Morgunblaðið - 01.03.1995, Síða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 1. MARZ 1995
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Flugráð telur nauðsynlegt að endurnýja flugbrautir á Rey kj aví kurflugvelli
Ekki hægt að draga endur-
nýjun af öryffgisástæðum
Skákkeppni barna
Hlynur
Hafliðason
Islands-
meistari
Á SUNNUDAG iauk íslandsmóti
bama í skák hjá Skáksambandi ís-
lands. Bömin em fædd 1984 og síðar.
í fyrsta sæti var Hlynur Hafliða-
son, fæddur 1985, nemi í Breiðagerð-
isskóla, en hann hlaut átta vinninga
af níu mögulegum. í öðm sæti var
Ingibjörg Edda Birgisdóttir, fædd
1984, nemi í Breiðagerðisskóla, en
hún hlaut sjö og jiálfan vinning af
níu mögulegum. í þriðja til sjötta
sæti var Elí B. Frímannsson, fæddur
1984, nemi í Grundaskóla, en hann
hlaut sex vinninga. Með jafnmarga
vinninga vora Sigurður Heiðar Hös-
kuldsson, Kársnesskóla, Guðjón
Heiðar Valgarðsson, Hólabrekku-
skóia, og Emil H. Petersen, Digra-
nesskóla.
FLUGRÁÐ telur nauðsynlegt að
nú þegar verði hafíst handa við
að finna fjárhagslegan grundvöll
fyrir byggingu flugstöðvar á
Reykjavíkurflugvelli. Endurskoða
þurfí allar hönnunarforsendur frá
síðustu hugmyndum um flugstöð.
í ályktun ráðsins kemur fram
að um Reykjavíkurflugvöll fara
árlega um 300 þúsund farþegar,
eða tæplega 90% af öllum þeim
sem fljúga í innanlandsflugi á
íslandi. Við samþykkt flugmálaá-
ætlunar árið 1986 hafi tvö af
þremur sérverkefnum sem átti að
fjármagna með sérframlögum á
fjárlögum, verið framkvæmdir á
Reykjavíkurflugvelli, annars veg-
ar endurnýjun á flugbrautum en
hins vegar bygging nýrrar flug-
stöðvar.
Kostnaður ekki
undir 100 millj.
„Enn hefur ekkert fjármagn
fengist til þessara framkvæmda
og nú er svo komið að af öryggisá-
stæðum verður ekki hægt að
draga í mörg ár að endurnýja flug-
brautirnar. Flugráð hefur því gert
að tillögu sinni að í slíkar fram-
kvæmdir verði farið 1997 og fjár-
magn tekið af framkvæmdafé
flugmálaáætlunar. Þessar fram-
kvæmdir era hins vegar það fjár-
frekar að verulega mun draga úr
framkvæmdum á öðrum stöðum
þann tíma sem endurnýjunin tek-
ur,“ segir í ályktuninni.
Hilmar B. Baldursson formaður
Flugráðs segir að hjá því verði
ekki komist að setja fé í endurnýj-
un fiugbrauta vegna ástands
þeirra, sem stefni í að stofna ör-
yggissjónarmiðum í hættu verði
ekkert að gert. Bæði þurfi að und-
irbyggja brautirnar á köflum og
leggja nýtt slitlag. Kostnaður við
þetta yrði ekki undir 100 milljón-
um króna, og eigi að taka þetta
fé af framkvæmdafé flugmálaá-
ætlunar mundi það koma niður á
framkvæmdum öðram á lands-
byggðinni.
„Flugstöðin, sem hefur verið
miðstöð innanlandsflugsins, ann-
ar í fyrsta lagi ekki lengur þeim
flutningum sem um hana fara á
álagstímum. í öðru lagi er það
landi og þjóð til skammar að þeir
skúrar sem hrúgað hefur verið
hveijum utan á annan og sumir
hveijir eru upprunnir frá stríðs-
tímum, skuli enn vera flugstöð á
flugvelli höfuðborgarinnar.“ Ráð-
ið telur ekki óeðlilegt að sveitarfé-
lög á Stór-Reykjavíkursvæðinu
komi með einum eða öðrum hætti
að þessu máli, þar sem þau eigi
verulegra hagsmuna að gæta við
að viðhalda mikilvægi Reykjavík-
urflugvallar í samgöngukerfinu.
Vörugjald á bifreiðar lækkað
Mesta lækkun á bíl
er 480 þúsund krónur
Meðaltalslækkun á bensínbílum um 3%
Verðbreytingar á dísilbifreiðum
Bifreiðargerð Verð fyrir Verð eftir
Jeep Cherokee 2.975.000.- 2.690.000.-
Mazda 626 GLX Mercedes Benz C 200 2.295.000.- 3.075.000.- 2.220.000.- 3.025.000.-
Mercedes Benz C 220 Mercedes Benz C 250 3.495.000.- 3.855.000.- 3.175.000.- 3.495.000.-
Mercedes Benz E 200 Mercedes Benz E 250 3.495.000.- 4.315.000.- 3.450.000.- 3.850.000.-
Mercedes Benz E 300 Mercedes Benz E 300 turbo 5.045.000.- 5.675.000.- 4.750.000.- 5.360.000.-
Mercedes Benz E 300 4-Matic turbo Mitsubishi Pajero Super Wagon Mitsubishi Pajero Super W., sjálfsk. Mitsubisbi L-300 Minibus 4x4 6.610.000.- 3.800.000.- 3.950.000.- 2.690.000.- 6.180.000.- 3.494.000.- 3.632.000.- 2.384.000.-
Nissan Primera SLX Nissan Patrol Wagon 1.805.000,- 3.995.000.- 1.751.000.- 3.682.000.-
Nissan Patrol High Roof Wagon Nissan Terrano II Wagon SLX Nissan Terrano II Wagon SGX Opel Astra GL Station 3.591.000.- 3.026.000.- 3.150.000,- 1.530.000.- 3.310.000,- 2.819.000.- 2.943.000.- 1.420.000.-
Opel Astra GL Station turbo Opel Vectra GLS 1.660.000.- 1.825.000. 1.520.000,- 1.670.000.-
Opel Omega Peugeot 405 GLX 3.150.000.- 1.575.000. 2.670.000.- 1.529.000.-
NÝ lög um vömgjald á ökutæki sem
sett voru á lokadögum þings leiðir
til allt að 60-70 þúsund kr. lækkun-
ar á fólksbílum með bensínvél og
allt að 300 þúsund kr. lækkun á
dísilbílum. Helstu breytingarnar sem
nýju lögin feia í sér er að í stað 45%
vörugjalds í gjaldflokki II verður
vömgjaldið 40% og ökutæki knúin
dísilolíu raðast í sérstaka gjald-
flokka. Breytingin tekur gildi 1.
mars.
Gjaldflokkar dísilknúinna öku-
tækja verða fjórir. Gjaldflokkur I ef
sprengirými vélar er 0-1900 rúms-
entimetrar og bera þessi ökutæki
30% vörugjald, II. gjaldflokkur fyrir
1901-2500 rúmsentimetra vélar ber
40% vörugjald, III. gjaldflokkur fyr-
ir 2501-3000 rúmsentimetra vélar
ber 60% vöragjald og í IV. gjaldflokk
falla ökutæki ef sprengirými véiar
er yfir 3000 rúmsentimetrar og bera
þau 70% vöragjald.
Bifreiðaumboðin hafa reiknað út
nýjar verðskrár í samræmi við nýtt
vörugjald og er meðaltalslækkunin á
fólksbílum með bensínvélum til kaup-
enda er nálægt 3% en meðaltalslækk-
un á dísilbílum er nálægt 10%.
Mercedes-Benz E 250 dísil
lækkar um 465.000 kr.
Hjá Toyota er mest verðlækkun
á 4Runner 3,0 1 eða 280 þúsund
kr., fer úr 3.469.000 kr. í 3.189.000
kr. Corolla Touring 1,6 1 lækkar um
45.000 kr., fer úr 1.699.000 kr. í
1.654.000 kr. Hjá Jöfri hf. lækkar
verð á Jeep Cherokee 2,5 I turbo
diesel um 285.000 kr., fer úr
2.975.000 kr. í 2.690.000 kr. Peuge-
ot 405 GTX 2,0 1 sjálfskiptur lækkar
um 56.000 kr., fer úr 1.755.000 kr.
í 1.699.000 kr.
Ræsir hf. er með umboð fyrir
Mazda og Mercedes-Benz bifreiðar.
Mazda 626 2000 GLX iækkar um
80.000 kr., fer úr 2.310.000 kr. í
2.230.000 kr. Vegna hækkunar toll-
gengis hækka sumar gerðir Merce-
des-Benz í verði, en þó minna en
að óbreyttu vörugjaldi. Þó lækkar C
180 um 50.000 kr., fer úr 2.985.000
kr. í 2.935.000 kr. og lækkun verður
á öllum dísilbílum, mest um 465.000
kr. á E 250 stallbak sem fer úr
4.315.00 kr. í 3.850.000 kr.
Hekla hf. er með umboð fyrir VW,
Mitsubishi og á auk þess Kia bíla á
Islandi sem flytur inn samnefnda
bíla frá Suður-Kóreu. Kia Sportage
jeppinn sem er með bensínvél lækk-
ar um 178.000 kr., fer úr 2.168.000
kr. í 1.990.000 kr. Mitsubishi Space
Wagon GLXio beinskiptur lækkar
um 74.000 kr., fer úr 2.390.000 kr.
í 2.318.000 kr. en Pajero 50 Super
Wagon diesel turbo 2800 lækkar um
318.000 kr„ fer úr 3.950.000 kr. í
3.632.000 kr. VW lækkar á bilinu
43-67.000 kr. Golf CL 1800 sjálf-
skiptur lækkar um 43.000 kr„ fer
úr 1.370.000 kr. í 1.327.000 kr. en
Vento GL 2000 sjálfskiptur lækkar
um 67.000 kr„ fer úr 1.865.000 kr.
í 1.798.000 kr.
Mesta lækkunin á
Opel Omega dísil
Honda Cicic 3 dyra DXi 1,5 1
lækkar um 46.000 kr„ fer úr
1.395.000 kr. í 1.349.000 kr. en
Accord LSi 2,0 1 sjálfskiptur lækkar
mest, eða um 80.000 kr„ fer úr
2.265.000 kr. í 2.185.000 kr.
Bílheimar hf. flytja m.a. inn Op-
el. Opel Astra GL stallbakur lækkar
um 50.000 kr„ fer úr 1.530.000 kr.
í 1.480.000 kr. en mesta lækkunin
verður á Omega 2,5 1 turbó dísil sem
lækkar um 480.000 kr„ fer úr
3.150.000 kr. í 2.670.000 kr.
Ingvar Helgason hf. er með um-
boð fyrir Nissan og Subaru. Subam
Legacy 2,0 1 GL beinsskiptur lækkar
um 67.000 kr„ fer úr 2.138.000 kr.
í 2.071.000 kr. Nissan Patrol Wagon
2,8 1 disil lækkar um 313.000 kr„
fer úr 3.995.000 kr. í 3.682.000 kr.
Suzuki bílar eru eingöngu með
bensínknúnar Suzuki bifreiðar. Þar
verður lækkun á Vitara jeppanum.
Mestu munar á Vitara JLXi l,d6 I
fimm dyra sem lækkar um 87.000
kr„ fer úr 2.345.000 kr. í 2.258.000
kr. en aðrar útfærslur lækka um
80.000 kr. í verði.
Brimborg hf. er með umboð frá
fjórum framleiðendum, Ford, Volvo,
Daihatsu og Citroen. Almennt
lækka bílarnir um 3%. Mestu munar
á verðlækkun á Daihatsu Feroza,
eða 60.000 kr„ sem fer úr
1.798.000 kr. í 1.738.000 kr. en
Volvo 850, 2,0 1 sjálfskiptur lækkar
50.000 kr„ fer úr 2.498.000 kr. í
2.448.000 kr. þrátt fyrir að hliðar-
Ioftpúðar bætist við sem staðalbún-
aður í allar Volvo 850 bifreiðar frá
og með 1. mars nk.
Hjá Bifreiðum og landbúnaðarvél-
um lækkar Renault um 34-61.000
kr. Renault 19 RT 1,8 1 sjálfskiptur
lækkar um 40.000 kr„ fer úr
1.569.000 kr. í 1.529.000 kr. en
Renault Laguna RT 2,0 1 lækkar um
61.000 kr„ fer úr 1.759.000 kr. í
FULLTRÚARÁÐ sjálfstæðisfélag-
anna í Reykjavík mun væntanlega
koma saman til fundar í vikunni til
að ganga frá breytingum á listanum
vegna þess að Markús Örn Antons-
son hefur ákveðið að hætta stjórn-
málaafskiptum í kjölfar þess að hann
hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri
Útvarpsins en hann átti að skipa 10.
sæti listans.
Alþingi samþykkti rétt fyrir þing-
slit að breyta kosningalögum þannig
að Flakkarinn svokallaði, sem verið
hefur uppbótarþingsæti óbundið
kjördæmum, verður fast uppbótar-
þingsæti í Reykjavík. Við það fjölgar
alþingismönnum kjördæmisins úr 18
í 19. Flokkarnir miða yfirleitt við að
1.698.000 kr. Hyundai lækkar á bil-
inu 35-50.000 kr. í verði. Accent
1500 GLSi lækkar um 35.000 kr„
fer úr 1.119.000 kr. í 1.084.000 kr.
en Sonata 2000 GLSi 2,0 1 lækkar
um 50.000 kr„ fer úr 1.598.000 kr.
í 1.548.000 kr.
hafa á framboðslistum sínum tvö-
falda þingmannatölu kjördæmisins.
Því eru 36 nöfn á þeim listum sem
gengið hefur verið frá í Reykjavík.
Er það til athugunar hjá flokkunum
hvort ástæða sé til að bæta tveimur
nýjum nöfnum á framboðslistana
vegna færslu Flakkarans.
Baldur Guðlaugsson, formaður
stjómar fulltrúaráðs sjálfstæðisfé-
laganna í Reykjavík, segir að það
verði ákveðið á fulltrúaráðsfundi sem
væntanlega verður haldinn í vikunni
hvort nöfnum verði bætt við um leið
og tekin verður ákvörðun um breyt-
ingar á listanum vegna brotthvarfs
Markúsar Arnar.
21150-21370
LARUS P. VALDIMARSSON, framkvæmdastjori
KRISTJAN KRISTJANSS0N, ioggiltur fasteignasali
Nýjar á fasteignamarkaönum til sýnis og sölu:
Suðurendi - sérþvhús - frábært verð
Mjög góð óvenju stór 5 herb. endaíb. á 1. hæð v. Hjallabraut, Hf. um
140 fm. 4 rúmg. svefnherb. m. innb. skápum. Tvennar svalir. Ágæt
sameign. Útsýni. Skipti mögul. á einbh. í Hafnarf. m/a.m.k. 5 svefnherb.
í nágrenni Kjarvaisstaða
í tvíbhúsi 3ja herb. íb. á neðri hæð í reisul. steinh. Gott rými fylgir í
kj. Nánari uppl. á skrifst.
Milli Botnsár og Rangár
Þurfum að útvega jörð fyrir traustan kaupanda. Skipti mögul. á úrvals-
eign í lyftuhúsi. Nánari uppl. veitir Lárus á skrifst.
í Hafnarfirði óskast
gott einb- eða raðhús m/a.m.k. 5 rúmg. svefnherb. Ennfremur lítið
sérbýli m. 3ja-4ra herb. íb. Má þarfn. endurbóta.
• • •
FJöldi góöra eigna í skiptum.
Teikningar á skrifstofunni.
Almenna fasteignasalan sf.
var stofnuð 12. júlí 1944.
ALMENNA
f A5TEIGNASALAN
ÍÁÍJGÁvÉGM8SÍMÁR2ÍÍ5r^2Í37Ö
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík
Akvörðun um 10.
sætið í vikunni