða fólki er að einangra
Island efnahags-, menningar- og
menntunarlega frá Evrópu, þrátt
fyrir þá sögulegu staðreynd að
þangað liggi allar okkar rætur í
þessum málum. Þannig hegðuðu
þeir sér í EES-málinu þó þeir vilji
ekki kannast við það. Þannig bregð-
ast þeir við núna.
Einangrunarhyggja og þröng
sérhagsmunagæsla
Astæðurnar fyrir þessari ein-
angrunarhyggju eru í aðalatriðum
þríþættar. Misskildir hagsmunir
landbúnaðarins sem hægt og hægt
er að hengjast vegna fyrri „verndar-
aðgerða" sömu aðila.
Næstir koma hagsmundir „sæ-
greifa" sem telja sig „eiga“ miklar
eignir í syndandi fiski, hrognum og
svilum úti í hafí og hafa lítinn áhuga
á að deila þessum auði með öðrum
íslendingum hvað þá hugsanlega
erlendum fjárfestum. Að lokum
kemur pólitískt hugleysi og hræðsla
við hið óþekkta sem allt of oft
stjórnar viðbrögðum ráðamanna.
Gildir þar einu þótt vitað sé að
óbreytt ástand geti einungis leitt
til stöðnunar og trúlega versnandi
lífskjara fyrir allan almenning í
landinu.
Vandanum á síðan að mæta með
einhverskonar fríverslunarsamn-
ingum, sem ekkert liggur fyrir um,
við þá aðila sem kaupa um 15%
(fimmtán prósent), af vöruútflutn-
ingi okkar.
Og helstu „rökin“ eru þau að
ekki muni nást viðun-
andi samningar við
ESB um jrfirráðin yfír
fískimiðum okkar.
Þetta er fullyrt þrátt
fyrir þá staðreynd að
ekki hafi farið fram
neinar formlegar samn-
ingaviðræður við ESB.
Þetta er fullyrt þrátt
fyrir ýmsar vísbending-
ar frá ESB um hið
gagnstæða.
Kjósendur sviknir
Svíar, Finnar og
Austurríkismenn kusu
að ganga í ESB. Norð-
menn kusu að standa
utan við og geta það trúlega um
stund í krafti olíuauðæfa sinna.
Gera þau þeim kleift að greiða nið-
ur alla aðra atvinnuvegi í landinu
og gera þá þannig „samkeppnis-
færa“.
Þeir forystumenn í stjórnmálum
hér á landi, sem vilja engar samn-
ingaumleitanir við ESB, bregðast
kjósendum fullkomlega. Telja þeir
ákvörðun Svía, Finna og Austurrík-
ismanna um að ganga í ESB, létt-
væga og að almenningur í þessum
Þeir forustumenn í
stjórnmálum, sem engar
samningaumleitanir
viljavið ESB, segir
Kristmundur Ás-
mundsson, bregðast
kjósendum fullkomlega.
löndum sé greinilega mun óhæfari
um að dæma um hvað þeim er fyr-
ir bestu en Norðmenn, sem höfnuðu
aðild.
Og það sem einkennilegast er í
allri umræðunni er sú röksemd, sem
komið hefur frá andstæðingum
ESB, að Norðmenn hafí einnig
hafnað aðild fyrir okkar hönd.
Þykir mér það illur kostur, minn-
ugur þess hvernig fór þegar Skúli
jarl taldi Norðmenn, hér áður fyrr,
betur fara með mál íslendinga en
okkur sjálfa. Almenningur i landinu
á heimtingu á því að hagsmuna
hans sé gætt í hvívetna á besta
hugsanlegan máta. Látum, í ljósi
þess, reyna á það í fullri alvöru
hvort ekki náist hagstæðir samn-
ingar um aðild íslands að ESB.
Niðurstöðurnar leggjum við síðan
í dóm þjóðarinnar.
Höfundur er heimilislæknir í
Grindnvík.
- kjarni málsins!
Kristmundur
Ásmundsson
2004. FYRSTI KVENFORSETI
BANDARÍKJANNA.
NOSTRADAjVIU
Svimandi há upphæð! Handa þér?
Fjórfaldur fyrsti vinningur á laugardag.
Landsleikurinn okkar!
MERKISMENN