Morgunblaðið - 18.03.1995, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
LAÚGARDAGUR 18. MARZ 1995 17
Breiðdalsleggur V estfjarðaganganna
Langþráðu tak-
markí náð
- borinn kominn í gegn. 25 metrar eru ósprengdir
ísafirði - STARFSMENN Vestur-
íss, verktakans í Vestfjarða-
göngunum náðu langþráðu tak-
marki á fimmtudag er bor þeirra
fór í gegnum síðasta haftið í Breið-
dalsafleggj aranum.
Um var að ræða 5 sm breitt
gat sem borað var í gegnum 33,5
metra langt klettabelti. Á fimmtu-
dag voru ósprengdir rúmir 25
metrar og standa vonir verktakans
til að af hinni svokölluðu „ráðher-
rasprengingu" geti orðið í byijun
næstu viku.
„Það var meiningin að vera hin-
um megin við haftið en það hefur
ekki gefið upp að göngunum.
Menn eru nokkuð vissir um að
hafa hitt á miðjuna, en greinilegt
er að borinn fór í gegn. Það mun-
aði ekki nema 11 sm í Botnsdal
og mælikerfið sagði okkur að
skekkjan ætti að vera heldur minni
í Breiðdalnum. Það verður ákveðið
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
HELGI Guðmundsson með páskableikjuna úr einu kerinu.
Silungur frá Merki-
steini á markað
Selfossi - „Merkismenn hf. sem
rekur eldisstöð fyrir bleikju, regn-
bogasilung og urriða skammt frá
Laugarvatni hóf nýlega sölu hér
innanlands á ferskum og reyktum
regnbogasilungi.
Merkisteinn hf., sem er í eigu
18 aðila, keypti eldisstöðina í
fyrra, nær fisklausa. Byijað var
að taka inn regnbogasilung, sem
verið er að selja afurðir af, og
bleikju en afurðir af henni fara á
markað í sumar.
Einbeitum okkur að bleikjunni
„Við höfum hug á að einbeita
okkur að bleikjunni en við erum
einnig með dálítið af urriða héðan
af svæðinu en hann er góður veiði-
fiskur í lokuðum tjörnum," sagði
Helgi Guðmundsson, einn eigenda,
í samtali við Morgunblaðið. Regn-
bogasilunginn segist hann rækta
upp í stærðina 700 grömm til eitt
kíló og selja hann ferskan og
reyktan. Reykingin fer fram í
Útey, skammt frá stöðinni.
Þreifað á útflutningi
Helgi sagði mikla vinnu fram-
undan við markaðssókn. „Við
erum að fjárfesta í markaðssókn
til að ná fótfestu fyrir framtíð-
ina,“ sagði Helgi.
Helgi sagði þau hjá Merkisteini
hf. einbeita sér að innanlands-
markaðnum en þó væru [>au að
þreifa fyrir sér með útflutning.
Prufur hefðu verið reyktar í Útey
og hjá Hafsól á Svalbarðseyri og
sendar til Danmerkur. Framhaldið
á þessu ætti eftir að koma í ljós.
Sérstök fjöl-
skyldumessa
í Húsavíkur-
kirkju
Húsavík - Við hátíðlega fjöl-
skylduguðsþjónustu í Húsavíkur-
kirkju fyrir skömmu var öllum 5
ára börnum aflient að gjöf frá
kirkjunni bókin Kata og Óli fara
í kirkju.
Bók þessi er sérstaklega samin
og myndskreytt fyrir fimm ára
börn og hefur að geyma frásögn
af börnum og því hvernig þau
kynnast kirkjunni og læra að
biðja og þekkja guð. Bókin er
ætluð foreldrum til stuðnings í
trúaruppeldi barnn þeirra.
Sóknarpresturinn, sr. Sighvat-
ur Karlsson, liefur tekið upp þá
nýbreytni að hafa sunnudaga-
skóla kirkjunnar öðru hverju í
félagsaðstöðu Hvamms, heimili.
aldraðra, og eiga þar ungir safn-
aðarmeðlimir helgistund með
þeim elstu, oft afa sínum og
ömmu. Sérstök ánægja hefur
verið að þessari nýbreytni.
um þessa helgi hvenær ráðherra-
sprengingin verður en við vonumst
til að af því geti orðið fljótlega í
næstu viku.
Það varð svolítið spennufall hjá
starfsmönnum þegar borinn fór í
Stykkishólmi - Helstu fram-
kvæmdir á vegum Stykkishólms-
bæjar eru endurbætur á hafna-
skipabryggjunni i Stykkishólmi.
Verkið var boðið út í tvennu lagi,
vinnan annars vegar og efni hins
vegar.
I vinnuþáttinn buðu 7 aðilar úr
Stykkishólmi og frá öðrum stöðum.
Langlægsta tilboðið kom frá Eárusi
Einarssyni sem rekur byggingafé-
lagið Stapa hf. í Mosfellsbæ. Tilboð
hans var 77% af kostnaðaráætlun.
Heildarkostnaður við endurbygg-
gegn og takmarkinu verður náð
þegar síðasta haftið verður
sprengt," sagði Björgvin Guðjóns-
son, eftirlitsmaður Vegagerðar
ríkisins við Vestijarðagöngin í
samtali við blaðið.
inguna er áætlaður 35 milljónir
króna.
Það er mikið verk. Það á að
skipta um undirstöður og dekk á
bryggjunni. Reknir verða niður stál-
staurar í staðinn fyrir tréstaura sem
bera bryggjuna nú uppi. Tréstaur-
arnir eru mjög illa farnir og því
breyta menn til og koma fyrir staur-
um úr stáli. Bryggjudekkið verður
úr harðviði og breytist því útlit
bryggjunnar ekkert.
Aætlað er að endurbótum ljúki í
júlí nk.
Islenski haf-
örninn dag-
leg sjón
Stykkishólmi - íslenski haf-
örninn er sjaldgæfur fugl og
margir Íslendingar hafa ekki
séð hann nema á myndum.
Heimkynni hans eru á Vestur-
landi, sérstaklega við Breiða-
fjörð og á Vestijörðum.
Undanfarna tvo vetur hefur
verið næstum dagleg sjón að
sjá erni í Stykkishólmi. Þeir
koma hingað í leit að æti sem
kemur frá fiskvinnsluhúsunum
í bænum. Hjá fiskvinnslufyrir-
tækinu Þórsnesi hf. geta menn
fylgst með örnunum á sundinu
fyrir framan. í fyrravetur sáust
allt að 5 ernir í fjörunni í einu
en í vetur hafa þeir oftast verið
tveir og er talsverður stærðar-
munur á þeim. Hefur fólk fylgst
með út um glugga með örnun-
um drepa æðarfugla og máva
sér til matar og er það tilkomu-
mikil sjón. Eftir að bardaga er
lokið með sigri arnanna fara
þeir með feng sinn út í Landey
sem er þarna rétt hjá og gæða
sér á veiðinni.
Iðnaðarmenn
á Suðurlandi
í nýtt félag
STOFNAÐ hefur verið nýtt fé-
lag iðnaðarmanna á Suður-
landi, Sunnuiðn, Sunnlenska
iðnfélagið. Aðilar að nýja félag-
inu eru fyrrverandi félagar Fé-
lags byggingariðnaðarmanna,
Árnessýslu, Iðnsveinafélag
Rangárvallasýslu auk iðnaðar-
manna úr V-Skaftafellssýslu.
Félagssvæði nýja félagsins er
Árnes-, Rangárvalla- og
Skaftafellssýsla.
Formaður nýja félagsins er
Ármann Ægir Magnússon,
Tiveragerði.
Skrifstofa félagsins er að
Eyrarvegi 29, Selfossi.
Opnun skjjða-
svæðisins
frestað
ísafirði - Formlegri opnun
skíðasvæðis ísfirðinga á Selja-
landsdal og í Tungudal setn
fara átti fram í dag, laugardag,
hefur verið frestað um einn dag
vegna óveðurs.
Athöfnin mun fara fram við
nýju skíðalyftuna á Selja-
landsdal og hefst kl. 13.
Morgunblaðið/Árni Helgason
ENDURBYGGING stóru bryggjunnar í Stykkishólmi
hafin af fullum krafti.
Stóra bryggjan
endurbyggð
\
Morgunblaðið/Silli
ÖLL 5 ára börn á Húsavik fengu bókina Kata og Óli fara í kirkju, að gjöf.