Morgunblaðið - 03.02.1995, Side 28
28 FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
+
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1995 29
STOFNAÐ 1913
UTGEFANDI
FRAMKVÆMDASTJÓRI
RITSTJÓRAR
Árvakur hf., Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
KENNARA-
VERKFALL
MIKIL RÖSKUN verður í samfélaginu þegar og ef
verkfall kennara kemur til framkvæmda 17. þessa
mánaðar. Það bitnar á á milli 50 og 60 þúsund grunn-
skóla- og framhaldsskólanemendum. Reynslan sýnir að
verkfall af þessu tagi kemur verst við þriðja aðila, það
er heimilin og nemendur.
Framundan eru kjarasamningar á almennum vinnu-
markaði, sem ráðið geta úrslitum um, hvort tekst að verja
byijandi bata og stöðugleika í þjóðarbúskapnum. Ríkið
getur ekki gert samninga við kennara, eða aðra opinbera
starfsmenn, sem í reynd yrðu forskrift að launaþróun er
atvinnuvegirnir fá ekki undir risið. Það standa þvi líkur
til þess, ef samningar takast ekki á næstu tveimur vikum,
að framundan sé erfitt kennaraverkfall.
Kröfur kenn'ara, sem samninganefnd ríkisins telur nema
25% kauphækkun, eru óraunhæfar, miðað við þann efna-
hagsveruleika sem við búum við. Launaþróun af því tagi
myndi setja íslenzkt þjóðfélag á hvolf, skekkja rekstrar-
grundvöll atvinnulífsins, hrinda af stað nýrri verðbólgu-
skriðu og stefna atvinnuöryggi og afkomu fjölda heimila
í tvísýnu. Afleiðingarnar bitnuðu á kennurum ekkert síður
en öðrum landsmönnum.
Eðlilegt er að launafólk, kennarar sem aðrir, sem sáði
til stöðugleikans með þjóðarsátt á krepputímum, bæti kjör
sín, hægt og bítandi, í takt við aukinn hagvöxt í landinu.
Það er hins vegar kapp án forsjár að sprengja stöðugleik-
ann í samfélaginu í loft upp með verkföllum og kæfa
þannig langþráðan efnahagsbata í fæðingu. Þess vegna
verðum við að vona í lengstu lög að samningar innan
ramma stöðugleikans í samfélaginu takizt á þeim tveimur
vikum sem eftir lifa fram að boðuðu verkfalli. Skammtíma-
samningur, sem gilti unz Alþingi hefur samþykkt ný lög
um grunn- og framhaldsskóla — og ljós verður launaþró-
un á almennum vinnumarkaði — er niðurstaða sem báðir
samningsaðilar ættu að geta við unað, til að forða heimil-
um og nemendum frá annars óhjákvæmilegum vanda.
BANKAR OG BREYTTAR
AÐSTÆÐUR
ÞAÐ ER SJÁLFSAGT tímanna tákn, að stærsti banki
landsins, Landsbanki íslands, hefur nú ákveðið að
láta hækkun á kjörvaxtaálagi gengisbundinna afurðalána
til sjávarútvegsfyrirtækja ganga til baka að verulegu leyti.
Hér er vissulega um tímamót að ræða.
Enginn vafi leikur á því, að það eru breyttar aðstæður
á markaðnum, sem eru aðalorsök þess, að Landsbankinn
hefur tekið þessa ákvörðun. Bankarnir hafa það ekki leng-
ur í hendi sér, að ákveða kjörin á lánum sínum, án þess
að taka mið af því sem gerist á markaðnum. Áður gátu
fyrirtæki ekki leitað annað en í bankana, en nú er öldin
önnur.
Fyrirtæki hafa í auknum mæli leitað út á hinn almenna
verðbréfamarkað. Ennfremur eru viðskipti við banka í
útlöndum að opnast í ríkara mæli en verið hefur. Loks
hafa fyrirtæki tekið upp á því að leita tilboða hjá bönkum
og sparisjóðum í viðskipti. Skemmst er þess að minnast,
að Síldarvinnslan í Neskaupstað bauð út afurðalánavið-
skipti sín, og niðurstaða þess útboðs varð sú að fyrirtæk-
ið flutti þessi viðskipti frá Landsbankanum yfir til íslands-
banka. Fyrirtækið hafði frá upphafi tekið afurðalán sín í
Landsbankanum, en þau nema árlega 200 til 250 milljón-
um króna.
Sömuleiðis er það ánægjuefni, að Landsbankinn hefur
ákveðið að hætta innheimtu á sérstakri þóknun af gjald-
eyrisviðskiptum, sem hefur numið 0,5% af seldum gjald-
eyri. Bankinn hyggst mæta tekjutapinu sem hann verður
fyrir af þeim sökum, með frekari hagræðingu í rekstri.
Hér er einnig um breytt viðhorf að ræða, sem fyrst og
fremst má rekja til stóraukinnar samkeppni á sviði gjald-
eyrismála.
Þessi þróun er sérstakt fagnaðarefni. Hún sýnir að
meira jafnræði ríkir nú á milli lánastofnana og viðskipta-
vina, en tíðkast hefur hér lengst af. Það stuðlar að heil-
brigðara viðskiptalífi.
Utanríkisráðherra Dana á hádegisverðarfundi um Evrópumál
N
'IELS Helveg Petersen, ut-
anríkisráðherra Danmerk-
ur, hélt erindi um Evrópu-
mál sem bar yfirskriftina
„Framtíð ESB og reynsla Dana“ á
hádegisverðarfundi á vegum Verslun-
arráðs og Vinnuveitandasambandsins,
á Hótel Sögu í gær.
Helveg Petersen sagði í upphafi
erindis síns að hann teldi mjög mikil-
vægt að ræða Evrópumálin við íslend-
inga á þessum tímamótum, eftir að
Norðmenn hefðu gert upp hug sinn í
þjóðaratkvæðagreiðslu og áður en
Evrópusambandið tæki ákvörðun um
framtíðarþróun sína á ríkjaráðstefn-
unni, sem hefst á næsta ári. Hann tók
þó fram að þetta væri ekki innlegg í
umræðuna um það hvort að íslending-
ar ættu að sækja um aðild að Evrópu-
sambandinu eða ekki. Það væri um-
ræða, sem íslendingum væri einum
ætluð.
Hins vegar gæti hann rætt málin
almennt út frá reynslu Dana þó svo
að hvert aðildarríki hefði vissulega
sína sérstöðu og sína eigin reynslu.
Danir hafa verið aðilar að ESB í
22 ár og tók utanríkisráðherrann fram
að ákvörðunin um aðild hafi ekki
reynst Dönum auðveld á sínum tíma.
Aðildin hafi líka óneitanlega verið
umdeild í Danmörku í gegnum árin.
Evrópusamstarfið væri hins vegar
einstætt í heiminum. Tilgangur þess
væri ekki að stofna nýtt ríki, ekki
myndun sambandsríkis aðildarríkj-
anna og ekki heldur væri hægt að
skilgreina það sem milliríkjasam-
vinnu. Það væri blanda af þessu öllu.
Þetta gæti virst vera flókið en gengi
upp. „Ekki alltaf eins og það ætti að
gera en við reynum sífellt að bæta
það,“ sagði Helveg Petersen.
Helstu kostir aðildarinnar fyrir
Dani væru óumdeilanlega efnahags-
legir og ekki bara vegna þess að
Danir hefðu ávallt fengið meira frá
sambandinu en þeir greiddu til þess.
Það mikilvægasta væri þátttaka í
sameiginlegum markaði án hindrana.
Það þýddi nánast óendanlega mögu-
leika fyrir danskan útflutning.
Vissulega færðu sumir rök fyrir því
að EES-aðild gæfi mönnum einnig
aðild að innri markaðnum en hafa
bæri hugfast að sú aðild veitti ekki
áhrif á ákvarðanatöku varðandi innri
markaðinn. „í því felst munurinn og
hann er verulegur," sagði ráðherrann.
Marga aðra kosti mætti einnig
nefna, s.s. á sviði umhverfismála, en
umhverfisvandamál væri einungis
hægt að leysa á alþjóðavettvangi.
ESB-aðild þýddi ekki að Danir yrðu
að lækka staðla sína á sviði umhverf-
ismála heldur þvert á móti hefðu þeir
oft þurft að herða þá. Sú þróun hefði
einnig átt sér stað í allri Evrópu sem
væri kostur fyrir Dani.
Ekkert ríki óháð öðrum
Utanríkísráðherrann sagði að ekki
væri hægt að halda því fram að Dan-
ir hefðu glatað sjálfsákvörðunarrétti
sínum með aðild. Ekkert ríki hefði
nokkurn tímann verið óháð öðrum
ríkjum. Munurinn væri hins vegar sá
að með Evrópusamvinnunni væri
tryggt að aðlögun að öðrum ríkjum
væri ekki á forsendum valdamiklu
ríkjanna einvörðungu.
Þá væri ekki heldur hægt að stað-
hæfa að Danir hefðu glatað þjóðarein-
kennum sínum. Þvert á móti. Aukin
samskipti milli ríkja þýddu að menn
gerðu sér betur grein fyrir uppruna
sínum og sérkennum. „Það er líka
mikill misskilningur að ------------
halda, eins og sumir virð-
ast enn gera, að það sé
markmið ESB að allir eigi
að vera eins. Evrópusam-
starfið gengur ekki út á ———
það að útrýma andstæðum
milli þjóða heidur að fá okkur til að
starfa á grundvelli þess hve ólík við
erum. Það er styrkur samvinnunnar,"
sagði Helveg Petersen.
Það væri líka alveg ljóst að litlu
ríkin hefðu áhrif á ákvarðanatöku
ESB og að tillit væri tekið til sjónar-
miða • þeirra. Það væru rökin sem
skiptu máli en ekki stærð ríkjanna.
Tekið væri tillit til ígrundaðra rök-
semda og réttmætra hagsmuna.
Þannig yrði það líka að vera ef sam-
starfið ætti að ganga upp.
Hann vék einnig að þeirri gagnrýni
að almennir borgarar í aðildarríkjun-
um hefðu ekki nægilega innsýn í og
EKKERT ER
SJÁLFGEFH)
Niels Helveg Petersen utanríkisráðherra Danmerkur segir Dani hafa hagn-
ast mikið á aðild að Evrópusambandinu. Hann sagði íslendinga sjálfa
verða að gera upp hug sinn varðandi ESB en þeir ættu þó ekki að líta á
það sem sjálfgefíð að þeir myndu tapa öllu með aðild að hinni sameigin-
legu sjávarútvegsstefnu. Enginn gæti sagt fyrir um samningsniðurstöður.
NIELS Helveg Petersen á fundi VSÍ og Verslunarráðs.
Morgunblaðið/Þorkell
Mikilvægt að
ræða við ís-
lendinga
áhrif á þróun mála. Hann sagði alla
viðurkenna að auka yrði lýðræði í
Evrópusamstarfinu, gera það opnara
og færa nær íbúum aðildarríkjanna.
„I mínum huga leikur enginn vafi á
því í hvaða átt samstarfið er að þró-
ast í þessum efnum. Það er einungis
spurning um tíma þangað til að við
náum markmiðinu."
En hvaða áhrif hefur aðildin haft
á möguleika Ðana til að móta efna-
hagsstefnu sína? „Á móti má spyrja
hvaða efnahagslega sjálfsákvörðun-
arrétt lítið ríki á borð við Danmörku
hefur ef það einangrar sig? Ekki mik-
inn. Miklu minni en ef við í samvinnu
við önnur Evrópuríki mótum umgjörð
efnahagsþróunar, sem stuðlar að
auknum hagvexti og atvinnu. Einung-
is með samvinnu við önnur ríki á sviði
efnahagsmála höfum við raunveruleg
áhrif á okkar efnahagslegu skilyrði,"
sagði ráðherrann.
Villandi framsetning
Á þessu stigu, sagði hann, myndu
margir taka það fram að fyrir íslend-
inga hefði þessi röksemdafærsla ekki
--------- mikið gildi sökum þess hve
sjávarútvegurinn væri ráð-
andi í efnahagslífinu. Ekk-
ert gæti bætt upp þá tak-
mörkun á yfirráðum yfir
—fiskimiðunum og ákvarð-
anatöku í fiskveiðimálum,
sem aðild hefði í för með sér. „Enn
og aftur er það íslenska þjóðin, sem
verður að vega þetta og meta. En er
það sjálfgefið að ESB-aðild muni bitna
á íslensku fiskveiðistofnunum og fisk-
veiðistefnunni? Reynið að greina til
hlítar þá niðurstöðu sem Norðmenn
fengu í sjávarútvggssamningi sínum.
Það var reynt að setja málið þannig
fram að Norðmenn hefðu afsalað sér
fiskinum sínum og fiskverndar- og
fiskveiðistefnu vegna þess að hún
varð hluti af hinni sameiginlegu sjáv-
arútvegsstefnu. Sú framsetning
stenst hins vegar ekki. Innan ESB
gildir reglan um „sjálfbært jafnvægi".
í því felst að fískveiðiheimildum er
úthlutað til aðildarríkja á grundvelli
hefðbundinna og sögulegra veiða
þeirra. Aðild Norðmanna hefði þannig
ekki þýtt að dönskum eða spænskum
sjómönnum yrði veittur aðgangur að
fiskimiðum, sem Norðmenn hafa hing-
að til setið einir að. En hvað með
norsku fiskverndar- og fiskveiðistefn-
una? Hefðu Norðmenn ekki neyðst til
að gangast undir sameiginlega stefnu
á því sviði? Jú, sameiginlega stefnu
vissulega, en ekki þá sem nú er í gildi
innan ESB. Þeir hefðu hins vegar
orðið að fylgja þeirri stefnu, sem sam-
komulag náðist um, í viðræðum Norð-
manna og ESB og svipar mjög til
stefnu Norðmanna. Ég tók sjálfur
þátt í þessum erfiðu viðræðum og tel
að nær sanni sé að Evrópusambandið
hafi gengist undir stefnu Norðmanna
heldur en öfugt,“ sagði danski utan-
ríkisráðherrann.
Helveg Petersen tók fram að með
þessu væri hann ekki að halda því
fram að hugsanleg aðild íslendinga
myndi ekki hafa nein áhrif á sjávar-
útveg þeirra. Enginn gæti sagt fyrir
um samningsniðurstöðuna. Hins veg-
ar hefði ESB teygt sig mjög langt til
að koma til móts við hagsmuni Norð-
manna á þessu sviði, sem viðurkennt
var að hefði mikla þýðingu fyrir þjóð-
ina.
Danir fengið fjölda undanþága
Hann sagði það viðtekna venju að
aðildarríkin kæmu til móts við hvert
annað til að leysa vandamál. Þannig
hefðu Danir fengið fjölmargar undan-
þágur frá stefnu ESB. Nefndi hann
sem dæmi þá undanþágu sem Danir
fengu varðandi sölu sumarhúsa til
erlendra ríkisborgara. Ljóst væri að
danski sumarhúsamarkaðurinn gæti
ekki staðið undir eftirspurninni frá
Þýskalandi og því hefðu Danir fengið
undanþágu þó að það væri ekki í sam-
ræmi við grundvallarreglur ESB.
Hvað framtíðarþróun ESB varðaði
sagði Helveg Petersen að aðild Finna,
Svía og Norðmanna hefði mjög mikla
og jákvæða þýðingu fyrir Norðurlönd.
Hún yki vægi þeirra og áhrif þó að
þau hefðu vissulega ekki sömu hags-
muni og skoðanir á öllum sviðum.
Ekki ætti að mynda norræna blokk
innan ESB heldur vinna saman á þeim
sviðum þar sem hagsmunir væru sam-
eiginlegir. Nú væri líka mikilvægt að
aðlaga Norðurlandasamstarfið að nýj-
um tímum og yrði það gert á fundi
Norðurlandaráðs í Reykjavík innan
tíðar. Undirstrikaði Helveg Petersen
að Norðurlandasamstarfið yrði áfram
einn af hornsteinum danskrar utanrík-
isstefnu.
Hann riijaði að lokum upp hversu
miklum stakkaskiptum þróunin í Evr-
ópu hefði tekið á örfáum árum, sem
lýsti sér best í þeirri ósk ríkja í Mið-
og Austur-Evrópu að gerast aðilar að
ESB. Danir styddu þá ósk heilshugar.
Aðild þessara ríkja væri grundvallar-
atriði til að tryggja áframhaldandi
stöðugleika og öryggi í Evrópu. Það
yrði ekki auðvelt fyrir ESB að taka
við þessum ríkjum og það myndi ekki
ganga sársaukalaust fyrir sig. Hins
vegar yrði að setja markm-
iðið um öryggi í álfunni
ofar þröngum sérhags-
munum einstakra aðildar-
ríkja. „Vegna okkar og
afkomenda okkar verðum .........■..
við að hafa hugrekki og
vilja til að taka þessar ákvarðanir,“
sagði hann.
Áhrif af Schengen
Jón Baldvin Hannibalsson, utanrík-
isráðherra lslands, þakkaði Helveg
Petersen fyrir erindið og sagðist gott
að vita af góðum vini er íslendingar
knýðu dyra hjá ESB innan skamms.
Hann bað Helveg Petersen um að
gera nánar grein fyrir hugmyndum
sínum um Norðurlandasamstarfið eft-
ir að Svíar og Finnar gengu inn í ESB
og einnig hvort að hann teldi að
áheyrnaraðild Dana að Schengen-
samkomulaginu gæti leitt til að endur-
skoða yrði regluna um að Norður-
landabúar þyrftu ekki að sýna vega-
bréf á ferðum innan Norðurlanda.
Helveg Petersen sagðist ekki hafa
lausn á reiðum höndum varðandi
framtíð Norðurlandasasamstarfsins.
Persónulega væri hann hins vegar
sannfærður um að samstarfið væri
jafnmikilvægt öllum Norðurlanda-
þjóðunum og hvíldi á traustum grunni.
Hann taldi rétt að einbeita sér í fram-
tíðinni að nokkrum sviðum varðandi
samstarfið og nefndi sérstaklega
menningu, rannsóknir og menntun.
Bjóst hann við að umræður á kom-
andi Norðurlandaráðsþingi ýrðu mjög
mikilvægar.
Varðandi Schengen-samkomulagið
um afnám landamæraeftirlits sem
nokkur ESB-ríki eru aðilar að sagði
ráðherrann að það gæti leitt til erfið-
leika. Forsætisráðherrar Norðurland-
anna hefðu aftur á móti ítrekað á
fundi sínum í Kaupmannahöfn um
síðustu helgi að ekki ætti að taka upp
vegabréfsskyldu innan Norðurlanda.
Ragnar Garðarson spurði danska
utanríkisráðherrann hvernig hann
mæti líkur íslendinga á að fá undan-
þágu frá sameiginlegu fiskveiðistefn-
unni.
Helveg Petersen ítrekaði að ESB-
ríkin væru ávallt reiðubúin að taka
tillit til hvors annars. Það þýddi þó
ekki að menn fengju ávallt undanþág-
ur. Hvaða tillit tekið yrði til íslenskra
sjávarútvegshagsmuna kæmi ekki í
ljós fyrr en í aðildarviðræðum. íslend-
ingar yrðu því að ákveða hvort að
þeir vildu reyna á það eða ekki.
Tómas Ingi Olrich sagði að þegar
írar, Spánverjar, Portúgalir og Grikk-
ir fengu aðild að ESB hefði sú stefna
verið tekin upp að ná þeim á sama
efnahagslega stig og aðrar þjóðir og
miklu fé verið varið til þess. Þetta
hefði tekist vel varðandi Ira, ágætlega
varðandi Spánverja og Portúgali en
hörmulega varðandi Grikki. Nú liti
ESB til austurs en þar væri að frnna
þjóðir, sem um margt líktust Grikkj-
um. Spurði hann danska utanríkisráð-
herrann hvort að hann teldi að í fram-
tíðinni myndi samstarfið innan sam-
bandsins byggjast á niðurgreiðslum
og félagslegri aðstoð eða á markaðs-
kerfi.
Helveg Petersen sagði það vissu-
lega rétt að ekki hefði jafnvel tekist
til með aðstoð til Grikklands og ann-
arra ríkja. Ákveðið hefði verið að veita
miklu fjármagni til þessara ríkja þeg-
ar innri markaðurinn var myndaður
þannig að þau hefðu sömu stöðu og
önnur ríki. Aðstoðin yrði greidd út á
fimm ára tímabili frá 1994-1999. Um
verulegar upphæðir væri að ræða og
næmi aðstoðin til íra t.d. 5% af þjóðar-
framleiðslu þeirra. Ekkert samkomu-
lag væri hins vegar um að halda að-
stoðinni áfram eftir 1999.
Líklega yrði gripið til svipaðra að-
gerða er ríki í austurhluta Evrópu
fengju aðild en sú aðstoð yrði einnig
tímabundin. Heimspeki Evrópusam-
bandsins byggðist ekki á niðurgreiðsl-
um heldur markaðslögmálum.
Vilhjálmur Egilsson spurði hvort
að fræðilegar líkur væru á því að
gengið yrði til samninga við Islend'
inga og Norðmenn ef þeir kæmu nú
og sóttu um aðild. Minnti hann á að
fyrir árið 1992 hefði verið talað um
að ekki stæði til að fjölga aðildarríkj-
um og það meðal annars verið notað
sem röksemd til að fá Norðurlöndin
til að fallast á EES.
Þá spurði Kristján Loftsson hvort
að ráðherrann teldi líkur á að ESB
------------------ myndi snúa blaðinu við og
Norðurlanda- eera Þe™ nkjum sem
sambandið vildi fá sem
aðildarríki, freistandi til-
boð. Ef tilboðið væri nógu
freistandi væru flest falt.
Helveg Petersen sagði
samstarfið
hornsteinn
flest Evrópuríki vera þeirrar skoðunar
að frekari fjölgun kæmi ekki til greina
fyrr en eftir ríkjaráðstefnuna 1996
sem hugsanlega myndi ljúka 1997.
Hann taldi það vera bjartsýnt mat en
raunsætt að fyrstu nýju ríkjunum
væri hægt að bæta við í kringum alda-
mót. í ljósi hinna gífurlegu breytinga
í Evrópu undanfarin fimm ár ve
ekki hægt að útiloka neitt.
Hann sagðist hins vegar ekki halda
að ESB myndi byija að gera ríkjum
tilboð sem ekki væri hægt að hafna
Þannig væri raunveruleikinn ekki
Þeir sem vildu aðild yrðu að fara leið
aðildarviðræðna.
FYLGIFLOKKANNA
Fylgi stjórnmálaflokkanna í kosningum 1991
og í könnunum Félagsvísindastofnunar síðan
12.3
‘ Alþýðuflokkur
I.„ LlIMtll1
Framsóknarflokkur
I... I 'l'l'11'
Alþýðubandalag
91 ' '92 ’93 1994' '95 '91 ' '92 ' '93 ' 1994' '95 '91 ''92 ' '93 ' 1994' ''95'
Þjóðvaki
—4-|..4-|~14.; .|
'94 '95
Landsföðurímynd
Davíðs skílar Sjálf-
stæðisflokknum fylgi
S'
Ú NIÐURSTAÐA, sem mesta
athygli vekur í skoðanakönn-
un Félagsvísindastofnunar
um fylgi stjórnmálaflokk-
anna og ríkisstjórnarinnar sem birt
var í Morgunblaðinu í gær, er að ríkis-
stjórnin og flokkarnir, sem hana
mynda, skuli standa jafn vel í upphafi
kosningabaráttu og raun ber vitni. Það
er reyndar ekki beinlínis hægt að segja
að Álþýðuflokkurinn sé upp á sitt
hressasta, með 8,8% fylgi, en krata-
kænan er þó að þokast upp úr þeim
öldudal, sem hún hefur verið í sam-
kvæmt tveimur síðustu könnunum
Félagsvísindastofnunar, og fylgis-
aukningin er marktæk.
Hugsanlega hefur prófkjör krata
á Reykjanesi vakið á þeim athygli,
og í ljós kemur að Álþýðuflokkur
bætir við sig í kjördæminu og nýtur
nú 13% stuðnings þar.
Sjálfstæðisflokkurinn er nú með
37,9% stuðning þeirra, sem afstöðu
taka, sem er nálægt fylgi flokksins
í seinustu kosningum. Flokkurinn
hefur náð sér talsvert á strik frá því
í október, er hann fékk 33,8% stuðn-
ing. Sterk staða forystuflokks í ríkis-
stjórn er engan veginn
sjálfgefin^ á þessum tíma-
punkti. Ýmsar skýringar
kunna að koma til. Helzt
er sennilega sú að formað-
ur flokksins, Davíð Odds-
son forsætisráðherra, hef-
ur styrkt stöðu sína og
ímynd í fjölmiðlum og er
mál margra að hann sé nú
í hlutverki hins milda
landsföður, enda hefur
Davíð sneitt hjá árekstrum
að undanförnu.
Bjartsýni — en
kjaradeilur framundan
Mikill stuðningur við
Sjálfstæðisflokkinn og
ríkisstjómina í upphafi
kosningabaráttu ber vott
um sterka stöðu Davíðs
Oddssonar forsætisráð-
herra. Stjórnarandstöð-
unni hefur ekki tekizt að
gera hríð að stjórninni
og framboðsmál vinstri-
manna eru í upplausn.
—
Olafur Þ. Stephensen
skrifar um síðustu skoð-
anakönnun Félagsvís-
indastofnunar.
Könnun Félagsvísindastofnunar í lok jan. 1995:
Fylgi stjórnmálaflokka eftir landshlutum
^ jf c-—•
JT IffiF!
19Æ1JJ
Alþýðufl. Frams.fl. Sjálfst.fl. Alþýðubl. Kvennalistí Þjóðvaki
Ríkisstjórnin, sem nýtur nú meira
fylgis en hún hefur gert lengst af
kjörtímabilinu, eða um 40%, getur
vísað til árangurs síns í efnahagsmál-
um, lágrar verðbólgu og stöðugleika
og margt bendir til að almenningi
þyki farið að birta til í efnahagsmál-
um. Þannig sýndi áramótakönnun
Gallups að Islendingar horfa bjartari
augum á nýja árið en flestar aðrar
þjóðir.
Þessi niðurstaða ber vott um að
stjórnarandstöðunni hafi ekki tekizt
að gera hríð að stefnu og árangri
ríkisstjórnarinnar með sannfærandi
hætti. Jafnframt er líklegt að Sjálf-
stæðisflokkurinn hagnist á glundroð-
anum í framboðsmálum vinstri-
manna.
Þó getur enn brugðið til beggja
vona, þar sem liörð rimma kann að
vera framundan í kjarasamningum.
Forsætisráðherra hefur fram til
þessa forðazt hörku í yfirlýsingum
um kjaramál og sagt svigrúm til
hóflegra launahækkana. Staðan
kann þó að snúast, komi til verkfalla.
Sú tilgáta er ekki ósennileg, að
samkenndin, sem varð til með þjóð-
inni vegna náttúruhamfaranna á
Vestfjörðum, hafi skilað ríkisstjórn-
inni ákveðnum stuðningi. Það er
margsannað mál að ógn eða hætta,
sem steðjar að þjóðum, skilar þeim
stjórnvöldum, sem við völd eru á
hveijum tíma, fylgisaukningu í skoð-
anakönnunum. Stjórnmálamenn eru
á slíkum stundum, eins og eðlilegt
er, í hópi þeirra sem sýna þeim sam-
úð, sem um sárt eiga að binda, og
gefa fyrirheit um aðstoð og aðgerðir
til að koma í veg fyrir að hörmung-
arnar endurtaki sig.
Fer Þjóðvaki sömu leið og BJ
og Borgaraflokkur?
Stjarna Jóhönnu Sigurðardóttur
og flokks hennar, Þjóðvaka, fer lítil-
lega lækkandi, þrátt fyrir að könnun
Félagsvísindastofnunar sé gerð sömu
daga og landsfundur flokksins stóð.
Yfirleitt er talið að mikil umfjöllun í
kringum flokksþing skili flokkum
einhverri fylgisaukningu. Jóhanna
hefur sagt í fjölmiðlum að Þjóðvakæ'
menn hafí verið uppteknir við skipu-
lagsstörf og ekki haft mikinn tima
fyrir útbreiðslustarfsemi. Það kann
að vera rétt, en hitt er líklegra, að
fylgisþróun Þjóðvaka verði svipuð og
annarra stjörnuframboða, á borð við
Bandalag jafnaðarmanna 1983 og
Borgaraflokkinn 1987. Báðir flokkar
náðu sér mjög á strik í könnunum
fljótlega eftir stofnun, en fylgi þeirra
fór svo dalandi allt fram að kosning-
um.
Kvennalisti í vanda
Könnun Félagsvísindastofnunar
nú sýnir, eins og sú seinasta, að
Kvennalistinn er nánast að hverfa á
landsbyggðinni. Flokkurinn fær
10,3% stuðning í Reykjavík, en ekki
nema 3,4% á Reykjanesi og úti á
landi. Konur fylkja sér greinilega
mjög um Þjóðvaka; flokkurinn fær
22,3% fylgi meðal kvenna, en 13,1%
hjá körlum. Kvennalistinn hefur
misst fylgi til Þjóðvaka, en þó kemur
ekki nema um tíundi hluti af fylgi
Þjóðvaka úr þeirri áttinni, samkvæmt
grófri sundurgreiningu. Kvennalist-
inn er því líka að tapa fylgi
til annarra.
Sundurgreining á þeH>ir-
hópi kjósenda, sem segist
hafa kosið Kvennalistann
í síðustu kosningum, sýnir
að 14% ætla að kjósa Þjóð-
vaka og 23% „einhvern
vinstri flokk", en aðeins
39% ætla að kjósa Kvenna-
listann aftur. Það er miklu
minna en hjá öðrum flokk-
um, öðrum en Alþýðu-
flokknum, sem heldur ekki
í nema 34% af þeim sem
kusu hann síðast; missir
10% til Sjálfstæðisflokks,
og 20% til Þjóðvaka. Hinir „gömlu“
flokkamir þrír halda hins vegar í
60-70% af þeim hópi, sem kaus þá
í seinustu kosningum. Hafa ber í
huga að þessi sundurgreining er ekki
mjög marktæk tölfræðilega, en gefur
meginlínur til kynna.
Þjóðvaki og Kvennalistinn njóta
til samans fylgis um þriðjungs
kvenna. Annar þriðjungur fylgir
Sjálfstæðisflokknum, en 42,5% karla
styður flokkinn. Miklu munar líka á
fylgi Framsóknarflokks meðal kynj-
anna; 20,5% hjá körlum og 13,6%
meðal kvenna. Fylgi A-flokkanna er
jafnara eftir kynjum. Yfirleitt hafa
fleiri konur en karlar stutt Alþýðu-
bandalagið, en nú snýst það við~
flokkurinn hefur stuðning 11,1%
kvenna og 13,1% karla, sem gæti
gefið til kynna að stuðningskonur
Alþýðubandalagsins hafi fært sig
yfir til Þjóðvaka.
Fylgi Alþýðubandalags minnkar
ekki mikið frá síðustu könnun og
Framsóknarflokkur bætir aðeins við
sig. Hvorug breytingin er marktaek.
f