Morgunblaðið - 18.03.1995, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 18.03.1995, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MARZ 1995 45 ekki margorður um sjálfan sig, hann Valli. En maður sá það bara, það var honum nautn að nostra við blóm, klippa limgerði og runna, gróðursetja tré. Og þar hefur hann sett saman marga vísuna, í ró og friði garðsins. Seinna þegar við vorum farnir að heiman og byijaðir að syngja inn á hljómplötur í nafni Þokkabótar var sjálfgefið að leita til Valgeirs eftir textum. Hann hafði alltaf eitt- hvað til málanna að leggja og gaf okkur marga ágæta texta, „lítillát- ur, ljúfur, kátur,“ að vanda. Hafði ekki mörg orð um vísurnar sínar, gat alltaf séð af einhveiju til okk- ar: Glettni og rómantík í bland með alvarlegum undirtóni. Einhveiju sinni hringdum við í Valla frá Reykjavík og sungum lagið fyrir hann í símann. Þá var okkur mikið mál. Daginn eftir hringdi síminn, það var Valgeir með textann klár- an, góðan texta. Það gáfust ekki lífsglaðari og græskulausari textar en hjá Valla í þá daga: Blítt lætur blærinn um bringu og vanga, svipað og særinn, daglangt við dranga. Sæll vertu, blíði blær, hvað varstu að gera í gær? Svo orti hann um dufl og dans, válynd veður og heimsins tál. Allt svo vel gert, stendur vel fyrir sínu, þrátt fyrir tímans tönn. Svo þegar maður kom á Seyðisfjörð var farið í heimsókn og stundum jafnvel gist hjá þeim á Vesturveginum þegar þannig stóð á. Þá var gott að sitja í eldhúsi með honum og Kiddý, drekka kaffi og skrafa. Hann átti svo mikið í manni, hann Valli. Seinna þegar Gylfi hafði tekið við tónlistarskólanum og var að setja upp söngleiki í skólanum lagði Valgeir til alla texta. Það leiddi af sjálfu sér. Og einn veturinn kennd- um við báðir með honum við skól- ann. Þá vorum við orðnir kollegar, sátum á kennarastofu og ræddum heimsmálin, höfðum áhyggjur af vígbúnaðarkapphlaupi og settum saman skólaskemmtanir með börn- unum. Valgeir var þá kominn á efri ár og farinn að horfa björtum augum til eftirlaunaáranna. Það þarf enginn að halda að það hafi verið létt verk að helga líf sitt kennslu barna og unglinga á því mikla breytingaskeiði sem staðið hefur yfír síðustu ijörutíu árin. En Valli kvartaði ekki. Hann hélt bara sínu striki og einn góðan veðurdag fyrir nokkrum árum var törninni lokið. Þá gat hann helgað sig garð- inum og öðrum hugðarefnum. í fyrra varð Valgeir sjötugur. Það var mikið talað um að setja upp einhvers konar söngdagskrá með kvæðunum hans. En því miður lét- um við það tækifæri ganga okkur úr greipum. Kannske það gefist aftur næsta sumar þegar kaupstað- urinn okkar verður 100 ára. Þar hefði Valli viljað vera. Þótt hann væri fæddur Borgfirðingur var hann svo mikill Seyðfirðingur í sér. Fór eiginlega aldrei af bæ, var bara heima að rækta garðinn sinn og ungdóminn. Hann Valgeir, þessi litli, hógværi maður sem setti svo sterkan svip á bæinn á sinn hljóðl- áta hátt, allt frá því hann fyrst kom að skólanum árið 1949. Nú er skarð fyrir skildi á Vestur- vegi 4. Fyrir nokkrum árum kvaddi Guðjón og nú Valgeir. Það er erfitt að sjá á bak honum, jafn ungum í anda og hann var. Én minningin lifir um góðan dreng. Við þökkum fyrir að hafa fengið að njóta upp- fræðslu Valgeirs Sigurðssonar og vináttu. Þökkum fyrir allar vísurnar og kvæðin og fyrir góðu stundirnar í gegnum tíðina. Móður hans og systrum sendum við samúðarkveðj- ur. Elsku Kiddý, okkar einlægustu samúðarkveðjur. Megi guð gefa þér styrk. Ingólfur Steinsson, Gylfi Gunnarsson. Eftir barnaskólanám í Austur- bæjarskólanum fór Valgeir í hér- aðsskólann í Reykholti. Hann minntist veru sinnar þar ávallt með gleðiglampa í augum, átti þaðan sýnilega góðar minningar. Seinna fór hann í Kennaraskólann, eink- um fyrir hvatningu og atbeina föðurbróður síns, Stefáns náms- stjóra og rithöfundar. Eftir kennarapróf réðst hann sem kennari að Bama- og gagn- fræðaskólanum á Seyðisfirði, haustið 1949. Þar varð síðan vett- vangur hans til starfsloka 1989. Af framanskráðu sést, að Val- geir tjaldaði ekki til einnar nætur, þegar hann kom hingað fyrst, hon- um hefur sýnilega virst bæði stað- urinn og íbúar þokkalega. Hér hafði skóli starfað síðan 1881, og var sá elsti á Austurlandi, gróin og mótuð stofnun, þar sem jafn- vægi og festa ríkti í öllu skóla- starfi. Skólastjóri þá og lengi síð- an, var valmennið Steinn Stefáns- son, góður stjómandi og bjartsýnn menningar- og framkvæmdamað- ur. Það var því gott og lærdóms- ríkt ungum kennara og starfsfús- um að hefja þar störf. Þeir félagar urðu líka samstarfsmenn þar í ald- arfjórðung og var það staðnum mikill ávinningur. Mál skipuðust auðvitað fljótt á þann veg, að svo hæfileikaríkur maður og Valgeir fékk margvísleg viðfangsefni utan síns aðalstarfs. Liðveislu hans var oft leitað og hann var bóngóður og lét fólk ógjarnan ganga bónleitt til búðar. Hann var skáldmæltur í besta lagi og oft var leitað til hans þeg- ar bundins máls var þörf. Hann orti marga texta við vinsæl dægur- lög, sem hafa notið vinsælda. Hann orti einnig margan braginn á enn- þá léttari nótum, sem fólk skemmti sér við að syngja á þorrablótum og öðrum gleði- og skemmtisam- komum. Sem drengur og unglingur hafði hann leikið knattspyrnu með Val og var því ávallt Valsari. Allar íþróttir áttu mikið rúm í huga hans og hann studdi framgang þeirra með ráðum og dáð. Hann var lengi í forystusveit Hugins, og starfaði lengi sem knattspyrnudómari, var ávallt reiðubúinn að hlaupa undir bagga væri liðsinnis þörf. Þeir voru ekki margir knattspyrnuleikimir hér á vellinum, án þess að Valgeir væri þar, annaðhvort sem dómari áður fyrr eða sem áhorfandi til að hvetja menn til dáða. Það eru sem betur fer menn í öllum stéttum, sem á kyrrlátan hátt auka hróður stéttarinnar með því að skila góðu starfi. Þegar ég virði Valgeir fyrir mér að skilnaði í daglegu starfi hans, verða sam- viskusemi og heiðarleiki það sem eftirminnilegast er í fari hans. Rík réttlætiskennd og andúð á misrétti einkenndi ávallt álit hans og orð- ræðu. Hann var venjulega æðru- laus og blátt áfram - en hlýr. Glaðværð og spaugsemi var alltaf rík í framkomu hans. Hann var taustur maður. Honum var lagið að sýna milda festu, en var öfga- laus og kurteis. Hann kvartaði ekki um annríki og var ávallt reiðu- búinn að greiða úr vandamálum bæði nemenda og samstarfs- manna. Konfúsíus, hinn spakvitri Kínveiji, segir: „Göfugur maður veit skyn á skyldu sinni.“ Valgeir vissi að framtíðin býr í unga fólk- inu og hann vissi það skyldu sína að veita því sem best veganesti — helst betra þekkingarlega en kyn- slóðin á undan hafði átt kost á. Fljótlega eftir komu sína hingað réðst það svo að Valgeir varð heim- ilismaður hjá hinum mætu hjónum Kristínu (Kiddý) og Guðjóni á Vesturvegi 4. Þar var síðan heim- ili hans til æviloka og bamabörn þeirra hjónanna urðu hans barna- börn. Guðjón lést fyrir tæpum tveimur árum, missir fjölskyldunn- ar er því mikill á stuttum tíma. Þorvaldur Jóhannsson, fyrrver- andi skólastjóri, sem flutti hingað fyrir aldarfjórðungi, bjó fyrstu árin á Vesturvegi 8. Það voru mikil og góð samskipti og vináttutengsl milli nágrannanna, enda voru þeir Valgeir og Þorvaldur samstarfs- MIIMNINGAR menn. Þorsteinn, eldri sonur Dóru og Þorvaldar, varð hálfgerður fóst- ursonur þeirra á Vesturvegi 4 og dvaldi þar jöfnum höndum og heima hjá sér. Hann er nú búsett- ur í Ástralíu, en er nú kominn um langan veg til að fylgja kærum fóstra sínum til grafar. Dóra og Þorvaldur sem eru er- lendis, harma fjarveru sína á sorg- arstund. Þau votta hinum látna virðingu og þakkir og öllum að- standendum samúð. Mér fínnst um fáa menn megi segja með meiri sanni en Valgeir Sigurðsson, að hann mátti ekki vamm sitt vita í neinu og á engu níðast því sem honum var til trúað. Megi minning um góðan dreng vera öllum huggun harmi gegn. Jóhann Jóhannsson. Guð gaf mér eyra svo nú má ég heyra, Guð gaf mér auga svo nú má ég sjá. Guð gaf mér hönd svo ég gjört geti meira. Guð gaf mér fætur sem nú stend ég á. Guð gaf mér höfuð sem hugsar og dreymir, hátt sem að lyftist að vísdómsins lind. Guð gaf mér hjarta, já, hjarta sem geymir hreina og geislandi frelsarans mynd. Þessar línur vildi vinur okkar Valgeir Sigurðsson gjarnan hafa í sálmabókinni. I rauninni segja þær mikið um hans lífsgildi alla tíð. Athugull fegurðardýrkandi, næmur á talað orð og ekki síður ritað mál naut hann sín í lífí og starfí. Kvik- ur í hreyfingum, ötull og alúðlegur var hann hvers manns hugljúfi. Og oft var stutt í kímnina. Það var gott að leita til Valgeirs í skólan- um. Vart var viðkomandi búinn að sleppa orðinu um æskilegan hlut í kennslu eða upplýsingar af ein- hveiju tagi, þegar Valgeir var þot- inn af stað til að afla hins um- beðna. Enginn var fljótari né fús- ari. Félagi var hann góður og nota- legur. Skemmtinn og orðhagur kunni hann ógrynni af sögum og lét fjúka í kviðlingum. Eru sumar tækifærisvísur hans og ljóð við vin- sæl lög löngu landskunn. Valgeir var einnig félagslyndur utan skól- ans og minnast þess margir. „Vitið er gimsteinn sem ber skærasta birtu, þegar það er í umgerð af lítillæti og hæversku.“ Það var kannski þessi umgerð, hæverskan og lítillætið, sem prýddi vin okkar mest og best. Hvernig hann gat á sinn hæverska hátt sleg- ið á létta strengi, fært til betri vegar og þjónað sínum samferða- mönnum. 65 ára gamall ákvað Valgeir Sigurðsson að láta af störfum. Skólinn, þessi 40 ára starfsvett- vangur Valgeirs, varð svo undar- lega tómur, þegar hans naut allt í einu ekki við. Það tók langan tíma að jafna sig á þeirri breytingu. Þó var raunabót að rekast á hann í bænum í hverskyns erindagerðum og geta þá rabbað við hann stund- arkorn. Eða þegar Valgeirsleysið í skólanum varð of yfirþyrmandi, þá var vegur að knýja á hans dyr og þiggja hressingu, veraldlega og andlega. Hann bjó hjá góðu fólki í öll þessi ár og leið greinilega vel. En allt hefur sinn tíma. Kennari í Qóra áratugi við sama skólann, þar af yfirkennari í 14 ár og settur skólastjóri í eitt ár í forföllum, hans tími er kominn. Skólastjóri lífsins skóla hefur kallað og hinn ljúfí lærisveinn kveð- ur okkur hin, sem sitjum eftir í bekk en hann færist ofar. Þar ósk- um við honum góðs brautargengis. Nemendur og kennarar þakka tengsl undanfarinna ára. Ástvinum öllum biðjum við bless- unar. í þökk og virðingu. Samkennarar við Seyðisfjarðarskóla. + Hansína Jóhann- esdóttir fæddist á Eiði í Eyrarsveit 18. nóvember 1891. Hún lést á St. Frans- iskussjúkrahúsinu í Stykkishólmi 9. mars síðastliðinn. Hansína ólst upp á Eiði en fluttist á unglingsárum með móður sinni til Stykkishólms og átti þar heima til dauða- dags. Foreldrar hennar voru Jó- hannes Bjarnason, f. 19.6. 1859, d. 1901, b. í Vind- ási í Eyrarsveit, og Hildur Helgadóttir, f. 31.7. 1855, d. 1935, húsmóðir í Stykkishólmi. Hansína giftist 1917 Sigurði Marinó Jóhannssyni, f. 1889, d. 1961, sjómanni og verka- manni í Stykkishólmi. Hann var sonur Jóhanns Erlendssonar, söðlasmiðs í Stykkishólmi og Onnu Sigurðardóttur húsmóð- ur. Börn Hansínu og Sigurðar eru: 1) Hildur, f. 15.10. 1917, húsmóðir í Reykjavík, gift Kristjáni Sigurðssyni múrara og eiga þau eina dóttur. 2) Anna, f. 6.9. 1920, nú látin, húsmóðir í Reykjavík, var fyrst gift Bjarna Mar- kússyni matsveini og eignuðust þau sex dætur en seinni maður Önnu var Jón Kristjánsson sjómaður og eign- uðust þau tvö börn. 3) Sæmundur, dó ungur. 4) Þóra, f. 30.5.1925, húsmóð- ir í Stykkishólmi, ekkja eftir Kristin Friðriksson frysti- hússtjóra og eign- uðust þau fjóra syni. 5) Sigurbjörg, f. 2.4. 1928, húsmóðir í Stykkis- hólmi, gift Kristni Finnssyni múrarameistara og eru börn þeirra þijú. Fóstursonur Hans- ínu og Sigurðar er Hergard, f. 16.9. 1931, sjómaður í Stykkis- hólmi. Einnig ólst Anna dóttur- dóttir þeirra að mestu upp hjá þeim. Hansína stundaði verka- mannastörf samhliða heimilis- störfum. Hún var félagi í Kven- félaginu Hringnum og í kristni- boðsfélagi kvenna í Stykkis- hólmi. Útför hennar fer fram frá Stykkishólmskirkju í dag, 18. mars, og hefst athöfnin kl. 14. í DAG þegar ég kveð ástkæra ömmu mína hinstu kveðju streyma fram í hugann margar ljúfar minn- ingar sem henni tengjast og gott er að ylja sér við. Allt það mikla ástfóstur sem hún tók við alla í fjöl- skyldu sinni á langri vegferð, hið vandaða líferni hennar og trúar- vissa, sem hún lagði ávallt mikla áherslu á og vildi innprenta hjá okkur hinum, stendur nú ljóslifandi í minningunni. Fjölskyldunni var það mikil gæfa að eiga hana svo lengi heilsuhrauta, til að hugar og handa, í góða níu áratugi, en það voru okkur forréttindi sem við þökkum Guði fyrir. Hún var okkur líka ótrúlega mikil kjölfesta, þó að í allri sinni hógværð væri, til henn- ar var ávallt gott að leita því hún var næm og skilningsrík. Þótt hún væri ekki langskólagengin, hún amma mín, fremur en allur fjöldinn af hennar kynslóð, þá var hún vel greind og stundaði skóla lífsins vel og reyndist trú sínu kalli í lífínu. Stefán G. segir: Þitt er menntað afl og önd eigirðu fram að bjóða: hvassan skilning, haga hönd hjartað sanna og góða. Hansína amma fæddist í Eyrar- sveit og ólst þar upp til unglingsára og henni var ávallt hlýtt til bernsku- stöðvanna, en unglingur flytur hún til Stykkishólms og á þar heimili í 90 ár. Henni þótti vænt um bæinn sinn, Stykkishólm, og fylgdist vel með vexti hans og viðgangi og hér átti hún marga vinni og kunningja gegnum tíðina. Heimili afa og ömmu stóð á Skólastíg 16, en í þá daga voru eiginnöfn á húsum og hét þeirra hús Klöpp. Þangað var ávallt svo gott að koma í litla hlýja eldhsúsið, fá að stauta í kverinu þar sem pijónninn benti á orðin og tók sér hvíld frá vanabundnu hlutverki. Húsið þeirra stóð á lóð sem var á miðju athafnasvæði okkar krakk- anna „uppfrá" en við orum ekki ávallt tilbúin til að virða eignarrétt á ióðum, rófugörðum eða svefnfrið vinnulúins fólks. En þessu tápmikla unga fólki var þó ávallt fyrirgefið en ákveðin umvöndun fylgdi þó með. Samhliða vinnu sinni stundaði afí lítillega sauðfjárbúskap og leyfði okkur, barnabörnunum, að eiga hlutdeild í því tómstundastarfí. Hann naut sín vel í bjástri sínu við kindurnar og ég held hann hefði helst viljað gerast bóndi. Þótt afí og amma væru á margan hátt ólík að upplagi var sambúð þeirra mjög náin og traust alla tíð. Það var þungt áfall fyrir þau að missa son sinn ungan og sá harmur hvíldi lengi þungt á þeim. En dætur þeirra fjórar og fótursonur auðuguðu líf þeirra enda voru þau börnum sínum allt sem þau máttu. Svo var einnig með Önnu, dótturdóttur þeirra, sem að mestu ólst upp hjá þeim og var augasteinninn þeira. Þegar afí deyr flytur amma uppfrá því á heimili foreldra minn og er þar heimilisföst í 16 ára. Það var vissulega dýrmæt- ur tími okkur öllum að hafa Hans- ínu ömmu á heimilinu þetta lengi. Þótt hún þreyttist aldrei á að segja að hún væri bara fyrir. Við hin vorum þar sannarlega þiggjendur og samband mömmu og hennar var einstaklega náið og gæfuríkt alla tíð. Þó að sambýli þriggja kynslóða sé eitthvað sem fellur ekki að tiðar- anda dagsins í dag þökkum við bræðurnir fyrir að hafa fengið þau uppvaxtarskilyrði og teljum það okkur til mikilla tekna. Amma var ákaflega frændrækin og lagði sig alla fram um að halda utan um hópinn sinn sem dreifðist svo víða og fjölgaði stöðugt, enda var hún elskuð og virt af okkur öllum og ættingjarnir ólatir að heimsækja hana þótt um langan veg væri að fara. Hún fylgdist vel með þótt árin færðust yfir og tók þátt í fé- lagsstarfí Kvenfélagsins Hringsins og var félagi kristniboðskvenna í Stykkishólmi í mörg ár. Hansína amma var í tvö ár á dvalarheimili aldraðra_ hér og leið þar vel nærri gamla húsinu sínu við Skólastíg en síðustu árin varð hún að dveljast á St. Franciskussjúkrahúsinu þar sem hún lést 103 ára gömul. Umönnun systranna á sjúkrahús- inu og alls starfsfólks var einstök, sem við svo mörg þekkjum, systurn- ar voru vinir hennar og í þeirra skjóli leið henni vel, þar verður enginn einn. Nú er leiðarenda náð eftir langt æviskeið og framundan eru nýjar brautir fyrir Iéttstíga stúku á ást- vinafund. Lækkar lífdaga sól löng er orðin mín ferð. Fauk í faranda skjól fegin hvíldinni verð. Guð minn, gefðu þeim frið gleddu og blessaðu þá sem að lögðu mér lið. Ljósið kveiktu mér hjá. (Herdís Andrésdóttir.) Guð blessi minningu Hansínu Jóhannesdóttur. Ellert. HANSÍNA JÓHANNESDÓTTIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.