Morgunblaðið - 30.03.1995, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 30. MARZ 1995 13
FRÉTTIR
Magnús L. Sveinsson á fundi í kosningamiðstöð Sjálfstæðisflokksins
Atvinnulífið þol-
ir ekki sambæri-
legar hækkanir
MAGNÚS L. Sveinsson, formaður
Verslunarmannafélags Reykjavik-
ur og 10. maður á lista Sjálfstæð-
isflokksins í Reykjavík, sagði á
fundi í kosningamiðstöð flokksins
í fyrradag um hvernig skipta beri
efnahagsbatanum að hljóði samn-
ingar kennara upp á 16-20%
launahækkanir sé ljóst að efna-
hagslífið þoli ekki að slíkar hækk-
anir gangi jafnframt til opinberra
starfsmanna og annarra sem ós-
amið er við.
Magnús sagði að laun væru al-
mennt lægri hér á landi en í flest-
um öðrum löndum og eitt megin-
verkefni íslendinga væri að breyta
því og tryggja að launakjör og lífs-
kjör væru hér sambærileg við það
sem gerðist meðal annarra þjóða.
Menn þyrftu hins vegar að átta
sig á því að þetta yrði ekki gert
í einu stökki með einum samningi
sem leiddi til holskeflu heldur
þyrftu slíkar breytingar að gerast
stig af stigi í sátt við alla launþega.
Ofangreint kom fram í svari
Magnúsar við fyrirspum fundar-
manns um hvort öllum efnahags-
batanum hefði verið ráðstafað til
kennara með samningnum. Magn-
ús sagði ennfremur að hefði ríkis-
stjóm Steingríms Hermannssonar
ekki afnumið kjarabætur til kenn-
ara eftir verkfall 1989 hefðu þeir
sjálfsagt verið betur settir en nú
að fengnum nýjum kjarasamningi
eftir 6 vikna verkfall.
Magnús L. Sveinsson rakti stað-
reyndir um þann efnahagsbata
sem orðið hefði á kjörtímabili ríkis-
stjómarinnar sem fært hefði stöð-
ugleika, lága verðbólgu, hagstæð-
an viðskiptajöfnuð, auknar fjár-
festingar, aukna einkaneyslu, auk-
inn útflutning, lægri vexti. Allt
hefði þetta leitt til þess að hag-
vöxtur væri á ný staðreynd hér á
landi eftir samdráttarskeið undan-
farinna ára.
Magnús sagði að þessum efna-
hagsbata væri ekki aðeins útdeilt
í kjarasamningum heldur skiptu
ákvarðanir stjórnvalda, ríkis-
stjómar og sveitarstjóma miklu
máli um kjör manna og hvemig
batanum væri skipt og í raun
snertu flestar ákvarðanir stjóm-
valda kjör manna í landinu.
Ákvörðun nýs borgarstjómar-
meirihluta um 600 milljóna holræ-
sagjald, sem hefði þau áhrif á láns-
kjaravísitölu að skuldir heimilanna
hækkuðu um 400 millj., hefði mik-
il áhrif á kjör fólks í landinu. Fyrri
ríkisstjórn hefði rýrt kjör með 11
milljarða króna skattahækkunum
en sú ríkisstjórn sem nú væri að
ljúka kjörtímabili hefði snúið af
þeirri braut.
Magnús L. Sveinsson sagði að
vinna þyrfti að aukinni arðsemi í
þjóðfélaginu en hér væri hún með
því lægsta sem þekktist. Þar hefði
áhrif sú sóun í fjárfestingum sem
átt hefði sér stað í loðdýrarækt,
fiskeldi og byggingu atvinnuhús-
næðis.
Nú stæðu íslendingar frammi
fyrir því að allt atvinnulífið byggi
við batnandi skilyrði og því væm
forsendur fyrir því að láta laun-
þega njóta batans í þjóðfélaginu.
Kjarasamningarnir frá 21. febrúar
sl. væru hentug fyrirmynd að því
hvernig standa ætti að skiptingu
batans.
Þar væri tekið tillit til þess
grundvallaratriðis sem stöðugt
efnahagsumhverfi væri og þannig
styrktu samningarnir möguleika á
áframhaldandi bata og hagvexti í
þjóðfélaginu. Það ásamt því að
auka arðsemi, efla hugvit, mennt-
un og rannsóknir í þjóðfélaginu
væri grundvallaratriði í viðleitni
til að bæta kjör í landinu og
tryggja að íslendingar byggju við
sambærileg lífskjör og þær þjóðir
sem menn vilji helst bera sig sam-
an við.
Athugasemd frá Al-
þýðubandalagi
Björn
Bjamason
leiðréttur
MORGUNBLAÐINU barst í gær
athugasemd frá Alþýðubandalaginu,
sem Einar Karl Haraldsson fram-
kvæmdastjóri undirritar. Hún er svo-
hljóðandi:
Björn Bjarnason alþingismaður
og frambjóðandi Sjálfstæðisflokks-
ins ritar grein 'í Morgunblaðið í
gær, 29. mars, og lætur að því liggja
að sýnishom af hugsanlegum tví-
hliða samningi milli Islands og Evr-
ópusambandsins, sem formaður Al-
þýðubandalagsins lét gera vorið
1992, hafi verið „óskrifað“.
Ólafur Ragnar Grímsson lagði
fram 30 blaðsíðna sýnishom af
„samningi íslands og Evrópusam-
bandsins um viðskipti og samvinnu"
á blaðamannafundi í júní 1992, jafn-
framt því sem eintak var afhent
utanríkisráðherra eftir umræður á
Alþingi. Það er áhyggjuefni að for-
maður utanríkismálanefndar Al-
þingis skuli ekki hafa fylgst betur
með en skrif hans bera merki, en
að sjálfsögðu gemm við ráð fyrir
að hann vilji hafa það sem rétt er.“
Fundur hjá Þjóðvaka
ÞJÓÐVAKI heldur opinn fund í
kosningamiðstöðinni Hafnar-
stræti 7 fímmtudagskvöldið 30.
mars kl. 20.
Umræðuefnið verður yfírlýsing
Þjóðvaka um myndun félags-
hyggjustjórnar eftir kosningar og
að hafna stjórnarsamstarfí við
Sjálfstæðisflokkinn.
Til að ræða þessa yfirlýsingu,
ástæður hennar og áhrif á íslensk
stjórnmál, koma til fundarins þau
Ásta R. Jóhannesdóttir, 2. maður
á lista Þjóðvaka í Reykjavík og
dr. Svanur Kristjánsson, prófess-
or við HÍ. Að loknum framsöguer-
indum verða almennar umræður.
Fundarstjóri er Páll Halldórsson.
Fundurinn er öllum opinn og kaffi
verður á boðstólum.
HEILBRIGÐISRAÐUniEYTIÐ
heldur því fram að tilvísanaskyldan breyti engu um
eðli heilbrigðisþjónustunnar á fslandi
ÞETTA ElRAWCT
Tilvísanaskyldan gerir þér erfitt að fara til þess sérfræðings sem þú
treystir best - nema þú komir fyrst við á heilsugæslustöðinni og
borgir þar 600 krónur fyrir tilvísun.
Tilvísanaskyldan mismunar fólki eftir efnahag
EFTIRTALDIR LÆKNAR MUNU EKKI STARFA SAMKVÆMT TIL VÍSANASKYLD U:
SVÆFINGALÆKNAR
Aðalbjörn Þorsteinsson
Arnaldur Valgarðssoti
Ástríður Jóhantiesdóttir
Auðunn K. Sveinbjörtisson
Bergþóra Ragnarsdóttir
Björn Ttyggvason
Eitiar Eitiarsson
Eiríkur Bettjatníttsson
Girish Hirlekar
Gísli Vigfusson
Guðmundur J. Björtisson
Guðjóti Sigurbjörnsson
Hjördts Smith
Hjörtur Sigurðssott
Ingunn Vilhjálmsdóttir
Jótt Sigurðssott
Kristinn Sigvaldason
Magntís Guðmundsson
María S. Hjálmarsdóttir
María Sigurðardáttir
Niels Chr. Nielsen
Oddur Fjalldal
Ólajiir Ólajsson
Ólajur Þ. Jónssott
Óli Hjálmarsson
Páll Ammendrup
Ragttar Fittnssott
Sigurður Kr. Pétursson
Veigar Ólajsson
Viðar Hjartarson
Þórarinn Ólajssön