Morgunblaðið - 30.03.1995, Page 33

Morgunblaðið - 30.03.1995, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 30. MARZ 1995 33 hann við krufningar á Rannsóknar- stofu Háskólans þar til hann varð að ljúka störfum vegna aldurs. Að öllu þessu loknu batt hann inn bækur og gerði það af listrænum og eðlislægum hagleik. Heimili þeirra hjóna ber vott um hlýleika og snyrtimennsku að ógleymdum sumarbústað þeirra í landi múrara í Öndverðamesi, sem óhætt er að fullyrða sérstæðan og vandaðan að öllum frágangi, þar sem saman fer vönduð smíði og hug- kvæmni úti sem inni. Á hveiju vori var þess beðið að bjarkimar þeirra og annar gróður opnaði blöð sín móti hlýju sumarsins og ynnu næringu úr fijósömum jarðveginum og lofti. Þótt starfsvettvangur hans væri ijarri bemsku- og æskusveit fýlgdist hann náið með störfum fólksins í frændgarði þar. Þar vom sterkir stofnar ættar hans sem nýtt höfðu sér breytingar í landbúnaði síðustu ára. Honum varð tíðrætt um framtíð sveitar sinnar, og raunar allrar sýsl- unnar, en skyldmenni hans vom víða þar eystra, og fór ekki dult með ótta sinn um framtíð sveitarinnar, en stöð- ugt var þrengt að búandliði. Það særði jafnréttisvitund hans er launabaráttu láglaunafólksins var haldi niðri með samningum meðan aðrir gátu aukið gróður sinn í valdi auðæfa og félagslegrar aðstöðu. Það var í andstöðu við jafnréttishugsjón hans í afkomu borgaranna, kvenna sem karla, hvort sem var í bæ eða sveit. Skyld þessari afstöðu hans til jafn- réttis borgaranna var afstaða hans til alþjóðamálsins esperantos, en því helgaði hann krafta sína, og lagði fram mikinn tíma til félagslegrar þátttöku. Hann skildi nauðsyn þess að fólk af ijarskyldum þjóðum ætti sitt hlutlausa, sameiginlega hjálpar- mál án tillits til litarháttar, trúar- bragða eða stjómmálaskoðana. Hann tók þátt í nokkram alþjóðaþingum esparantista, sem juku sannfæringu hans um gildi málsins til aukins skiln- ings milli einstaklinga og þjóða. Nokkur bréfasamsbönd hafði hann við erlenda bréfavini, þar sem hann kynnti þeim land sitt og þjóð. Óhætt er að fullyrða að tillögur hans í sambandi við kaup félagsheim- ilis esparantista við Skólavörðustíg eiga mikinn þátt í þeim árangri, sem náðst hefur. Eggjunarorð hans og til- lögur gleymast ekki okkur félags- systkinum hans í Auroro, enda var hann meðal þeirra, sem kjömir vom til forystu þar. Bergsteins Jónssonar verður ætíð minnst sem drengskaparmanns, sem hafði næman skilning á kjömm al- þýðustéttanna um leið og hann var tilbúinn til að leggja þeim lið í orði og verki. Megi fordæmi hans verða öðmm fyrirmynd. Við hjónin vottum eftirlif- andi konu hans, Sigríði Bergsteins- dóttur, dætmm, bamabörnum og tengdasonum og skyldmennum dýpstu samúð okkar. Ingimundur Ólafsson. Bergsteinn Jónsson hefur kvatt og lagt upp í langferðina miklu sem fyr- ir öllum liggur fýrr eða síðar. Skömmu áður en hann lagðist inn á spítala til uppskurðar við illskeytt- um sjúkdómi, sagði hann mér að hann væri ferðbúinn og sáttur við að fara. En engum datt þó í hug að þetta bæri svo bráðan að. Bergsteinn tók allt föstum tökum sem hann gaf sig að og gilti þá einu hvort um var að ræða vinnuna, áhugamál eða tómstundastarf. Og hann kom víða við. Allt sem hann tók sér fyrir hendur var gert af mikilli alúð, næmi og einstakri vandvirkni. Áhugi hans á hvetju við- fangsefni var alveg sérstakur, hann vildi kafa til botns í hveiju verkefni og hveiju máli, ná tökum á því. Þetta er alveg afbragðs eiginleiki og væn- legur til árangurs. Bergsteinn náði líka góðum árangri i sínum viðfangs- efnum sem á hans lífsleið urðu mörg. Auk þess var handlagni hans alveg einstök og vitna þá bækumar sem hann batt inn alveg sérstaklega þar um. Það var gaman og fræðandi að ræða við Bergstein um lifið og tilver- una. Hann hafði ákveðnar skoðanir á flestum hlutum. Hann átti lika mjög auðvelt með að tjá sínar skoðanir því hann hafði einstakt vald á íslensku máli og var rökfímur vel. Hann var vel lesinn í íslenskum bókmenntum og kunni langar tilvitnanir utanbók- ar. Ungur heillaðist hann af kenning- um dr. Helga Péturs og fann í þeim mikinn sannleik sem hann vitnaði oft í. Eftir því sem hann las og kynnti sér meira um heimspekileg efni, þeim mun sannfærðari varð hann um að gmndvallarkenningar dr. Helga væm réttar því margt sannaði honum að svo væri. Samræðustundimar við Bergstein vora alltaf skemmtilegar og skildu eftir sig fróðleik og umhugsun. En hann gat líka hlustað og ef maður taldi sig hafa eitthvað fram að færa, gat sagt frá áhugaverðri bók eða öðm var ekki til betri hlustandi. Þeg- ar við hittumst mánuði áður en hann dó sagði hann mér frá því að hann væri búinn að lesa bókina Vígðir meistarar og þar hafði hann líka fund- ið sannanir fyrir kenningum dr. Helga. Frá því ég var unglingur man ég eftir því þegar Bergsteinn og Sigga og dætumar komu á sumrin til okkar norður í Eyjafjörð. Það var mikil há- tíð og tilbreyting í hversdagslífíð. Hann var mikill vinur vina sinna. Aldrei þreyttust þeir faðir minn og hann á að etja kappi saman og rök- ræða stjómmálin, heimsmálin, komm- únismann og auðvaldið. En á seinni ámm þegar ég fór að blanda mér í umræðuna fannst mér mestur fengur í að ræða andlegu málin við Berg- stein. Þau tóku líka hug hans fanginn í vaxandi mæli í seinni tíð.Mér finnst ég hafa misst góðan vin. Ekki er ég í minnsta vafa um að Bergsteinn legg- ur upp i langferðina vel undir búinn og verður fljótur að átta sig á nýjum aðstæðum. Ég minnist Bergsteins með söknuði og þakklæti og votta fjölskyidu hans innilega samúð á kveðjustund. Kristján Baldursson. Einn af traustustu félögum Aur- oro, esperantistafélags í Reykjavík, Bergsteinn Jónsson, fýrrverandi deildarstjóri, er fallinn frá. Áhugi Bergsteins á alþjóðamálinu esperanto mun hafa vaknað þegar í æsku er hann las kynningargrein um málið í Unga íslandi. Hann hóf þó ekki að læra málið fyrr rúmleg fertugur og þá í bréfaskóla ASÍ og SÍS undir leið- sögn Ólafs S. Magnússonar. Berg- steinn gerðist félagi í Auroro 1976 og varð brátt einn ötulasti liðsmaður þess félags. Þegar ákveðið var í byij- un níunda áratugarins að félagið reyndi að eignast eigið húsnæði til fundarhalds og kennslu var Berg- steinn kosinn í húsanefnd þriggja manna sem skyldi kanna möguleika á húsakaupum. Kom þá best í ljós hve Bergsteinn var ötull og fylginn sér í baráttu fyrir góðu málefni. Eink- um em hvatningarræður hans eftir- minnilegar, fluttar á kraftmiklu máli af þunga og eldmóði. Er ekki hvað síst þeim'að þakka hve vel gekk að vekja og virkja áhuga félagsmanna á framkvæmdum. Eftir að félagið hafði eignast eigin fundarstað á Skóla- vörðustíg 6b var Bergsteinn þó ekki á því að þar yrði látið staðar numið. Gerðist hann nú ákafastur talsmaður þess að stækka aðsetur félagsins þeg- ar því bauðst að kaupa aðliggjandi húsnæði í sama húsi. Þótt hann væri þá orðinn sjúkur vom hvatningarorð hans enn jafn áleitin og styrk og studdu að því að samþykkt var að ráðast í þau kaup. Bergsteinn lifði það að sjá nýtt og stærra húsnæði félagsins sem hann hafði lagt svo dijúgan skerf til að yrði að vemleika. Bergsteinn sótti tvisvar alþjóðaþing esperantista, í Vama 1978 og í Stokk- hólmi 1980, og átti í bréfaskiptum við erlenda esperantista. Alþjóðamálið átti vissulega hug hans en ekki síður móðurmálið, íslenskan, og var hann einkar vel máli farinn, enda leit hann á Þórberg Þórðarson sem sinn meist- ara og var afar vel lesinn í ritum hans. Fór enda vel á því þar sem Þórbergur var einnig á sínum tíma helstur baráttumaður fyrir esperanto hérlendis. Félagar Auroro þakka Bergsteini gjöfula samfylgd og senda ekkju hans, Sigríði Kristjánsdóttur, dætmm þeirra og öðm skylduliði hugheilar samúðarkveðjur. Sljórn Auroro. STEFAN EINAR ÞÓRHALLSSON -I- Stefán Einar * Þórhallsson fæddist 28. júlí 1944 á Hreiðar- stöðum í Fellum, Norður-Múlasýslu. Hann lést 19. mars síðastliðinn. For- eldrar hans voru hjónin Þórhallur Einarsson bóndi, f. 12. desember 1906, d. 19. júlí 1984, og Agnes Árnadóttir, f. 3. september 1919. Þau bjuggu í Þingmúla í Skriðdal, síðar á Kirkjubóli í Norðfirði. Siðustu árin bjuggu þau á Egilsstöðum. Móðir hans býr nú á Kópavogsbraut 1B í Kópavogi. Stefán var þriðji elstur tíu systkina, Þau eru: Árni, f. 1942, Amalía, f. 1943, Ingibjörg, f. 1945, Kristín, f. 1946, Sveinn, f. 1950, d. 1974, Herdís, f. 1954, Þórarinn, f. 1956, Lárus, f. 1959 og Þór- hildur, f. 1965. Hinn 11. júní 1976 kvæntist Stefán Svan- hildi Björk Jónasdóttur frá Vogum í Mývatnssveit, f. 4. júní 1947, d. 20. september 1993. Hún var einkadóttir Kristínar Jónasdóttur frá Vogum. Synir þeirra eru þrír. Elstur er Þórir Sigmundur Þórisson, f. 8. október 1973, sem Stefán gekk í föðurstað. Hann lýkur námi frá íþrótta- kennaraskólanum á Laugar- vatni í vor. Unnusta hans er Guðrún Erla Gísladóttir frá Selfossi, f. 4. des- ember 1972. Hún lýkur einnig námi frá sama skóla í vor. Næstelstur er Kristinn Agnar, f. 1. október 1977, nemandi við FJöl- brautaskóla Suð- urlands. Yngstur er Þórhallur Reyn- ir, f. 30. júlí 1980, nemandi við Grunnskóla Suður- lands. Eftir hefð- bundna skóla- göngu vann Stefán við bústörfin og stundaði sjó- mennsku um tima. Haustið 1969 fór hann í Vélskólann á Akureyri og var þar í tvö ár en fór siðan suður til Reykja- víkur og stundaði nám við Vélskóla íslands. Hann lauk prófi þaðan vorið 1973. Mest- an sinn starfsaldur vann Stef- án sem vélstjóri við Kröflu- virkjun en frá því í september 1994 við virkjanirnar í Soginu. Heimili þeirra Stefáns og Svanhildar var alltaf í Reykja- hlíð fyrir utan fyrsta búskap- arárið i Neskaupstað. Þau byggðu sér hús á Birkihrauni 11 og ráku þar gistiþjónustu í nokkur ár. Síðastliðið haust flutti Stefán á Selfoss ásamt sonum sinum, þar sem hann keypti húseign á Dalengi 6. Útför Stefáns fer fram frá Reykjahlíðarkirkju í dag, 30. mars og hefst athöfnin kl. 14. ENN hefur þungt áfall dunið yfir fjölskyldu okkar. Kær sonur og bróðir er horfínn á braut. Á andar- taki er allt búið. Em örlögin svona eða er þetta tilviljun? Við spyijum og erum ráðvillt en fáum engin svör. Ein lítil frænka sagði: Það getur ekki verið Stebbi, hann er nýbúinn að tala við mig í símann. En þannig var það einmitt. Stebbi bróðir eins og við kölluðum hann, hafði bæði heimsótt og talað við marga af sínum skyldmennum og kunningjum síðustu dagana áður en hann kvaddi þennan heim. Hann varð bráðkvaddur í bílnum sínum á heimleið af skíðum á fögrum sunnudagseftirmiðdegi. Við eigum margar góðar minn- ingar um Stebba, bæði frá æskuár- unum og síðar. Hann var glaðsinna og hafði ríka kímnigáfu sem setti svip á tilveruna. Oft kom hann okkur á óvart með ýmsum tiltækj- um. Hugur hans var fullur af fram- tíðaráformum þegar hann var ung- ur. Lífíð brosti við honum og hann kunni að njóta þess. Stebbi var vel látinn af öllum sem honum kynnt- ust. Hann var athafnasamur mað- ur, vinsæll og virtur af sínum sam- starfsmönnum. Stebbi stofnaði fjölskyldu með eiginkonu sinni og var hamingju- maður í sínu einkalífi. í Mývatns- sveit undu þau hag sínum vel, byggðu sér myndarlegt og fallegt hús á Birkihrauni 11 og komu þar á fót gistiþjónustu sem þau ráku með myndarbrag í nokkur ár. Þar var reglusemi og snyrtimennska í fyrirrúmi. Útlendingar ekki síður Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æski- legt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er mðttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-texta- skrár. Ritvinnslukerfin Word og Word- perfect eru einnig auðveld t úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýs- ingar þar um má lesa á heimasfðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina og hálfa örk A-4 miðað við meðalltnubi! og hæfilega llnulengd — cða 3600-4000 slög. Höf- undar eru beðnir að hafa skírnarnöfn stn en ekki stuttnefni undir greinunum. en íslendingar höfðu jafnan á orði hve vel væri búið að öllu svo gest- um liði vel. Eins var það ávallt til- hlökkunarefni íjölskyldunnar að staldra við á ferðalögum og njóta gestrisni þeirra og góðra veitinga í fögru umhverfi. Stebbi og Svana voru sérlega samhent um allt sem þau tóku sér fyrir hendur. Þau báru velferð heimilisins og drengjanna sinna fyrir brjósti. Þeim var vel fylgt eftir hvort sem það varðaði nám eða tómstundir. Fjölskyldan hafði ánægju af ferðalögum. Áttu þau til að taka sig upp með skömmum fyrirvara og þeysa út í buskann, stundum inn á hálendi landsins. Þá kom sér vel að eiga góðan jeppa. Stebbi lét sér ekkert óviðkom- andi, hafði ákveðnar skoðanir á málefnum líðandi stundar. Hann var virkur félagsmaður í málefnum Mývetninga, lét skólamál og íþróttamál sérstaklega til sín taka. Svo kom að því að sorgin barði dyra. Svana veiktist af alvarlegum STEINAR WAAGE f SKÓVERSLUN "N SKOVERSLUN Domus Medica, Egilsgötu 3, sími 18519 Kringlunni, Kringlunni 8-12, simi 689212 Toppskórinn, Veltusundi, sími 21212 Afa inniskór Tegund: 4043 Stœrðir: 40-45 • Utur: Vínrauður Verð kr. 995 5% Staðgreiðsluafsláttur Póstsendum samdægurs STEINAR WAAGE sjúkdómi og varð að lúta í lægra haldi eins og svo margir. Þá sem oft áður kom sér vel styrkur Stebba og stuðningur tengdafólks hans í Vogum, en ætíð var mjög kært með þeim Stebba og Kristínu tengdamóður hans. Frá upphafí hafði jafnan ríkt gagnkvæmt traust á milli heimilanna. Harmur okkar er mikill en son- anna mestur. Við óskum þess að það góða veganesti sem foreldrar þeirra létu þeim í té verði þeim til hjálpar á lífsins vegi þrátt fyrir allt. Móðir og tengdamóðir syrgja sárt. Við biðjum góðan guð að standa vörð um synina og aðra ástvini. Guð geymi þig, elsku bróðir. Systkinin. Eftir margra daga stórhríð og dimmviðri birti upp og náttúran skartaði sínu fegursta vetrarríki. Þannig kvaddi sveitin vin okkar allra, Stefán Þórhallsson, sem lést langt um aldur fram. Við getum ekki annað en fyllst reiði, hver getur verið tilgangurinn? Að mað- ur í blóma lífsins sem fyrir aðeins 18 mánuðum fylgdi konu sinni til grafar, skuli vera burt kallaður svo fljótt. Eftir standa þrír ungir synir sem með svo skömmu millibili hafa misst báða foreldra sína. Stebbi var mikill félagsmaður og starfaði ötullega og af trú- mennsku að ýmsum félagsmálum fyrir sveitina. Það var því mikill missir fyrir okkur öll þegar hann flutti á Selfoss síðastliðið haust. Þar bjó hann sér og sonum sínum fallegt heimili. En ræturnar eru sterkar, hér átti hann sín bestu ár, hér bjó hann með Svönu sinni og strákunum í fallega húsinu þeirra í Birkihrauni. Hér átti hann líka Stínu tengdamóður sína en á. milli þeirra var sterkt og gott sam- band. Um síðustu áramót komu þeir feðgar allir í heimsókn á heimaslóðimar. Stebbi var ánægð- ur með lífið og tilveruna og fullur bjartsýni og áforma. Það hafði líka bæst við litlu ijölskylduna tengda- dóttir og lítill strákur sem hann var hrifinn af því barngóður var hann. Því fékk litli Pétur minn að kynnast. Ég trúi því að þau hjón hafi verið kölluð til æðra verka. Svana til að syngja með sinni björtu röddu í himnakómum og Stebbi til einhverra ábyrgðar- starfa. Elskulega fjölskylda, við ykkur öll sem misst hafíð svo mikið, lang- ar mig að taka undir orð Kahlils Gibrans þar sem segir: „Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur hug þinn og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín.“ Þakka þér samfylgdina. Sólveig Pétursdóttir. Sterkir plastkassar og skúffur. Fyrir skrúfur, rær og aðra smáhluti. Hægt að hengja á vegg, eða stafla saman. lyiargar stærðir gott verð. Avalít fyrirliggjandi. Leitið upplýsinga. UMBOÐS- OG HEILDVERSLUNIN SMIÐJUVEGUR 70, KÓR SlMI 564 4711 • FAX 564 4725

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.