Morgunblaðið - 01.03.1995, Page 34

Morgunblaðið - 01.03.1995, Page 34
34 MIÐVIKUDAGUR 1. MARZ 1995 MORGUNBLAÐIÐ . + Óli M. ísaksson ' var fæddur á Eyrarbakka 26. jan- úar 1898. Hann lést í Reykjavík 21. febr- úar sl. 97 ára að aldri. Foreldrar hans voru hjónin Isak Jónsson verzl- unarmaður hjá Le- foli-verslun á Eyr- arbakka f. 7. nóv. 1852, d. 9.júní 1912, og Ólöf Ólafsdóttir frá Argilsstöðum í Hvolhreppi, f. 11. nóv. 1859, d. 5. maí 1945. Ólöf var síðari kona ís- aks, en með fyrri konu sinni, sem hann missti, átti hann fimm dætur. Þær voru Magnea, Syl- vía, Friðsemd, Karen og Guð- ríður. Synir Magneu voru Magnús og Hjálmar Magn- ússynir í Garði. Sylvía var móð- ir Ingibjargar Árnadóttur, konu Hallsteins Hinrikssonar í Hafnarfirði, og Guðmundar Árnasonar, fyrrv. aðalgjald- kera Búnaðarbankans. Frið- semd var gift Eiríki Jónssyni bónda að Asi í Holtum, föður- .bróður Ingólfs á Hellu. Þeirra börn voru ísak Eiríksson á Rauðalæk og Guðrún Eiríks- dóttir, kona Benedikts Ög- mundsonar, skipstjóra, foreldr- ar Guðbjargar, konu Eyjólfs Konráðs Jónssonar, _ alþingis- manns. Alsystkini Óla voru: Ingibjörg, f. 3. sept. 1889, d. 7. júlí 1979, kona séra Jóhanns Kr. Briem á Melstað í Miðfirði. Þeirra börn: Ólöf, látin, Stein- dór, látinn, Sigurður, látinn og _ Camilla. Nils, f. 3. mars 1893, d. 16. febrúar 1991, kona hans var Steinunn Stefánsdóttir úr Fljótum og lifir hún mann sinn Þeirra börn: Gústav, fram- leiðslustjóri í Kísiliðjunni, Mý- MÓÐURBRÓÐIR minn og uppá- haldsfrændinn, allt frá æskudögum, er nú látinn í hárri elli, hinn síðasti af systkinahópnum stóra frá Eyrar- bakka. Þeirra er að nokkru getið hér að framan. Ég man þau öll nema Magneu, Friðsemd og Júlíu, sem raunar var látin fyrir mína fæðingu. Að mörgu leyti var þetta einstakur systkinahópur, myndar- lpgt fólk á velli með sterkt ættar- rriót sem við gjarnan nefndum Ár- gilsstaðsvipinn, skapmikið, stund- um nokkuð þóttafullt en orðheppið og gat verið gamansamt svo af bar. Myndir þeirra bræðranna eru mér afar ljósar. Bogi var á æsku- heimili mínu á Siglufirði til margra ára og Níls átti sitt heimili í bænum öll mín æsku- og unglingsár. Óli var hins vegar í Reykjavík. Mér eru afar minnisstæðar heimsóknirnar á Frakkastíginn þar sem Óli og Unn- ur bjuggu fram yfír 1950 er þau fluttu að Dyngjuvegi 4. Á heimili þeirra kom ég fyrst með foreldrum mínum barn að aldri og svo oft síð- ar. Þau hjónin eignuðust ekki böm, en böm löðuðust að þeim vegna einstakrar barngæsku þeirra. Það veit ég af eigin raun og svo frá grönnum á Dyngjuvegi. Lýsingin hér að framan á systk- inahópnum á kannski helst við Óla. Hann var höfðinglegur maður og á ungum aldri hefur hann verið stórglæsilegur og efalaust fengið mörg meyjarhjörtun til að slá hrað- ar. Hann var léttur í lund og orð- heppinn, en gat líka verið orðhvatur svo að undan gat sviðið. Að því leyti vom þau lík systkinin, hann og móðir mín. Lífsstarf hans var tengt bílum og hann var raunar einn af frum- kvöðlum þeim sem innleiddu bíla- öldina á íslandi. Og hann átti lengri starfsævi en flestir aðrir, eða allt til þess að hann var 93 ára gam- all. Synir Sigfúsar í Heklu vom vatnssveit, Ólafur, löggiltur endurskoð- andi, Bogi, rann- sóknarlögregl- ustjóri ríkisins og Anna, prestsfrú í Ólafsvik. Júlía Guð- rún, f. 4. nóv. 1895, lést úr spönsku veikinni 1919. Ólöf, f. 21. sept. 1900, d. 1. maí 1987. Maður hennar var Einar Krisljánsson, f. 21. júlí 1898, d. 28. okt. 1960. Þau bjuggn á Siglufirði, Akur- eyri og síðast í Reykjavík. Þeirra börn: Dorothea Júlía Eyland, húsfrú á Akureyri, Ól- afur G., menntamálaráðherra og Kristján Bogi, búsettur í Hafnarfirði. Bogi, f. 8. febrúar 1905, d. 11. des. 1951, ókvæntur og bamlaus. Hann var allmörg ár á Siglufirði, Akureyri, en síðast í Reykjavík og þá sam- starfsmaður Óla bróður síns. Kona Óla var hin þekkta lista- kona Unnur Ólafsdóttir, hún lést árið 1981. Þeim varð ekki barna auðið. ÓIi Iauk prófi frá Verzlunarskóla íslands árið 1914. Starfaði hjá Garðari Gíslasyni hf. um skeið en síðan hjá Jónatan Þorsteinssyni, sem var einn af fyrstu innflytjend- um bifreiða hingað til lands. Þeir Óli og Jónatan voru bræð- rasynir. Þá starfaði hann hjá Sveini Egilssyni hf. sem fram- kvæmdastjóri þar til hann stofnaði Stefni hf. með Sigfúsi Bjamasyni, 1946. Sigfús keypti síðar hlut Óla. ÓIi starfaði svo hjá Sigfúsi í Heklu hf. allt til ársins 1991 er hann lét af störf- um; 93 ára að aldri. Utför Óla fer fram frá Ás- kirkju í dag og hefst athöfnin kl. 13.30. honum einstakir. Vart getur marga stjórnendur fyrirtækja sem hafa menn í starfi í aldarfjórðung eftir að venjulegum starfsaldursmörkum er náð. Fyrir slíkan drengskap ber að þakka og raunar samstarfs- mönnum hans öllum hjá Heklu hf. Tómstundum sínum varði Óli fyrst og fremst með hestunum sín- um. Þeir bræðurnir voru aljir ein- staklega lagnir hestamenn. Ég man þá sérstaklega Boga og Níls á Siglufirði. Þeir gátu tekið til kost- anna hesta sem lítil reisn var yfír ef aðrir sátu þá. Hið sama veit ég að var með Óla. Hann naut útiver- unnar og samskiptanna við þessa vini sína, sem nutu þeirra forrétt- inda að búa í kjallaranum á Dyngju- vegi 4, með borgarstjórann á aðra hönd og flugmálastjórann á hina. Mér er til efs að slíkt yrði heimil- að nú, að halda hross í íbúðar- hverfi, að ekki sé talað um ef um sjálfa „snobþhill" er að ræða. En svona var þetta þá og enginn amað- ist við, enda snyrtimennska algjör. Óli var kominn nokkuð yfír nírætt þegar hann lét hestana frá sér. Um sama leyti hætti hann að aka bíl, enda sjónin farin að daprast. Heimili Óla og Unnar var engu öðru líkt. Það var raunar eins og að koma í listasafn að sækja þau heim. Unnur var einstök listakona og ekki að efa að hún hefur mestu ráðið um alla skipan innan húss. Víst er þó að Óli hefur haft auga fyrir þessu öllu saman. Eftir andlát Unnar bjó Óli einn í þessu glæsilega húsi. Ásdís Jak- obsdóttir, sem lengi starfaði við hannyrðir hjá Unni, leit til með honum síðustu árin. Ættingjar Óla þakka henni tryggðina og alla hjálp. Allar mínar minningar um Óla eru mér jafn verðmætar. í bernsku minni og æsku vildi ég helst líkjast honum. Á háskólaárum mínum kom ég oft til þeirra Óla og Unnar og naut gestrisni þeirra. Svo fækkaði MINNINGAR fundum, því miður, en aldrei slitn- aði þó sambandið. Minnisstæð er bílferð sem ég bauð þeim í bræðrun- um Níls og Óla og Gizuri Berg- steinssyni, en Gizur og þeir bræður voru systkinasynir. Níls var þá 95 ára, Óli 90 ára og Gizur 86 ára. Við ókum austur fyrir Fjall um Eyrarbakka og að heimili forfeðr- anna, Árgilsstöðum í Hvolhreppi. Fyrir mig var þetta eftirminnilegur dagur, að heyra þessa öldnu menn rifja upp minningar frá því skömmu eftir aldamót, segja frá mönnum og hestum og mannlífínu yfirleitt á þessum löngu liðna tíma. Og ég held að þeir hafi notið dagsins líka. Óli naut góðrar heilsu lengst af. Fyrir allmörgum árum kenndi hann veilu fyrir hjarta, sem læknum tókst að stilla. Hann dvaldist þó síðustu mánuðina á Landspítalanum við góða umönnun. Þangað heimsótti ég hann fyrir nokkrum vikum. Hann var ánægður með alla að- hlynningu, gerði að gamni sínu við hjúkrunarfræðinga en sagði þó að nú væri nóg lifað og hann væri sáttur við að kveðja. í nafni okkar systkinanna og §öl- skyldna okkar kveð ég yndislegan frænda og bið honum allrar bless- unar. Ólafur G. Einarsson. Ég ólst upp í næsta húsi við Óla og umgekkst hann og Unni Ólafs- dóttur konu hans eins og um afa og ömmu væri að ræða, en Unnur lést fyrir tæpum 12 árum. Þau voru barnlaus og ég átti aðeins föð- urömmu á lífí til 8 ára aldurs. Það má því segja að Óli hafi á margan hátt komið mér í afa stað. Unnur og Óli voru einnig búin að umgang- ast eldri systur mínar með svipuð- um hætti og voru ávallt með fjöl- skyldunni á jólum og gamlársdag, svo_ lengi ég man eftir. Ég gisti oft hjá Unni og Óla og fékk þá framanaf að sofa á milli þeirra í rúminu. Þau kunnu að gera það spennandi, því í hvert sinn var ávallt einhver pakki undir koddan- um sem mátti taka upp þegar ég var tilbúinn að fara að sofa. Ég borðaði oft hjá þeim og hafði þann háttinn á að ef maturinn heima var ekki að mínu skapi bað ég Unni að bjóða mér að borða og hafði því þennan valkost sem aftur leiddi til þess að ég var þar tíður gestur. Óli hafði hesta í kjallaranum í húsi sínu á veturna og þótti okkur, sem ólumst upp við þetta, eðlilegt en það var ekki algengt að hestar væru hafðir í íbúðarhverfí í Reykja- vík, þó nokkur dæmi væru um það í nágrenninu. Laugardalurinn var undirlagður búskap og þar var mik- ið af skepnum, bæði hestar, kýr og kindur. Við krakkamir í hverfinu tókum fljótlega til við heyskapinn á lóðinni hjá Óla en þar var ávallt slegið með orfí og ljá og sá Óli oft- ast um sláttinn sjálfur. Þá var einn- ig heyjað á næstu túnum og rakað í garða og þurrkað eftir kúnstarinn- ar reglum. Óli kenndi mér handtök- in í heyskapnum, hvernig ætti að setja í sátur og hvernig best væri að koma heyinu í hlöðu, en engin vélknúin tæki voru notuð við þessa iðju. Hlaðan var stór bílskúr sem er undir húsinu en þar er nægilegt rými fyrir hey sem dugir í vetrar- fóðmn á þremur hrossum og pláss fyrir einn fólksbíl við enda heystafl- ans. Óli var ótrúlega duglegur við heyskapinn og ekki mikið fyrir að hlífa sér. Hann gerði heldur ekki mikið af því að biðja aðra um að- stoð, en það gerði Unnur hins veg- ar, hún sá um að fá menn til aðstoð- ar ef mikið var framundan og nauð- synlegt að sáta heyið þegar leit út fyrir rigningu eða taka það saman og setja í hlöðu þegar það var orð- ið þurrt. Óli var oftast með 2-3 hesta í húsi yfir veturinn og hann reið út nær daglega allt árið um kring. Hann fór eldsnemma á fætur til að gefa hestunum, kemba þeim og þrífa hesthúsið áður en farið var til vinnu, en Óli mætti yfirleitt fyrst- ur manna til vinnu hjá Heklu hf. þar sem hann starfaði mestan sinn starfsferil. Að loknum fullum vinnu- degi var farið í hestagallann og hann brá sér á bak og reið sem leið lá yfir Laugardalinn yfir í Ell- iðaárdal og upp að Árbæ eða jafn- vel enn lengra og svo heim sömu leið til baka. Þegar Óli kom heim að loknum útreiðartúrnum dreif oft að mikinn fjölda krakka sem hljóp á eftir honum og stóð síðan utan við hestagirðinguna og gaf hestun- um brauð eða tuggu m^ðan hest- húsið var þrifið og heyið sótt í hlöð- una. Ég átti þess kost að fá að kynn- ast Öla mjög náið og fá að hjálpa honum við öll helstu störfín í kring- um hestana, en það var heilmikill skóli fyrir mig og nokkuð sem ég hefði ekki viljað missa af. Á sumrin fórum við nokkrum sinnum saman í útreiðartúra út á eyrarnar í Leir- voginum, en Óli var með hestana í mörg ár á sumarbeit í landi Leir- vogstungu. Það var sérstaklega gaman að ríða eyrarnar í stórstraumsfjöru og finna sjávarlyktina. Þá var gaman að skoða krossfiskana, sílin og stundum silunga sem voru fastir í pollum úti á eyrunum. Eitt sinn náði Óli í nýgenginn lax sem svart- bakur hafði stungið úr annað aug- að, rétt áður en hann reið hjá, en hann náði laxinum óskemmdum að öðru leyti. Þetta var held ég í eina skiptið sem Óli „veiddi" lax. Hin seinni árin og alveg fram á það síðasta ræddi ég við Óla sem góðan vin og ráðgjafa um hin ýmsu mál sem voru áhugamál mín og önnur mál, sérstaklega pólitík. Óli hafið mikinn áhuga á pólitík og hafði þar mjög ákveðnar hugmynd- ir og skoðanir sem fóru að mestu saman við skoðanir sjálfstæðis- manna og frjálshyggjumanna. Það voru því oft líflegar umræður um menn og málefni þegar pólitík bar á góma. Óli hafði alveg einstaklega gott minni og fylgdist mjög vel með öllu sem fram fór í þjóðlífinu alveg fram á síðasta dag. Flestir þekkja víst Óla fyrir þá miklu gjafmildi sem hann hefur sýnt með því að styrkja hin ýmsu líknarfélög með fjárframlögum, en nýjasta dæmið var þegar reist var nýtt íþróttahús að Sólheimum í Grímsnesi, en það var nefnt Ólahús vegna þess stuðnings sem Óli hefur sýnt stofnuninni. Unnur Ólafsdóttir eiginkona Óla, sem lést árið 1983, hafði ávallt mikinn áhuga á að styrkja líknarfélög og kirkjusöfnuði sem hún gerði t.d. með því að gefa hökla, altarisklæði og fleira sem hún vann á vinnustofu sinni með Ásdísi Jakobsdóttur aðstoðarkonu sinni. Eftir fráfall Unnar sá Ásdís um heimilishaldið og gerði Óla kleift að búa í húsinu. Þau fjárframlög sem Óli lagði til líknarmála voru í þeim anda sem þau hjón höfðu ákveðið. Með þessum orðum langar mig til að kveðja góðan vin sem staðið hefur mér nær en flestir og veitt mér stuðning og fræðslu í gegnum lífíð. Guð gefí þér frið, Óli minn. Agnar Kofoed-Hansen. Með þessum orðum langar mig að kveðja vin minn Óla Magnús. Þrátt fyrir 77 ára aldursmun gátum við alltaf fundið eitthvað til að tala um. Hann var fyrrverandi Verzlun- arskólanemi og þótti mjög gaman að heyra og segja sögur frá gamla skólanum sínum. Hann vildi Iíka alltaf fá nýjustu fregnir úr skemmt- analífi mínu og var búinn að láta mig lofa sér því að vera harðtrúlof- uð fyrir 100 ára afmælið hans. Óli var ekki einn af þessum venjulegu gömlu mönnum. Hann var einn af fyrstu íslendingunum sem fékk sér bíl, hann var með hesta í kjallaranum hjá sér og það í miðri Reykjavík. Og þó að hann væri kominn hátt á tíræðisaldur, leit hann út eins og sjötugur og hugsaði stundum eins og tvítugur. Oli var mjög trúaður og það leið ekki sá sunnudagur eða stórhátíð sem hann fór ekki í kirkju. Hann gaf kirkjunni sinni margar góðar gjafir, sem Unnur konan hans bjó til. Kirkjan var ekki sú eina sem naut góðs af gjafmildi hans, því að hann styrkti ýmsar stofnanir þar OLIMAGNUS ÍSAKSSON má til dæmis nefna Sólheima í Grímsnesi og Blindrafélagið. Frá unga aldri hafði Oli mikinn áhuga á hestum og hann var kom- inn yfír nírætt þegar hann lét hest- ana frá sér vegna aldurs og heilsu- brests. Hestana hafði hann eins og áður sagði í kjallaranum heima hjá sér, og hann fór í útreiðartúra um græn svæði Reykjavíkur. Hann fékk oft einhvetjar smábyltur í út- reiðartúrum sínum og læknaði sig sjálfur þegar hann kom heim með því að bera steinolíu á auma bletti og það var að hans mati besta lækn- ing við þannig meiðslum. Það var alltaf gott að koma í heimsókn til Óla, ég mun sakna þeirra stunda þegar við sátum og töluðum um hin ýmsu mál. En minningarnar um góðan vin munu alltaf lifa. Bergljót Þórðardóttir. Mig langar að kveðja Óla vin minn og þakka honum fyrir sam- fylgdina. Þegar ég kalla mynd hans fram í huga mér þá sé ég hann fyrir mér hnarreistan á hestbaki á Dyngjuveginum með tvo eða þrjá til reiðar. Óli var mikill hestamaður og naut sín vel á hestbaki. Nokkrar byltur fékk hann í útreiðartúrum sínum en enga svo slæma að ekki væri hægt að lækna með steinolíu. Það var með mikilli eftirsjá að hann lét frá sér hestana fyrir nokkrum árum þegar hann hafði ekki lengur þrek til að sinna þeim. Annað áhugamál Óla voru bílar og hann var heppinn að geta sam- einað áhugamál sitt og ævistarf ög stundaði hann vinnu sína fram yfir nírætt. Þegar sjónin fór að gefa sig svo hann gat ekki lesið lengur tók hann tæknina í sína þjónustu, keypti sér stækkara og las dagblöðin af stór- um skjá og nýtti sér blindrabóka- safnið. Óli þekkti því vandamál sjónskertra af eigin raun og fannst gott að geta styrkt Blindrafélagið með fjárframlögum. Önnur samtök og líknarfélög nutu líka góðs af gjöfum hans. Óli og Unnur voru nágrannar okkar frá því að ég man fyrst eftir mér. Samgangur heimilanna var alltaf mikill og mér fannst Óli og Unnur koma í staðinn fyrir afa og ömmu sem dóu áður en ég fæddist. Þau voru fastir gestir á hátíðum og tyllidögum, alltaf eins og hluti af fjölskyldunni. Ég sótti mikið þangað og var alltaf tekið opnum örmum. Fyrstu bernskuminningar mínar eru tengd- ar Óla. Þegar hann kom heim úr vinnunni settist ég í fangið á hon- um, tók greiðuna úr vasa hans og svo greiddi ég honum á ýmsa vegu, fékk að finna lyktina af pípunum hans og njóta þess að vera mið- punktur allrar athygli. Óli kallaði mig alltaf stjörnuna sína og mér fannst mikið til um þá upphefð. Þolinmæði hans var einstök, ég fékk að vera með honum í hesthúsinu, kemba hestunum, leika mér í heyinu og hafa það á tilfínningunni að hjálp mín væri ómetanleg. Síðan var far- ið upp til Unnar þar sem ég fékk mjólkurkaffi og rúgbrauð með púð- ursykri, algjört hnossgæti. Óli hafði sérstakt lag á börnum, hann var ekki að leika trúð eða reyna að skemmta en gaf sér tíma til að hlusta og tala við þau eins og viti bornar manneskjur. Dætur mínar sóttu til þeirra og_ eftir að Unnur dó heimsóttu þær Óla oftast þegar við komum á Dyngjuveginn. Ég hafði gaman af því að fylgjast með því hvernig þær tengdust hon- um hver á sinn hátt. Fyrrverandi vinnufélagar og vinir héldu tryggð við hann og það var oft fjölmennt á stofunni hans á Landspítalanum þar sem hann dvaldi síðustu mánuðina. Á þorran- um var meira að segja súr hvalur á boðstólnum. ÓIi fylgdist vel með öllu sem var að gerast og var ótrú- lega ern. Hann var þakklátur starfsfólki Landspítalans fyrir góða umönnun og það reyndist honum um megn þegar hann var sendur þaðan. Minningunni um Óla mun ætíð fylgja birta í huga mínum og að

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.