Morgunblaðið - 07.04.1995, Page 20
20 FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Reuter
Sjávarútvegsráðherrar funda
SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRAR
Evrópusambandsins funduðu í
gær um deilu ESB og Kanada á
grálúðumiðunum í Norður-Atl-
antshafi. Þessir þrír virðast vera
að ræða eitthvað annað en það
alvörumál. Hér eru fulltrúar
helztu fiskveiðiríkja ESB, þeir
Luis Atinza Serna frá Spáni og
Antonio Duarte Silva frá
Portúgal, á tali við Jean Puech,
sjávarútvegsráðherra Frakk-
lands og formann ráðherraráðs-
ins.
Liechtenstein-
búar kjósa um EES
Vaduz. Reuter.
IBUAR smáríkisins Liechtenstein
ganga í dag og á sunnudag til at-
kvæða um það hvort ijúfa beri tolla-
bandalagið við Sviss og gera ríkinu
þannig kleift að taka þátt í samn-
ingnum um Evrópskt efnahags-
svæði, sem samþykktur var í þjóð-
aratkvæðagreiðslu árið 1992.
Fyrstu tölur eru væntanlegar síð-
degis á sunnudag.
Fastlega er búizt við að meiri-
hlutinn greiði aðild með því að gera
EES-aðild ríkisins virka. Vegna
tollabandalagsins við Sviss gat Li-
echtenstein ekki uppfyllt skilyrði
EES-samningsins eftir að Sviss-
lendingar höfðu fellt samninginn í
þj óðaratk væðagreiðslu.
Einangrun ekki
ábyrgur kostur
í yfirlýsingu, sem ríkisstjórnin
sendi þeim 14.000 íbúum, sem hafa
kosningarétt, segir að „stjórnin —
og án efa meirihluti þjóðarinnar —
sjái ekki einangrun eða að Liechten-
stein fari sínar eigin leiðir sem
ábyrgan kost.“
Verði tillögur stjórnarinnar sam-
þykktar, mun Liechtenstein verða
fullgilt aðildarríki EES 1. maí. Um
leið mun ríkið, ásamt íslandi og
Noregi, taka þátt í stofnunum
EFTA, sem starfræktar eru vegna
EES, þ.e. eftirlitsstofnuninni og
dómstólnum.
ESB enginn „Dýrabær“
• JACQUES Santer, forseti fram-
kvæmdastjórnar ESB, sagði í
ræðu í Bonn á miðvikudagskvöld
að hann myndi leggjast gegn því
að ESB yrði einhvers konar
„Dýrabær“, þ.e. að „öll riki séu
jöfn en sum ríki verði jafnari en
önnur" og vísaði þar til skáldsögu
George Orwells. Santer vildi aug-
ljóslega gefa í skyn að réttindi
stærri ríkja yrðu ekki aukin á
kostnað þeirra smærri. Hann
sagðist myndu beita sér fyrir því
á ráðstefnunni að öll aðildarríki,
óháð landfræðilegri stærð, hefðu
sitt að segja í sambandinu.
• ALAIN Lamassoure, Evrópu-
ráðherra Frakka, tjáði Evrópu-
þinginu í gær að Tyrkir hefðu
fullvissað ESB um að þeir myndu
bráðlega kalla herlið sitt frá Norð-
ur-írak og að þeir hefðu gefið
formlegar tryggingar fyrir því að
ekki yrði ráðizt á óbreytta borg-
ara. ESB, ásamt íslandi og Nor-
egi, mótmælti hernaði Tyrkja í
írak á miðvikudag.
• FRAMKVÆMDASTJÓRN ESB
hefur lagt fram tillögur um víð-
tækt samstarf við nágrannaríki
Evrópu sunnan og austan við Mið-
jarðarhafið. Lagt er til að há-
punktur samvinnunnar verði
stofnun Efnahagssvæðis Evrópu-
og Miðjarðarhafsríkja árið 2010,
þar sem verzlun verði frjáls. ESB
ver nú stórum fjárhæðum til þró-
unaraðstoðar við Miðjarðarhafs-
ríkin, ekki sízt í þeim tilgangi að
draga úr áhrifum róttækra músl-
ima og tryggja stöðugleika.
• JACQUES Chirac, borgarsljóri
Parísar og forsetaframbjóðandi,
segir að nauðsynlegt geti reynzt
fyrir Frakkland að endurskoða
Schengen-samkomulagið, komi í
ljós að það hindri ekki ólöglega
innflytjendur í að komast til
Frakklands. Hann sagðist þó al-
gjörlega fylgjandi því að evrópski
draumurinn um afnám landamæra
fengið að rætast.
ESB lætur norskar
selveiðar óátaldar
Ósló. Morgunblaðið.
FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópu-
sambandsins gerir engar athuga-
semdir við selveiðar Norðmanna og
hefur engar ástæður til slíks, að því
er fram kom hjá framkvæmdastjóm-
armanninum Neil Kinnock í svari við
fyrirspurn á Evrópuþinginu á mið-
vikudag.
Ekki í útrýmingarhættu
Kinnock svaraði spurningu frá
Evrópuþingmanninum Viviane Red-
ing um það, hvaða skref fram-
kvæmdastjórnin hygðist taka til að
„hið villimannslega selkópadráp
Norðmanna yrði ekki hafið á ný.“
„Eins og þingmaðurinn mun vita, eru
hvorki vöðuselur né blöðruselur í
útrýmingarhættu," sagði Kinnock.
„Það leikur enginn vafi á að stofninn
þolir þá nýtingu, sem um er rætt.“
Hann benti á að Evrópusambandið
hefði verið fullvissað um að Norð-
menn myndu áfram banna selkópa-
veiðar í hagnaðarskyni.
Á þriðjudag vísaði forsætisnefnd
Evrópuþingsins frá ályktunartillögu
um fordæmingu á selvéiðum Norð-
manna. Það var þingflokkur frjáls-
lyndra, sem lagði tillöguna fram.
Ný bók um straum innflytjenda frá þriðja heiminum
Bandaríkin sögð
á glötunarbraut
Bandaríkin eru á glöt-
unarbraut vegna
straums innflytjenda
frá þriðja heiminum,
að því er haldið er fram
í bók Bretans Peters
_______________
Brimelows sem gefín
verður út á næstunni.
Höfundurinn segir að
stemmi bandarísk yfír-
völd ekki stigu við inn-
flytjendastraumnum
blasi við upplausn.
Höfundurinn rökstyður mál sitt
með upplýsingum sem eru líklegar
til að vekja ugg meðal Bandaríkja-
manna.
• Næstum 49% kambódískra inn-
flytjenda í Bandaríkjunum þiggja
opinbera framfærslustyrki.
• Útlendingar (menn sem hafa
ekki bandarískan ríkisborgararétt)
eru um fjórðungur allra fanga í
alríkisfangelsum.
• Konur, sem hafa komið til
landsins með ólöglegum hætti, ala
tvo þriðju hluta allra bama sem
fæðast á sjúkrahúsum Los Ange-
les-sýslu. Þegar börnin hafa fæðst
er ekki hægt að vísa konunum úr
landi og þær öðlast rétt til fram-
færslustyrkja.
• Talið er að þrír fjórðu 100.000
Nígeríumanna í Bandaríkjunum
séu viðriðnir skipulagða glæpa-
starfsemi, einkum kreditkortasvik,
tryggingasvik og heróínsölu.
Flúði ESB
Þetta er aðeins lítið sýnishorn
af upplýsingunum í bók Brime-
lows, „Alien Nation“, sem væntan-
leg er á markaðinn.
Brimelow fæddist í Englandi og
er því sjálfur innflytjandi. Hann
settist að í Bandaríkjunum árið
1979 og starfar nú sem blaðamað-
ur við Forbes Magazine. Samt hef-
ur hann gerst helsti málsvari „upp-
reisnar bandarískra heimamanna",
sem óttast að Bandaríkin stefni í
glötun verði innflytjendastraumur-
inn frá þriðja heiminum ekki stöðv-
aður þegar í stað.
Brimelow flutti fyrst búferlum
til Kanada árið 1970 vegna þess
að hann gat ekki hugsað sér að
búa í Bretlandi eftir aðildina að
Evrópusambandinu. „Eg taldi að
allt færi til fjandans eftir það.“
Nú eru það Bandaríkin sem verið
er að eyðileggja, að mati Bri-
melows.
12-13 milljónir á 10 árum
Árið 1991 komu 1,8 milljónir
innflytjenda til Bandaríkjanna,
FLÓTTAFÓLKI frá Kúbu bjargað úr bátum á leið til Florida. í
nýrri bók er því haldið fram að Bandaríkin séu á glötunarbraut
vegna straums innflytjenda frá Rómönsku Ameríku og Asíu.
þeirra á meðal flóttamenn og fólk
sem fékk dvalarleyfi eftir að hafa
komist til landsins með ólöglegum
hætti. Árið 1990 var þessi fjöldi
1,5 milljónir.
Aðeins 10% löglegu innflytjend-
anna koma frá Evrópu og á meðal
þeirra er fólk frá þriðja heiminum
sem flutti frá Evrópu til Bandaríkj-
anna.
Innflytjendurnir koma langflest-
ir frá Mexíkó, næst koma Filipps-
eyjar, þá Víetnam, E1 Salvador,
Kína o.s.frv.
Bandarísk yfirvöld áætla að alls
verði innflytjendurnir á þessum
áratug 12-13 milljónir. Nokkrir
sérfræðingar bæta reyndar við 18
milljónum. Búist við að um milljón
löglegra og 300.000 ólöglegra inn-
flytjenda komi til Bandaríkjanna í
ár.
Einsdæmi í
veraldarsögunni
Brimelow segir að ekki sé langt
síðan innflytjendastraumurinn
hófst. Árið 1950 hafi 90% Banda-
ríkjamanna verið hvítir, flestir
hinna blökkumenn. Á þessum tíma
hafi verið tveir kynþættir í Banda-
ríkjunum.
Höfundurinn segir að þetta hafi
breyst mjög fljótt. Árið 1990 hafi
hvítir menn verið komnir niður í
75,6%. Bandarísk yfirvöld áætla
að hvítir verði aðeins 51% íbúanna
árið 2050.
Þetta merkir að á ýmsum svæð-
um verða hvíta fólkið í minnihluta.
Sú er þegar orðin raunin á svæðum
Kúbumanna í Florida og innflytj-
enda frá Mexíkó og E1 Salvador í
Suður-Kaliforníu. Höfundurinn
segir að slíkum innflytjendasvæð-
um, með sitt eigið tungumál, eigi
eftir að fjölga. Að mati Brimelows
getur þetta aðeins leitt til eins:
Að Bandaríkin liðist í sundur.
„Það eru engin dæmi um að
sjálfstætt ríki gangi í gegnum svo
hraðar og róttækar þjóðernislegar
breytingar í allri veraldarsögunni,"
segir Brimelow.
Innflytjendum
verði fækkað
Brimelow vill að bandarísk yfir-
völd herði eftirlitið við landamærin
að Mexíkó til að hindra að fólk frá
Rómönsku Ameríku komist til
landsins. Þá vill hann að innflytj-
endalöggjöfinni frá árinu 1965
verði breytt þannig að afnumið
verði ákvæði um að ættingjar inn-
flytjenda geti fengið dvalarleyfi í
Bandaríkjunum.
Höfundurinn leggur til að aðeins
vel menntað fólk og hæfileikamenn
fái að flytjast frá þriðja heiminum
til Bandaríkjanna. Að öðru leyti
verði miðað við það að fá fólk frá
lýðræðisríkjum í „fyrsta heimin-
um“, helst Evrópu.
Brimelow hefur verið sakaður
um kynþáttafordóma en vísar því
algjörlega á bug. Hann segir að
fijálslynd öfl, sem móti skoðanir
almennings, hafi rangtúlkað sögu
Bandaríkjanna á þann veg að þau
hafí alltaf verið opin fyrir fátæku
og kúguðu fólki í öllum heiminum.
Hann segir að Bandaríkin hafi
blómstrað vegna þess að þar hafi
búið ein þjóð, sem fléttast hafí
saman af ólíkum þjóðernum og
menningarheimum og sameinast.
Á tímum frelsisbaráttu bresku ný-
lendnanna á austurströndinni hafi
fólk af breskum uppruna verið í
meirihluti meðal hvítra og 98%
hafi verið mótmælendur.
Bretar og bresk menning hafi
enn verið allsráðandi í Virginíu og
Massachusetts 200 árum eftir
landnámið þar. Að vísu hafi mikill
fjöldi kaþólikka frá Suður- og
Áustur-Evrópu samlagast mót-
mælendunum en því fari fjarri að
Bandaríkin geti storkað pólitískum
þyngdarlögmálum til eilífðar.
Heimild: The Daily Telegraph.
Sjávarútvegsráðherra Noregs
Hrefnustofninn ekki ofmetinn
Ósló. Rcuter.
BJARNE Myrstad, sjávarútvegsráð-
herra Noregs, sagði í gær að ekki
væri rétt að Norðmenn hefðu ofmet-
ið stærð hrefnustofnsins í Norðaust-
ur-Atlantshafí, eins og umhverfís-
vemdarsamtökin Greenpeace hafa
haldið fram.
Norðmenn segja að um 86.700
hrefnur séu á svæðinu og nógu marg-
ar til að réttlæta veiðar á 300 hrefn-
um í ár ^ins og ákveðið hefur verið.
Greenpeace segir að aðeins 60.000
hrefnur séu í NA-Atlantshafi.
Myrstad sagði að komið hefðu
fram villur í tölvuforriti við útreikn-
ing á stærð stofnsins. Erlendir vís-
indamenn hefðu hins vegar farið yfir
nýjan útreikning Norðmanna og
staðfest að villurnar hefðu ekki
breytt niðurstöðunni að ráði.
„Nýju tölurnar verða lagðar fyrir
fund vísindanefndar Alþjóðahval-
veiðiráðsins í Dublin 8. maí,“ sagði
Myrstad. „Talan 60.000 er alröng.“
*
\
i
i
\
>
I
I
>
I
)
)
i
i
\
I
i
i
I
r