Morgunblaðið - 03.02.1995, Page 43

Morgunblaðið - 03.02.1995, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1995 43 FRETTIR Námskeið í áfalla- hjálp fyrir almenning UNDANFARIÐ hefur áfallahjálp verið mikið til umræðu í tengslum við snjóflóðin í Súðavík. Nú gefst almenningi kostur á tveggja kvölda námskeiði í áfallahjálp og stór- slysasálfræði (sálrænni skyndi- hjálp). Kennsludagar verða mánudagur 6. febrúar og þriðjudagur 7. febr- úar. Kennt verður frá kl. 20-23. Námskeiðið er ætlað fyrir alla þá sem áhuga hafa á áfalla- og stór- slysasálfræði og eru eldri ern 15 ára. Væntanlegir þátttakendur þurfa ekki að hafa neina fræðilega þekkingu né reynslu á þessu sviði. Námskeiðshaldari verður Lárus H. Blöndal, sálfræðingur. Nám- skeiðið verður haldið í Fákafeni .11, 2. hæð. Námskeiðið inniheldur almenna kynningu á áfalla- og stórslysasál- arfræði þar sem megininntakið eru þau áhrif og afleiðingar sem váleg- ir atburðir geta haft á fólk og hvernig hægt sé að draga úr mann- legum þjáningum í kjölfar þeirra eða í tengslum við þau. Meðal efn- is eru fyrstu viðbrögð við vá, atr- iði sem geta valdið álagi á vett- vangi, viðbrögð til skemmri og lengri tíma, ýmsar úrlausnarleiðir s.s. sálræn skyndihjálp á vettvangi válegra atvika og skipulegir upp- rifjunarfundir í kjölfar þeirra s.k. andleg viðrun. Þeir sem hafa áhuga á að kom- ast á þetta námskeið geta skráð sig í síma 688188 frá kl. 8-16. Námskeiðsgjalds er 1.500 kr. Næsta námskeið í skyndihjálp hefst 15. febrúar. Næsta námskeið í móttöku þyrlu á slysstað verður haldið laugardaginn 11. febníar. Tekið skal fram að Reykjavíkur- deild RKl útvegar leiðbeinendur til að halda námskeið í fyrirtækjum og hjá öðrum sem þess óska. Fyrstu djákn- arnir braut- skráðir BRAUTSKRÁNING fyrstu djákn- anna úr guðfræðideild Háskóla Islands fer fram laugardaginn 4. febrúar kl. 10.30 f.h. Athöfnin fer fram í kapellu Háskólans. Jón Sveinbjörnsson, forseti guð- fræðideildar, afhendir djáknunum, sem eru sex talsins, prófskírteini sín. Um er að ræða þá er lokið hafa 30 eininga djáknanámi, en guðfræðideild býður upp á tvær leiðir í djáknanámi, annars vegar 30 eininga nám fyrir þá sem þeg- ar hafa hlotið starfsmenntun sem hjúkrunarfræðingar, kennarar, fé- lagsráðgjafar eða fóstrur og hins vegar 90 eininga (þriggja ára) nám til BA-prófs í guðfræði. Útsölur við Laugaveg á löngum laugardegi ÚTSÖLUHASAR verður- í verslun- um við Laugaveg og Bankastræti á iaugardag, sem er „Langur laug- ardagur", en þá verða verslanir opn- ar frá kl. 10-17. Yfir 80 verslanir á þessu svæði bjóða vörur sínar á verulegu lækk- uðu verði og munu margar verslanir bjóða upp á sérstakt útsölutilboð í tilefni dagsins. Hérlendis hafa sjald- an eða aldrei jafnmargar verslanir á sama svæði samtímis boðið upp á útsölur. Viðskiptavinum verður jafnframt boðið að taka þátt í léttum og skemmtilegum leik sem felst í því að giska á hversu margar verslanir við Laugaveg við Rauðarárstíg og niður Bankastræti selja konfekt. Lausnum, ásamt nafni, heimilisfangi og síma ber að skila í versluninni Englabörnin, Bankastræti 10, fyrir kl. 17 á laugardag. -----» ♦ ♦---- Brautskráning kandídata frá * Háskóla Islands BRAUTSKRÁNING kandídata fer fram í Háskólabíói laugardaginn 4. febrúar kl. 14. Að lokinni setningu syngja María Guðrún Halldórsdóttir og Felix Bergsson lög úr „West Side Story“ eftir Leonard Bernstein. Að því loknu ávarpar Sveinbjörn Björnsson kandídata og ræðir mál- efni Háskólans. Aðalefni ræðunnar að þessu sinni verður skýrsla þróun- arnefndar og stefna í upplýsinga- málum. Eftir að deildarforsetar hafa afhent kandídötum prófskírteini syngur Háskólakórinn undir stjóm Hákonar Leifssonar. ----♦ ♦ ♦ Skíðagöngu- dagurí Haukadal SKÍÐAGÖNGUDAGUR verður haldinn í Haukadalsskógi í Biskups- tungum laugardaginn 4. febrúar kl. 14 ef veður leyfir. Verður þá göngu- skíðasvæðið formlega opnað þriðja árið í röð. Gönguslóðir verða troðnar af björgunarsveitarmönnum og að venju bjóða húsbændur Hótel Geys- is, Már Sigurðsson og Sigríður Vil- hjálmsdóttir, þátttakendum til kaffi- drykkju að göngu lokinni. Einnig verða þar afhent þátttökuvottorð. Það sem eftir er af vetri verður svæðinu haldið í ákjósanlegu ástandi. Safnað fyrir Hjördísi NEMENDUR í 7. bekk í Öldusels- skóla ætla að safna fé til þess að leggja í sjóð Hjördísar Kjartans- dóttur, hjartaþega í Gautaborg. Hjördís gekk í Ölduselsskóla í fjóra vetur þegar hún bjó í Selja- hverfi. Bekkjarsystkini hennar þá hafa nú fengið félaga sína og kenn- ara í lið með sér. Safnað verður meðal nemenda sjálfra og haldið diskótek þriðjudaginn 31. janúar sl. Venjulegur aðgangseyrir á di- skótek er 50 krónur sem renna í ferðajsóð nemenda. í þetta skiptið greiddu allir 100 krónur sem runnu óskiptar í sjóð Hjördísar og einnig allur ágóði af sælgætissölu þetta kvöld. Einnig verða haldnar tvær skemmtanir í Ölduselsskóla laugardaginn 4. febrúar sem börn- in skipuleggja með aðstoð kennara sinna. Fyrri skemmtunin hefst kl. 14 og er ætluð yngri deildunum. Seinni skemmtunin hefst kl. 16 og er ætluð eldri deildunum. Á eftir hvorri skemmtun verður kökubas- ar. Allir eru velkomnir til að styrkja þetta málefni. ■ INDVERSK matargerðarlist verður kennd á veitingahúsinu Á næstu grösum laugardaginn 4. febrúar kl. 15. Nánari upplýsingar eru veittar á veitingahúsinu Á næstu grösum. ■ KVENNALISTINN býður til laugardagskaffis 4. febrúar nk. í kaffinu ræðir Lana Kolbrún Eddudóttir, varaformaður Sam- takanna ’78, um réttindi homma og lesbía. Kaffið er sem fyrr á Laugavegi 17, 2. hæð. Allir vel- komnir. ■ SÓLON ÍSLANDUS. Á föstu- dags- og laugardagskvöld leika Hjörtur Howser á píanó og Jan Hanson á saxafón. Tónlistin sem þeir spila er frá öllum tímum á ljúfum nótum. Þriðjudagskvöldið 7. febrúar leikur Tríó Ólafs Stephensens jass. ■ ÞORRABLÓT brottfluttra Saurbæinga verður haldið laugar- daginn 4. febrúar í Rúgbrauðs- gerðinni, Borgartúni 6 og hefst kl. 20. FRÁ undirritun samnings. Bingó Bjössi til liðs við bamaspítala Hringsins Á BARNADEILD Hringsins á Landspítalanum var undir- ritaður miðvikudaginn 1. febr- úar samstarfssamningur Bin- gólottós Happdrættis DAS og Kvenfélagsins Hringsins, sem felur í sér að allur ágóði af sölu bangsans og Bingó Bjössa, Bingó Bjössa póst- korta, barmmerkja, dúkka, bola og húfa auk annars varn- ings sem seldur er til kynning- ar Bingólottós leiksins á Stöð 2, rennur til Barnaspítala Hringsins. Samninginn undir- rituðu frú Elísabet Hermanns- dóttir formaður Hringsins og Guðmundur Hallvarðsson stjórnarformaður Happdrætt- is ÐAS. í fréttatilkynningu kemur fram að sala á Bingó Bjössa- kortum hefði farið langt fram úr öllum áætlunum og því hefði stjórn happdrættisins farið að leita eftir leiðum til að börnin fengju að njóta Við látum ekki deigan síga (oótt ítalskir knattspyrnumenn leggji skóna á hilluna nú um helgina, dregið verður um úrslit leikja og er fjöldi merkja í samræmi við spá sænskra knattspyrnufræðinga. j Fyrsti vinningur er tvöfaldur / og er áætlaður um 9 milljónir. 1 2 3 4 5 6 ~7 8 Q_ 1 O 1 1 1 3 1 3 12 5 2 12 12 _±J2_ 12 12 I 8 II 3 2 2 J1_3Í 2 2 ( 2 6 3 8 11 5 2 §j- 5 3 9 ágóðans. Barnaspítalasjóður Hringsins hefði síðan orðið fyrir valinu og væri kveðið á um að allt fé greitt samkvæmt samningnum færi óskipt til byggingar nýs barnaspítala Hringsins. Bílamarkaöurinn Smiðjuvegi 46E v/Reykjanesbraut Kopavogi, sími 671800 Opið laugard. kl. 10-17 Sunnudaga kl. 13-18 Toyota Corolla XLi station ’95, græn- sans., 5 g., ek. aðeins 4 þ. km, rafm. í rúðum o.fl. V. 1.300 þús. Sk. ód. Chevrolet Blazer S-10 Thao 4,3 L '91, hvítur, 4ra dyra, sjálfsk., ek. aðeins 29 þ. km, álfelgur, rafm. í rúðum o.fl. V. 2,2 millj. VW Golf CL 1,4 ’94, rauður, 5 g., ek. 22 þ km., tveir dekkjagangar. V. 990 þús. Nissan Sunny SLX Sedan ’93, steingrár, sjálfsk., ek. 32 þ. km., rafm. í rúðum, hiti í sætum o.fl. V. 1.080 þús. Toyota Corolla XL ’88, 3ja dyra, grænn ek. 88 þ. km. V. 495 þús. Subaru Legacy station ’92, hvítur, 2000, sjálfsk., ek. 25 þ. km, upph., rafm í rúðum o.fl. V. 1.750 þús. Suzuki Vitara JLXi '91, 3ja dyra, rauður, 5 g., ek. 70 þ. km, 30" dekk, rafm. í rúðum o.fl. V. 1.220 þús. Suzuki Swift GA ’93, 3ja dyra, rauður, 5 g., ek. 17 þ. km, geislaspilari. V. 750 þús. MMC Galant GLSi '91, hvítur, sjálfsk. ek. 109 þ. km, rafm. í öllu o.fl. Gott ein tak. V. 1.090 þús. Nissan Sunny SLX station 4x4 (Arctic Edition) ’94, blár, 5 g., ek. 16 þ. km., rafm í öllu, dráttarkúla, tveir dekkjagangar. V. 1.530 þús. Sk. ód. Toyota Corolla XLi station ’95, græn sans., 5 g., ek. aðeins 4 þ. km., rafm, rúðum o.fl. V. 1.300 þús. Sk. ód. Chevrolet Suburban 4x4 '79, sjálfsk., 7-8 manna. Gott eintak. V. 490 þús. MMC Lancer GLX '89, brúnsans., sjálfsk., ek. 74 þ. km. Gott eintak. V.675 þús. Toyota Corolla Touring XL 4x4 '89, hvít- ur, 5 g., ek. 95 þ. km., dráttarkúla o.fl Gott eintak. V. 870 þús. Hyundai Pony LS Sedan '93, rauður, 5 g., ek. 32 þ. km V. 810 þús. Nissan Sunny SLX Sedan '91, hvítur, sjálfsk., ek. aðeins 39 þ. km. V. 890 þús. Honda Civic LSi '92, 3ja dyra, hvítur, 5 g., ek. 58 þ. km. V. 1.090 þús. Vantar góða bíla á skrá og á staðinn. Ekkert innigjald.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.