Morgunblaðið - 30.03.1995, Page 12

Morgunblaðið - 30.03.1995, Page 12
12 FIMMTUDAGUR 30. MARZ 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR fftt' Ahrif skattbreytinga á fjögra manna fjölskyldu 1988-1995 Fjölskylda A Fjölskylda B Fjölskylda C 1988 1991 1995 1988 1991 1995 1988 1991 1995 Atvinnutekjur 64.500 85.500 95.000 138.000 183.000 200.000 348.000 460.000 500.000 Hækkun milli ára 32,6% 11,1% 32,6% 9,3% 32,2% 8,7% Tekjuskattur 18.383 28.044 30.863 39.330 60.024 64.974 99.180 150.880 164.885 Útsvar 4.322 5.976 8.174 9.246 12.792 17.209 23.316 32.154 43.022 Persónufrádráttur -27.994 -42.079 -44.460 -31.104 -46.754 -49.400 -31.104 -46.754 -49.400 Tekjuskattar nettó 0 0 0 17.472 26.062 32.783 91.392 136.280 158.507 Barnabætur 5.446 8.242 5.717 5.446 8.242 5.717 5.446 3.242 5.717 Barnabótaauki 7.700 11.447 15.533 0 612 2.804 0 0 0 Ráðstöfunartekjur 77.646 105.187 116.250 125.974 165.792 175.738 262.054 331.962 347.210 Hækkun milli ára 35,5% 10,5% 31,6% 6,0% 26,7% 4,6% A. Áhrif tekjuskattsbreytinga á ráðstöfunartekjur 2,2% -0,5% -0,8% -3,0% -4,2% -3,8% B. Áhrif annarra skatta á kaupmátt, -3,0% 3,5% -3,5% 3,0% -4,0% 2,5% C. Heildaráhrif skattbreytinga -0,8% 3,0% -4,3% 0,0% -8,2% ' -1,3% Skattabreytingar koma lágtekjufólki bezt Tekjuskattar hafa hækkað á kjortímabilinu, neyzluskattar lækkað og tekjutenging bóta aukizt. í samantekt Ólafs Þ. Stephensen kemur fram að heildaráhrifín séu þau að skattheimta af fyrirtækjum og láglaunafólki hafí minnkað. Millitelqufóik standi í stað en hátekjufólk greiði ívið hærri skatta. STJÓRNARUÐAR og stjómarandstaða hafa að undanfömu deilt um það hvort skattar hafí verið hækkaðir á kjörtímabilinu og á hverjum skattahækkanir hafí bitn- að. I málflutningi stjómarandstöð- unnar hefur komið fram að skatt- byrði hafí verið færð af fyrirtækj- um yfír á almenning; persónuaf- sláttur lækkað og tekjuskattur hækkað. Talsmenn ríkisstjórnar- innar segja heildarskatta hins veg- ar hafa lækkað og hafi skattalækk- anir aðallega komið þeim til góða, sem lægst hafí laun. Segja má að báðir hafí í raun rétt fyrir sér, og fer eftir því frá hvaða sjónarhóli er horft og hvaða stærðir eru teknar inn í reiknings- dæmið. Dæmið er ekki einfalt. Sumir skattar hafa hækkað, aðrir lækk- að. Það er heldur ekki nóg að einblína á beina skatta, sem innheimtir eru með því að draga af upphæðinni í launaum- slaginu. Óbeinir skattar, til dæmis virðisaukaskattur, eru mun stærri hluti af skattheimtu ríkisins en tekjuskattar. Spumingin er hvaða heildaráhrif breytingar á beinum og óbeinum sköttum hafa. Breytingar á sköttum koma held- ur ekki jafnt við alla þjóðfélags- hópa. Þannig hefur lækkun virðis- aukaskatts á mat komið þeim tekju- lægstu hlutfallslega bezt, vegna þess að stór hluti tekna þeirra fer í mat. Hækkun tekjuskatts kemur verr við þá, sem hafa háar tekjur, en skattfrelsi lífeyrisiðgjalda kemur þeim betur. Skattbyrði færð til Tekjuskattsprósenta einstakl- inga hefur hækkað úr 39,79% í Sumir skattar hafa hækkað en aðrir hafa lækkað upphafi kjörtímabilsins í 41,84% nú. Benda má á að þar af hefur hlutur ríkisins hækkað úr 32,8% í 33,15%, eða um 0,35%, en útsvarið, sem rennur til sveitarfélaganna, hefur hækkað úr 6,99% að meðaltali í 8,69%. Útsvarshækkunin er að mestu leyti til komin vegna niður- fellingar aðstöðugjalds af fyrirtækj- um, sem ríkið bætti sveitarfélögun- um upp með tímabundnu framlagi. Persónuafsláttur hefur hækkað í krónum talið á kjörtímabilinu, en hlutfallslega ekki jafnmikið og laun, þannig að afslátturinn hefur lækkað í reynd. Þá var lagður 5% „sérstakur tekjuskattur" eða hátekjuskattur á telqur yfír 225.000 krónum á mán- uði. Sú tekjuviðmiðun hefur nú ver- ið hækkuð í 250.000 krónur á mánuði. Tekjuskattur á fyrir- tæki hefur verið lækkað- ur úr 50% í 33% á kjör- tímabilinu. _________ Þessar breytingar á tekjuskatti fyrirtækja og einstaklinga komu að miklu leyti til framkvæmda á árinu 1993 og voru hluti af yfirlýstri stefnu ríkis- stjómarinnar um að létta skattbyrði af atvinnufyrirtækjunum til þess að hindra að atvinnuleysi ykist enn. Um leið var það yfírlýst markmið ríkisstjómarinnar að færa þessa skattbyrði yfír á almenna skatt- greiðendur, en hlífa þeim, sem lægst hefðu launin, við hærri skött- um. Lækkun á aðstöðugjaldi og vsk á mat vegur á móti Lækkun virðisaukaskatts á mat- vömm úr 24,5% í 14% var meðal annars ætluð til þess að bæta kjör þeirra, sem hefðu tekjur undir skattleysismörkum. Fjármálaráðu- neytið og samtök vinnumarkaðarins telja að lækkun aðstöðugjalds á fyrirtæki hafí jafnframt leitt til allt að l*/2% lækkunar framfærsluvísi- tölu. Álagning 14% virðisauka- skatts á bækur, blöð, tímarit, af- notagjöld og húshitun, sem kom til framkvæmda á kjörtímabilinu, er ekki talin vega að fullu á móti þess- ari breytingu. Önnur breyting, sem ætluð var til að hlífa þeim tekjulægri, er sú ákvörðun ríkisstjómarinnar að tekjutengja ýmsar bætur, til dæmis barnabætur. Hins vegar má gera ráð fyrir að skattfrelsi lífeyrissjóðs- iðgjalda, sem verkalýðshreyfíngin samdi um við ríkisstjómina í ný- gerðum kjarasamningum, vegi upp á móti hækkun skatta á milli- og hátekjuhópa. Láglaunafólk hagnast lítillega í meðfylgjandi töflu, sem byggð er á upplýsingum frá efnahagsskrif- stofu fjármálaráðuneytisins, má sjá mat á því hvemig skattabreyting- amar hafa komið út fyrir meðalfjöl- skyldur, hjón með tvö böm, annað yngra en sjö ára, í þremur tekjuhóp- um. í töflunni má jafnframt sjá mat á áhrifum skattabreytinga síð- ustu ríkisstjórnar (1988-1991) á hag fjölskyldna. Gert er ráð fyrir að tekjur viðkomandi hafí hækkað í takt við aimennar launabreyting- ar. Hér er miðað við fjölskyldur, en hækkun tekjuskatts kemur verr við einhleypinga, til dæmis vegna þess að þeir geta ekki nýtt sér per- sónuafsiátt maka og bamabætur koma ekki til. Fjölskylda A hefur 95.000 króna mánaðartekjur. Hún greiðir engan tekjuskatt, þar sem þessar tekjur hjónanna eru undir skattleysis- mörkum, þau nýta með öðmm orð- um persónuafslátt sinn ekki að fullu. Fjölskyldan fær hins vegar greiddarbarnabætur og barnabóta- auka, þannig að ráðstöfunartekjur hennar, þ.e. tekjumar sem eru til ráðstöfunar „eftir tekjuskatt" eru 116.250 krónur. Tekjuskattsbreyt- ingar núverandi ríkisstjómar hafa að mati fjármálaráðuneytisins vald- ið 0,5% skerðingu á ráðstöfunar- tekjum þessarar fjölskyldu, eins og sjá má í lið A í töflunni. í lið B sjást áhrif annarra skatta á kaupmátt fjölskyldunnar. Þar er meðal annars tekið tillit til breyt- inga á virðisaukaskattinum og nið- urfellingar aðstöðugjalds, sem koma fram í vöruverði. Þessar breytingar telur Ijármálaráðuneytið að hækki kaupmátt ráðstöfunar- teknanna um 3,5%. Heildaráhrifín koma fram í lið C: Skattabreyting- arnar á kjörtímabilinu hafa bætt hag láglaunafjölskyldunnar (A) um 3%. Skattabreytingar síðustu ríkis- stjómar lækkuðu kaupmátt ráðstöf- unartekna hennar hins vegar um 0,8%. Millitekjufólkið stendur í stað Þegar litið er á fjölskyldu með meðaltekjur, um 200.000 krónur á mánuði, má sjá að hún greiðir 32.783 krónur í skatt og fær ekki nema 8.521 króna í barnabætur og bamabótaauka vegna _______________ tekjutengingarinnar. Ráðstöfunartekjur henn- ar eftir skatta em því 175.738 krónur, og hafa lækkað um 3% á kjör- tímabilinu vegna tekju- skattsbreytinga. Þessi lækkun er hins vegar vegin upp með lækkun á óbeinum sköttum, og þessi fjöl- skylda kemur út á núlli. „Hátekjufólk“ verður verst úti Þriðja fjölskyldan, sem er merkt C, hefur hálfa milljón króna í tekjur á mánuði. Hún greiðir 158.507 krónur í tekjuskatt, fær tæpar 6.000 krónur í barnabætur. Eftir skatta era ráðstöfunartekjur henn- ar 347.310 krónur og hafa lækkað um 3,8% á kjörtímabilinu vegna tekjuskattsbreytinga, til dæmis há- tekjuskattsins, sem hjónin þurfa að greiða. Gert er ráð fyrir að lækkun óbeinu skattanna bæti ekki hag fjöl- skyldunnar nema um 2,5% og á heildina litið hefur hagur hennar því versnað um 1,3% á kjörtímabil- inu vegna skattabreytinga. Til sam- anburðar telja embættismenn fjár- málaráðuneytisins að kaupmáttur ráðstöfunartekna sömu íjölskyldu hafí minnkað um 8,2% vegna skattahækkana í tíð seinustu ríkis- stjómar. Þess ber að geta að ef gert væri ráð fyrir að allar viðkomandi fjöl- skyldur væra að kaupa sér hús- næði, kæmu vaxtabætur inn í myndina. Þær myndu hækka ráð- stöfunartekjumar mest hjá þeim, sem lægst hafa launin, en minnst hjá þeim hæstlaunuðu vegna þess að þær hafa verið tekjutengdar. Slíkur samanburður er hins vegar erfíður vegna mismunandi stærðar húsnæðis og fleiri þátta. Heildarskattheimta lækkar Heildarskattheimta ríkisins hefur lækkað, í krónum talið, um 1.880 milljónir króna á kjörtímabilinu, samkvæmt tölum frá efnahags- skrifstofu fjármálaráðuneytisins. Á tíma síðustu ríkisstjómar, sem Al- þýðuflokkur, Álþýðubandalag, Borgaraflokkur og FYamsóknar- flokkur áttu aðild að, hækkaði skattheimta um ellefu milljarða, samkvæmt sömu upplýsingum. Jafnframt hefur hlutfall skatttekna ríkisins af landsframleiðslu lækkað. Gert er ráð fyrir að á þessu ári verði það um 22,8%, en var að meðaltali 23,8% árin 1989-1991. Hvað um þjónustugjöldin? Talsmenn stjórnarandstöðunnar hafa bent á að hluti skattahækkana ríkisstjómarinnar hafí verið falinn með því að leggja á þjónustugjöld, til dæmis í heilbrigðisþjónustunni og í skólum. Nú er deilt um það, hvort þjónustugjöld teljast til skatta; Þau era eingöngu greidd af þeim, sem nota viðkomandi opin- bera þjónustu, og era að því leyti í eðli sínu frábrugðin sköttum, sem eru lagðir á alla, burtséð frá því hvort þeir nota þjónustuna eða ekki. Strætisvagnafargjöld era ágætt dæmi og spyija má hvort hækkun á strætisvagnafargjöldum yrði talin skattahækkun. Hins vegar er eðlilegt að líta á það hvar ný þjónustugjöld hafa verið innheimt. Ríkið hefur aukið tekjur sínar um 1.125 milljónir króna og er það minna en sú 1.880 milljóna króna lækkun skatta, sem fjármálaráðuneytið telur að hafí orðið á árinu. Komugjöld á heilsu- gæzlustöðvar skila 200 milljónum, þátttaka í lyfjakostnaði 300 milljón- um, greiðslur til sérfræðilækna 165 milljónum, þátttaka í kostnaði við tannlæknaþjónustu 200 milljónum, greiðslur fyrir fegrunaraðgerðir 80 milljónum, greiðslur vegna heim- sókna á göngudeildir og slysavarð- stofur, fyrir röntgenmyndatökur og fleira skila 80 milljónum og skóla- gjöld 100 milljónum. Þessi þjónustugjöld koma, líkt og skattarnir, mismikið við ólíka hópa og má gera ráð fyrir að heimili, þar sem tveir unglingar væru á skóla- aldri og mikil veikindi í fjölskyld- unni, yrðu verr úti en önnur. Hins vegar fá aldraðir og öryrkjar af- slátt af þjónustugjöldum á heilsugæzlustöðvum og vegna sérfræðilækninga. Sérstakur sjóður er jafn- framt hjá Trygginga- stofnun, sem getur endurgreitt allt að 90% kostnaðar ef menn ráða ekki við hann. Almenningur fær afsláttarkort fyrir íjölskylduna ef heilbrigðisút- gjöld fara yfír 12 þúsund krónur á ári. Sjúklingur, sem ber mikil út- gjöld vegna læknishjálpar og lyfja, á jafnframt rétt á endurgreiðslum að hluta, og eru þær tekjutengdar. Maður með undir 83 þúsund krón- um í mánaðarlaun fær þannig 90% kostnaðar umfram 18 þúsund krón- ur endurgreiddan. Einstaklingur með yfír 250.000 krónur í mánaðar- laun fær hins vegar enga endur- greiðslu. Þeir, sem bera meira úr býtum, greiða því fullt gjald fyrir bjón- ustuna. Breytingar koma mis- munandi við ólíka hópa

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.