Morgunblaðið - 01.03.1995, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 1. MARZ 1995 17
FRÉTTIR; EVRÓPA
Grikkir krefjast áfram
frekari trygginga fyrir Kýpur
Ræðst í dag hvort
af tollabandalagi
við Tyrki verður
Brussel. Reuter.
FRAKKAR, sem fara nú með for-
ystu í ráðherraráði Evrópusam-
bandsins, munu í dag ákveða hvort
verður af boðuðum ráðherrafundi
ESB og Tyrklands 6. marz, en þar
á að ganga frá tollabandalagi sam-
bandsins við Tyrkland. Grikkir fara
enn fram á að ESB tryggi Kýpverj-
um að aðildarviðræður við Kýpur
hefjist á fastsettum tíma. Hafi ekki
náðst samkomulag í dag, munu
Frakkar fresta fundinum með
Tyrkjum.
Deila Grikkja og annarra aðildar-
ríkja Evrópusambandsins stendur
einkum um eina setningu í sam-
komulagi, sem gert var í ráðherra-
ráði ESB 6. febrúar, þar sem Grikk-
ir samþykktu tollabandalag við
Tyrkland gegn því að viðræður við
Kýpur hæfust sex mánuðum eftir
lok ríkjaráðstefnu ESB, sem mun
hefjast á næsta ári.
Geti eða muni
í texta samkomulagsins segir að
viðræður við Kýpur „geti hafizt“
sex mánuðum eftir lok ráðstefnunn-
ar, en gríska stjómin vill að þar
standi að viðræður „muni heíjast".
Hjá mörgum aðildarrílqum og innan
framkvæmdastjórnarinnar hafa
menn hins vegar áhyggjur af að
breyting á orðalaginu gæti haft
áhrif á gang mála á ríkjaráðstefn-
unni, þar sem nú yrði að skilgreina
lok hennar.
Fram að þessu hefur viljandi
ekki verið skilgreint nákvæmlega
hvort lok ráðstefnunnar miðuðust
við lok eiginlegra viðræðna, undir-
skriftarathöfn eða formlega stað-
festingu nýs samstarfssamnings í
öllum aðildarríkjum ESB.
Grikkir halda ennþá fram þremur
öðmm skilyrðum, sem þeir settu
fram fyrir nokkm, en leggja lang-
mesta áherzlu á að tímasetning við-
ræðna við Kýpur sé tryggð. Búizt
er við að viðræður hefjist við Möltu
um leið og við Kýpur.
Evrópuþingið setur strik
í reikninginn
Fastafulltrúar aðildarríkja ESB
koma saman í dag til að reyna að
leysá málið og er búizt við hörðum
deilum. Þar með er björninn þó í
raun ekki unninn, því að Evrópu-
þingið á enn eftir að leggja blessun
sína yfir tollabandalagið. Evrópu-
þingmenn telja að Tyrkir verði að
leggja meira á sig í mannréttinda-
málum til að verðskulda svo náin
tengsl við ESB.
Sjöföld
framlög ESB
til mannúð-
armála
Brussel. Reuter.
FRAMLÖG ESB til mannúðar-
mála hafa sjöfaldast frá því árið
1990, að sögn Emmu Bonino, sem
á sæti í framkvæmdastjórninni.
„Þessi staðreynd sýnir og
sannar að harmleikjum af
mannavöldum hefur fjölgað
verulega," sagði Emma Bonino
er hún kynnti skýrslu um mann-
úðaraðstoð ESB í Brussel. I máli
hennar kom fram að ESB hefði
varið 760 milljónum ECU (tæpum
60 milljörðum króna) í fyrra í
þessu skyni og hefðu 63 ríki not-
ið þessarar aðstoðar. 42% aðstoð-
arinnar hefðu farið til Afríku-
ríkja, 35% hefði verið varið til
að lina þjáningar íbúa fyrrum
Júgóslavíu, og tæp 12% fjárveit-
EMMA Bonino.
ingarinnar hefðu runnið til lýð-
velda fyrrum Sovétríkjanna.
Frú Bonino sagði skoðana-
kannanir hafa leitt í ljós að mik-
ill meirihluti íbúa Evrópusam-
bandsríkjanna væri þeirrar
hyggju að aðildarríkjunum bæri
að hafa beinni afskipti á sviði
mannúðarmála.
Kok vill nána sam-
vinnu við Bandaríkin
Washington. Reuter.
WIM Kok, forsætisráðherra Hol-
lands, vill „allsheijar samstarf"
Bandaríkjanna og Evrópu til að tak-
ast á við stjórnmála- og efnahagsleg
viðfangsefni í alþjóðamálum. Kok
setti þessar hugmyndir sínar fram í
ræðu í Washington á mánudags-
kvöld.
Kok sagði að vandamál þau, sem
komið hefðu upp vegna hruns komm-
únismans væru of flókin til þess að
Evrópumenn gætu leyst úr þeim upp
á eigin spýtur. Löndin báðum megin
við Atlantshaf yrðu jafnframt að
leggja saman krafta sína til að tak-
ast á við verkefni annars staðar.
„Við þurfum allsherjar pólitískt
samstarf Bandaríkjanna og Evrópu,"
sagði Kok. Hann sagði að slíkt
„Evró-Atlantshafsbanda!ag“ gæti
samanstaðið af tvennum samtökum.
Önnur yrðu á sviði varnar- og örygg-
ismála og hin sæju um að gæta „sam-
eiginlegra pólitískra og efnahags-
legra hagsmuna."
„Vamar- og öryggismál eru of
umfangslítil undirstaða fyrir það
Atlantshafssamstarf sem við þurfum
nú á að halda," sagði Kok.
Hann sagði að nýtt samstarf þyrfti
ekki endilega að byggjast á skrifuð-
um samningi eins og samstarf Evr-
ópu- og Ameríkuríkja í Atlantshafs-
bandalaginu gerir.
EITT VERÐ
J .490
Ath. Aðeins í 2 daga 1. og 2. mars
Opið kl. 9-20 ___
Kvenskór
Herraskór
íþróttaskór
Kickersskór
Kuldaskór
SKOVERSLUN KOPAVOGS
PHILIPS
Nýjungar fyrír þig!
[ÍE^ Sl
TIL ALLT AD 36 MÁNADA 77/ al
RADGREfÐSLUR
altt aö 24 mánaOa
munXlan
Heimilistæki hf
SÆTÚN8 SÍMI 569 1500
Umboðsmenn um land allt
PHILIPS PT-532, 2811
• BLACK-LINE S flatur myndlampi
með sérstakri skerpustillingu og litlum sem
engum glampa á skjá.
• NICAM STEREO hljómur og tvö
SCART tengi fyrir STEREO móttöku.
• „CTI“ litaskerping.
{Colour transient improvement)
• Úttak fyrir hljómflutningstæki.
(Surround hljómur)
• „SPATIAL SOUND“ bergmálshljómur.
» Tengi framan á tækinu fyrir myndbandstökuvél.
• S-VHS inngangur.
• 2x30W innbyggður magnari.
• Tenging fyrir heyrnartól.
• Textavarp.
• Barnalæsing á notkun.
• Sjálfvirk innsetning sjónvarpsrása.
• Fullkomin fjarstýring. Mjög einföld í notkun.
» Tímastilling á straumrofa o.m.fl.
Verö:119-900-" Kr.
■
'95 línan frá Philips - þú færð ekkert betra!
PHILIPS hefur verið brautryðjandi í sjónvarpstækni um árabil. Gæði PHILIPS tækjanna
er löngu heimsþekkt bæði hjá fagfólki og almenningi. Þau þykja bera af hvað varðar mynd- og
hljómgæði og ótrúlega góða endingu.