Morgunblaðið - 01.03.1995, Síða 46
46 MIÐVIKUDAGUR 1. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
2 eggjahvítur
Matur og matgerð
Framandi
ávextir II
Hér tekur Krístín Gestsdóttir upp þráðinn þar
sem frá var horfíð með framandi ávexti 18.
febr sl., en í þætti þar á eftir var skotið inn
bolluuppskriftum. í dag eru það papaya og
mangó sem fjallað verður um.
AÐ líkindum eru
papaya og mangó
einna þekktastir
framandi ávaxta hér
á landi. Báðar teg-
undirnar eru mikið
notaðar í heimalandi
sínu, en hafa þolað
flutning mjög illa.
Báðir eru þeir bestir
nýtíndir. En nú er
farið að rækta ýmis
afbrigði sem þola
flutning vel, enda
hefur aðferðum við
ávaxtaflutninga
fleygt mjög fram
með tilkomu kælig-
áma, en þannig eru
ávextirnir _ fluttir
milli landa. í kæli-
gámunum er rétt
raka- og hitastig. Papaya er upp-
runnið í Mexíkó en er ræktað og
vex að hluta til villt í öllum hita-
beltislöndum. Þar er það notað
óþroskað sem grænmeti en þrosk-
að sem ávöxtur. Margir ferðamenn
hafa kynnst papaya á ferðum sín-.
um og einkum fengið það til
morgunverðar með sítrónusafa, en
í ávextinum er hvatar (ensím) sem
eru talin hafa góð áhrif á melting-
una og varna því að maður fítni
daginn sem fer í hönd eftir neyslu
papya til morgunverðar. En í hei-
malandi papaya ber húsmóðirin
aðeins nýtínt papaya fyrir gesti
sína. Þótt papaya sé viðkvæmt í
flugningi er þó mangó mun við-
kvæmara. Það er upprunnið í Ind-
landi þar em það hefur verið rækt-
að í yfir 4000 ár, en þar er talið
að Búddha hafí öðlast vísdóm sinn
sofandi undir mangótré. Mangó er
mest ræktað allra ávaxta í hita-
beltinu og til eru yfir 1.000 af-
brigði af því, en aðeins fá þeirra
þola flutning. Erfitt er að átta sig
á hvort mangó er nógu þroskað,
en lyktin er besta vísbending um
það. Mangó á að ilma, auk þess
má það ekki vera mjög hart og
nokkrir svartir blettir á berkinum
benda til þroska, það geymist ekki
lengi þroskað. Mangó bragðast
best hálfkalt en má þó ekki vera
beint úr kæliskáp. Eins konar
þræðir eru í safaríku aldinkjötinu
sem situr fast í flötum stórum
steini. Best er að skera aldinkjötið
frá steininum niður í báta. Ávöxt-
urinn myndar erfiða bletti í fatn-
aði og dúkum.
Einfaldur
mangóréttur
2 mgngó
1 tsk karrí
2 dl brauðrasp
1 dl fínt saxaðar möndlur
2 mangó
1 dl portvín eða Vi dl romm eða
1 msk sítrónusafi blandaður
1 dl af maltöli
1. Afhýðið ávextina, skerið í rif
niður frá steininum og leggið í
skál. Penslið hvert rif með port-
víni, rommi eða sítrónusafa og
maltöli. Gerið þetta nokkrum sinn-
um á tveggja klst. tímabili. Látið
ekki standa í kæliskáp.
2. Setjið á litla diska og berið þeytt-
an ijóma eða ís með.
Kjúklingabringa með
mangó
3 kjúklingabringur (6 hólfar)
2 tsk. salt
nýmalaður pipgr
15gsmjör(1 smápokki)
15 g smjör - 2 msk matarolía til
______að steikja mangóið í_____
3 msk. mangósulta (chutney)
1 dós sýróur rjómi
jöklasalt (iceberg)
1. Klippið bringurnar frá beinum,
takið húðina af. Stráið salti á þær
og malið pipar yfír.
2. Bræðið smjörið, kælið örlítið.
Þeytið eggjahvíturnar örlítið með
gaffli og blandið ásamt karrí sam-
an við brætt - smjörið. Penslið
bringubitana jafnt með þessu.
Leggið í smurt eldfast fat.
3. Hitið bakaraofn í 210°C, blást-
ursofn í 200°C, setjið fatið í miðj-
an ofninn og steikið fyrst í 15
mínútur, snúið þá við, stráið fínt
söxuðum möndlum yfír og steikið
áfram í aðrar 15 mínútur.
5. Skerið mangóið í rif, sjá hér að
framan. Setjið smjör og olíu á
pönnu og steikið mangórifin rétt
áður en kjúkingabitarnir eru til-
búnir. Setjið síðan með í fatið með
kjúklingabringunum.
6. Blandið saman sýrðum ijóma
og mangósultu og berið með ásamt
salatblöðum.
Papaya með skinku
og osti, (forréttur)
3 stk. papaya
____________5 dl vgtn__________
'/2 tsk. salt
10 sneiðar soðin skinkg
1 dós rjómaostur með hvítlauk
og dilli (110 g)
_____________1 e99_____________
V2 dl brauðrasp
2 msk. parmesanostur
1. Afhýðið papayin, skerið í tvennt
og fjarlægið steinana.
2. Setjið vatn og salt í lítinn pott
og sjóðið ávextina í því þar til
þeir eru meðalmeyrir. Mega alls
ekki detta í sundur. Takið úr vatn-
inu og hvolfið.
1. Hrærið ijómaostinn með eggi
og raspi. Klippið eina skinkusneið
í ræmur en hitt í smábita. Setjið
skinkubitana í holurnar á ávöxtun-
um. Leggið skinkuræmurnar fal-
lega yfir. Stráið parmesanosti yfir.
4. Hitið bakaraofn í 210°C, blást-
ursofn í 200° C setjið í miðjan
ofninn og bakið í 15 mínútur.
ÍDAG
Farsi
1-30 Compuserve073662.731 ,, . . _
01995 Famu» C«itoorw/Dí«t by Untvergal Pre»a Syndkate UJAISot-AZS / CöÚCTMfcf
þau Mosía aðeins rneirn, e* þau borga
sig Sjálf cL se% mánukum.!"
COSPER
ÉG skal syngja eitt lag fyrir 200 krónur og fyrir
500 kall skal ég hætta við.
EFTIR að hafa tekið forystu
snemma í einvíginu við Ana-
tólí Karpov(2.765) var Bor-
27. Bd4? - f6 28.
Rfd2 - Rxd2 29.
Hxd2 - e5 og skák-
inni lauk meðjafntefli
í 44 leikjum. í staðinn
gat Karpov unnið peð
með einfaldri fléttu:
27. Hxd7! - Hxd7
28. Rxb6 og hefur þá
vinningsstöðu. Þetta
kom þó ekki að sök
fyrir Karpov því Gelfand
tókst ekki að halda jafntefli
í biðskákinni.
is Gelfand (2.700) frá
Hvíta-Rússlandi heillum
horfinn. Þessi staða kom upp
í 8. skákinni. Fyrir hana var
staðan 3'/2-2‘/2 Karpov í vil
auk þess sem biðstaða úr
sjöundu skákinni var ótefld.
Karpov hafði hvítt og
átti leik:
STÖÐUMYND B
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Góðir landsmenn!
VIÐ VILJUM þakka
veittan stuðning og hlý-
hug í garð Hjördísar og
fjölskyldu hennar. Söfn-
uninni er nú lokið þar
sem safnast hefur nægi-
legt fé til aðstöðar Hjör-
dísi og fjölskyldu, vegna
fjárútláta tengdum að-
gerðinni og til að tryggja
örugga afkomu þeirra
fyrst eftir heimkomu.
Við þökkum frábærar
undirtektir frá öllum
þeim sem lagt hafa fram
hjálparhönd eins og fyr-
irtæki, félagasamtök og
ekki síst einstaklinga.
Með kæru þakklæti.
Fjáröflunamefndin
Tapað/fundið
Úrí
bílageymsluhúsi
KVENGULLÚR á gull-
keðju fannst í bíla-
geymsluhúsinu við
Hverfísgötu 20 í síðustu
viku. Upplýsingar eru
veittar í bílahúsinu eða í
síma 629022,
Gleraugu
töpuðust
GLERAUGU í nettri
umgjörð merkt Oliver
People í leðurhulstri sem
er opið í annan endann
týndust sl. föstudag.
Hafí einhver fundið gler-
augþin er hann vinsam-
Iega beðinn að hringja í
síma 13856, 22790 eða
611222. Helga.
Gæludýr
Týndur köttur
DÖKK grábröndótt læða
með brún augu hvarf frá
Sólheimum 18 sl. föstu-
dag. Hún er eymamerkt
R5H009. Hafi einhver
orðið ferða hennar var.
er hann vinsamlega beð-
inn að hringja í síma
38576.
Kettlingur í
óskilum
ÉG ER einstaklega falleg
og blíð u.þ.b. 4ra mánaða
gömul læða og búin að
vera í óskilum í tvær vik-
ur og þar sem eigendur
mínir hafa ekki gefíð sig
fram óska ég eftir nýjum
eigendum og góðu heim-
ili. Uppl. í síma 12270.
HÖGNIHREKKVÍSI
Víkverji skrifar...
HÚN var bæði skemmtileg,
smekkleg og vel til fundin,
gjöfín sem ungir sjálfstæðismenn á
Isafirði, úr Fylki, færðu Matthíasi
Bjarnasyni á laugardagskvöldið,
þegar fyrsti þingmaður Vestfirð-
inga hafði lokið sínum síðasta
starfsdegi á Alþingi, eftir, 32 ára
þingsetu. Stjórn Fylkis' færði Vest-
fjarðakempunni hraunmola sem
hafði verið sóttur inn í Vestfjarða-
göngin. í molann hafði verði greypt
Islandskort 0g fiskveiðilögsagan
jafnframt.
Það kom einmitt í hlut Matthías-
ar Bjarnasonar, sem sjávarútvegs-
ráðherra, að undirrita reglugerð
um útfærslu landhelginnar í 200
mílur.
Þessi frumlega gjöf á þvl örugg-
lega eftir að ylja þingmanninum,
þegar hann rifjar upp góða tíma
og skemmtilega atburði I tvennum
skilningi, því gerð Vestfjarðagang-
anna hefur ekki síður verið Matthí-
asi mikið baráttumál, en útfærsla
landhelginnar var á sínum tíma.
AÐ var af ásettu ráði, sem
Víkveiji notaði skemmtilega
atburði, þegar hann minntist á
hraunmolann hans Matthíasar, því
Víkveija grunar, að molinn góði
muni einnig minna Matthías á eigin
æsku og störf. Fyrir nokkrum árum
sagði Matthías Víkveija þá sögu,
er þeir sátu hlið við hlið, í flugvél
Flugleiða á leið til ísafjarðar, að
hann hefði verið við vegavinnu á
Breiðadalsheiði þegar hann var
unglingur, árið 1936, að því er Vík-
veija minnir. Vestfjarðagöngin
liggja jú m.a. undir Breiðadals-
heiði, þannig að Matthías þarf ekki
að fara langt I huganum, úr
göngunum og upp á heiðina, þar
sem hann púlaði með heldur léleg-
um tólum myrkranna á milli. Matt-
hlas lýsti því að heldur hefði nú
verið hráslagalegt til heiða, og að-
búnaður vegavinnumanna ekkert I
likingu við það sem nú tíðkast.
Hann hafði verið settur I tjald með
gömlum karli, sem Víkveiji man
því miður ekki lengur nafnið á.
EITT kvöldið, þegar Matthías
var um það bil að skríða í
pokann sinn, var sá gamli að þrífa
sig, með vaskafat fullt af jökulköldu
vatni að vopni. Þá gerði sá gamli
sér lítið fyrir og meig í vatnið, áður
en eiginlegur þvottur hófst! Matthí-
as sagðist vart hafa getað leynt
undrun sinni á þessum aðferðum
við þrifnaðinn, en sá gamli glotti
einfaldlega og sagði: „Þetta tekur
versta kulið úr vatninu, Matti
minn!“
xxx
AN VAFA verður mikill sjónar-
sviptir að þessari kempu á
þingi, sem háð hefur marga hildina
á löngum ferli. Vestfirðingar hafa
átt mjög ötulan talsmann I Matthí-
asi Bjarnasyni I gegnum tíðina -
svo ötulan að ýmsum þingmönnum
úr öðrum kjördæmum, úr hans eig-
in flokki sem öðrum, hefur einatt
þótt nóg um.