Morgunblaðið - 18.03.1995, Side 54
54 LAUGARDAGUR 18. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
<5-
í Kolaportinu
Hagkvæm innkaup er
Til dæmis dfV9*‘a kjarabótin
Bækur, kjolar,
nybökuð brauð frá
HVERAGERÐI,
SKARTGRIPIR,
HÁKARL OG ILMVÖTN.
Gallabuxur,
LEIKFÖNG,
RÚMFATNAÐUR,
ÚRVALS KARTÖFLUR,
VERKFÆRI, ÍSLENSKT
HANDVERK OG
SÆLGÆTISSÍLDIN FRÁ
bergi.
Geisladiskar,
SALTFISKUR,
SÆLGÆTI,
HANNYRÐAVÖRUR,
LESGLERAUGU,
HARÐFISKUR OG
DÚNMJÚKAR
KÓKÓSBOLLU R.
MÁLVERK, SLÆÐUR,
GRÆNMETI, SKÓR,
HVALKJÖT OG BESTA
FISKBÚÐ LANDSINS.
Fallegir
T HAILENSKIR
SKRAUTMUNIR,
KÖKUR, SOKKAR,
BÚSÁHÖLD OG
GÓMSÆTUR LAX HJÁ
Skarphéðni.
09 í Kolaportinu
færðu mikið úrval
af vönduðum vörur
á kjarabótaverði
hjá 200 seljendum!
laugardag kl. 10.-16.
og sunnudag kl. 11.-17.
MARKAÐSTORG
FÉLAGS- OG
FRÆÐSLUFUNDUR
Samband veitinga- og gistihúsa heldur félags- og fræðslufund 22. og
23. mars nk. i ráðstefnusal A á Hótel Sögu. Dagskrá er eftirfarandi:
Miðvikudagur 22. mars
13:10 SETNING
Ásiaug Alfreðsdóttir, formaður SVG
UMHVERFISMÁL HÓTELA OG VEITINGAHÚSA
13:20 ÁVARP
Össur Skarphéðinsson, umhverfismálaráðherra.
13:30 UMHVERFISMÁL, HÓTELA OG VEITINGAHÚSA
Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri SVG
14:00 UMHVERFISSTEFNA SCANDIC HÓTELKEÐJUNNAR
Sigrún Sigurðardóttir, markaðsstj. Flugleiðahótelanna erlendis
14:15 FLOKKUN SORPS - ER HÆGT AÐ LÆKKA FÖRGUNAR-
KOSTNAÐ FYRIRTÆKJA?
Óskar Maríusson, forstöðumaður umhverfismáladeildar VSÍ
14:45 HREINLÆTISVÖRUR - SKAÐSEMI ÞEIRRA - SKAMMTASTÆRÐIR
Ólafur Haraldsson, hreinlætisráðgjafi
15:15 KAFFI
15:45 LÍFRÆNN MATUR
Baldvin Jónsson, ráðgjafi
16:00 REYKLAUS SVÆÐI í HÓTELUM OG VEITINGAHÚSUM
Halldóra Bjarnadóttir, formaður tóbaksvarnanefndar
17:00 VÖRUSÝNING — REKSTRARVÖRUR HF„ RÉTTARHÁLSI 2.
Fimmtudagur 23. mars
09:30 HEILBRIGÐISEFTIRLIT — NÝ HEILBRIGÐISREGLUGERÐ
Gunnar Kristinsson, matvælafræðingur hjá Hollustuvernd ríkisins.
10:30 FLOKKUN GISTISTAÐA
Jónas Hvannberg, hótelstjóri
10:45 STEFNUMÓTUN i GÆÐA- OG UMHVERFISMÁLUM
Páll Kr. Pálsson, framkvæmdastjóri SÓLAR hf.
11:15 LÍFEYRIS- OG EFTIRLAUNAMÁL STJÓRNENDA
Gunnar Baldvinsson, forstöðumaður reksturs sjóða VÍB
12:00 HÁDEGISVERÐUR
13:30 LÖG UM ALFERÐIR — TRYGGINGAR
Sigrún Kristmannsdóttir, fulltrúi frá Samkeppnisstofngn
Guðný Björnsdóttir, lögfræðingur
14:30 MARKAÐSSETNING í FRAMTÍÐINNI
„AMADEUS ÍSLAND“
Árni Sigurðsson, framkvæmdastjóri „Amadeus ísland"
INTERNET
Fulltrúar Miðheima hf.
15:30 KAFFI
16:00 ÞRÓUN VERÐLAGS OG NÝTINGAR Á GISTISTÖÐUM
Gunnar Karlsson, hótelstjóri
Nánarí upplýsingar og skráning er á skrifstofu SVG i símum 27410 og 621410.
I DAG
BRIPS
llmsjón Guðm. I’ á 1 I
Arnarson
FLEST pörin spiluðu
spaðabút, eða jafnvel fjóra
spaða, í eftirfarandi spili
úr Sunday Times keppn-
inni. Hollendingarnir
Wubbo de Boer og Bauke
Muller voru þeir einu sem
sögðu þijú grönd, sem er
ekki slæmt geim eftir opn-
un austurs á hjarta.
Austur gefur; AV á
hættu.
Norður
♦ Á
V 1098
♦ G1Ö983
♦ ÁG87
Suður
♦ DG8632
V KD7
♦ ÁD2
♦ 6
Rosenberg og Deutsch
frá Bandaríkjunum voru í
AV:
Vestur Norður Austur Suður
Deutsch Muller Rosenberg de Boer
1 hjarta 1 spaði
Pass 2 tíglar Pass 2 hjörtu
Pass 3 lauf Pass 3 grönd
Pass Pass Pass
Útspil: hjartasexa.
Sagnhafí fékk að eiga
fyrsta slaginn á hjartatíu
blinds. Hvemig myndi les-
andinn spila?
De Boer fann lykilspila-
mennskuna þegar hann tók
spaðaásinn í öðrum slag,
áður en hann spilaði tígli.
Hann var öruggur með níu
slagi ef austur átti tígulkóng
annan eða þriðja, en sú vand-
virkni að taka fyrst spaðaás-
inn borgaði sig þegar í Ijós
kom að austur átti engan
Norður
♦ Á
V 1098 ^
♦ G10983
+ ÁG87
Austur
♦ K54
II ;ÁG532
* KD932
Suður
♦ DG8632
V KD7
♦ ÁD2
♦ 6
Rosenberg henti laufi og
de Boer stakk upp tígulás.
Og sótti spaðann með því
að spila drottningunni. Nú
er spilið öruggt þar eð spað-
inn fellur.
Ef spaðaásinn er ekki tek-
inn fyrst, neyðist sagnhafi
til að gefa vestri slaginn á
tígulkóng. Vestur brýtur og
þá fær sagnhafi aldrei nema
átta slagi.
tígul!
Vestur
♦ 1097
V 64
♦ K7654
♦ 1054
COSPER
lCOSPLR
HALTU bara áfram að sofa. Þú ert þó ekki hrædd
við þrumuveður?
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Þakkarkveðja
GÓÐU vinir og stuðn-
ingsfólk um land allt.
Nú, þegar sól er farin
að hækka á lofti og líf
okkar hér í Laufási farið
að færast í eðlilegt horf
eftir erfið veikindi, verð-
ur okkur hugsað til ykk-
ar allra sem á ýmsan
hátt hafið stutt við bakið
á okkur með kveðjum og
góðum gjöfum. Það er
okkur ómetanlegt að
finna alla þá hlýju og
þann velvilja sem þið
hafið sýnt okkur, og
þannig hvatt okkur til
að líta björtum augum
til komandi tíma.
Við þökkkum af alhug
umhyggju ykkar og
stuðning við okkur hér í
Laufási og biðjum ykkur
blessunar Guðs.
Pétur Þórarinsson,
Ingibjörg S.
Siglaugsdóttir.
Gæludýr
Kettlingar
NOKKRIR kassavanir
átta vikna kettlingar fást
gefins á góð heimili.
Upplýsingar í síma
675404.
SKÁK
Umsjón Margcir
Pctursson
ENGLENDINGURINN Nig-
el Short (2.655) hefur sýnt
góð tilþrif á Linaresmótinu
en verið seinheppinn eins og
eftirfarandi dæmi sýnir.
Short hafði hvítt og
átti leik en ungi
Rússinn Sergei Tivj- ■
akov (2.625) var
með svart og átti 7
leik. Short hafði þrá- 6
sinnis hafnað jafn-
tefli í þessu endatafli 5
og lék síðast 44. Ke3-
f4 og hefur líklega 4
talið að svartur væri 3
í leikþröng. Svo
reyndist þó ekki vera: 2
STÖÐUMYNDB
Short var tilbúinn til
að fórna riddara sínum í
stöðunni, því eftir 44. — Ke6
45. Kg5 - Kd7 46. Kxg6 -
Kxc8 47. Kxg7 vinnur hvítur
á h peði sínu. En Tivjakov á
einn leik í stöðunni og fann
hann:
44. — g5+! 45. hxg5+ —
Ke6 (Leið hvíta kóngsins að
mikilvæga peðinu á g7 er nú
lokuð og nú er það Short sem
þarf að finna einstigi til jafn-
teflis: 46. a3! — g6 47. g4!
— fxg4 48. Ke4! því 48. —
Kd7 má svara með 49. Kd5.
Hann kom ekki auga á þetta
og lokin urðu:) 46. g6 — Kd7
47. Rxa7 — Rxa7 48. Kxf5
- Rc6 49. f4 - Re7 50.
Kg5 - Ke6 51. g4 - Rc6
52. f5+ - Ke5 53. Kh4 -
Rd4 54. Kg3 - Re2+ 55.
Kh4 - Rf6 56. a3 - Rd4
57. b4 — b5! (laglegur loka-
hnykkur!) 58. cxb5 — c4 59.
b6 - Rc6 60. b7 - c3 61.
b5 — Rb8 og Short gafst
upp.
Víkverji skrifar...
HÚSMÓÐIR hringdi til Vík-
veija í vikunni og vildi bénda
á að bændur á nýju búnaðarþingi
ræddu mikið um hvers vegna svo
lítið seldist af kindakjöti. Þeim ein-
um virtist ekki ljóst hvers vegna
fólk keypti ekki kjötið, en það
væri auðvitað vegna þess að bæði
væri það allt of dýrt og ef um til-
boð og lækkað verð væri að ræða,
væri kjötið bæði gamalt, vitlaust
skorið fyrir fólk og að auki allt of
feitt.
Húsmóðirin sagðist helzt iq'ósa
framhrygg, ef hún mætti velja, en
sá hluti skepnunnar kvað hún fok-
dýran og kílóið komið yfir eitt
þúsund krónur. Fyrir venjulegt
fólk, svo að ekki sé talað um líf-
eyrisþega, væri þetta allt of dýrt.
Þá kvaðst hún hafa nokkrum sinn-
um keypt hálfan skrokk í poka og
fengið eintómt fiturusl.
„Svo sitja þessir menn á bún-
aðarþingi og ræða, hvers vegna
salan á kindakjötinu hrapaði niður
úr öllu valdi,“ sagði frúin, sem
taldi kjötið eitthvert hið bezta, sem
unnt væri að fá.
XXX
NAFNLAUSA sveitarfélagið á
Suðurnesjum hefur enn ekki
fengið nafn og fór síðasta kosning
um nafngiftina út um þúfur. Nú
hefur verið ákveðið að efna til
nýrra kosninga um nafngift á
sveitarfélagið samhliða alþingis-
kosningunum hinn 8. apríl næst-
komandi. Meðal nafna, sem bæjar-
stjórn nafnlausa sveitarfélagsins
hefur mælt með, er Suðurnesbær
og hefur það heiti verið ganrýnt
m.a. af Þórhalli Vilmundarsyni
prófessor, sem segir að Suðurnes
hafi jafnan verið notuð í fleirtölu
en ekki eintölu. Er Víkverji að
mörgu leyti sammála Þórhalli í
gangrýni hans á nafnið Suð-
urnesbæ.
En fleiri nöfn koma vissulega
til greina og í vikunni gaukaði
Baldur Ingólfsson skjalaþýðandi
að Víkveija enn einni nafnatillög-
unni og finnst Víkveija uppá-
stunga hans ekki verri en þær sem
til umræðu eru. Baldur segir að
helzta prýði Suðumesja sé fjallið
Keilir, sem sjáist víða að og prýðir
m.a. fjallahringinn frá höfuðborg-
inni. Hann stingur upp á orðinu
Keilisbær, en það nafn hefur það
sér til ágætis að það hefur ekki
verið til áður og hljómar auk þess
vel í munni. Því kemur Víkveiji
þessari tillögu Baldurs á framfæri.
Annars finnst Víkveija engin
spurning um hvað sveitarfélagið
eigi að heita. Það á auðvitað að
heita Keflavík og Keflavíkurbær.
Keflavík er eitt þekktasta bæjar-
nafn á íslandi um víða veröld vegna
flugsins. Ef menn hugsa í alvöru
um verðmæti nafnsins Keflavík og
þá góðu auglýsingu sem það hefur
fengið alls staðar, blandast engum
hugur um hvert heiti sveitarfélags-
ins á að vera.
xxx
KONA úr hópi eldri borgara í
Reykjavík hefur haft á orði
við Víkveija að æði oft, þegar
hringt er í félagsmálayfirvöld og
spurt um einhvern embættismann-
inn, fást þau svör að viðkomandi
sé annaðhvort á fundi eða staddur
erlendis á ráðstefnu. Jafnan sé
einnig kvartað undan því að elli-
málin kosti mikið og að nauðsyn-
legt sé að spara í þeim mála-
flokki. Samt séu haldnar ráðstefn-
ur og fundir um þennan málaflokk
alltaf annað slagið og þar sé fullt
út úr dyrum, þar sem allir, sem
að málaflokknum standi, þurfi að
láta ljós sitt skína.
Og konan spyr. Hve mikið kosta
allar þessar ráðstefnur og hve mik-
ið fjármagn fer í ferðakostnað fyr-
ir þetta fólk á fundi og ráðstefnur
erlendis, þar sem fjallað er um
hvað gera skuli við gamla fólkið?
Er ekki hægt að spara á þessum
sviðum? Hún kvaðst þess fullviss
að spara mætti stórar summur með
því að fella niður slíkar kjaftasam-
komur og að fólkið, sem stöðugt
væri á á fundum og ráðstefnum,
sneri sér að því að hefja einhveijar
umbætur í málefnum aldraðra.