Morgunblaðið - 07.04.1995, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 07.04.1995, Qupperneq 10
10 FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR REYKJAVÍKURKJÖRDÆMI: Úrslit í Alþingiskosningum 1983, 1987 og 1991 1983 clRWi 1987 CiAWi 1991 Ci_ 1995 Fjöldi * w * Fjöldi « ' Fjöldi Atkvæði % þingm. Atkvæði % þingm. Atkvæði % þingm. í framboði 4^ y Gild atkvæði/Samtals 50.755 100,0 16 59.682 100,0 18 62.104 100,0 18 Alþýðuflokkur 5.470 10,8 1+1 9.527 16,0 3 9.165 14,8 3 X Framsóknarflokkur 4.781 9,4 1 5.738 9,6 1 6.299 10,1 1 X Sjálfstæðisflokkur 21.807 42,9 6 17.333 29,0 6 28.731 46,3 9 X Alþýðubandalag 9.634 19,0 2+1 8.226 13,8 2 8.259 13,3 2 X Samtök um kvennalista 4.248 8,4 1+1 8.353 14,0 3 7.444 12,0 3 X Bandalag jafnaðarmanna 4.815 9,5 1+1 162 0,3 0 Al Borgaraflokkur 8.965 15,0 3 Flokkur mannsins 1.378 2,3 0 Frjálslyndir 791 1,3 0 *A Heimastjórnarsamtök 180 0,3 0 Grænt framboð *G 390 0,6 0 Þjóðarfl./FI. mannsins 845 1,4 0 Kristil. stjórnmálahr. Máttnmlanafl íiclanHs f! X X *V yt* Þjóðvaki Átta framboðslistar eru í baráttunni um 19 þingsæti í Reykjavík Mikil óvissa vegna sveiflu í könnunum Aldrei hefur verið kosið umjafnmörg þingsæti í Reykjavík og- nú eða 19 alls og í samantekt Omars Fríðríkssonar kemur fram að mikil óvissa er um úrslit kosning- anna vegna fjölda óákveðinna kjósenda og sveiflu í könnunum. STUTT en snörp kosninga- barátta er háð í Reykjavík fyrir alþingiskosningarnar og hefur hún á sér annað yfirbragð en víðast hvar í lands- byggðarkjördæmum. Að sögn tals- manna einstakra framboða hefur umfang kosningaauglýsinga sjald- an verið meira þó að flokkamir leggi mismunandi mikið í auglýs- ingarnar. Náttúrulagaflokkurinn og Kristileg stjórnmálahreyfing auglýsa ekkert fyrir kosningarnar en hafa tekið þátt í einstökum framboðsfundum. Flest framboðin leggja mikla áherslu á einstaka markhópa í kosningabaráttunni, haldnir eru fundir með ákveðnum ------------- hópum kjósenda og fé- lagasamtökum í stað al- mennra framboðsfunda og frambjóðendur verja miklum tíma í vinnu- staðaheimsóknir, sem virðast fæ- rast í aukana að mati margra. Flestum ber saman um að áhugi kjósenda á kosningunum hafi verið fremur Iítill og er talað um að stjórnmálaleiða gæti meðal fólks en nokkrir viðmælendur voru hins vegar þeirrar skoðunar að kosn- ingabaráttan hefði verið málefna- legri og prúðmannlegri en oft áður. Kjósendur á kjörskrá í Reykja- vík eru nú 77.582 talsins eða 40,4% atkvæðisbærra Iandsmanna og hefur fjölgað um 4.171 frá kosn- ingunum 1991. Fyrir seinustu al- þingiskosningar var minnst kosn- ingaþátttaka í Reykjavík af kjör- dæmum landsins eða 86,1% sam- Kosningabar- áttan sögð málefnalegri anborið við 87,6% yfir landið allt. Alþingi samþykkti í vetur, að uppbótarþingsætum fjölgi um eitt í Reykjavík í næstu kosningum, verði fimm í stað fjögurra og fær- ist flökkusætið svokallaða til Reykjavíkur. Verða því kjörnir 19 þingmenn í komandi þingkosning- um í Reykjavík í stað 18 eins og í tvennum undanförnum kosning- um. Átta framboðslistar eru í kjöri samanborið við níu framboð í sein- ustu kosningum og átta árið 1987. Þeir sem bjóða fram nú eru Al- þýðuflokkur, Framsóknarflokkur, Sjálfstæðisflokkur, Alþýðubanda- lag og óháðir, Kvennalisti, Þjóð- vaki, Náttúrulagaflokk- ur íslands og Kristileg stj ómmálahreyfing. í desemberkosning- _____ unum 1979 fékk .Al- —” þýðuflokkurinn 17,8% atkvæða en féll niður í 10,8% árið 1983 þegar alþýðuflokksmenn fengu tvo menn kjöma í Reykja- vík. Við þær kosningar bauð Bandalagjafnaðarmanna, með Vil- mund Gylfason í fararbroddi, fram í Reykjavík og xékk 9,5% atkvæða og tvo menn kjörna. Vilmundur var áður þingmaður Alþýðuflokks- ins. A-listinn jók fylgi sitt í 16% árið 1987 og fékk þá þijá menn. Kosið var skv. nýjum kosningalög- um það ár og fjölgaði þingmönnum Reykjavíkur í 18. í seinustu kosn- ingum fór fylgi A-listans niður í 14,8% en hann hélt þó þremur mönnum inni í Reykjavík, þar af einum landskjömum þingmanni. Fylgi Framsóknarflokksins í Reykjavík hefur sveiflast vemlega undanfarinn aldarfjórðung eða frá 16,7% atkvæða árið 1974 niður í 9,4% árið 1983. Árið 1979 fengu framsóknarmenn 14,8% atkvæða í Reykjavík, fylgi flokksins fór í 9,4% 1983, 9,6% 1987 og var 10,1% í seinustu kosningum. Hefur Framsóknarflokkurinn fengið einn mann kjörinn í Reykjavík í þrenn- um seinustu þingkosningum. Sjálfstæðisflokkurinn fékk meirihluta atkvæða í þingkosning- unum í Reykjavík árið 1974 eða 50,1% og átta menn kjörna. Fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur yfirleitt verið á bilinu 39-46% í Reykjavík frá árinu 1978. í kosningunum 1983 fengu sjálfstæðismenn 42,9% atkvæða og sex þingmenn og í seinustu þingkosningum, árið 1991, 46,3% atkvæða og níu þing- menn. Árið 1987 féll hins vegar fylgi D-listans í 29% í Reykjavík en flokkurinn hélt þó sex þingsæt- um. Skýringin var einkum rakin til framboðs Alberts Guðmunds- sonar og Borgaraflokksins sem fékk 15% atkvæða í Reykjavík og 3 þingmenn kjöma í aprílkosning- unum 1987. Fylgi Alþýðubandalagsins hefur dregist nokkuð saman í Reykjavík í þrennum seinustu alþingiskosn- ingum. í kosningunum árin 1971 og 1974 var Alþýðubandalagið með um 20% atkvæða í höfuðborg- inni og 1978 fór fylgi flokksins upp í 24,4%. Árið 1983 fékk G-list- inn 19% atkvæða og þijá menn kjöma, 1987 fór fylgið niður í 13,8% og fékk Iistinn þá tvo þing- menn kjörna og í seinustu kosning- um nam fylgi flokksins 13,3%, sem dugði til að halda tveimur þingsæt- um. Kvennalistinn bauð fyrst fram í Reykjavík árið 1983 og fékk 8,4% atkvæða og tvo þingmenn kjöma. 1987 jók listinn fýlgi sitt verulega og fór í 14% atkvæða í höfuðborg- inni og fékk hann þá þijá þing- menn í Reykjavík en í seinustu kosningum, árið 1991, dalaði fylg- ið nokkuð þegar Kvennalistinn fékk 12% atkvæða en hélt þó sínum þremur þingfulltrúum, þar af voru tvö þingsæti jöfnunarsæti. Fyrir seinustu kosningar buðu eftirtalin stjórnmálasamtök fram í Reykjavík án þess að ná þingsæti: Fijálslyndir, Heimastjórnarsam- tökin, Grænt framboð og Þjóðar- flokkurinn - Flokkur mannsins. Samanlagt fylgi þessara framboða nam 3,6%. Ekkert þeirra býður fram í komandi alþingiskosning- um. Umtalsverðar breytingar hafa orðið á skipan efstu sæta fram- boðslistanna frá seinustu kosning- um. Jón Baldvin Hannibalsson ut- anríkisráðherra skipar efsta sæti á A-lista eins og í kosningunum 1991 en Össur Skarphéðinsson umhverf- isráðherra sem var í þriðja sæti síðast er nú í öðru sæti listans. Fyrir seinustu kosningar skipaði Jóhanna Sigurðardóttir alþingis- maður annað sæti á lista flokksins en hún skipar nú efsta sæti á fram- boðslista Þjóðvaka. Ásta B. Þor- steinsdóttir er í þriðja sæti á A-list- anum og er hún nýr frambjóðandi. Finnur Ingólfsson alþingismað- ur skipar efsta sæti á B-lista Fram- sóknarflokks eins og við síðustu kosningar en í öðru og þriðja sæti eru nýir frambjóðendur, þau Ólafur Örn Haraldsson og Arn- þrúður Karlsdóttir. Ásta R. Jóhannesdóttir, sem skipaði annað sæti á B- listanum fyrir seinustu kosningar, er nú í öðru sæti á lista Þjóðvaka í Reykjavík. Skipan þriggja efstu sæta á D-lista Sjálfstæðisflokks er óbreytt frá seinustu kosningum en þau skipa Davíð Oddsson forsætisráð- herra, Friðrik Sophusson fjármála- ráðherra og Björn Bjarnason al- þingismaður. í fjórða sæti er Geir H. Haarde alþingismaður sem var í sjöunda sæti síðast. Eyjólfur Konráð Jónsson alþingismaður, sem var í fjórða sæti fyrir kosning- arnar 1991, gefur ekki kost á sér í kosningunum 8. apríl. í fimmta sæti er Sólveig Péturs- dóttir alþingismaður en hún var í sjötta sæti fyrir seinustu kosning- ar þegar Ingi Björn Albertsson alþingismaður skipaði fimmta sætið á D-listanum. Ingi Björn er ekki í framboði að þessu sinni. í sjötta sæti á D-listanum er Lára Margrét Ragnarsdóttir alþingis- maður, sem skipaði áttunda sætið, síðast, og í sjöunda sæti Guð- mundur Hallvarðsson alþingis- maður sem skipaði níunda sætið við seinustu kosningar. í áttunda og níunda sæti eru nýir frambjóð- endur á D-lista til Alþingis en þeir eru Pétur H. Blöndal og Katr- ín Fjeldsted. Nokkrar breytingar hafa orðið á G-lista Alþýðubandalags og óháðra frá seinustu kosningum. Svavar Gestsson alþingismaður skipar áfram efsta sæti listans, en Guðrún Helgadóttir alþingis- maður sém var í öðru sæti síðast skipar nú fjórða sæti listans. I öðru og þriðja sæti nú eru nýir frambjóðendur þau Bryndís Hlöð- versdóttir og Ögmundur Jónasson. Sú breyting hefur orðið á V- lista Kvennalistans að efsta sæti skipar nú Kristín Ástgeirsdóttir alþingismaður sem var í þriðja sæti fyrir síðustu kosningar á eft- ir Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og Kristínu Einarsdóttur alþingis- manni sem eru ekki í framboði nú. í öðru sæti er Guðný Guð- björnsdóttir sem skipaði fimmta sætið síðast og í þriðja sæti Þór- unn Sveinbjarnardóttir, sem er ný á framboðslista. Guðrún J. Hall- dórsdóttir alþingismaður, sem var í fjórða sæti fyrir kosningarnar 1991, er nú í fimmta sæti á V-list- anum. Mörður Árnason, sem starfaði innan Alþýðubandalagsins áður en hann gekk til liðs við Þjóð- vaka, er í þriðja sæti á J-listanum á eftir Jóhönnu Sigurðardóttur og Ástu R. Jóhannesdóttur. Árni Björn Guðjónsson er í efsta sæti á K-lista Kristilegrar stjórn- málahreyfingar, Kristján Árnason í öðru sæti og Arnór Þórðarson í þriðja. Jón Halldór Hannesson er í efsta sæti á N-lista Náttúrulaga- flokksins, Örn Sigurðsson í öðru og Ingimar Magnússon í þriðja sæti. Atvinnumál, launamál, hús- næðismál, neytendamál og skatta- mál hafa verið efst á baugi í kosn- ingabaráttunni í Reykjavík sam- kvæmt upplýsingum framboðanna og eru það yfirleitt sömu mál og flokkarnir leggja áherslu á á landsvísu fyrir kosningarnar. Alls verður úthlutað 14 kjör- dæmisþingsætum í Reykjavík í komandi kosningum og fimm þingsætum eftir úrslitum á land- inu öllu. Mikil óvissa er um úrslit- in í Reykjavík þar sem skoðanak- annanir að undanförnu hafa sýnt miklar sveiflur á milli framboðs- lista og talsmenn framboðanna eru sammála um að hlutfall óá- kveðinna kjósenda virðist vera meira í Reykjavík en annars stað- ar. Framboðslisti þarf um 11% at- kvæða til að fá tvo kjördæma- kjörna menn en samkvæmt könn- un Félagsvísindastofnunar, sem birt var í fyrradag, ræðst það af úthlutun jöfnunarsæta hvort A- --------- lista, G-lista og J-lista tekst að ná þremur þingsætum hver flokk- ur. Framsóknarmenn _________ tapa fylgi í Reykjavík skv. könnuninni og fá 7,4% atkvæða, sem dugar aðeins til að fá eitt þingsæti, en af reynslu þingkosninga á undan- förnum árum að dæma á B-listinn ekki mikla möguleika á að blanda sér í átökin um úthlutun jöfnunar- sæta í Reykjavík. Kvennalistinn mælist nú méð 8,5% fylgi sem bendir til að geti orðið á brattann að sækja fyrir V-listann að ná inn tveimur þingmönnum. D-listinn missir fylgi frá seinustu kosning- um og fær 43,8% sem gæti þýtt að áttunda sæti listans verði bar- áttusætið en útkoma flokksins á landsvísu getur þó breytt mynd- inni þegar kemur að úthlutun jöfn- unarsæta. Fimm sæti eftir úrslitum áiandinu öllu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.