Morgunblaðið - 01.03.1995, Side 48
48 MIÐVIKUDAGUR 1. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
<W\ ÞJOÐLEIKHUSIÐ sími 11200
Stóra sviðið kl. 20.00:
Söngleikurinn
• WEST SIDE STORY e. Jerome Robbins og Arthur Laurents
við tónlist Leonards Bernstein
Frumsýning 3/3 uppselt - 2. sýn. lau. 4/3 uppselt - 3. sýn. fös. 10/3 uppselt -
4. sýn. lau. 11/3 uppselt - 5. sýn. fös. 17/3 uppselt - 6. sýn. lau. 18/3 uppselt -
7. sýn. sun. 19/3 uppselt - 8. sýn. fim. 23/3 nokkur sæti laus - fös. 24/3 örfá
sæti laus - fös. 31/3 örfá sæti laus. Ósóttar pantanir seldar daglega.
• GAURAGANGUR eftir Ólaf Hauk Símonarson
Fim. 2/3 uppselt, 75. sýning. Aukasýn. végna mikillar aðsóknar fim. 9/3 örfá
sæti laus - þri. 14/3 - mið. 15/3.
• FÁVITINN eftir Fjodor Dostojevskí
Sun. 5/3 nokkur sæti laus - sun. 12/3 nokkur sæti laus - fim. 16/3 - lau.
25/3 nokkur sæti laus.
• SNÆDROTTNINGIN eftir Evgeni Schwartz
Byggt á ævintýri H.C. Andersen.
Sun. 5/3 kl. 14 nokkur sæti laus - sun. 12/3 kl. 14 nokkur sæti laus - sun. 19/3.
Sólstafir — Norræn menningarhátíð
• NORRÆNN DANS frá Danmörku, Svíþjóð og islandi:
Frá Danmörku: Palle Granhöj dansleikhús með verkið „HHH" byggt á Ijóðaljóð-
um Salómons og hreyfilistaverkið „Sallinen".
Frá Svíþjóð: Dansverkið „Til Láru" eftir Per Jonsson við tónlist Hjálmars H.
Ragnarssonar.
Frá íslandi: Dansverkið „Euridice" eftir Nönnu Ólafsdóttur við tónlist Þorkels
Sigurbjörnssonar.
Þri. 7/3 kl. 20 og mið. 8/3 kl. 20.
Smíðaverkstæðið kl. 20.00:
• TAKTU LAGIÐ, LÓA! eftir Jim Cartwright
i kvöld aukasýn. laus sæti fös. 3/3 uppselt - lau. 4/3 uppseit - sun. 5/3 upp-
selt þri. 7/3 aukasýn. laus sæti - mið. 8/3 uppselt - fös. 10/3 uppselt - lau.
11/3 uppselt - fim. 16/3 uppselt - fös. 17/3 uppselt - lau. 18/3 uppselt, sun.
19/3 aukasýn. uppselt - fös. 24/3 uppselt - lau. 25/3 uppselt - sun. 26/3
uppselt - fim. 30/3 uppselt fös. 31/3 uppselt. Ósóttar pantanir seldar daglega.
Litla sviðið kl. 20.30:
• OLEANNA eftir David Mamet
Fös. 3/3 - fös. 10/3 næstsiðasta sýning - sun. 12/3 síðasta sýning.
Listaklúbbur leikhúskjallarans sun. 5/3 kl. 16.30
• DÓTTIRIN, BÓNDINN OG SLAGHÖRPULEIKARINN
eftir Ingibjörgu Hjartardóttur.
GJAFAKORT íLEIKHÚS - SÍGILD OG SKEMMTILEG GJÖF
Miðasala Þjóðleikhússins er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 13.00
til 18.00 og fram að sýningu sýningardaga.
Tekið á móti simapöntunum virka daga frá kl. 10.00.
Græna linan 99 61 60 - greiðslukoriaþjónusta.
gjg BORGARLEIKHUSIÐ símí 680-680
7 LEIKFÉLAG REYKfAVÍKUR
STÓRA SVIÐIÐ KL. 20:
• Söngleikurinn KABARETT
Sýn. fös. 3/3, lau. 11/3, lau. 18/3, fim. 23/3.
• LEYNIMELUR 13 >
eftir Harald Á. Sigurðsson, Emil Thoroddsen og Indriða Waage.
Aukasýning vegna mikillar aðsóknar, föS. 17/3.
• DÖKKU FIÐRILDIN eftir Leenu Lander.
Frumsýning lau. 4/3 örfá sæti laus, 2. sýn. sun. 5/3 grá kort gilda, örfá sæti
laus, 3. sýn. sun. 12/3, rauð kort gilda, fáein sæti laus, 4. sýn. fim. 16/3, biá
kort gilda.
NORRÆNA MENNINGARHÁTÍÐIN
Stóra svið kl. 20 - Norska óperan
• SIRKUSINN GUÐDÓMLEGI Höfundur Per Norgard
Fim. 9/3, fös. 10/3.
LITLA SVIÐIÐ kl. 20:
• ÓFÆLNA STÚLKAN eftir Anton Helga Jónsson.
Sýn. þri. 14. mars kl. 20.
• FRAMTÍDARDRAUGAR eftir Þór Tulinius
Sýn. í kvöld uppselt, fim. 2/3 uppselt, fös. 3/3 uppselt, lau. 4/3 uppselt, sun.
5/3 uppselt, mið. 8/3 uppselt, fim. 9/3 uppselt, fös. 10/3 örfá sæti laus, lau.
11/3 örfá sæti laus.
Munið gjafakortin okkar - frábær tækifærisgjöf!
Miðasalan er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 13-20. Miðapantanir í síma
680680 alla virka daga kl. 10-12. - Greiðslukortaþjónusta.
eftir Verdi
Sýning fös. 3. mars, uppselt, lau. 4. mars, uppselt, fös. 10. mars, fáein sæti
laus, lau. 11. mars, uppselt, fös. 17. mars, lau. 18. mars.
Ósóttar pantanir seldar þremur dögum fyrir sýningardag.
Sýningar hefjast kl. 20.
Munið gjafakortin - góð gjöf!
Sólstafir - Norræn menningarhátíð
Kroumata og Manuela Wiesler sun. 19. feb. kl. 14.
Ljóðatónleikar með Hákan Hagegárd og Elisabeth Boström sun. 19. feb. kl. 20.
Kynningarskrá Sólstafa liggur frammi í (slensku óperunni.
Miðasalan er opin frá kl. 15-19 daglega, sýningardaga til kl. 20.
Sími 11475, bréfsími 27384. - Greiðslukortaþjónusta.
KaífiLeikhúfiÍ
Vesturgötu 3
IHLADVAKPANUM
Leggur og skei -þamaleikrit
sýning í dag Id. 13 - uppselt
Frumsýning í kvöld
Sópa tvö; sex við somo borð
.. . og enginn lýgur - uppselt
eftir Ingibjörgu Hjartardóttur
og Sigrúnu Öskarsdóttur
Leikendur: Bessi Bjarnason,
Edda Björgvinsdóttir, Eggert
Þorleifsson, Margrét Guomunds-
dóttir, Margrét Akadóttir og Valgeir
Skagfjjörð.
Leikstjóri: Sigríður M. Guðmundsdóttir
Litill leikhúspakki-
I kvöldverður og leiksýning aðeins kr. 1.600 ó mann
- Kvöldsýningar hefjast kl. 21.00 K
ii
Leikfélag Kópavogs
Fannborg 2
A GÆGJUM
eftir Joe Orton.
Frumsýning sun. 5/3 uppselt, fim.
9/3, fös. 10/3. Sýningar hefjast kl. 20.
Miðapantanir í síma 554-6085 eða í
símsvara 554-1985. - Miðasalan er
opin kl. 18:00-20:00 sýningardaga.
LEIKFELAG
AKUREYRAR
Beávvas Shámi Teáther sýnir:
• ÞÓTT HUNDRAÐ ÞURSAR...
í fþróttaskemmunni lau. 4/3 kl. 20:30.
Aöeins þessi eina sýning!
Miðasalan opin virka daga kl. 14-18,
nema mánud. og fram að sýningu sýn-
ingardaga. Sími 24073.
FÓLK í FRÉTTUM
Gengnr allt hægar fyrir sig
HILMAR W. Hannesson afhenti Jiang Zemin, forseta Kína og
aðalritara Kommúnistaflokksins, trúnaðarbréf sitt.
HILMAR W. Hannesson afhenti
Jiang Zemin, forseta Kína og aðal-
ritara Kommúnistaflokksins, trún-
aðarbréf sitt sem sendiherra í Kína
hinn 25. janúar síðastliðinn. Blaða-
maður Morgunblaðsins hafði sam-
band við hann og fyrsta spurningin
var hvernig nýja verkefnið legðist
í hann.
„Þetta leggst vel í okkur hjónin,
enda gífurlega spennandi. Sá haust-
mánuður sem við komum hingað
sýnir okkur hvað allt hérna er fram-
andi. Það er annar hraði á hlutunum
og allt gengur hægar fyrir sig.
Ansi mikil orka fer í tæknileg at-
riði varðandi húsnæði og innrétting-
ar, sem væru aðeins formsatriði
annarsstaðar. Við sjáum þó fram á
að geta opnað skrifstofuna alveg
næstu daga og vorum til dæmis að
fá síma tengdan í dag.
Verkefnið er heillandi og þær
samfélagsbreytingar sem átt hafa
sér stað eru alveg með ólíkindum.
Þegar maður ekur hér um götur
minnir það að mörgu leyti á Man-
hattan, svona utan frá. Umhverfíð
er fjarri því sem maður ímyndaði
sér og skýjakljúfar um allt.
Kínvetjar eru afskaplega vin-
gjarnlegt og góðlegt fólk og við
njótum góðs af. Við höfum líka
verið í sambandi við norræna sendi-
ráðsfólkið sem hefur reynst okkur
vel, auk þess sem við höfum heim-'
sótt kínverska ráðamenn.
Ekki má gleyma Halldóri Briem
og Líðu konu hans. Halldór er hótel-
stjóri hér á Hilton hótelinu og þau
hafa reynst afskaplega hjálpleg.
Auk þess hafa komið hingað nokkr-
ir íslenskir ferðamenn og það hefur
verið gaman að fá þá í heimsókn.“
Hvert er hlutverk sendiherra ís-
lands í Kína?
„Að læra á kerfið og reyna með
þeim lærdómi að hjálpa íslenskum
útflutningsaðilum að koma sér á
framfæri í Kína. í þessu sambandi
er rétt að minna á að ákvörðunin
um að opna hér sendiráð er auðvit-
að langtímaákvörðun. Bæði er verið
að leggja grunn að samskiptum
framtíðarinnar við efnahagslegt
stórveldi sem er að vaxa úr grasi
og auka við það pólitísk samskipti.
Viðskipti eru að sjálfsögðu
kveikjan að því að þetta er gert
núna. Hér er hæglega hægt að
markaðssetja íslenska þekkingu. í
því langtímaspili getur íslenska
sendiráðið verið einskonar lykill að
kerfinu, hjálpað til við að opna
ýmsar dyr. í þessu sambandi þarf
auðvitað að kynna ísland, íslenskan
málstað og íslenska menningu.“
Hvernig líkar þér dvölin í Kína?
„Við komum á kaldasta tíma.
Hann er afskaplega grár og lofts-
lagið er þurrt. Það er ekki nema
tíu prósent raki í lofti og menn
þurfa að nota rakakrem til að þeir
springi ekki alveg á þessum árs-
tíma. Það kom okkur á óvart að
þrátt fyrir þetta er margt mjög
skemmtilegt að sjá hér og afar
spennandi. Þannig að ef að þetta
er grái tími, þá er tilhlökkunarefni
að sjá þann græna.
Okkur finnst við vera ógurlega
langt frá börnum okkar, ættingjum
og vinum. Ekki aðeins fjarlægðar-
innar vegna heldur spilar tímamun-
urinn líka inn í. Eitt barna okkar
stundar til dæmis nám í Bandaríkj-
unum sem eru hinum megin á
hnettinum og tímamunurinn er ell-
efu tímar. Við erum því langt í
burtu hvernig sem maður hugsar
um það.“ Við svo búið kveður Hilm-
ar W. Hannesson sendiherra í Kína,
enda nóg af verkefnum á hans
könnu í hinu rísandi efnahagsstór-
veldi; Kína.
BROT af uppstill-
ingu Þormars í
keppninni. Þar má
sjá meðal annars
konur í þjóðbún-
ingum, Islands-
sögubók með
skjaldarmerkinu
og Geysisgos.
Þormar Þorbergs-
son og Gert Sar-
ensen Evrópu-
meistari í köku-
skreytingalist.
Seljavegi 2 - sími 12233.
KIRSUBERJAGARÐURINN
eftir Anton Tsjekov.
Síðdegissýning 5/3 kl. 15.00
og kvöldsýn. sun. 12/3 kl. 20.
- Allra síðustu sýningar.
Miðasalan opnuð kl. 13 sunnudag.
Miðapantanir á öðrum timum
í símsvara, sími 12233.
Nemendaleikhúsið
Lindarbæ, sími 21971
TANGÓ
í leikstjórn Kjartans Ragnarssonar.
13. sýn. fimmtud. 2. mars kl. 20.
14. sýn. föstud. 3. mars kl. 20.
15. sýn. sunnud. 5. mars kl. 20.
síðasta sýningarhelgi.
Þormar Þor-
bergsson
hlaut tvenn
verðlaun
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
í NÝAFSTAÐINNI evrópskri köku-
gerðarkeppni var eini íslenski kepp-
andinn, Þormar Þorbergsson, verð-
launaður fyrir frumlegt efnisval,
sem reyndar var með íslensku yfir-
bragði. Auk þess gekk honum vel
í ísgerðarkeppninni. Til keppninnar
var boðið ýmsum alþjóðlegum
meisturum, svo keppendur komu
meðal annars frá Kína, Japan og
Ástralíu, auk Evrópu. Alls voru
keppendur um fimmtíu talsins.
Þormar Þorbergsson er ungur
kökugerðarnemi, sem er að ljúka
námi frá iðnskólanum í Ringsted á
Sjálandi. Hann tók þátt í keppninni
frá skólanum, en valdi _sér íslenskt
efni í kökuskreytingar. í marsipan-,
sykur- og súkkulaðiskreytingum
hans gat að lýsa gos úr Geysi, ís-
lenska fána og litla karla og kerl-
ingar á íslenskum búning. Auk þess
var tertuskreyting eins og gömul
skinnbók með áletrun og allt hið
lystilegasta á að líta. Skreytingin
skar sig mjög úr öðrum skreyting-
um, sem voru með hefðbundnari
sniði. Þormar lenti í 7. sæti í keppn-
inni, en var auk þess verðlaunaður
sérstaklega fyrir frumlegt og sér-
stakt efnisval.
Þormar tók einnig þátt í ísgerðar-
keppni og var þar í 8. sæti. Hann
hefur verið við nám í tækniskólan-
um í Ringsted á Sjálandi undanfar-
in ár, en lýkur námi nú í vor. Enn
er allt óljóst hvar hann muni hefja
störf. Hann ætlar bara að bíða og
sjá til hvar kaupin gerist best og
áhugaverðust. í náminu hefur hann
meðal annars unni hjá St. Taffel-
bay’s, sem er glæsilegt og þekkt
kökugerðarhús á Strandvejen í
Kaupmannahöfn.