Morgunblaðið - 01.03.1995, Side 14
14 MIÐVIKUDAGUR 1. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
r
Sjónvarpsfélagið Fjölsýn
í Vestmannaeyjum
Útsendingar
hefjast í vor
FJÖLSÝN er heitið á sjónvarpsfé-
lagi sem stofnað hefur verið í Vest-
mannaeyjum. Búið er að festa kaup
á móttöku- og sendibúnaði, velja
myndlyklakerfí og er reiknað með
að útsendingar hefjist um mánaða-
mót maí og júní í vor.
Að sögn Gísla Valtýssonar,
stjórnarmanns í Fjölsýn, verður
tækjabúnaður keyptur af fyrirtæk-
inu Elnet í Reykjavík. Tekið verður
við efni erlendra sjónvarpsstöðva
um 3 metra móttökudisk og það
síðan sent út á örbylgju.
Sex sjónvarpsrásir
Félagið hefur fengið leyfi fyrir
útsendingu á sex sjónvarpsrásum.
A fimm rásum verður endurvarpað
efni erlendra gervihnattastöðva.
Helst koma þar til greina BBC,
Cartoon Network/TNT, NBC, Sky
News og Eurosport, að sögn Gísla.
Á sjöttu rásinni verða til að byija
með skjáauglýsingar og textavarp
til Vestmannaeyinga og í framtíð-
inni er reiknað með að þar verði
einnig sýnt efni framleitt i Eyjum.
Fjölrása myndlykill
Það er tæknilega mögulegt að
endurvarpa mun fleiri sjónvarpsrás-
um. Gísli nefndi að myndlykillinn
sem valinn var réði við að opna 31
dagskrá samtímis. Þannig verður
hægt að horfa á eina rás og taka
aðra upp um leið, eða horfa á sína
rásina í hveiju sjónvarpstæki á
heimilinu.
Reiknað er með að loftnet, mynd-
lykill og uppsetning verði boðin í
einum pakka sem mun kosta ná-
lægt 20 þúsund krónum. Áskriftar-
gjald er talið verða nálægt eitt þús-
und krónum á mánuði.
LANDIÐ
Fjölmenni við útför oddvita Gnúpverja
Eystra-Geldingaholti - Útför
Steinþór Ingvarssonar, Þrándar-
lundi, oddvita Gnúpverja, fór
fram laugardaginn 25. febrúar
sl., en hann lést 16 þ.m. eftir
langa vanheilsu, 62 ára að aldri.
Athöfnin hófst í Skálholtsdóm-
kirkju að viðstöddu miklu fjöl-
menni. Sóknarprestur Stóra-
Núpsprestakalls, sr. Axel Árna-
son, jarðsöng. Söngfélag Stóra-
Núpskirkju og Kór Ólafsvallar-
kirkju leiddu söng. Einsöng söng
frændi Steinþórs, Þorgeir J.
Andrésson. Orgelleikari var
Hilmar Orn Agnarsson, organisti
í Skálholti.
Að lokinni athöfninni í Skál-
holti var haldið til sóknarkirkju
Steinþórs að Stóra-Núpi. Þar fór
fram stutt en einkar hlýleg
kveðjustund. Söngfélag kirkj-
unnar söng Blessuð sértu sveitin
mín undir stjórn Þorbjargar Jó-
hannesdóttur organista kirkj-
unnar. Sr. Axel flutti ritningar-
orð og bæn og Kristjana Gests-
dóttir söng einsöng. Jarðsett var
í Stóra-Núpskirkjugarði. Erfi-
drykkja var í Árnesi í boði Gnúp-
verjahrepps.
Öll var þessi útför látlaus og
fögur og var það mjög í anda
þess geðfellda og afar vinsæla
manns Steinþórs Ingvarssonar
sem hér var kvaddur.
Veður var fagurt þennan dag.
Sólin hellti geislum sínum yfir
sveitina og ég ætla að mörgum
muni seint úr minni líða er lík-
fylgdin fór frá Skálholti að
Stóra-Núpi. Hin mikla og stór-
kostlega fjallasýn og sveitirnar
baðað í geislum sólar. I austri
gnæfði hin mikla mynd, Þríhyrn-
ingur, Tindafjöll, Eyjafjallajökull
og Hekla. Sýnin sem blasti við
Steinþóri alla ævi. Rétt eins og
sveitin skartaði sínu fegursta síð-
asta spölinn.
Vetrarríki
í Stykkis-
hólmi
KÁTIR krakkar á skólasvellinu
Morgunblaðið/Árni Helgason
Stykkishólmi - Vetrarríki hefur
verið í Stykkishólmi í febrúar.
Um síðustu mánaðamót kyngdi
niður snjó og hefur ekki komið
hláka síðan. Snjómagnið er það
mesta sem hefur komið hér í
a.m.k. 60 ár segja eldri menn.
Er algengt að sjá 2-3 metra
skafla við hús í bænum.
Yfirleitt er snjólétt í Hólmin-
um og því eru Hólmarar óvanir
slíku fannfergi. Hefur verið nóg
að gera hjá bæjarstarfsmönnum
að moka götur og heimkeyrsl-
ur. I fyrstu var aðeins stungið
í gegn en upp á síðkastið hafa
göturnar verið mokaðar betur
og á örfáum stöðum er hægt
að ganga á gangstéttum en ann-
ars verða fólk og bílar að fara
um sama veginn og þá sýna
menn tillitssemi á báða bóga.
Nýtt leiksvæði fyrir börnin
En snjórinn er ekki bara til traf-
ala. Eitt af því sem tilheyrir
vetrinum er að komast á skauta
og renna sér á góðu svelli. I
Stykkishólmi er ekkert um
tjarnir sem hægt er að nota til
skautaiðkunar. Hólmarar hafa
því farið upp á Ögursvatn eða
Helgafellsvatn þegar þar hefur
verið gott svell. Nú á dögunum
tóku starfsmenn grunnskólans
sig til og útbjuggu skautasvell
fyrir framan skólann. Var feng-
inn slökkvibíll staðarins og
dældi hann vatni í lægð sem
búin var til. Nemendur kunnu
heldur betur að meta þessa nýju
skautaaðstöðu og hafa verið
duglegir að renna sér á skaut-
um eins og myndin ber með sér.
SNJÓRUÐNINGSTÆKI að störfum í Stykkishólmi.
Fundur um
mengunarmál
Stykkishólmi - Fundur var haldinn
í Stykkishólmi 23. febrúar sl. á
vegum Samtaka sveitarfélaga á
Vesturlandi og voru mættir starfs-
menn á vegum umhverfisráðuneyt-
isins, Hollustuverndar ríkisins,
Náttúruverndarráðs og Skipulags
ríkisins.
Frá Hollustuvernd mættu Lúðvíg
Gústafsson, deildarstjóri úrgangs-
förgunardeildar, og Olafur Péturs-
son, forstöðumaður mengunar-
varnasviðs. Frá Náttúruverndarráði
mættu Guðríður Þorvarðardóttir og
Þórunn Reykdal og frá Skipulagi
ríkisins komu Sigurður Thoroddsen,
Þóroddur Þóroddsson og Elín
Smáradóttir.
Fundurinn var ætlaður sveitar-
stjórnarmönnum á Snæfellsnesi og
í Dalabyggð og reyndar öllum sem
að þessum málum starfa á svæð-
inu. Frummælendur fluttu fróðleg
erindi um starf og tilgang sinna
stofnana. Rætt var m.a. um skipu-
lagsmál, byggingamál, umhverfis-
mál, náttúruvernd og hollustu-
vernd. Þá kynntu heimamenn
ástand þessara mála á sínu svæði.
Voru fundarmenn ánægðir með að
þessi fundur var haldinn og voru
sammála um að gott samband þyrfti
að vera á milli heimamanna og
þessara stofnana því hér er um að
ræða mikilvæg mál sem þurfa að
vera í lagi og í sátt við heimafólk.
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
HÉRAÐSSAMBANDIð Skarphéðinn kaus Ingólf Snorrason,
karatemann á Selfossi, sem hér er með unnustu sinni Huld
Hákonardóttur, íþróttamann ársins.
HSK á uppleið eftir
erfitt landsmótaár
Fimm milljón króna tap varð á landsmóti ung-
mennafélaganna á Laugarvatni sl. sumar
Hellu - Héraðssambandið Skarp-
héðinn hélt sitt 73. héraðsþing um
sl. helgi á Hellu en um 100 manns
sóttu þingið úr 45 félögum í Árnes-
og Rangárvallasýslum.
Á þinginu, sem er árlegur aðal-
fundpr þeirra Skarphéðinsmanna,
var Árni Þorgilsson á Hvolsvelli kos-
inn nýr formaður sambandsins er
fráfarandi formaður, Jón Jónsson á
Hellu, gaf ekki kost á sér til end-
urkjörs.
Á þinginu var flutt skýrsla lands-
mótanefndar sambandsins en HSK
hélt landsmót ungmennafélaganna á
Laugarvatni sl. sumar svo sem kunn-
ugt er. Fram kom að náðst hefur
að stórum hluta að greiða niður
fimm milljóna króna halla sam-
bandsins vegna landsmótsins með
dyggum stuðningi sveitarfélaga á
svæðinu og ÚMFÍ. Mun HSK vera
komið yfir erfiðasta hjallann og
stefnir að því að ná núllinu um
næstu áramót.
Á þinginu gekk Golfklúbburinn
Úthlíð í Biskupsstungum til Iiðs við
HSK og eru þá aðildarféiögin orðin
45 með 7500 félagsmenn. Að lokn-
um þingstörfum bauð Rangárvalla-
hreppur þingfulltrúum til kvöldverð-
ar í Hellubíói þar sem fjöldi viður-
kenninga og verðlauna voru að venju
veitt íþróttamönnum sem skarað
hafa fram úr í sinni grein.
Hápunktur þess var kjör íþrótta-
manns ársins sem að þessu sinni kom
úr röðum karatemanna en Ingólfur
Snorrason, karatemaður hjá Umf.
Selfossi, þótti vel að þessum titli
kominn þar sem hann hefur staðið
sig mjög vel á mótum og er Norður-
landameistari í karate 1994. Þá voru
í fyrsta sinn veitt svokölluð starfs-
merki til þeirra sem starfað hafa
um langt árabil í þágu félaga innan
HSK en þau hlutu Stefán Jasonar-
son, Vorsabæ, Hafsteinn Þorvalds-
son, Selfossi og Þórir Þorgeirsson,
Laugarvatni, en þeir eiga sameigin-
legt að hafa skilað áratuga óeigin-
gjörnu starfi til ungmennafélag-
anna.