Morgunblaðið - 01.03.1995, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 1. MARZ 1995 21
LISTIR
Gerður Gunnarsdóttir og Einar Kr. Einarsson á Háskólatónleikum í Norræna húsinu
Verk eftir Paganini,
Giuliani og Þorkel
Sigurbjörnsson
Isabelle van Osmo
Keulen VfinskS
Tónleikar
í Hallgrímskirkju
Mozart
og Jón
Leifs
Á TÓNLEIKUM Sinfóníuhljómsveit-
ar íslands í Hallgrímskirkju,
fimmtudaginn 2. mars kl. 20, verða
á efnisskránni Fiðlukonsert nr. 5
eftir W.A. Mozart og Sögusinfónían
eftir Jón Leifs. Einleikari á tónleik-
unum er Isabelli van Keulen og
hljómsveitarstjóri er Osmo Vánská.
Einleikarinn Isabelle van Keulen
er jafnvíg á fiðlu og víólu og hefur
sópað að sér verðlaunum í fiðlu-
keppnum, s.s. Yehudi Menuhin
keppninni 1983 og árið 1984 hlaut
hún titilinn Tónlistarmaður ársins í
Eurovision keppni ungra hljóm-
listarmanna. Hún hefur komið fram
á listahátíðum víða um heim og í
dag er hún í fremstu röð ungra fiðlu-
leikara.
í kynningu segir: „Það er kannske
ekki á allra vitorði að Mozart var
ekki eingöngu yfirburða tónskáld
og píanósnillingur heldur var hann
einnig mjög góður fiðluleikari og lék
jafnvel á víólu ef svo bar undir.
Fiðlukonsert í A-dúr er sá fimmti í
röð fiðlukonserta sem Mozart, samdi
árið 1775, þá á 19. aldursári, síðar
bætti hann tveim við. Þessa fimm
konserta samdi hann fyrir hirð Max-
imilians erkihertóga og lék Mozart
sjálfur einleikshlutverkið í þeim öll-
um.
Fá tónskáld þykja tala íslenskara
tónmáli en Jón Leifs (1899-1968).
Sautján ára gamall sigldi Jón til
Þýskalands, nánar tiltekið Leipzig
þar sem hann lagði stund á nám í
píanóleik, hljómsveitarstjórn og tón-
smíðum. Í Þýskalandi bjó Jón til
ársins 1944 er hann flutti aftur til
fóstuijarðarinnar. Jóni vegnaði vel
í Þýskalandi, tónsmíðar hans voru
fluttar þar og gefnar út og einnig
stjórnaði hann þar ýmsum virtum
hljómsveitum. Hann fór með Fíl-
harmóníuhljómsveit Hamborgar í
tónleikaför um Norðurlönd sumarið
1926. Þeirri ferð lauk á íslandi og
markaði heimsóknin tímamót hér á
landi því þá heyrðu íslendingar í
fyrsta sinn í fullskipaðri sinfóníu-
hljómsveit. í lok heimsstyrjaldarinn-
ar síðari flutti Jón aftur heim og
var hann alla tíð mjög virkur bæði
sem tónskáld og ekki síður sem
baráttumaður fyrir hagsmunum ís-
lenskra tónlistamanna. Hann stofn-
aði Tónskáldafélag Islands árið
1945 og STEF (samband tónskálda
og eigenda flutningsréttar) árið
1948. í lifanda lífi átti Jón ekki
velgengni að fagna meðal landa
sinna, tónverkum hans var í besta
falli tekið með tómlæti, oftast mætti
þeim andúð, en á seinni árum hafa
augu manna lokist upp fyrir snilld
hans.
Sögusinfóníuna hóf Jón að semja
árið 1942. Hún var síðan frumflutt
í Helsinki undir stjórn Jussi Jalas,
þá dálítið stytt og þannig var hún
hjóðrituð á hljómplötu tuttugu og
fimm árum síðar af Sinfóníuhtjóm-
sveitinni undir stjórn Jussi Jalas.
Samningar hafa tekist milli SI
og sænska útgáfufyrirtækisins BIS
um útgáfu á verkum Jóns Leifs og
mun Sögusinfónían verða fyrst í
röðinni. Stjórnandi tónleikanna
og hljóðritunarinnar er aðalhljóm-
sveitarstjóri SÍ, Osmo Vánská.
Á HÁSKÓLATÓNLEIKUM í Nor-
ræna húsinu í dag, miðvikudaginn
1. mars, leika þau Gerður Gunnars-
dóttir fiðluleikari og Einar Kr. Einars-
son gítarleikari. Tónleikamir hefjast
kl. 12.30 og eru um hálftími að lengd.
Flutt verða verk eftir Niccolo Pagan-
ini, Mauro Giuliani og Þorkel Sigur-
björnsson.
í kynningu segir: „Paganini
(1782-1840) var ekki einungis fiðlu-
snillingur heldur einnig liðtækur gít-
arleikari og samdi töluvert fyrir gítar
og fiðlu, og einnig strengjakvartett
með gítar. Mauro Giuliani (1781-
1829) var ítalskur gítarsnillingur og
oft nefndur „Paganini gítarsins".
Hann starfaði mest í Vínarborg þar
sem hann spilaði m.a. fyrir Beethov-
en. Þorkel Sigurþjömsson segir um
verk sitt Vapp (samið 1993): „Mér
fannst hreyfingar tónanna minna mig
dálítið á vapp fugla.“
Gerður Gunnarsdóttir lauk einleik-
araprófi í fiðluleik frá Tónlistarhá-
skólanum í Köln 1991. Árið 1990
vann hún til fyrstu verðlauna í Post-
bank-Sweelinck fiðlukeppninni í
Amsterdam. Gerður hefur verið 3.
konsertmeistari í Sinfóníu- og óperu-
hljómsveit Kölnarborgar síðan í jan-
úar 1992 og starfar nú tímabundið
sem 2. konsertmeistari í Sinfóníu-
hljómsveit Islands. Hún hefur verið í
Caput-hópnum síðan 1987 og leikið
með Kammersveit Reykjavíkur m.a.
sem einlejkari.
Einar Kristján Einarsson hefur
komið fram á tónleikum í Svíþjóð,
Englandi og á Spáni og við margvís-
leg tækifæri víða hérlendis, m.a. á
Gítarhátíð á Akureyri, Sumartónleik-
um í Skálholti, Sumartónleikum á
Norðurlandi og Myrkum músíkdög-
um. Hann hefur leikið með Caput-
hópnum og Sinfóníuhljómsveit íslands
og komið fram sem einleikari með
Kammersveit Akureyrar og Kammer-
sveit Reykjavíkur. Á sl. ári var Einar
þátttakandi í íslenskri gítarhátíð sem
haldin var í Wigmore Hall í London."
Handhöfum stúdentaskírteina er
boðinn ókeypis aðgangur, en að-
gangseyrir fyrir aðra er 300 kr.
leggur þú lið!
Idag,öskudag, er
fjáröflunardagur Rauða Kross
íslands. Með kaupum á penna
leggur þú fjölþættri starfsemi
Rauða Kross íslands lið.
e
% ^ >
il|
ífl
*?§
1
’CT
fl
#
. §
RAUÐI KROSS ISLANDS
■m———im-im ..