Morgunblaðið - 01.03.1995, Side 16
16 MIÐVIKUDAGUR 1. MARZ 1995
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Visa ísland
með 78 millj-
óna hagnað
Rúmlega 5 þúsund korthafar í vanskilum
með 436 milljónir um síðustu áramót
HAGNAÐUR Visa íslands varð
alls um 78 milljónir króna á sl.
ári samanborið við 57 milljónir
árið áður. Starfsemin á sl. ári
mótaðist mjög af markaðssetningu
debetkorta en alls höfðu verið gef-
in út 70 þúsund Visa Electron
kort í árslok af um 103 þúsund
debetkortum. Kreditkort voru um
96 þúsund. Á árinu bættust um
7.500 nýir korthafar í hópinn en
5.700 korthafar heltust úr lestinni
af ýmsum ástæðum. Þróunin á sl.
ári einkenndist einnig af því að
farkortum, gullkortum og gullvið-
skiptakortum fjölgaði á kostnað
almennu kortanna, segir í frétt frá
Visa íslandi.
Kreditkortavelta jókst um
3,5% í fyrra
Velta ársins nam alls um 44,2
milljörðum og jókst um 1,5 millj-
arða eða 3,5% frá árinu á undan.
Þetta er í samræmi við spár um
að með tilkomu debetkortanna
myndi hægja á aukningu kredit-
kortaviðskipta. Kortaviðskipti inn-
anlands námu alls 38 milljörðum
og jukust um 3% en 6,2 milljörðum
erlendis sem er um 7,5% aukning.
Sjálfvirkar greiðslur eða svonefnd-
ar boðgreiðslur námu alls 4,9 millj-
örðum og jukust um 10%. Rað-
greiðslur námu að meðaltali 250
milljónum á mánuði og alls um 3
milljörðum á árinu. Af einstökum
flokkum viðskipta jukust ferðavið-
skipti og skemmtun einna mest
eða um 12%, ýmis þjónusta jókst
um 10%, bensínviðskipti um 8%
en hlutdeild matvöru- og stór-
markaða lækkaði hlutfallslega.
Rafræn kortaviðskipti hafa aukist
verulega og lætur nærri að um
90% allra færslna fari fram með
sjálfvirkum hætti.
Markaðshlutdeild 76% í
kreditkortum
Vanskil korthafa um áramót
voru alls 436 milljónir eða um 1%
af heildarviðskiptum ársins sem
er ívið hærra hlutfall en árið áð-
ur. Voru alls 5.146 korthafar í
vanskilum um áramót eða um 6,8%
af reikningshöfum.
Markaðshlutdeild Visa hér á
landi er um 76% í kreditkortum
og 68% í debetkortum.
Stjórn Visa var endurkjörin en
hana skipa þeir Jóhann Ágústsson,
aðstoðarbankastjóri Landsbanka
íslands, Sólon Sigurðsson, banka-
stjóri Búnaðarbanka íslands, Sig-
urður Hafstein bankastjóri Spari-
sjóðabanka íslands hf. og Bjöm
Björnsson, framkvæmdastjóri ís-
landsbanka hf. Framkvæmdastjóri
er Einar S. Einarsson.
Breytingar á gengi hlutabréfa
frál.jan. til 27. feb. 1995
Hlutabréfamarkaðurinn hefur verið líflegur frá áramótum og nemur hækkun
þingvísitölu hlutabréfa rösklega 4% frá áramótum. Bréfí einstökum
félögum hafa þó þróast mjög misjafnlega eins og séstá meðfylgjandi yfirliti
frá Kaupþingi. Góðar fréttir af rekstri og afkomu Hampiðjunnar og Flugleiða
hafa greinilega aukið eftirspurn eftir bréfum í þessum félögum. A hinn
bóginn hafa bréfí olíufélögunum átt undir högg að sækja og lækkað nokkuð
sem að öllumjíkindum má rekja til frétta af yfirvofandi nýrri samkeppni á
oiíumarkaði. í einhverjum tilvikum hafa lítil sem engin viðskipti átt sér stað.
Miðað er við síðasta viðskiptagengi nema ef hagstæðasta sölutilboð er
lægra eða ef hagkvæmasta kauptilboð er hærra.
Hlutafélag
Gengi
h/utabr.
1. jan.
1995
Gengi
hiutabr.
27. teb.
1995
Hlutfallsleg breyting á gengi.
1. jan. 1995 - 27. sept 1995
-15 -10 -5 0 5 10 15 20 %
Hampiðjan hf. 1,80 2,10
Flugleiðir hf. 1,50 1,70 :
Þormóður rammi hf. 2,05 2,31 .... Z3+13
Sæplast hf. 2,90 3,25 m+12
Tollvörugeymslan 1,05 1,15 ■■ ■ +10
Síldarvinnslan hf. 2,70 2,95
Skagstrendingur hf. 2,50 2,70 J+ 8
íslandsbanki hf. 1,21 1,30 3+' 7
Eimskip hf. 4,66 5,00 " ...j+' r
Marel hf. 2,70 2,84 Z3+5
Samein. verktakar 6,96 7,30 ZD+5
Hlutabréfasjóðurínn 1,38 1,43 Zl+4
Haraldur Böðvarss. 1,65 1,68 1+í
Grandi hf. 1,99 2,00 3+i
Útgerðarfélag Ak. 2,89 2,90 0
Auðlind hf. 1,20 1,20 0
Hlutabr.sj. Norðurl. 1,26 1,26 0
ísl. útvarpsfélagið 3,00 3,00 0
fsl. hlutabr.sjóðurinn 1,30 1,30 0
KEA 2,20 2,20 0
Sjóvá-Almennar hf. 6,50 6,50 0
Ármannsfell hf. 0,97 0,95 -2^
Jarðboranir hf. 1,79 1,75 ■2_r
Olíufélagið hf. 5,85 5,67 -
Hlutabréfasj. VÍB 1,21 1,17 - .c -g-
Alm. hlutabréfasj. 1,00 0,95 -5 §- §
Skeljungur hf. 4,40 4,16 -5 Í3
ísl. sjávarafurðir hf. 1,24 1,15 -7\~
Olíuverslun ísl. hf. 2,75 2,42 -12\ • f
Hagnaður Sparisjóðs Vest
mannaeyja 18,4 milljónir
Heildarinnlán jukust um 7%
HAGNAÐUR Sparisjóðs Vestmannaeyja var 18,4 milljónir á síðasta
ári að teknu tilliti til tekju- og eignaskatts. í ársskýrslu sparisjóðsins
segir að greiddir tekju- og eignaskattar á árinu 1994 nemi 11,2 milljón-
um. Árið 1993 var hagnaður Sparisjóðs Vestmannaeyja eftir skatta
14,3 milljónir.
Vinnuvélainn-
flytjendur stofna
með sér samtök
Fyrsti
hagnaður
NeXT
Computer
San Francisco . Reuter.
NEXT-tölvufyrirtækið virðist loks-
ins eiga velgengni að fagna, tíu
árum eftir að Steven Jobs hætti
hjá Apple og kom á fót eigið fyrir-
tæki.
NeXT hefur skýrt frá fyrsta
árshagnaði sínum og segir að hug-
búnaðartækni fyrirtækisins muni
bráðlega ná til mun stærri markað-
ar einkatölunotenda.
Jobs stofnaði NeXT 1985, sama
ár og hann hætti hjá Apple, og
setti á markað nýja gerð af einka-
tölvu sem notaði sérstakt stýri-
kerfi sem hann hannaði. Tölvan
seldist illa og Jobs neyddist til
þess að draga saman seglin 1993.
Þar með beið hann mikinn álits-
hnekki, því að hann hafði átt þátt
í smíði fyrstu einkatölvunnar og
verið í hópi stofnenda Apple Comp-
uter Inc.
Með NeXT átti meðal annars
að nýta margmiðlun til kennslu,
en markaðurinn var ekki tilbúinn.
Fyrirsjánlegt var að NeXT yrði
gjaldþrota og Jobs sneri sér alfarið
að hugbúnaði og fór að selja stýri-
kerfið, NeXTStep, sem þykir mjög
fullkomið.
Nú hefur NeXT skilað 1,03 millj-
óna dollara hagnaði og að sögn
Jobs mun fyrirtækið bráðlega ná
til notenda Windows notendaskila
Mierosofts — og þar með 80%
einkatölvumarkaðarins.
FLEST stærstu fyrirtæki í innflutn-
ingi á vinnuvélum stofnuðu nýverið
með sér Félag íslenskra vinnuvéla-
innflytjenda. Tilgangur félagsins er
að gæta sameiginlegra hagsmuna
félagsmanna út á við, m.a. í tengsl-
um við aðgerðir ríkisvaldsins og
lagasetningu, segir í frétt frá félag-
inu.
Stofnaðilar félagsins eru fyrir-
tæki sem eru mörg hver leiðandi i
innflutningi vinnuvéla, þ.e. Brim-
borg hf., Globus — Vélaver hf.,
Kraftvélar hf., Merkúr hf. og Vélar
og þjónusta hf.
í stjórn félagsins eru þeir Þórður
H. Hilmarsson framkvæmdastjóri
Globus-Vélavers hf., formaður,
Ævar Þorsteinsson, framkvæmda-
stjóri Kraftvéla hf., varaformaður
og Karl Sigurðsson sölustjóri hjá
Vélum og þjónustu hf., ritari.
Þá segir að nokkrar ástæður séu
fyrir stofnun félagsins. í fyrsta lagi
séu að taka gildi ýmsar reglugerðir
sem rekja megi til EES-samnings-
ins. Þær hafi margháttuð áhrif á
skyldur og starfsumhverfi vinnu-
vélainnflytjenda.
I öðru lagi hyggist félagið taka
upp virkari samskipti við Vinnueft-
irlit ríkisins, m.a. varðandi upplýs-
ingavinnslu tengdri flokkun inn-
flutnings. Loks muni félagið starfa
að þeim hagsmunamálum sem upp
komi hveiju sinni vegna löggjafar
og aðgerða ríkisvalds. Verði reynt
að tryggja að samkeppnis- og
starfsskilyrði séu á hveijum tíma
sem hliðstæðust því sem gerist í
nágrannalöndunum.
Aðalfundur Sparisjóðs Vest-
mannaeyja var haldinn 25. febrúar
sl. í ársskýrslu kemur fram að heild-
arinnlán í árslok 1994, að meðtöld-
um sparisjóðsbréfum, hafi aukist um
7% frá árinu áður í rúmlega 1.336
milljónir króna. Heildarútlán voru í
árslok 1994 rúmlega 1.054 milljónir
og höfðu aukist á árinu um 4,3%.
Afskriftareikinngur útlána nam í
árslok 1994 tæpum 36 milljónum.
Eigið fé sparisjóðsins var tæplega
163 milljónir og jókst á árinu um
rúm 14%.
Aðalfundur Sparisjóðs Vest-
mannaeyja lýsti ánægju sinni með
aukið samstarf sparisjóðanna og
fagnaði sérstaklega starfsemi Spari-
sjóðabanka íslands hf. sem tók til
starfa í ársbyijun 1994. Þá voru
fundarmenn ánægðir með það skref
sem nokkrir sparisjóðir stigu í síð-
asta mánuði með stofnun fjármögn-
unarleigu SP-fjármögnun hf., en
Sparisjóður Vestmannaeyja var
meðal stofnenda.
Á aðalfundinum var tekinn í notk-
un hraðbanki í eigu Sparisjóðs Vest-
mannaeyja. Að meðaltali voru 11
starfsmenn í fullu starfi hjá spari-
sjóðnum á síðasta ári og hafði fækk-
að um tæplega eitt stöðugildi frá
árinu áður.
I stjórn Sparisjóðs Vestmannaeyja
sitja, Arnar Sigurmundsson, formað-
ur, Ragnar Óskarsson, varaformað-
ur, Gísli G. Guðlaugsson, Skæringur
Georgsson og Þór Vilhjálmsson.
Sparisjóðsstjóri er Benedikt Ragn-
arsson.
Mars
hættir við
Saatchi
London. Reuter.
SAATCHI & Saatchi hefur orðið
fyrir enn einu áfallinu vegna þess
að sælgætisframleiðandinn Mars
hefur sagt upp samningi sínum við
auglýsingafyrirtækið eftir 40 ára
samstarf.
í staðinn samdi Mars við þijú
önnur auglýsingafyrirtæki, en ekki
við „New Saatchi Agency,“ sem
Maurice Saatchi stofnaði í janúar
eftir brottrekstur frá Saatchi.
Tekjur Saatchi af auglýsingum
fyrir Mars námu 47,39 milljónum
punda 1994 og þær voru um 4%
af heildartækjum fyrirtækisins að
þess sögn. Mars flutti viðskipti sín
til keppinauta Saatchi, BBDO, Grey
Advertising og D’Arcy Masius Ben-
ton & Bowles.
Sérfræðingar verða því að endur-
skoða spár um hag fyrirtækisins í
annað skipti á tveimur mánuðum.
♦ ♦ ♦-----
Applegreiðir
fyrirtognun
Minneapolis. Reuter.
APPLE-tövufyrirtækið hefur komizt
að samkomulagi við konu, sem hélt
því fram að hún hefði tognað við að
nota lyklaborð tölvu frá Apple og
IBM.
Nancy Urbanski, fyrrverandi ritari
framhaldsskóla í Eagan, Minnesota,
og fjölskylda hennar höfðuðu málið
gegn Apple og IBM.
Að sögn Apples var ákveðið að
semja við konuna vegna skyssu lög-
manns við rannsókn málsins sem
fyrirtækið hefði ekki átt sök á. Ekki
er látið uppi hve háar skaðabætur
konan fær.
Réttarhöldum í máli konunnar
gegn IBM mun ljúka í næstu viku.
Upphaflega voru IBM og Apple kraf-
in um 50.000 dollara í skaðabætur,
en auk þess kann IBM að verða
dæmt í sekt.
------♦ ♦ ♦-----
Fokker boðar
nýja endur-
skipulagningu
Amsterdam. Reuter.
FOKKER-flugvélaverksmiðjumar í
Hollandi hafa boðað fjórðu og síð-
ustu endurskipulagningu sína á
þremur árum og búast við miklu
tapi í ár, en hagnaði á ný 1996.
Fokker hyggst segja upp 1,760
starfsmönnum af 8,500, minnka
launakostnað um 10% og loka ein-
ingaverksmiðju til þess að treysta
samkeppnisstöðu sína.
Fyrirtækið, sem Daimler Benz
Aerospace í Þýzkalandi á 51% hlut
í, ætlar einnig að flytja aðalstöðvar
sínar til Schiphol-flugvallar frá suð-
austurhluta Ámsterdam og taka upp
nýjar samningaviðræður við alla sem
útvega verksmiðjunum efni.
------» ♦ «-----
Aukinn hagn-
aður Royal
Dutch/Shell
London. Reuter.
NETTÓTEKJUR ensk-hollenzka
olíufyrirtækisins Royal Dutch/Shell
Group jukust um 24% í fyrra í tæpa
fjóra milljarða punda vegna upp-
sveiflu í efnadeild.
Hagnaðurinn er meiri en markaðs-
fræðingar höfðu spáð, en hafði lítil
áhrif á hlutabréf í Shell Transport,
sem seldust fynr óbreytt verð í Lond-
on, 724 pens. 1 Amsterdam hækkuðu
hlutabréf í Royal Dutch um 60 gyll-
ini í 191,20 gyllini.
Framleiðsla efna sem unnin eru
úr jarðolíu eða jarðgasi jókst til
muna síðari hluta árs í fyrra og efna-
deild Shell var rekin með umtalsverð-
um hagnaði eftir tap í þrjú ár.