Morgunblaðið - 30.03.1995, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 30. MARZ 1995 11
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
*
Urskurðum Samkeppnisráðs og Rikisskattstjóra vegna P&S áfrýjað
Ekki í samræmi við lög
URSKURÐIR Ríkisskattstjóra og
Samkeppnisráðs um að P&S skuli
greiða virðisaukaskatt af allri póst-
þjónustu annarri en þeirri sem háð
er einkarétti hefur verið áfrýjað
að sögn samgönguráðherra. Á
fundi með fréttamönnum í gær
gagnrýndi ráðherra úrskurði þess-
ara embætta harðlega.
Halldór Blöndal samgönguráð-
herra kvaðst telja að úrskurður
Ríkisskattstjóra stangist á við
landslög. „Úrskurður Ríkisskatt-
stjóra var athyglisverður að því
leyti að hann stangaðist á við bók-
staf laganna," sagði Halldór.
„Þeim úrskurði hefur verið áfrýjað
og ég tel einnig að úrskurður Sam-
keppnisráðs sé ekki í samræmi við
lögin. Samkeppnisstofnun er að því
leytinu til undarleg stofnun að hún
gefur alls konar úrskurði en það
er ekki um málflutning að ræða
fyrir þeirri stofnun og um suma
hluti hefur hún farið rangt með
staðreyndir í sambandi við þær
athugasemdir sem ég hef komið á
framfæri," segir Halldór og kveðst
telja að Samkeppnistofnun verði
„að hafa vit fyrir sjálfri sér“.
„Það liggur fyrir að Ríkisskatt-
stjóri úrskurðaði gagnstætt lands-
lögum og gagnstætt skýrum fyrir-
mælum laga um virðisaukaskatt
og Alþingi samþykkti þegar í stað
á seinustu dögum þingsins að
staðfesta fyrri skilning laganna,
þannig að sá bókstafur stendur
sem þar stóð eins og rétt er að
skilja hann samkvæmt Orðabók
Háskólans, að póstþjónusta skuli
ekki virðisaukaskattskyld nema
bögglapóstur, sem er auðvitað
áminning fyrir Ríkisskattstjóra,"
sagði Halldór.
Hey í harðindum
ÞEGAR vetrarhörkur geisa þykir hestunum fengur að heytugg-
unni til að seðja sárasta hungrið. Myndin var tekin á fögrum mars-
degi í Hrafnkelsdal.
Fjármálaráðherra ánægður með yfirlýs-
ingar formanns Framsóknarflokksins
Bönkunum
breytt í hlutafé-
lög á næsta þingi
FRIÐRIK Sophusson fjármálaráð-
herra telur að forsendur hafi skap-
ast til að breyta ríkisviðskiptabönk-
unum í hlutafélög strax á næsta
ári. Hann bendir á að aðstæður í
efnahagsmálum á íslándi hafi breyst
til batnaðar á seinustu misserum
sem auðveldi þessa breytingu. Einn-
ig hafi Halldór Ásgrímsson, formað-
ur Framsóknarflokksins, lýsti yfir
stuðningi við það að ríkisbönkunum
verði breytt í hlutafélagabanka.
Kristján Ragnarsson, formaður
stjórnar íslandsbanka, gagnrýndi
stjórnvöld á aðalfundi bankans í
fyrradag fyrir að hafa ekki breytt
ríkisbönkunum í hlutafélag. „Það
verður að teljast furðulegt hvað sá
stjórnmálaflokkur sem hefur á
stefnu sinni að atvinnureksturi eigi
að vera á hendi einstaklinga, og fé-
laga þeirra, hefur látið þessa ríkis-
reknu bankastarfsemi afskipta-
lausa,“ sagði Kristján.
„Sjálfstæðisflokkurinn styður það
að ríkisviðskiptabönkunum verði
breytt í hlutafélög og að það verði
stefnt að því að selja þá þegar færi
gefst,“ sagði Friðrik. „Ástæðan fýrir
því að þetta hefur ekki verið gert
ennþá er að íslenska bankakerfið
hefur verið í nokkrum erfiðleikum
og það var talið eðlilega að bíða
með þessar breytingar þar til að við-
skiptaumhverfið væri jákvæðara.
Eg tel augljóst að þessi breyting
á rekstrarformi ríkisviðskiptabank-
anna hljóti að verða á næsta þingi.
Það sem styrkir trú mína á að svo
verði er yfírlýsing Halldórs Ásgríms-
sonar, sem hefur sagt að hann telji
að eigi að breyta formi þessara
banka.“
Friðrik sagðist vilja vekja athygli
á því, vegna gagnrýni Kristjáns
Ragnarssonar, að mál ríkisviðskipta-
bankanna heyrði undir viðskipta-
ráðuneytið. Frumkvæði í þessu máli
yrði því að koma frá viðskiptaráð-
herra.
Nýr Vesturlands-
vegur í Mosfellsbæ
NÚ ER verið að hanna nýjan
Vesturlandsveg í gegnum Mos-
fellsbæ. Vegurinn verður
færður austur þar sem rýmra
er um hann. Vegamót Vestur-
landsvegar við Þverholt og
Reykjaveg hafa lengi verið til
vandræða og er varla pláss til
að gera þau sómasamleg á
núverandi stað, segir í frétta-
bréfi Vegagerðarinnar.
Ætlunin er að byggja veginn
með eina akrein í hvora átt til
að byrja með en eins og mynd-
in sýnir verður pláss fyrir fjög-
urra akreina veg með eyju á
milli. Gatnamótin við Reylga-
veg verða á hringtorgi til að
byija með en möguleikar á
planfríum gatnamótum í fram-
tíðinni.
Fyrsta fjárveiting til verks-
ins kemur 1996 en frani-
kvæmdin verður aðallega
1997.
Verkið er unnið í samvinnu
við Mosfellsbæ en verkfræði-
stofan Fjölhönnun hf. sér um
hönnun. Gera þarf umhverfis-
mat og breyta skipulagi.
Athugasemd
MORGUNBLAÐINU hefur borist
athugasemd frá sjö starfsmönnum
félagsmálaráðuneytisins, sem er svo-
hljóðandi:
„Undirritaðir samstarfsmenn Láru
Hafliðadóttur í félagsmálaráðuneyt-
inu vilja koma eftirfarandi á fram-
færi vegna viðtals sem birtist við
hana í Morgunblaðinu 26. þ.m.
Við lýsum furðu okkar á yfirlýs-
ingum Láru á viðmóti og andrúms-
lofti í félagsmálaráðuneytinu í ráð-
herratíð Jóhönnu Sigurðardóttur. Við
getum á engan hátt tekið undir þess-
ar lýsingar né að Lára hafi verið
beitt misrétti og áreitni af hálfu ráð-
herra og starfsmanna ráðuneytis-
ins.“
Undir athugasemdina skrifa: Mar-
ía Á. Guðmundsdóttir, Sturlaugur
Tómasson, Margrét Jóhannsdóttir,
Helga Helgadóttir, Ingi Valur Jó-
hannsson, Sesselja Ámadóttir, Elín
Pálsdóttir.
I kvóld kl. 20:30 verður haldinn opinn framboðsfundur
um málefni kjördæmisins. Framsögumenn verða
alþingismennirnir Árni M. Mathiesen, Sigríður A.
Þórðardóttir og Árni R. Árnason.
Ávarp: Ólafur G. Einarsson menntamálaráðherra.
Frambjóðendur heimsækja fyrirtæki
í Kópavogi í dag og á morgun
og ræða málefnin við kjósendur.
Fundurinn verður haldinn
í félagsheimili Kópavogs.
Komdu og kynntu þér stefnu
Sjálfstæðisflokksins og hvernig
möguleikar íbúa svæðisins
verða best nýttir.
BETRA
ÍSLAND