Morgunblaðið - 18.03.1995, Side 16

Morgunblaðið - 18.03.1995, Side 16
16 LAUGARDAGUR 18. MARZ 1995 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Erill hjá bj örgnnar s veitarmönnum í snælduvitlausu veðri Vaxandi snjó- flóðahætta úr Ósbrekkufjalli Morgunblaðið/Rúnar Þór BJÖRGUNARSVEITARMENN aðstoðuðu fólk að komast til og frá vinnu í gærmorgun. GRÝLUKERTI hanga víða niður úr þykkum snjóhatti húsanna. Vetraríþróttamiðstöð íslauds stofuuð á Ákureyri í dag Samstarfs verkefni ríkis, bæjar, ÍSÍ og ÍBA „ÞAÐ er snælduvitlaust veður, grenjandi stórhríð og 6 stiga frost,“ sagði Óli Ólason í Grímsey í gær. Aftakaveður var á Norðurlandi, allir vegir voru ófærir og vegna veðurs var ekki hægt að sinna snjómokstri. Þá var heldur ekki hægt að fljúga norður annan daginn í röð. Vaxandi snjóflóðahætta var í Ói- afsfirði að sögn lögreglu og eigendur hrossa í hesthúsahverfi bæjarbúa undir Ósbrekkufjalli þurftu að koma við á lögreglustöð til að taka þar talstöðvar áður en farið var í hest- húsin. Þá fóru ménn þangað þrír saman í hóp. „Það er blindbylur, mun verra veður en var í gær [fímmtudag] og allt orðið ófært,“ sagði Jón Konráðsson lögreglumað- ur í Ólafsfirði. Mjólkurlaust var orð- ið í bænum en ófært hefur verið til og frá staðnum frá því á miðviku- dag. Skólastrákar í Óiafsfirði buðust til að aka fólki á vélsleðum t.d. í verslanir. Náðu ekki að sinna öllum beiðnum um aðstoð „Við erum farnir að ráða við þetta núna,“ sagði Árni Magnússon varð- MESSUR AKUREYRARPRESTAKALL: Sunnu- dagaskóli Akureyrarkirkju verður á morgun kl. 11.00, allir velkomnir, munið kirkjubílana. Messað verður í Akureyrarkirkju n.k. sunnudag kl. 14.00. Mótettukór Hallgrimskirkju syngur. Æskulýðsfundur í kapellunni kl. 17.00. Biblíulestur í Safnaðarheim- ilinu á mánudagskvöld kl. 20.30. GLERÁRKIRKJA: Biblíulestur og bænastund í kirkjunni kl. 11.00 í dag, laugardag. Barnasamkoma verður í kirkjunni kl. 11.00. Foreldrar hvattir til að koma með börnum sínum. Messa verður kl. 14.00 Sigurbjörn Einarsson biskup predikar. Fundur æskufýðsfélagsins kl. 18.00. HJÁLPRÆÐISHERINN: Alþjóðlegt átak Billy Grahams laugardag kl. 20.30. Sunnudagaskóli kl.13.30, hjálpræðissamkoma kl. 20.00. Allir velkomnir. Heimilasamband fyrir kon- ur á mánudag kl. 16.00. Samkoma í Glerárkirkju kl. 20.30 á mánudag, Níls Stórá kennir, samkirkjulegur lofgjörð- arhópur syngur. HVÍTASUNNUKIRKJAN: Sam- koman í kvöld fellur niður en minnt er á samkomu með Billy Graham í Glerárkirkju. Vakningasamkoma, stjórnandi Anna G. Sigurðardóttir kl. 15.30 á sunnudag. Biblíulestur kl. 20.00 á miðvikudagskvöld, KKSH, kl. 17.15 á föstudögum og bænasam- koma kl. 20.30 sama dag. KAÞÓLSKA KIRKJAN, Eyrarlands- vegi 26: Messa í dag, laugardag, kl. 18.00, sunnudag kl. 11.00 og mánu- dag kl. 18.00. --------------- Fyrsta einka- sýning Krist- jáns Péturs KRISTJÁN Pétur Sigurðsson opnar sína fyrstu einkasýningu í Deigl- unni, Grófargili, í dag, laugardag- inn 18. mars kl. 15.00. Sýning Kristjáns er að stofni til lágmyndir, tréristur og höggmynd- ir. Myndefnið sækir hann til þeirrar listgreinar sem honum er hugleikn- ust, tónlistarinnar. 011 verkin á þessari sýningu eru gítar í einhverri mynd. Sýningin er opin frá kl. 14.00 til 18.00 alla daga fram til sunnudags- ins 26. mars. Allir velkomnir. stjóri lögreglunnár á Akureyri síð- degis, en mikill erill var hjá lögreglu sem fékk björgunarsveitarmenn, fé- laga úr Hjálparsveit skáta og Flug- björgunarsveitinni til áð aðstoða sig. „Það var mjög mikið að gera hér frá kl. 6 til 9 við að koma fólki til og frá vinnu. Við náðum ekki að sinna öllum þeim fjölda beiðna sem okkur barst um aðstoð á þeim tíma. Síðan þurfti að aðstoða ökumenn í ófærð- inni að auki,“ sagði Árni. Strætisvagnaleiðum í bænum var haldið opnum fram eftir degi, en íbúðargötur í úthverfum voru ill- eða ófærar og ekkert átt við að hreinsa þær vegna veðurs. „Þetta er óskap- legt vetrarríki og mál að linni. Eg held þetta sé einn harðasti vetur hér um slóðir í seinni tíð,“ sagði Árni. Sést ekki milli augna Björgunarsveitir á Dalvík aðstoð- uðu fólk við að komast milli staða í gær. „Þar fara menn bara af stað eins og á leigubílastöð þegar veðrið er svona,“ sagði Felix Jósafatsson varðstjóri á Dalvík. Allar götur voru ófærar „og sést varla milli augna“ eins og Felix orðaði það. Vetraríþróttamiðstöð íslands, VMÍ, verður formlega stofnuð í dag, laugardaginn 18. mars, á Akureyri að viðstöddum Ólafi G. Einarssyni, menntamálaráðherra, sem gefa mun út formlega reglu- gerð um vetraríþróttamiðstöðina þar sem kveðið er á um hlutverk hennar og þá aðila sem að henni standa. Dagskrá vegna formlegrar stofnunar Vetraríþróttamiðstöðvar íslands á Akureyri hefst kl. 14.00 í dag í íþróttahöllinni á Akureyri Þar verður undirrituð reglugerð um Vetraríþróttamiðstöð íslands á Akureyri, en síðan flytja mennta- málaráðherra, Jakob Bjömsson, bæjarstjóri og Ellert B. Schram, forseti íþróttasambands íslands, ávörp. Sameign fjögurra aðila Vetraríþróttamiðstöð íslands verður sameign Akureyrarbæjar og ríkisins. Starfsemi og uppbygg- RÉTT um 200 skráðir árekstrar hafa orðið á Akureyri það sem af er ársins og eru þeir umtals- vert fleiri en á sama tímabili í fyrra þegar 113 árekstrar höfðu orðið í umferðinni. Snjóþyngsl- um og erfiðum vetri er einkum um að kenna að mati lögreglu. Matthías Einarsson, varð- sljóri lögreglunnar, hafði á fimmtudag tekið saman upplýs- ingar um fjöida umferðaró- happa í bænum og þá hafði lög- regla haft afskipti af 195 árekstrum frá áramótum eða á tveimur og hálfum mánuði. Allt síðasta ár hafði lögregla af- skipti af 466 ákeyrslum. ing verður samstarfsverkefni menntamálaráðuneytisins, Akur- eyrarbæjar, íþróttasambands ís- lands og íþróttabandalags Akur- eyrar. Meginhlutverk hennar er að efla vetraríþróttir og útivist, stuðla að heilbrigðu lífi og heilsurækt landsmanna allra, jafnt almenn- ings, skólafólks og fatlaðra, sem keppnis- og afreksfólks í íþróttum. Lögð verður áhersla á góða að- stöðu til æfinga og keppni, auk þess sem miðstöðin hefur sérstöku hlutverki að gegna í sambandi við félagsstarfsemi, fræðslu og nám- skeiða- og ráðstefnuhald. Tómas Ingi Olrich, alþingismað- ur, sem ásamt fleirum hefur unnið að málinu sagði að mikil vinna hefði verið lögð í undirbúning og nú væri komið að því að ganga formlega frá stofnun vetraríþrótt- amiðstöðvarinnar. „Þetta þýðir að uPPbygging og starfsemi hvílir á þessum fjórum _ aðilum, Akur- eyrarbæ, ríki, ÍSÍ og ÍBA þannig að hægt verður að standa að upp- Um 200 árekstrar frá áramótum „Þetta hefur verið mikil hrina, þetta fer að ná því að vera helmingur af öllum árekstrum síðasta árs á þessum skamma tíma,“ sagði Matthías. Tjón af völdum þessara um- ferðaóhappa á bifreiðum er umtalsvert, gæti legið á bilinu 15 til 20 milljónir króna. byggingu vetraríþrótta með öðrum hætti en hingað til,“ sagði Tómas Ingi og benti að að það yrði hlut- verk nýrrar stjórnar vetraríþrótt- amiðstöðvarinnar að marka stefnu í þeim efnum og sinna henni í fram- kvæmd. Mikil viðurkenning Það yrði því í framtíðinni hlut- verk vetraríþróttamiðstöðvarinnar að veita bæði félögum og einstakl- ingum aðstöðu til æfinga og keppni en auk þess væri gert ráð fyrir að miðstöðin veitti einnig aðstöðu til námskeiða- og ráðstefnuhalds og stæði fyrir fræðslu af margvíslegu tagi. „Að Akureyri verður miðstöð vetraríþrótta á landinu er mikil viðurkenning á því uppbyggingar- starfi sem unnið hefur verið í bæn- um fram til þessa og í framhaldinu má búast við að markvisst verði unnið að því að byggja staðinn upp sem miðstöð vetraríþrótta í land- inu,“ sagði Tómas Ingi. Matthías sagði að síðustu vik- ur hefði ástandið verið nyög slæmt, háir snjóruðningar við hver gatnamót sem geri bílsljór- um erfitt fyrir að fylgjast með umferð, menn þurfi því að aka Iangt út i göturnar og þá væri oft orðið of seint að forða árekstri. „Það er mjög áberandi hversu mikið er um skemmda bíla í umferðinni hérna, menn eru á beygluðum og skældum bílum sem er langt í frá nógu gott. Kannski fólk hafi ekki efni á að láta gera við bílana, en það er ekki nægilega öruggt að aka um áþessum hnoðuðu bílum,“ sagði Matthías. Mótettu- kórinn syngnr MÓTETTUKÓR Hallgríms- kirkju efnir til tónleika í Akur- eyrarkirkju í dag, laugardaginn 18. mars kl. 17.00. Á efnisskránni eru verk eftir þá feðga Áskel Jónsson og Jón Hlöðver Áskelsson, messuþætt- ir eftir Palestrina og mótettur eftir Schútz, Hassler og Bruckner. Mótettukór Hallgrímskirkju er í fremstu röð blandaðra kóra á íslandi, en hann stofnaði stjómandi hans, Hörður Áskels- son, árið 1982 og hefur hann starfað af miklum krafti síðan og ferðast víða, bæði innan- lands og utan. Þetta er þriðja heimsókn kórsins til Akureyrar Kórinn hefur flutt tónlist frá öllum tímabilum kirkjutónlist- arinnar. Efnisskrá tónleikanna er tví- skipt, fyrri hlutinn er byggður upp á þremur þáttum hinnar þekktu messu „Missa Papae Marcelli" eftir Palestrina og úrvalsmótettum Schútz og Hasslers fléttað inn í milli. Síð- ari hlutinn er samansettur úr mótettum og sálmalögum feðg- anna Áskels og Jóns Hlöðvers. Eftir Áskel flytur kórinn m.a. þijú sálmalög við texta Sverris Pálssonar og Kristjáns frá Djúpalæk. Einsöngvari með kómum er Guðrún Finnboga- dóttir, en auk hennar syngur Kristín Erla Blöndal Maríubæn eftir Áskel. Þá flytur kórinn „Upp, upp mín sál“ sem Jón Hlöðver samdi fyrir Kór Akur- eyrarkirkju til minningar um Pál Bergsson. Lagnir í vot- rýmum FRÆÐSLUFUNDUR Lagna- félags íslands verður haldinn í samvinnu við lagnadeild KEA, Byggingavörur Akureyri á Hót- el KEA næstkomandi mánudag, 20. mars, og hefst hann kl. 12.45. Fundarefni er „lagnir í votrýmum," í húsum, eldhúsum, böðum, salernum, þvottahúsum og undir svalahurðum. Fótbolti á Hörpu HÓTEL Harpa býður nú gest- um sínum upp á að horfa á sjón- varpsstöðina Sky-Sport og í til- efni af því gefst almenningi kostur á að sjá knattspymuleik Liverpool og Manchester United í beinni útsendingu á morgun sunnudag á bar hótelsins. Leik- urinn byijar kl. 16.00 en klukkustund áður er eins konar upphitun. Vígsluafmæl- is húss KFUM og KFUK minnst HÁTÍÐARSAMKOMA verður haldin í húsnæði KFUM og KFUK í Sunnuhlíð næstkom- andi sunnudag, 19. mars kl. 16.00. Tíu ár vom í gær, föstu- daginn 17. mars, frá því dr. Sigurbjörn Einarsson biskup vígði húsnæðið og verður hann áðalræðumaður á hátíðarsam- komunni. Björg Þórhallsdóttir syngur einsöng og fleira verður á dag- skrá og er öllum boðið í afmæli- skaffi á eftir. Starfsemi í húsinu hefur ver- ið mikil frá því það var vígt fyrir 10 árum. Félögin tvö voru sameinuð í ágúst 1993 og er Bjarni Guðleifsson formaður þess.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.