Morgunblaðið - 01.03.1995, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 01.03.1995, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 1. MARZ 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR •• Oryggismál sitja á hakanum í íslenskum fyrirtækjum, segja forsvarsmenn Securitas og Vara Fyrirspurnum rignir inn í kjölfar ránsins Algengt að konum og rosknum körl- um sé án þjálfunar falið að flytja fjár- muni margra fyrirtækja í banka Í KJÖLFAR þess að tveir starfs- menn Skeljungs hf. voru rændir rúmlega 5 milljónum króna við ís- landsbanka í Lækjargötu á mánu- dagsmorgun hafa forsvarsmenn tveggja stærstu öryggisgæslufyrir- tækja borgarinnar í nógu að snúast við að svara fyrirspumum fyrir- tækja sem beðið hafa um ráðlegg- ingar um hvemig standa beri að flutningum peninga og annarra verðmæta og hafa fyrirtækin tvö verið beðin um að gera tilboð í slíka flutninga hjá nokkrum aðilum. Þótt forsvarsmenn fyrirtækja og stofn- ana sem til var leitað hafí lítið vilja tjá sig um fyrirkomulag þessara mála hjá eigin fyrirtækjum virðist ljóst að til þessa hefur verið alsiða að starfsmenn fyrirtækjanna sjálfra, gjaman konur eða rosknir menn, hafí flutt dagssölu fyrirtækj- anna í bankann. Framkvæmdastjór- ar Securitas og Vara spá því að þetta fari að breytast. Öryggismál ræða menn ekki við fjölmiðla Morgnnblaðið leitaði til forsvars- manna nokkurra fyrirtækja til að spyijast fyrir um hvemig niálum þessum væri háttað hjá þeim en fékk hvarvetna þau svör að slíkt ræddu menn ekki við fjölmiðla; Brynjólfur Helgason, aðstoðar- b^nkastjóri Landsbankans sagði að sú regla væri fyrsta öryggisboðorð í þessu sambandi og vísaði frá sér spumirigum um efnið. Sömu svör fengust annars staðar. Tvívegis hefur verið ráðist á starfsmenn ÁTVR með innkomu áfengisútsölu á leið í banka. í ann- að skiptið var starfsmönnunum hót- að með haglabyssu og 1,8 milljón- um króna rænt. Eftir það rán voru peningar ÁTVR um hríð fluttir í bankann í lögreglufylgd, samkvæmt upplýs- ingum Morgunblaðsins en það fyrir- komulag stóð aðeins í rúmt ár. Seinna tilvikið var ránstilraun í Hafnarfírði fyrir nokkram misser- um en þá gaf roskinn útsölustjóri sig ekki fyrir ræningja sem lét höggin dynja á honum með barefli. Lærdómur dreginn Höskuldur Jónsson, forstjóri ÁTVR sagði að vissulega hefði fyr- irtækið dregið lærdóm af þessum atvikum og gert ráðstafanir til að auka öryggi í flutningunum en vildi ekkert tjá sig um hver sá lærdómur hefði verið og hvort starfsmenn fyrirtækisins eða sérþjálfaðir ör- yggisverðir flyttu nú peninga ÁTVR. Hannes Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Securitas, sagði ljóst að almenna reglan væri sú að starfsmenn fyrirtækja sæju sjálfír um ferðir með mikla fjármuni í bankann þó á því væra einstaka undantekningar og til væra fyrir- tæki sem fælu það þjálfuðum ör- yggisvörðum. „Langflestir eru með þessi mál í lamasessi, mismunandi miklum," sagði Hannes. Hann sagði ljóst að fyrirtæki gætu sjálf gert heilmikið til að auka öryggi þeirra starfsmanna sem ann- ast flutninginn án þess að fela ör- yggisgæslufyrirækjunum að annast þau og Skeljungsránið hefði orðið mörgum tilefni til að falast eftir slíkum ráðleggingum. „Hér hef ég lítið gert annað í dag og í gær en að ræða við menn um verðmæta- flutninga. Umræðan er heit í dag en væntanlega mun hún dofna þeg- ar lengra líður,“ sagði Hannes. Vaxandi hætta Hann sagðist þó óttast að rán og ofbeldisverk væra að færast í vöxt hérlendis eins og í nágranna- löndunum og undir það yrðu fyrir- tækin að búa sig. Illt væri að fela starfsmönnum það verkefni að koma stórum fjárhæðum í bankann án þess að veita þeim Ieiðbeiningar og tilsögn um hvemig þeir eigi að bera sig að og hvað þurfí að var- ast. „Það segir mikið um viðhorfíð til verkefnisins að menn hafa gjam- Andlát ÞÓRUNN ELFA M AGNÚ SDÓTTIR ÞÓRUNN Elfa Magn- úsdóttir rithöfundur lést sunnudaginn 26- febrúar síðastliðinn, á áttugasta og fimmta aldursári. Þórann Elfa fæddist 20. júlí árið 1910 í Reykjavík, dóttir Magnúsar Magnússonar sjó- manns og verka- manns og Margrétar Magnúsdóttur frá Horni í Skorradal. Þórunn Elfa ólst upp hjá móðursystur sinni Marenu Magn- úsdóttur og eiginmanni hennar, Einari Sigurðssyni bónda, í Klifs- haga í Axarfirði í N-Þingeyjar- sýslu. Þórann hætti skóla- námi 16 ára gömul sökum veikinda, en sótti námskeið heima og erlendis eftir það. Jafnframt námi þessu stundaði hún verslun- arstörf, hannyrðir o.fL, en frá árinu 1941 helgaði hún sig rit- störfum jafnframt því að vera húsfreyja í Reykjavík. Þórunn gekk í hjónaband með Jóni Þórðarsyni, rithöfundi og kennara, árið 1941. Þau slitu samvistir árið 1966. Eftirlifandi börn þeirra eru Anna Margrét, Magnús Þór og Einar Már. PENINGATASKAN sem stolið var Morgunblaðið/Júlíus Skeljungi í ráninu á mánudag. ■é-:m SÉRÚTBÚIN bifreið til peningaflutninga var flutt ti! Iandsins fyrir tveimur árum en er ekki í föstum verkefnum. an litið á þetta sem verkefni fyrir eldra fólk eða fólk með skerta starfsgetu," sagði Hannes. Hann sagði að með því að fela sérþjálfuðum starfsmönnum að flytja peninga ynnist það í fyrsta lagi að verkefnið væri falið fólki með þjálfun í því hvemig ætti að bera sig að og hvað bæri að varast. í öðra lagi væra verðmætin tryggð á vegum flytjandans sem og starfs- menn öryggisgæslufyrirtækisins. „Þannig koma fyrirtækin áhættu eigin starfsmanna yfir á okkur. Það er næg ástæða til að láta sérhæft fyrirtæki sjá um þetta," sagði hann. „Þetta er hluti af vaxandi sérhæf- ingu. Öryggisgæslufyrirtæki era best í því að flytja verðmæti, aðrir eru bestir í einhveiju öðru.“ Sérbúinn bíll í fáum föstum verkum Hann sagði að hins vegar væri ljóst að aldrei yrði hægt að koma í veg fyrir rán því alltaf enduðu menn úti á götu með peningana fyrir framan bankann og ekki væri ætlast til þess að öryggisverðir stæðu í slagsmálum við ræningja. Málið væri að þeir vissu betur hvaða aðstæður þyrfti að varast. Öryggisþjónustan Vari, annað stærsta öryggisgæslufyrirtæki landsins, festi fyrir um 2 áram kaup á sérstökum brynvörðum bíl til verðmætaflutninga, hinum eina sinnar tegundar á Iandinu. Viðar Ágústsson, framkvæmda- stjóri Vara, sagði aðspurður að sem stendur væri bíllinn ekki nýttur í nein föst verkefni en hefði nýst vel í ýmis tilfallandi verkefni þar sem flytja hefði þurft peninga eða önnur verðmæti. Hann tók í sama streng og Hann- es Guðmundsson að fyrirspurnum hefði rignt yfír fyrirtækið í kjölfar ránsins og nokkrir aðilar hefðu beð- ið Vara að endurnýja fyrri tilboð í verðmætaflutninga sína. Auk bílsins störfuðu hjá fyrir- tækinu sérþjálfaðir öryggisverðir sem bæra fullkominn hlífðarbúnað og flyttu verðmæti i sérhönnuðum töskum. Allar miðuðu þessar ráð- stafanir að því að gera ræningjum erfíðara fyrir en áhrifín fælust þó ekki síst í þeim fælingarmætti sem sýnilegur viðbúnaður þjálfaðra manna hefði og sýndi þeim sem hefðu misjafnt í huga að þeirra biði mótspyma og erfiðleikar þótt aldrei væri hægt að útiloka að rán heppn- uðust. Viðar vildi ekki tjá sig um hvaða fyrirmæli öryggisverðirnir fengju um það hvernig bregðast ætti við ráni og hvorki hann né Hannes Guðmundsson vildu ræða hvort þeir væra vopnaðir, búnir táragasi, kylf- um eða öðru slíku. Öryggismál fyrst undir hnífinn „Öryggisverðir eiga að þola ágang ránsmanna en það er ekki ætlast til að þeir yfirbugi þá,“ sagði Viðar. Viðar Ágústsson tók undir það að forsvarsmenn íslenskra fyrir- tækja væru sér ekki sérlega meðvit- aðir um öryggismál og sagði að fjár- festing í öryggismálum væri gjarn- an fyrsti liðurinn sem settur væri undir niðurskurðarhnífinn á sam- dráttartímum, hvort sem um væri að ræða þjófavarnarkerfí, bruna- boða eða annað. „Ég hef heyrt á forráðamönnum fyrirtækja að þeim vex í augum kostnaðurinn sem fylgir því að flytja verðmæti með alvöruviðbún- aði og það á líka við um þann við- búnað sem þarf til að þeirra eigin starfsmenn flytji t.d. peninga í sér- útbúnum töskum eða hafi á sér neyðarhnapp. Mönnum hættir til að líta svo á að öryggismál séu vegna fjarlægs vanda og þess vegna viil brenna við að menn séu bláeygð- ir. Þess vegna hafa öryggismál víða setið á hakanum." Hann sagði að það gæti kostað um 100 þúsund krónur að fljdja verðmæti með sérútbúnum bíl og Rán við banka og bensín- stöðvar • 25. APRÍL 1990 myrtu tveir menn starfsmann bensínstöðvar við Stóragerði og rændu um 300 þúsund krónum úr peningaskáp stöðvarinnar. Mennirnir voru handteknir og annar dæmdur til 18 en hinn til 20 ára fangelsisvist- ar. • 30. JANÚAR 1987 rændu þrír grímuklæddir menn hundruðum þúsunda króna, dagssölu föstu- dags í Stórmarkaðinum í Kópa- vogi, þegar þeir réðust á verslun- arstjórann við útibú Útvegsbank- ans á Smiðjuvegi. Þeir komust undan. • 17. FEBRÚAR1984 réðst ung- ur maður vopnaður haglabyssu á tvo starfsmenn ÁTVR og stal af þeim dagssölu föstudags í Snorrabrautarútibúi ÁTVR, alls 1.840 þúsund krónum, eftir að hafa hleypt af úr haglabyssunni að bíl starfsmannanna. Maðurinn og vitorðsmaður hans voru síðar handteknir og dæmdir til langrar fangelsisvistar. • 9. FEBRÚAR 1984 gekk ókunnur maður inn í útibú Iðnað- arbankans í Drafnarfelli og hrifsaði 364 þúsund krónur úr skúffu gjaldkera. Hann komst á brott og hefur ekki náðst. sérþjálfuðum örygglsvörðum dag- lega í einn mánuð. Á móti gætu fyrirtæki sparað í starfsmannahaldi og rekstrarkostnaði bíls. Hann sagðist þó telja að viðhorf stjómenda fyrirtækja mundi breyt- ast hratt á mæstu árum og í því sambandi skiptu fréttir af Skelj- ungsráninu og aukinni tíðni rána miklu máli. „Auðvitað þurfa menn svona áminningu til að taka við sér. Ég vona að þetta verði lexía sem for- ráðamenn fyrirtækja taka alvarlega og þá er ég ekki bara að tala út frá þessum markaði. Það var fyrir mestu að stúlkurnar sluppu nánast ómeiddar við Islandsbanka og menn mega ekki gleyma að hugsa málið út frá hagsmunum almennra starfs- manna sem er falið að fást við þetta án þjálfunar og bjóða það af sér með framgöngu sinni að þeir séu auðveld fómarlömb fyrir ræningja," sagði Viðar Ágústsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.