Morgunblaðið - 30.03.1995, Qupperneq 16
16 FIMMTUDAGUR 30. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
NIÐURGROIN nögl
fyrir meðferð.
SVONA lítur spöngin út
á nöglinni.
NÖGLIN eftir
spangarmeðferðina.
Spangarmeðferð notuð
við niðurgrónar neglur
NIÐURGRÓNAR neglur eru
vandamál sem margir kannast
við. Það getur verið nyög sárs-
aukafullt og er gjarnan afleiðing
þess að klippa neglurnar rangt
og ekki síst þess að ganga í of
þröngum skóm.
Nokkrir tugir íslenskra fóta-
aðgerðarfræðinga sóttu nýlega
námskeið hjá Dananum Bent R.
Nielsen fótaaðgerðarfræðingi og
formanni danska fótaaðgerðar-
fræðingafélagsins til að læra að
beita svokallaðri spangameðferð
við niðurgrónum nöglum.
Aðferðinni hefur verið þekkt
hérlendis í nokkur ár en nokkuð
vantað upp á að allir fótaaðgerð-
arfræðingar kynnu að beita
henni. Sólrún Siguroddsdóttir
fótaaðgerðarfræðingur segir að
spangameðferðin sé góður kost-
ur til að ráða bót á niðurgrónum
nöglum, því hún sé lausn til fram-
búðar. Meðferðin tekur um það
bil ár eða þann tíma sem það
tekur nögl að vaxa fram. Um
leið og spöngin er komin á tá
viðkomandi hættir hann að finna
til sársauka.
Vír er notaður í spöngina sem
fótaaðgerðarfræðingarnir búa
til á hverja tá. Spöngin þarf að
passa alveg þannig að hún Iiggi
þétt upp að nöglinni. Pressa er
sett á spöngina og hún þrýstir
siðan nöglinni upp.
- En hversvegna fær fólk nið-
urgrónar neglur?
UPPSKRIFTIN að þessu
sinni er ættuð frá Ma-
rokkó í Norður-Afríku.
Þetta er eftirréttur, þar
sem appelsínur eru born-
ar fram á allnýstárlegan
hátt. Réttinn er fljótlegt
að útbúa og hann á mjög vel
við eftir þunga máltíð. I Ma-
rokkó, þar sem Morgunblaðs-
fólk kynntist réttinum, var
hann borinn fram á eftir
bragðmiklum pottrétti úr kjöti,
grænmeti og baunum.
Ekki skiptir máli hvaða afbrigði
appelsínu er notað, en vitaskuld
þarf hún að vera safarík. Hún má
gjarnan vera súr, en helst steina-
laus. Gera má ráð fyrir '/2-1 app-
elsínu á mann og réttinn ætti að
bera fram eins fljótt og auðið er.
Ekki er heppilegt að geyma hann
í ísskáp.
Appelsínur
3 appelsínur
3 msk hunang
1-1 Vi tsk kanill
Hunang er hitað í vatnsbaði,
þar til það verður fljótandi. Hægt
er að setja hunangskrukku beint
í pott með vatni og hita þannig.
Appelsínur eru afhýddar og
skornar í þunnar sneiðar. Það er
BENT R. Nielsen fótaaðgerð-
arfræðingur í hópi íslenskra
fótaaðgerðarfræðinga en sú
stétt er 100% kvennastétt hér
á landi.
Sólrún segir að tvennt komi
þar aðallega til, táneglur séu
ekki klipptar rétt, þ.e.a.s. þvert
yfir og síðan noti fólk ekki rétta
skó, svokallaða fótlagaskó.
Um hundrað fótaaðgerðafræð-
ingar eru á íslandi, þar af eru
um 70 félagsmenn í félagi ís-
lenskra fótaaðgerðarfræðinga
sem er löggild heilbrigðisstétt.
1944 í nýjum umbúðum
SLATURFELAG Suðurlands
hefur sett á markað 1944-
rétti í nýjum umbúðum. Jafn-
framt hefur S.S. sett á mark-
að tvo nýja 1944-rétti, ind-
verskan lambakjötsrétt með
hrísgrjónum og steiktar kjöt-
bollur með kartöflumús. Eftir
könnun meðal neytenda var
tveimur réttum breytt, strog-
anoff líkist nú meira ijóma-
gúllasi og kjöt í karrý hefur
verið mildað.
Morgunblaðið/BT
RÉTTINN er auðvelt
og fljótlegt að útbúa.
einfalt ef notaður er vel brýndur
hnífur.
Fljótandi hunangi er hellt yfir
appelsínusneiðar og kanil síðan
stráð yfir með fingrunum.
Rétturinn er borðaður með eftir-
réttarhnífapörum, hnífi og gaffli.
Ekki gamlan kanil
Kanill er talsvert notaður í arab-
íska matargerð og þess vel gætt
að kryddið sé eins ferskt og bragð-
mikið og kostur er. Þar sem kanil-
notkun hér er ekki mikil, er sú
tilhneiging rík að láta kanil úr
sömu krús endast árum saman.
Mælt er með því að nota ekki
gamlan og bragðdaufan kanil í
þennan rétt, enda missir hann þá
séreinkenni sitt.
Þess má í gamni geta að í bók-
inni The Foods of Love, eftir Max
de Roche, er kanill talinn upp í
lista yfir girndaraukandi krydd,
auk þess sem kanilstangir eru
samkvæmt alþýðulæknisfræði
taldar stemmandi og sótthreins-
andi.
Hunang er í miklum metum hjá
höfundi bókarinnar, enda segir
hann það hafa verið notað í kynör-
vandi mixtúrur í gegnum aldirnar.
Appelsínur, helsta uppistaða þessa
réttar, komast ekki á blað hjá Max
de Roche, en þær standa altént
fyrir sínu sem góður C-vítamín-
gjafi.
Appelsínur með
hunangi og kanil
Uppskrift vikunnar
ttW-
W yr*.'*
yt
]
ttw;
NtiVV |
sitn
f!
27. mars
bók/\l*. /tudcr\t&.
MSNSGtMim