Morgunblaðið - 01.03.1995, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 1. MARZ 1995 9
FRÉTTIR
Salome Þorkelsdóttir forseti Alþingis um vinnubrögð þingsins
Æskilegt að stytta ræður
og útkljá mál í nefndum
SALOME Þorkelsdótt-
ir forseti Alþingis
sagði á síðasta þing-
fundi kjörtímabilsins
að taka breyta þyrfti
umræðuformi þing-
funda, stytta ræðu-
tíma og útkljá mál í
þingnefndum. Salome
hverfur nú af þingi
eftir að hafa setið þar
fyrir Sjálfstæðisflokk-
inn síðan 1979 en hún
gegndi embætti for-
seta Alþingis síðustu
fjögur ár.
Salome Þorkelsdótt-
ir flutti ávarp á síðasta
þingfundi sínum og
sagði meðal annars að embætti for-
seta Alþingis væri áhugavert og
krefjandi starf. Og hún væri þeirrar
skoðunar að forseti Alþingis eigi
að draga sig sem mest út úr flokks-
pólitískri baráttu og standa utan
við hana.
„Ég tók ákvörðun um að starfa
með þeim hætti í þessu embætti
og tel að það styrki forseta i starfi.
En þetta hefur hins vegar í för með
sér að sá þingmaður sem forseta-
starfi gegnir tekur pólitíska áhættu
og nýtur ekki alltaf skilnings um-
bjóðenda sinna í þessu starfi og á
því þarf að ráða bót,“ sagði Salome.
Bætt vinnubrögð
Hún gerði einnig vinnubrögð á
þinginu að umtalsefni og sagði að
þótt störf Alþingis hefðu orðið skil-
virkari mætti margt bæta, og auk
þess væri þarft að breyta umræðu-
forminu á Alþingi og
æskilegt að útkljá
ágreining um mál í
þingnefndum.
„Það þarf að stytta
umræður og gera þær
hnitmiðaðri en þær eru
núna. Það þarf einnig
að verða breyting á
samskiptum stjórnar-
meirihluta og stjómar-
andstöðu. Stjórnarand-
staða hefur mikil völd
við þinglok og .úrslit
mála mjög undir henni
komin. Hún þarf að
fara gætilega með þau
og virða þann meiri
hluta sem er í þinginu
á hveijum tíma. Ríkisstjórn á hveij-
um tíma verður einnig að sýna
sanngirni, virða rétt þingsins til
þess að íjalla um mál á þeim tíma
sem það telur þurfa, knýja ekki á
um afgreiðslu mála úr nefndum
fyrr en þau hafa verið vel og gaum-
gæfilega unnin.
Konum þarf að fjölga á þingi
Ég sé fyrir mér agaðri vinnu-
brögð hér í þingsalnum við af-
greiðslu þingmála, afmarkaðan
umræðutíma þar sem öll sjónarmið
fá að koma fram, en síður að veg-
ist sé á með orðum þegar mál eru
komin til afgreiðslu í þingsalnum.
En jafnframt þarf að skapajákvæð-
an ramma utan um almenna póli-
tíska umræðu, bæði stutta og
snarpa sem og yfirgripsmeiri um-
ræður af því tagi,“ sagði Salome.
Salome sagði einnig að þótt kon-
um á Alþingi hefði fjölgað á síðustu
árum væru þær þó enn aðeins um
fjórðungur þingheims og það hlut-
fall þyrfti að bæta. En Alþingi
væri ekki vinnustaður sem hentaði
konum, eða foreldrum yfirleitt, vel
vegna gríðarlegra. annir sem þar
væru í desembermánuði og við
þinglok að vori.
„Það er trú mín að með fleiri
konum á Alþingi breytist vinnulag
þingsins þannig að álag í störfum
þess verði jafnara en nú er. Ein
leið til þess að ná þessu markmiði
væri t.d. að skipta störfum Alþing-
is í nokkrar vinnulotur og að þingið
fengi rýmri tíma til þess að fjalla
um viðamikil mál en raun er á,
bæði að þau mættu liggja lengur
fyrir þinginu en nú er og ríkisstjórn
kæmi fyrr fram með mál en venja
hefur verið á undanförnum árum.
Það er sagt að Alþingi eigi að
vera þjóðarspegill, þverskurður af
þjóðinni. Því er ég samþykk og tel
farsælast að hér í þessum sal sitji
jafnan jafnt ungir með ferskar hug-
myndir sem og þeir sem búa yfir
þekkingu og reynslu og endurnýjun
þarf að eiga sér stað,“ sagði
Salome.
Hún bætti við að nýrrar forsætis-
nefndar Alþingis biðu mörg verk-
efni, bæði í starfsháttum þingsins
og þá ekki síður við það að taka á
húsnæðismálum Alþingis. Að því
máli hefði verið unnið skipulega á
undanförnum mánuðum og þess
væri að vænta að fyrsta uppskera
af því starfi komi í ljós í vor og
sumar.
Saiome
Þorkeisdóttir
Sækir um lóð
fyrir kvik-
myndahús
JÓN Ólafsson, eigandi Bíós hf., sem
rekur Regnbogann hefur óskað eftir
viðræðum við borgaryfirvöld um
byggingu kvikmyndahúss í Reykja-
vík með allt að sex sölum er rúmi
2.000 manns.
Lóðarumsóknin hefur verið lögð
fram í borgarráði og er óskað eftir
viðræðum um hvort og þá hvaða lóð-
ir kynnu a^ standa til boða. Erindinu
var vísað 'til skipulagsnefndar og
skrifstofustjóra borgarverkfræðings.
00 Utankjörstaðaskrifstofa
Sjálfstæðisflokksins
>’ , Valhöll, Háaleitisbraut 1, 3. hæð
Símar: 588-3322, 588-3323, 588-3327
Utankjörfundaratkvæðagreiðsia fer fram hjá
sýslumanninum í Reykjavík, Skógarhlíð 6,
3. hæö, virka daga kl. 9.30-15.30.
Skrifstofan gefur upplýsingar
um allt sem lýtur að kosningunum 8. apríl.
Sjálfstœðisfólk!
Hafið samband efþið verðið ekki beima á kjördag
XB Framsóknarflokkurinn
Olafur Örn
Haraldsson
er fylgjandi
að persónuafsláttur
hjóna og sambýlisfólks
verði millifæranlegur
að fullu.
Nýr baráttumaður fyrir Reykvíkinga
2. sætiö í Reykjavík
Hotel Ishind kynnir skemmtidagskrána
ÞÓ LÍÐI ÁR 0G ÖLD
BJÖRGVIN HAIJJ)ÓRSSON - 25 ÁRA AFMÆIJSTÓNLEIKAR
_ BJÖRGVIN HALLDÓRSSON lítur ylir dagswrkið scm dægurlagasiingrari á
hfjómplöt um i aldarfjórðung, og við heyrum nær (»0 lög l'rá
glæstum I'erli - frá 1909 til okkar daga
8TröHat§eigsnámskeiÖ
Litað deig. Veggmyndir og frístandandi styttur.
Mikið úrval hugmynda. Tek einnig að mér að
koma út á land fyrir hópa.
Upplýsingar hjá Aldísi í síma 5650829.
Næstu sýningar:
4, 11, 18 og 25 mars.
1,8, 12, 19, 22, og 29 apríl
beslasonjíxari: ^
SIGRÍDI R BKINTEINSDOmir
I.tMkmynd oj» loikstjórn:
BJÖRN (i. BJÖRNSSON
IUjomsveitarstjorn:
GUNNAR I»ÓRDARSON
ásamt I() rnanna hljómsveit
Matsedill
Koníakstóneruö humarsúpa meö rjómatopp
Lamba-piparsteik meö gljáöu grænmeti,
kryddsteiktum jaröeplum og rjómapiparsósu
Kynmr:
JÓN AXKL ÓLAFSSON
Islaiuls- oj> Noróiirlamlaineistarar i
samktu'misdönsiiiu l'rá Dansskola
Auóai llaralds s\na ilans.
Grand Marnier ístoppur meö hnetum og
súkkulaöi karamellusósu og ávöxtum.
Verd kr. 4.600 - Sýningarverd kr. 2.000
. Dansleikur kr. 800
Sértilboð a gistmgu,
sími688999.
Bordapantanir
i sima 687111
&LÁND
.•Ml
Ríkisvíxlar!
• Ríkisvíxlar hafa fjölmarga kosti við fjárstýringu.
• Ríkisvíxlar eru örugg skammtímaverðbréf með tryggri ávöxtun. Þau eru skráð
á Verðbréfaþingi íslands sem tryggir greið viðskipti við kaup og sölu.
• Ráðgjafar Þjónustumiðstöðvar ríkisverðbréfa veita þér allar
nánari upplýsingar í síma 562 6040.
Hafðu samþand við ráðgjafa Þjónustumiðstöðvar
ríkisverðþréfa sem aðstoða þig við kaup á ríkisvíxlum. Hverfisgötu 6,2. hæð (rfeðsta húsið við Hverfisgötu)
sími 562 6040, fáx 562 6068
ÞJONUSTUMIÐSTOÐ
RÍKISVERÐBRÉFA
Þú getur boðið í vextina á ríkisvíxlum til 3ja, 6
eða 12 mánaða í útboðinu fyrir kl. 14 í dag.
Hvað sem þú gerir - sparaðu með áskrift að spariskírteinum