Morgunblaðið - 18.03.1995, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 18. MARZ 1995 19
VIÐSKIPTI
Morgunblaðið/Árni Sæberg
GESTUR Einarsson, auglýsingasljóri Morgunblaðsins, afhendir
Birni Jónssyni hjá Atómstöðinni og Elvari Guðjónssyni hjá Skan-
dia hf. verðlaun fyrir athyglisverðustu dagblaðaauglýsinguna.
Athyglisverðasta auglýsing ársins 1994
Fimm auglýsingastofur
fengu gjallarhomið
AF þeim sjö auglýsingastofum
sem hlutu verðlaun á Athyglis-
verðustu auglýsingu ársins 1995,
voru fimm að fá verðlaunagripinn,
gullhúðað gjallarhorn, afhentan í
fyrsta skipti. Verðlaunin voru
veitt við hátíðlega athöfn í Borg-
arleikhúsinu í gær; en það var í
níunda skipti sem IMARK, fslenski
markaðsklúbburinn, gengst fyrir
slíkri samkeppni. Eins og áður
voru veitt verðlaun í átta flokkum
auk þess sem óvenjulegasta aug-
lýsingin var valin.
Alls stóð valið um 223 auglýs-
ingar sem sendar voru í keppnina
og að sögn Martins Eyjólfssonar,
framkvæmdastjóra Athyglisverð-
ustu auglýsingu ársins 1995, var
keppnin jöfn og spennandi í flest-
um flokkum. Auglýsingastofurnar
fimm sem unnu í gær til gjallar-
hornsins í fyrsta skipti voru; Gra-
fít, Atómstöðin, Nonni & Manni,
Mátturinn og dýrðin og Sjöundi
himinn.
Auglýsingarstofurnar Grafít og
Hvíta húsið unnu til tveggja verð-
launa, en sjö auglýsingastofur
fengu ein verðlaun hver. Tvenn
verðlaun, gullhúðuð gjallarhorn,
voru veitt í hveijum flokki. Önnur
verðlaunin fóru til viðkomandi
auglýsingastofu, hin til auglýsand-
ans. Auglýsingastofan Grafít hlaut
verðlaun í flokki útvarpsauglýs-
inga fyrir auglýsingu um Svala
fyrir Sól hf. Þá fékk Grafít verð-
laun fyru vöru- og firmamerki
fyrir þjóðhátíðina á Þingvöllum;
Þingvellir.
Hvíta húsið fékk verðlaun fyrir
tímaritaauglýsingu fyrir Mark-
aðsnefnd mjólkuriðnaðarins,
Sérðu ekkihvað mjólkin ergóð
fyrir sjónina?. Auglýsingin Is-
lenska er okkar mál fékk verðlaun
í flokki sjónvarpsauglýsinga, en
framleiðendur voru Hvíta húsið
og Hugsýn. Auglýsandi var Mjólk-
ursamsalan.
I flokki dagblaðaauglýsinga
fékk Atómstöðin verðlaun fyrir
auglýsinguna Hver heldur þér
uppi, sem framleidd var fyrir
Skandia. I flokki útsendiefnis fékk
auglýsingastofan Mátturinn og
dýrðin verðlaun fyrir Lykil að
lukku fyrir Ikea.
Auglýsingastofan Nonni &
Manni fékk verðlaun fyrir um-
hverfisgrafík með Eureka sem
framleitt var fyrir Eureka. Þá
fékk Gott fólk verðlaun fyrir aug-
lýsingaherferðina Egils Malt ’94
fyrir Ólgerðina Egil Skallagríms-
son. Að lokum fékk auglýsinga-
stofan Sjöundi himinn verðlaun
fyrir óvenjulegustu auglýsinguna.
Þar var um að ræða auglýsinga-
herferð fyrir Brimborg undir heit-
inu Daithatsu-Charade.
Kaffi lækkar þvert á
vonir nýrra samtaka
London. Reuter.
SAMBAND kaffíframleiðslulanda
samþykkti í London á mánudaginn
að koma á fót nýju kerfi til þess
að draga úr útflutningi í von um
að verð hækki. Verðið lækkaði
hins vegar þegar bandaríska land-
búnaðarráðuneytið birti spá um
meiri uppskeru í Brasilíu en búizt
hefur verið við - allt að 18.2 millj-
ónum sekkja.
Yfirvöld í Brasilíu sögðu að spá-
in gæti ekki staðizt, en verð í
London lækkaði um 7% í 3,100
dollara tonnið í lok vikunnar úr
3,312 dollurum metverði 1995.
GULL seldist á 388 dollara úns-
an, hæsta verði sem það hefur
komizt í það sem af er árinu.
PALLADIUM hefur ekki kostað
eins mikið síðan 1989 — 161.85
dollara únsan.
Verð á KOPAR hefur verið um
2,900 dollarar tonnið í þijár vikur.
Samtök um að
draga úr
útflutningi
ÁL og NIKKEL lækkuðu lítið eitt
í verði.
Jákvæðar hagtölur frá Banda-
ríkjunum virðast spá góðu um eft-
irspurn eftir málmum. Verðbré-
fasalar velta því fyrir sér hvort
hætta á verðbólgu muni ýta undir
kaup á málmum á ný. Aðrir telja
enn hættu á að menn reyni að
losa sig við málma.
Verð á HVEITI til afhendingar í
haust hækkaði þegar Kínveijar
sömdu um kaup á 600,000 tonnum
frá Bandaríkjunum. En sala upp-
skeru síðasta árs gengur enn illa
vegna dræmrar eftirspurnar,
veikrar stöðu dollars og flutnings-
kostnaðar, sem er í hámarki.
Heimsmarkaðsverð lækkaði um 5
dollara í vikunni í 125 dollara
tonnið.
Verð á KAKÓ lækkaði í innan við
1.000 pund tonnið eftir hækkun í
1.063 dollara 22. febrúar, sem var
hæsta verð í sex mánuði.
SYKUR lækkaði í 368 dollara
tonnið í London og verðið hefur
ekki verið lægra það sem af er
árinu.
Sjábu hlutina
í víbara samhengi!
- kjarni niálsins!
Norden i ísland -
zNijrdans
Borgarleikhúsinu, 21. og 22. mars
Verk eftir tvo af þekktustu dans-
höfundum Norðurlanda verða sýnd á
sameiginlegri danssýningu í
Borgarleikhúsinu, 21. og 22. mars kl.
20:00.
Frá Finnlandi kemur Kenneth
Kvarnström & Co. með tvö verk
„Carmen?!" og „and the angels began
to scream".
Frá Noregi kemur Ina Cristel
Johannessen ásamt Scirocco
dansflokknum með verkið „Absence
de fer".
Einstakt tækifæri til að sjá það allra
nýjasta í dansheiminum í dag.
Miðasala í Borgarleikhúsinu í síma 568 06 80
„!Jhrsæld þjóðanna er ekkí komin undir því, að þær séu mjög fjölmennar eða
hafí mjög míkíð um síg. Sérhverrí þjóð vegnar vel, sem hefír lag á að sjá kostí
lands síns og nota þá eins og þeír eíga að vera notaðir.
Löndín eru lík eínstökum jörðum, ekkert land hefír alla kostí og engu er heldur alls varnað.'
Hvað veist þú um Jón Sigurðsson? J°n Sigurðsson (1838).
Veist þú að Jón Sigurðsson
var só fyrsti sem lagöi kröftuga
óherslu ó gildi og framtíð
höfuöstaöar í Reykjavík?
Vissir þú hvert þrekvirki það
var áb halda úti Nýjum
félagsritum í 30 ór?
Veist þú aó söguleg rök voru
helstu vopn Jóns Sigurössonar
og samherja hans í
sjálfstæöisbaráttunni?
Vissir þú aö Danir báru mikla
viröingu fyrir Jóni Sigurössyni?
Veist þú hver kallaöi sig
„skugga" Jóns Sigurössonar?
Vissir þú hvaöa Englendingur
rétti Jóni hjálparhönd og þar
meö Islandi, þegar mest lá viö?
Veist þú aö Jón Sigurösson
taldi aö frelsi án banda, án
takmörkunar, væri ekki frelsi,
heldur agaleysi og óstjórn?
Vissir þú að einhverjir hörðustu
og eindrægnustu stuðningsmenn
Jóns voru prestar?
Jón Sigurðsson forseti, ævisaga í hnotskurn, er hentugt uppsláttarrit fyrir fólk á öllum aldri.
Fæst í bókaverslunum um land allt. Verð 1.490 kr. Vestfirska forlagið
sími og bréfasími 94-8181.