Morgunblaðið - 07.04.1995, Qupperneq 4
4 FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
4-7% verðhækkun á
nikótínplástri og tyggjói
„HÆKKUNIN nú nemur 4-7% á
nikótíntyggjói og nikótínplástri,
mismikil eftir styrkleika þess. Aðal-
ástæðan er hækkun á innkaups-
verði eftir að framleiðandinn
breytti skilmálum á þann veg, að
nú kaupum við tyggjóið ekki lengur
frá Svíþjóð, heldur frá Danmörku,"
sagði Asgeir Hallgrímsson, mark-
aðsstjóri Pharmaco, í samtali við
Morgunblaðið.
Verð hækkaði nokkuð á Nico-
rette-tyggjói og plástrum þann 1.
apríl, en vörur þessar eru ætlaðar
til að hjálpa fólki til að hætta reyk-
ingum. „Síðast var verð reiknað
út um áramót, en frá þeim tíma
ákvað framleiðandinn að við þyrft-
um að kaupa vöruna frá Dan-
mörku. Danska krónan er mun
sterkari en sú sænska og gengis-
munur okkur í óhag,“ sagði Ásgeir
Hallgrímsson.
Verð á þessum vörum er hið
sama í öllum lyfjaverslunum, enda
flokkast þær undir lyf og hafa fasta
álagningu. 30 stykki af 2 mg Nico-
rette-tyggjói kosta nú 686 krónur,
en kostuðu 639 kr. 105 stk. pakkn-
ing kostar 2.047 kr., en kostaði
1.901 krónu. 30 stk. af 4 mg
tyggjói kosta 1.017 krónur, en
kostuðu 945 kr. og 105 stk. af
sama styrkleika kosta 2.978 kr.,
en kostuðu 2.821. Vikuskammtur
af 15 mg plástri, til að hafa á sér
í 16 tíma á sólarhring, kostar 2.250
og hækkar úr 2.095 krónum.
Hjá Stefáni Thorarensen hf.,
sem flytur inn Nicotinelle-plástur,
fengust þær upplýsingar að verðið
hefði ekki breyst í lyfjabúðum þann
1. apríl. Verðmyndun framleiðanda
miðaðist við að kostnaður af notkun
væri hinn sami og það kostaði að
reykja einn pakka af sígarettum á
dag. Nicotinelle er til í þremur
styrkleikum, 7, 14 og 21 mg og
kostar vikuskammtur 2.206, 2.569
og 2.882 krónur eftir styrkleika.
Stykkishólmur
og Helgafellssveit
Morgunblaðið/Rolf Höjer
Krafist
ógildingar
á samein-
ingu
í DAG verður þingfest í Stykkis-
hólmi mál sem Hólmfríður Júlíana
Hauksdóttir á Amarstöðum í Helga-
fellssveit höfðar fyrir Héraðsdómi
Vesturlands ti! ógildingar á samein-
ingu Stykkishólms og Helgafells-
sveitar. Þess verður krafíst að sam-
eining sveitarfélaganna verði dæmd
ógild, að kosningarnar sem fram
fóru 1. október verði dæmdar ógild-
ar og að boðað verði til sveitarstjórn-
arkosninga í sitt hvoru sveitarfélagi
innan sex vikna frá uppkvaðningu
dóms.
Á morgun á að kjósa aftur um
sameiningu Stykkishólms og Helga-
fellssveitar um leið og kosið verður
til Alþingis. Með sameiningarkosn-
ingunni er verið að endurtaka kosn-
ingu sem fram fór 16. apríl í fyrra
og Hæstiréttur dæmdi ógilda.
Haraldur Blöndal hrl., lögmaður
Hólmfríðar, segir tilgang málshöfð-
unarinnar vera þann að ógilda allt
sem fór á eftir kosningunni í apríl
í fyrra. Hann telur að um leið og
kosningin hafi verið ógilt, hafi allt
sem sem þar fór á eftir verið mark-
Ieysa. „Ástæðan fyrir þessari máls-
höfðun er sú að félagsmálaráðu-
neytið vill ekki sætta sig við niður-
stöðu Hæstaréttar. Ráðuneytið telur
sig geta hoppað yfir Hæstarétt og
þess vegna er þetta mál höfðað.
Þegar ráðuneytið neitar að fara að
lögum verður að draga ráðherra
fyrir dóm, en það er fólkið í sveitar-
félögunum sem er fórnarlömbin,"
sagði Haraldur.
Útreikningar hagfræðings Alþýðusambandsins
Jaðarskattar af lág-
um tekjum 30-71%
EIN villa var í útreikningum sem
ASÍ hefur sent frá sér og greint
var frá í Morgunblaðinu 5. apríl,
þar sem tekið er dæmi af háum
jaðarsköttum íjölskyldu með Qögur
börn, sem býr í leiguhúsnæði og
hefur atvinnutekjur á bilinu
125-210 þús. kr. á mánuði. Að
sögn Guðmundar Gylfa Guðmunds-
sonar, hagfræðings ASÍ, láðist að
gera ráð fyrir því að húsaleigubæt-
ur væru skattskyldar en það gerir
að verkum að jaðarskattar fjöl-
skyldunnar í dæminu væru rúmlega
80% en ekki tæplega 96% eins og
fram kom í fyrri útreikningum ASI.
Aftur á móti kemur einnig í Ijós,
þegar tekið er tillit til skattgreiðslna
vegna húsaleigubóta, að jaðarskatt-
ar lágtekjuijölskyldna eru mun
hærri en áður var talið. Þannig
gæti sex manna fjölskylda með 75
þúsund kr. heildartekjur þurft að
greiða rúmlega 30% jaðarskatta,
þótt hún greiði engan tekjuskatt,
og þegar atvinnutekjumar em
komnar upp í 100 þús. kr. er jaðar-
skatturinn kominn í rúmlega 71%.
Jaðarskattar lægri
af háum tekjum
Guðmundur er ósammála um-
mælum Friðriks Sophussonar fjár-
málaráðherra um jaðaráhrif í tekju-
skattskerfinu í Morgunblaðinu í
gær en þar sagði fjármálaráðherra
að tekjutengingar og háir jaðar-
skattar væm afsprengi félags-
hyggjunnar. Guðmundur Gylfi segir
að Alþýðusambandið hafi tekið
þetta mál upp í þeim tilgangi að
benda á hve jaðarskattar af lágtekj-
um og miðlungstekjum væru orðnir
gífurlega háir hér á landi. Jaðar-
skattamir lækkuðu hins vegar þeg-
ar um væri að ræða hærri tekjur
en miðlungstekjur eða upp að 400
þús. kr mörkunum.
„Okkar baráttumál hefur ekki
verið að hækka þessa jaðarskatta
heldur hefur málflutningur okkar
undanfarin ár snúist um að hækka
jaðarskattana á hátekjunum," sagði
hann.
Svíakonungur
verðlaunar Hörpu
HARPA Ámadóttir, listakona,
tók í gær við fyrstu verðlaunum
í samkeppni National Museet í
Stokkhólmi fyrir unga lista-
menn. Verðlaunin fékk Harpa
fyrir teikningu sína Foss I, en í
henni tekst henni „á einfaldan
hátt að draga fram ljóðræna
stemmningu," eins og kom fram
í úrskurði dómnefndar. Sjálf
segir Harpa, að hana hefði ekki
órað fyrir að myndin vekti at-
hygli, einmitt vegna þess hve
hljóðlát hún væri. Karl Gústaf,
Svíakonungur, afhenti Hörpu
verðlaunin við hátíðlega athöfn
í listasafninu í gærmorgun, en
konungurinn er verndari sam-
keppninnar. Verðlaunin nema
15 þúsund sænskum krónum.
Samkeppnin hefur verið haldin
með hléum síðan 1938. Þykja
verðlaunin mikil lyftistöng fyrir
unga listamenn, enda hafa
sænskir fjölmiðlar fjallað mikið
um Hörpu og list hennar.
5 manna
fjölskylda
vann 10
milljónir
RÍKISSTARFSMAÐUR með
fimm manna fjölskyidu datt í
lukkupottinn, er dregið-var í
Happrætti DAS í gær og vann
íbúðarvinning að verðmæti 10
milljónir króna.
Samkvæmt upplýsingum
happdrættisins er nú skammt
stórra högga á milli hjá happ-
drætti DAS, því að í dag verður
dregið úr sumarpottinum 5
milljón króna sumarhúsvinning-
ur og á laugardag verður síðan
deilt út vinningum í Bingó-
Lottói.
Almennur stjórn-
málafundur í MK
Fá efna-
litlir fram-
halds-
skólanem-
ar aðild
að LÍN?
FULLTRÚAR flestra flokka utan
Sjálfstæðisflokksins töldu á fundi
með nemendum MK í gær að til
greina kæmi að veita efnalitlum
framhaldsskólanemum eða nemum
með börn á framfæri lánafyrir-
greiðslu hjá Lánasjóði íslenskra
námsmanna. Frambjóðendumir
gerðu þó þanri fyrirvara að hug-
myndin kæmi aldrei til fram-
kvæmdar fyrr en að lokinni gagn-
gerri endurskoðun á Lánasjóðnum.
Ekki framkvæmt í bili
Ágúst Einarsson, Þjóðvaka,
Birna Siguijónsdóttir, Kvennalista,
Helgi Hjörvar, Alþýðubandalagi og
óháðum, Hjálmar Árnason, Fram-
sóknarflokki, og Þóra Arnórsdóttir,
Alþýðuflokki, voru öll nokkuð sam-
hljóða í svörum sínum við fyrir-
spum Daníels Svavarssonar, for-
manns Félags framhaldsskóla-
nema. Þau töldu hugmyndina
ágæta en mörg önnur vandamál í
lánasjóðskerfinu biðu lausnar og
hefðu meiri forgang. Meðal þeirra
væri að létta endurgreiðslubyrði
lánþega og taka upp að nýju mánað-
argreiðslur í stað eftirágreiðslna.
Háleitt markmið
Ólafur G. Einarsson, Sjálfstæðis-
flokki, setti stórt spurningarmerki
við það að greina lánþega eftir efna-
hag með þessum hætti. Hann kvað
þetta vera háleitt markmið en væri
alls ekki { seilingarfjarlægð. Aðal-
heiður Einarsdóttir, Náttúrulaga-
flokki, studdi ein hugmyndina hik-
laust. Hún taldi það réttlætismál
efnalítilla nemenda að njóta aðstoð-
ar Lánasjóðsins.
------»-■♦ ♦---
Yfirlýsing frá 60
Sunnlendingum
Hörð gagn-
rýniá
forystu
Þjóðvaka
SEXTÍU Sunnlendingar hafa und-
irritað yfirlýsingu til stjómar suð-
uriandsdeildar Þjóðvaka, sem barst
Morgunblaðinu í gær, þar sem for-
ysta og framboðsmál íjóðvaka á
Suðurlandi eru harðlega gagnrýnd.
í fréttatilkynningu, sem fylgdi
yfirlýsingunni, segir m.a. að í tilefni
þess, að undanfarna daga hafi um-
ræða átt sér stað um framboðslista
Þjóðvaka á Reykjanesi og víðar og
að ritari flokksins hafi sagt að um
einstakt óánægjutilvik sé að ræða,
vilji 60 Sunnlendingar tilkynna að
svo sé alls ekki. Gríðarleg óánægja
hafi lengi verið með forystu og fram-
boðsmál Þjóðvaka á Suðurlandi og
mál þar þróast með þeim endemum
að þeir sem undirriti yfírlýsinguna
hafi kosið að nota þetta tækifæri til
þess að segja skilið við flokkinn. í
yfirlýsingunni er meirihluti stjórnar
suðurlandsdeildar Þjóðvaka sataður
um að hafa margbrotið lög félagsins
og traðkað á lýðræðislegum réttind-
um félagsmanna.
:
i
l
»
I
I
»
I
I
»
I
I
f
i
i
I
i
i
I