Morgunblaðið - 07.04.1995, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 1995 23
Hart bar-
ist í Bosníu
TALSMENN friðargæsluliðs
Sameinuðu þjóðanna í Bosníu
skýrðu frá því í gær að bardag-
ar hefðu færst mjög í aukana
í norður- og miðhluta landsins.
Her stjórnvalda múslima í
Sarajevo reynir enn að ná
Stolice-fj arskiptastöðinni
skammt frá Tuzla af Serbum
óskaddaðri. Stórveldin reyna
enn að fá deiluaðila til að fram-
lengja vopnahlé en þær tilraun-
ir hafa ekki tekist.
Engar vís-
bendingar
um sprengju
ELIO di Rupo, samgöngumála-
ráðherra Belgíu, sagði í gær
að engar vísbendingar hefðu
fundist um að sprengja hefði
grandað Airbus-þotunni, sem
hrapaði í Rúmeníu í síðustu
viku. Allir í þotunni, 60 manns,
biðu bana, flestir farþeganna
voru Belgar.
Lýsi og
fiskur holl
BRESKIR vísindamenn, sem
kanna áhrif fitusýra á fólk,
segjast hafa fundið sannanir
fyrir því að iýsi geti hindrað
hjartasjúkdóma og dregið úr
ýmsum öðrum kvillum. Einnig
segja þeir að fiskneysla sé afar
hóll barnshafandi konum og
komi sér vel fyrir þá sem geng-
ist hafa undir nýmaígræðslu.
Lettar taka
við flóttafólki
MARIS Gailis, forsætisráðherra
Lettlands, sagði í gær að landið
myndi láta undan alþjóðlegum
þrýstingi og taka við rúmlega
100 flóttamönnum frá Miðaust-
urlöndum sem hafa verið á fiæk-
ingi milli Lettlands og Rússlands
um nokkurra mánaða skeið.
Afneitar
tengslum við
sértrúarhóp
DALAI Lama, útlægur leiðtogi
Tíbeta í andlegum sem verald-
legum efnum, vísar því á bug
að forsprakki
sértrúarhóps-
ins Aum
Shinri Kyo,
sem grunað-
ur er um eit-
urgasmorð í
járnbrautar-
lestum
Tókýó, hafi
verið læri-
sveinn sinn. Dalai Lama kveðst
hafa hitt manninn, Shoko Asa-
hara, einu sinni og fundist að
hann hefði meiri áhuga á upp-
byggingu safnaðar síns en trú-
málum.
Dalai Lama
Aðstoða
Grænhöfða-
eyjar
PORTÚGÖLSK stjórnvöld hafa
orðið við ósk ráðamanna á
Grænhöfðaeyjum um neyðarað-
stoð vegna eldgossins á eyjunni
Fogo. Hraunstraumurinn er
orðinn um sex km langur og
um 1.000 manns hafa orðið að
yfirgefa heimili sín. Beðið hefur
verið um tjöld, matvæli og lyf,
Portúgalar senda einnig sex
vísindamenn á staðinn.
ERLENT
Ahyggjur af sölu á rússneskum kjarnakljúf til klerkastj órnarinnar í Iran
Clinton Bandaríkjaforseti segist
viss um að lausn muni finnast
Washington. Reuter.
BILL Clinton, forseti Bandaríkjanna,
segist viss um að geta leyst deilu
Bandaríkjastjórnar og stjórnarinnar
í Moskvu um sölu á kjarnakljúf til
írans en allt er þó á huldu um hvað
hann hyggst fýrir. Ráðgjafar Clint-
ons í öryggismálum hafa lagt til, að
settar verði hömlur á olíukaup
bandarískra fyrirtækja frá íran og
jafnvel bönnuð alveg.
Clinton sagði á fréttamannafundi
með John Major, forsætisráðherra
Bretlands, í Washington á þriðju-
dagskvöld að ekki væri óeðlilegt þótt
upp kæmi ágreiningur með Rússum
og Bandaríkjamönnum öðru hveiju
en sagðist viss um; að úr því mætti
leysa. Á mánudag tilkynntu Rússar,
að þeir ætluðu að selja írönum
kjamakljúf en Bandaríkjastjórn ótt-
ast, að hann megi nota til kjarna-
vopnasmíði.
Clinton sagði, að enn væri verið
að ræða við Rússa um þetta mál og
sumir embættismenn gáfu í skyn,
að hugsanlega fyndist einhver mála-
miðlun.
Bandaríkjamenn meðal
stærstu kaupenda
Helstu öryggisráðgjafar Clintons
hafa lagt fyrir hann tillögur um, að
dregið verði verulega úr olíukaupum
bandarískra fyrirtækja í íran eða þau
jafnvel bönnuð. Bandarísk fyrirtæki
eru meðal stærstu kaupenda írana
og er það löglegt ef þau selja olíuna
utarilands.
Á fundinum með Major sagði Clin-
ton einnig, að hugsanlega væm írak-
ar að verða færir um að framleiða
gjöreyðingarvopn og af þeim sökum
kæmi ekki til greina að afnema refs-
iaðgerðir gegn þeim.
« J «
Sherwood
MEIRIBASSI
MAGNARI
2x60W • 240W P.M.P.O
Matrix Surround • Extra bassi ofl.
ÚTVARP
30 stöðva minni FM/MW • Klukka
„Smart Program" minni
KASSETTUTÆKI
Auto Reverse, Dolby B
High Speed Dubbing ofl.
DEISLASPILARI
1 bita og 8x oversampling
20 laga minni ofl.
FULLKOMIN FJARSTÝRING
sem stýrir öllum aðgerðum
.Rétt verð 63.900
Heimilistæki hf
SÆTÚN 8 SÍMI 569 1500
Umboðsmenn um land allt
[M
TIL ALLT AÐ 36 MÁNAÐA