Morgunblaðið - 03.02.1995, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1995 27
AÐSENDAR GREINAR
Tannvemdardagur
alla daga ársins
HÆGT yrði að hafa mörg orð um
samspil tannhirðu og fæðuvenju, en
stiklað verður á stóru um tannhirð-
una.
Megin hlutverk tannlæknis er að
laga það sem úrskeiðis hefur farið
í tyggingarfærunum og að hindra
að eitthvað fari úrskeiðis.
Slíkt fyrirbyggjandi starf getur
verið af ýmsum toga til að ástand
hjá viðkomandi verði ekki alvarlegt.
Má þar helst nefna að plastbera bit-
fleti barna- og fullorðinstanna. Bit-
fletir (tyggingafletir) á barna- og
fullorðinsjöxlum eru alsettir skorum
og pyttum sem illmögulegt er að
þrífa tannsýkluna úr. Skemmd verð-
ur í slíkum tönnum fyrr eða síðar.
Tiltölulega auðvelt er fyrir tann-
lækni að útbúa bitflöt jaxla þannig
að skemmd verði ekki þar og auð-
velt verði fyrir viðkomandi að bursta
bitflötinn hreinan. En þá eru 4 aðrir
fletir eftir á viðkomandi tönn sem
þarf að hreinsa og stundum erfitt
að komast að.
Tannbursta er hægt að leggja á
3 af 5 flötum hverrar tannar. Hina
tvo fletina þarf að nota tannþráð
á, eða eitthvað annað verkfæri sem
getur hreinsað á milli tanna. Augljós
er því nauðsyn þess að
nota tannþráð einnig
við tannhirðuna.
Hreinsir þú tennurn-
ar óaðfinnanlega í dag
verður tannsýklan búin
að mynda sýnilega skán
á tennurnar á sama
tíma á morgun. Fái
sýklan að vera í friði
byijar skemmdin, sama
hvar er á tönninni.
Þá er komið að
kjarna málsins. Það
skiptir höfuðmáli hve
VEL hver tönn er
hreinsuð. Hversu OFT
á dag þú burstar tenn-
urnar skiptir litlu máli
Grétar B.
Sigurðsson
ef þú burstar illa í hvert sinn og
notar ekki tannþráð.
Heilsusamlegt mataræði og góð
tannhirða er það sem þarf til að
halda tönnunum heilbrigðum um
ókomin ár.
Einhver mikilvægasti tími sem
fólk getur fengið hjá tannlækni er
kennsla í að þrífa tannsettið vel.
Aðstæður í munnholi eru misjafnar
hjá einstaklingum. Hver og einn
gæti þurft sína aðferð til að munn-
hirðan verði fullnægj-
andi.
Ef áhugi er fyrir
hendi hjá einstaklingi
er lítið mál fyrir tann-
lækni að kenna rétt
vinnubrögð til tann-
hirðu. Ef fólk sinnir
verkinu vel, og gefur
sér nægan tíma, ætti
litlar áhyggjur að
þurfa að hafa af tann-
heilsunni.
í raun þarf ekki
nema nokkrar mínútur
á dag í tannhirðuna.
Hve lengi ert þú vak-
andi á hveijum sól-
arhring? 16 klst.?
Finnst þér mikið að eyða 10 mín.
af þeim tíma í góða tannhirðu fyrir
þig eða bömin þín?
Það er alltaf til tími fyrir tannhirð-
una.
Ef fólk gæfi sér góðan tíma og
vandaði til verks í tannhirðu ætti
hver og einn ekki að þurfa nema
eftirlit 1-2 sinnum á ári, og þá aðal-
lega til að fá staðfestingu hjá tann-
lækni um að vel sé að verki staðið.
Slíkt kostar ekki margar krónur
Drekkið
vatn
Tannskemmdir og tann-
holdsbólga hrjá síður
þá, segir Grétar B.
Sigurðsson, sem
sinna tannhiðru vel
og reglulega.
og er þeim aurum vel varið.
Tannlæknir vinnur ekki nema
hluta verks við að halda tyggingar-
færunum heilbrigðum. Þú sérð um
hinn hlutann.
Efni og áhöld
Til er ógrynni efna og áhalda sem
eiga að halda tannsýklunni og skað-
legum áhrifum hennar niðri. Vissu-
lega hafa slík efni og áhöld nokkuð
til síns ágætis í flestum tilfellum.
Þar ber þó að sama brunni og varð-
andi tannhirðuna almennt. Þú verður
að fræðast um fyrrnefnd efni og
áhöld og kunna að beita þeim. I
þeim efnum ætti tannlæknir að geta
liðsinnt þér.
Hið besta verkfæri er gagnsh'tið
ef þú kannt ekki að nbta það.
Athugið hjá tannlækni hvort þín
tæki til tannhreinsunar og þín að-
ferð við tannhreinsun sé fullnægj-
andi í reynd.
Niðurlag
Tannvernd verður í raun ef þú
þekkir þín verkfæri og beitir þeim
rétt.
Tannskemmdir og tannholdsbólga
ættu ekki að hijá þig að miklu leyti
ef þú sinnir þinni tannhirðu vel og
ferð reglulega til eftirlits hjá tann-
lækni.
Góð tannhirða launar sig í vellíðan
á margan hátt. Það eina sem þú
þarft er að KUNNA að hirða tennur
þínar og gefa þér nægan tíma. Af
tíma til tannhirðu máttu alltaf sjá.
Höfundur er tannlæknir.
T annverndar dagur
Sverrir Einarsson
ÞAÐ mun vera tann-
vemdardagur í dag. A
hveiju ári tileinkum við
einum degi það hlut-
skipti að ýta við þegn-
um þessa lands og
minna þá á að í andlit-
inu rétt fyrir neðan
miðju er hólf þar sem
skaparinn hefir komið
fyrir líffæri, sem kallast
tennur. Inn milli tann-
anna er svo komið fyrir
einni tungu, nema
kannski hjá sumum,
sem eru í pólitík.
Þeir, sem fæðst hafa
í þennan heim, minnast
þess ekki að hafa verið spurðir um
hvort þeir væru tilbúnir að dvelja í
þessari jarðvist sem nemur einni
mannsævi. Það er bara pobbs! og
Þú ert þar með vistaður og situr
uppi með þetta vandamál — og han-
anú! En vandamálið er ekki bara eitt.
Nei, nei. Þau eru mörg, heil legíó.
Eitt af þeim er þetta með tennurnar
og það er satt að segja með endem-
um hvað margir geta verið áhuga-
lausir gagnvart því. Ungir foreldrar,
sem hafa nýfengna reynslu af sínu
eigin kæruleysi, láta allt of oft undir
höfuð leggjast að taka á þessu máli.
Þetta með að bursta tennumar er
búið að vera á dagskrá í langa
eilíbbbð. Þetta er sama vesenið og
með sígarettuna. Það vita allir að
það er skaðlegt að reykja en menn
gera það samt. En þarna er þó mun-
ur á. Þeir, sem reykja, bera ekki
lungun utan á sér. Þeir sjá þess
vegna ekki tjöruna, sem safnast fyr-
ir í þeim og þess vegna láta allt of
margir skeika at sköptu með það.
En skemmdar tennur og óhreinar
sjást og verða þeim mun meir áber-
andi þar sem eitt það fegursta sem
birtist í ytri persónuleika manns er
hreint og fagurt bros. Þótt ekki
væri nema þessi ástæða ein ætti það
að vera áhugaverðara og auðveldara
að taka þetta vandamál til úrvinnslu
en mörg önnur. Tannskemmd er í
allt of mörgum tilfellum heimatilbúið
vandamál. Bandaríkjamenn hafa
heilbrigðastar tennur allra vest-
rænna þjóða en þeir láta sig líka
hafa það að setja fluor í drykkjar-
vatnið og ná þannig eftirsóknarverð-
um árangri. Hjá þeim er vatnið ekki
eins heilagt og hjá okkur. Við höfum
af einhverri ástæðu talið okkur trú
um að íslenskt vatn sé það heilnæm-
asta í heimi. Þó er það svo að mörg,
allt of mörg, sveitarfélög bjóða íbú-
um sínum upp á óhæft drykkjarvatn.
Til allrar hamingju
er sú þróun í gangi að
þeim foreldrum fjölgar
með hverju ári, sem
sýna tönnum sínum og
bama sinna verðugan
áhuga og við sjáum
árangur í samræmi við
það. Það, sem foreldr-
arnir þurfa að leggja
mesta áherslu á er að
alitaf sé til á heimilinu
tannkrem, sem inni-
heldur flúor. Þar, fyrst
og fremst, liggur gald-
urinn og svo auðvitað
að tannkremið sé notað
minnst tvisvar á dag.
Þá telst það bónus ef menn skola
ekki allt of mikið og vel eftir burstun
fyrir svefn. Það er af hinu góða ef
eitthvað af kreminu liggur milli tann-
anna eftir að tannburstun lýkur. Þá
hefir einnig aukist skilningur manna
á þvi, að þó svo það sé dýrt að fara
til tannlæknis, er' dýrara að fara
ekki. Árangur næst því best með að
vinna vel sína heimavinnu í munnin-
um og fylgja því síðan eftir með því
að mæta reglulega hjá tannsa. Það
mætti líka skjóta því inn í að pólitík-
usar ættu að gjalda varhug við niður-
greiðslu tannlækninga, að klípa þar
ekki of stóran skammt af. Það er
þegar búið að gera of mikið af því
og árangur síðustu áratuga í hættu
þess vegna.
Að lokum þetta:
Ekki vera alltaf að maula eitthvað
daginn út og daginn inn ... nema
kannski gulrót!! Og ekki gleyma
vatninu ... í staðinn fyrir gosið !!
Foreldrar þurfa að
leggja mesta áherzlu
á tannkrem með
flúor, segir Sverrir
Einarsson, þar liggur
galdurinn.
P.S. Þið afsakið stílinn en það er
engin ástæða til að ræða mál sem
þetta í einhveijum hvítsloppastíl.
Svona mál á helst að ræðast maður
á mann, svipað og þeir gera í hand-
boltanum.
Höfundur er tannlæknir.
HEFUR ÞÚ SÉÐ FRAMTÍÐ ÞÍNA?
NOSTMDAMUS
I Ryðfrítt stál, einstök ending.
• Umhverfisvæn einangrun.
»Hitar í 80° alveg niður í botn.
• Blöndunarloki fyrir frárennsli,
38-80° fylgir með. Engin
hætta á húðbruna barna.
> Gerð: TermO 200 lítra.
• Tvöföld einangrun í topp
sparar 20% orku
• Öryggis aftöppunarloki fylgir.
0 Eigum einnig 30/50/100/200
og 300 litra standandi,
liggjandi eða fyrir
veggfestingar.
• HAGSTÆTT VERÐ
Einar
Farestveit&Cohf
Frábærir HANKOOK vetrarhjóibarðar á einstöku verði
145R12
155R12
135R13
145R13
155R13
165R13
175/70R13
185/70R13
175R14
185R14
4.990
-5r230~
4c7®0~
5-.1-00
-5tS60"
6676
5.850
-8460-
6:430"
-75200-
2.990 stgr
3.130 stgr
2.860 stgr
2.980 stgr
3.215 stgr
3.340 stgr
3.480 stgr
3.850 stgr
3.850 stgr
4.280 stgr
185/60R14
195/60R14
175/70R14
185/70R14
195/70R14
205/75R14
165R15
185/65R15
195/65R15
205/60R15
7:490-
"tJTZuU
6:660
6640-
-75830
9686
660CT
75668
6648
9628
4.490 stgr
4.880 stgr
3.990 stgr
4.160 stgr
4.690 stgr
5.460 stgr
3.780 stgr
4.470 stgr
5.300 stgr
5.770 stgr
Jeppadekk 25% afsl.
235/75 R 15 kr.10.200 kr 7.650 stgr 30-9.50 R 15 kr.10.550 kr.7.912stgr
31-10,50 R 15 kr.14658 kr.8.960stgr 33-12.50 R 15 kú14.440 kr.10.830 stgr
Vörubíladekk 25% afsl.
12 R 22,5 /16PR kr.33.700 kr.25.275 stgr 315/80 R22,5 kr.38.080 kr 29.235 stgr
SKÚTUVOGI2
b SÍMI 68 30 80