Morgunblaðið - 18.03.1995, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 18. MARZ 1995 9
Sjálfs tæðis fólk!
Hafið samband ef þið verðið ekki heima á kjördag.
FRÉTTIR
Dagvist barna vill hætta greiðslum til heimavinnandi foreldra
Verðlækkun
á bensíni!
Tilboð:
Tvöfaldur afsláttur í formi punkta
til SAFNKORTSHAFA.
80 aurar á lítra, í stað 40 aura
Hætt við eftir
1 árs reynslu
Stjóm Dagvistar bama hefur samþykkt að
leggja til við borgarráð að greiðslur til for-
eldra, sem annast böm á dagvistaraldri
heima, verði felldar niður. Formaður Lands-
samtaka heimavinnandi fólks segir að með
þessu sé vegið að heimilunum og rétti heima-
vinnandi fólks. Sú aðför bitni á þeim sem
síst skyldi, bömunum.
BORGARRÁÐ tekur samþykkt
stjórnar Dagvistar barna til af-
greiðslu á fundi sínum næstkom-
andi þriðjudag.
Forsaga þeirra greiðslna, sem
hér um ræðir, er sú að fyrir borgar-
stjórnarkosningamar 1990 gaf
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík
loforð um að á kjörtímabilinu yrði
ákveðið fyrirkomulag á greiðslu til
foreldra, sem kysu að annast börn
á dagvistaraldri heima. Fyrir kosn-
ingarnar sagði Davíð Oddsson, þá-
verandi borgarstjóri, að kostnaður
borgarinnar vegna þessa færi eftir
því, hvað skrefið yrði stigið hratt.
I sjónvarpsumræðum þann 25. maí
1990 benti hann á, að það kostaði
borgina og einstæða móður tæplega
800 þúsund krónur á ári að vista
tvö börn í heilsdagsvistun hjá borg-
inni. Því væri spurning, hvort ekki
væri betra að móðirin fengi þessar
800 þúsund krónur sjálf til ráðstöf-
unar og tæki þá sjálf ákvörðun um
hvort hún notaði peningana til að
greiða fyrir dagvistun eða yrði
heima. Skattaleg atriði kæmu einn-
ig til athugunar og einnig mætti
velta fyrir sér þeim möguleika að
taka barnabætur, sem nú væri skipt
niður á 16 ár og setja þær niður
þegar börnin væru á viðkvæmasta
aidri.
í framhaldi af þessu hafði Morg-
unblaðið eftir borgarstjóra, að
Reykjavíkurborg og ríkisvaldið
þyrftu að taka upp umræður um
skattalega meðferð greiðslna, sem
foreldrar fengju. Ekki gengi að rík-
ið tæki tæp 40% af greiðslunum í
skatta.
í janúar 1991 var stefnt að því
að greiðslur til foreldra gætu hafist
á haustmánuðum það sama ár. Að
sögn Bergs Felixsonar, fram-
kvæmdastjóra Dagvistar barna,
stóð lengi á skýrum svörum frá
skattayfirvöldum um skattalega
meðferð greiðslnanna. auk þess sem
setja þurfti reglur um hveijir ættu
rétt á þeim. Greiðslur til foreldra
hófust því ekki fyrr en í ársbytjun
1994. Þær hafa jafngilt þeirri fjár-
hæð, sem borgin greiðir með barni
í hálfs dags vistun á leikskóla, eða
6.000 krónum á mánuði. Greiðsl-
urnar eru - skattskyldar, en undan-
þegnar staðgreiðslu, sem þýðir að
gera skal grein fyrir þeim á skatt-
framtali og skattar eru gerðir upp
eftir á. Rúmlega 500 sóttu um
greiðslur í upphafi og hefur sú tala
staðið nokkurn veginn í stað, sam-
kvæmt upplýsingum Dagvistar
barna. Kostnaður borgarinnar nem-
ur því um 3 milljónum á mánuði.
Haft var eftir Árna Þór Sigurðs-
syni, formanni stjórnar Dagvistar
barna og borgarfulltrúa R-listans,
í Morgunblaðinu í gær, að greiðsl-
urnar hafi verið bundnar við for-
eldra barna frá 2'h árs til 4 'h árs,
en það séu ekki síst foreldrar barna
undir 2 ára aldri sem hafi þurft að
greiðslunum að halda. Þessi nýting
á fjármunum borgarinnar í dagvist-
armálum hafí ekki verið æskileg,
þar sem um 40% færu beint í skatta
og það sé verkefni sveitarfélaga að
gefa börnum kost á leikskólavist
eða tryggja þeim dagvistunarpláss
annars staðar, en ekki að greiða
foreldrum fyrir að vera heima með
börn sín. Frá 1. september njóti
foreldrar niðurgreiðslna í formi
beinna styrkja til dagmæðra.
Ragnheiður Ólafsdóttir, formað-
ur Landssamtaka heimavinnandi
fólks, kveðst vera mjög ósátt við
niðurfellingu greiðslna til foreldra.
„I því atvinnuleysi, sem nú er ríkj-
andi, hefði mér þótt eðlilegt að
greiða góða upphæð til heimavinn-
andi foreldra, sem vilja vera heima
með börnum sínum. Eg er líka full-
viss um, að ef fólki væri gert kleift
að sinna börnum sínum heima
myndi það koma samfélaginu mjög
til góða. Til dæmis myndu sparast
háar fjárhæðir í heilbrigðiskerfinu,
sem annars renna til áfengis- og
vímuefnameðferðar ungmenna,
sem fara á vergang. Þessar greiðsl-
ur Reykjavíkurborgar hafa hvorki
verið fugl né fiskur, en ég vonaðist
til að þær væru vísir að einhvetju
meira. Niðurfelling þeirra en enn
ein atlagan að heimilunum. Nú þeg-
ar er heimavinnandi fólki gert
lægra undir höfði en öðrum, þar
sem ekki má nýta meira en 80%
persónuafsláttar þess. Aðför að
heimilunum leiðir alltaf til þess að
börnin okkar líða.“
Olíufélagið hf
Utankj örs taðaskrifstofa
S j álfstæðisflokksins
Valhöll, Háaleitisbraut 1, 3. hæð
Símar: 588-3322, 588-3323, 588-3327
Skrifstofan gefur upplýsingar um kjörskrá og allt sem lýtur að
kosningunum 8. apríl. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer fram hjá
sýslumanninum í Reykjavík, Engjateigi 5,
alla daga kl. 10.00-12.00,14.00-18.00 og 20.00-22.00.
Nýkomnir sundbolir
frá Finnwear
Stœrðir: S,M,L,XL,XXL
Einnig fallegur
bómullarfatnaður
Sendum í póstkröfu.
ÍAMAN
|| Laugaveg 32, siml 16477.
nqki omið
Ljósar dravtir
& fx Kaufti kuvcrslun rárslíf: 1. sími 6 15077
Franskar buxur og blússur
í ljósum litum
TESS
v n'
neðst við
Dunhaga,
sími 622230
Opið virka daga
kl. 9-18,
laugardaga
kl. 10-14.
NYJAR vorvorur
‘Kjótar — margar gerðir
Xvmfatnaður frá
RENE LEZARD
r~A r"H I O N G R O U P
Sœvar Karl Ölason
Bankastræti 9, sími 13470.