Morgunblaðið - 07.04.1995, Síða 41

Morgunblaðið - 07.04.1995, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ AÐSEIMDAR GREINAR PÖSTUDAGUR 7. APRÍL 1995 41 Skammsýní og skemmdarverk Kosningar og lýðræði Mikilvægi forvama Forvarnir og heilsu- efling gegna mikil- vægu hlutverki til að bæta heislu og líðan almennings og til að ná fram spamaði í heilbrigðis- og al- mannatryggingakerf- inu. Þetta á einkum við um langvinna sjúk- dóma eins og hjarta- og æðasjúkdóma, krabbamein, gigtar- og stoðkerfissjúk- dóma, geðsjúkdóma, sykursýki og slys. Er talið að rekja megi 41-69% allra dauðsfalla til þekktra áhættuþátta eins og reykinga, mataræðis, áfengis, hás blóðþrýst- ings, mengunar, ávana- og fíkni- efnaneyslu o.fl. Tíðni eins eða fleiri áhættuþátta er há á íslandi eða 72% meðal kvenna og 62% meðal karla. Til að ná sem mestum ár- angri eru samhæfðar forvarnir hagkvæmastar. Þær þurfa að ná til þjóðarinnar allrar. Þær þurfa að ná til lífsstíls- og atferlisbreyt- inga fólks og nauðsynlegra efna- hags- og félagslegra stoðaðgerða. Margt bendir til þess, segir Hrafn Vestjförð Fríðriksson, að mikil- vægt forvarnastarf fyrri ára sé í hættu. Þar skiptir miklu stjórnvaldsað- gerðir og ákvörðunartaka stjóm- valda ef vel á að takast til. Alþjóðlegt hneyksli Sem fræðigrein eru forvarnir tiltölulega ung grein. Reynsla þjóða af forvarnaraðgerðum hefur einnig verið misgóð. Skiptir þá miklu að famar séu leiðir sem skila sem mestum árangri með sem minnstum tilkostnaði. Til að nálg- ast þessi markmið og um leið taka á þeim þætti forvarna sem er án landamæra stofnaði Alþjóðaheil- brigðismálastofnunin til sérstaks samstarfsverkefnis „um forvarnir langvinnra sjúkdóma" sem ísland gerðist aðili að árið 1984. Samn- ingurinn var til aldamóta árið 2000. Verkefnið fékk síðar nafnið „CINDI“ og eru þátttökulönd um eða yfir tveir tugir í Evrópu og Norður-Ameríku. Heilbrigðisráð- herra, Sighvatur Björgvinsson, sagði þessum samningi upp ein- hliða haustið 1992. Það var gert án nokkurs samráðs við þá aðila sem unnið höfðu að forvörnum inn- anlands eða á alþjóðavettvangi þau átta ár sem samstarfið varði. Sam- tímis var staða yfirlæknis í ráðu- neytinu lögð niður en hann var meðal annars verkefnisstjóri inn- anlands og fulltrúi íslands í al- þjóðasamstarfmu. Starf þessara aðila innanlands, sérhæfð þekking og reynsla var að engu gert með vanhugsaðri ákvörðun heilbrigðis- ráðherra. Þetta voru mikil mistök að mati framkvæmdastjóra skrif- stofu Alþjóðaheilbrigðismálastofn- unarinnar í Kaupmannahöfn. Stofnunin og samstarfsríki verk- efnisins voru sett í vanda. ísland er eina ríkið sem sagt hefur sig undan samningnum og er það því verra að landið hefur notið virðing- ar sem fyrirmyndarríki á mörgum sviðum heilbrigðismála. Voru full- trúar samstarfslandanna mjög slegnir þegar þeir fregnuðu af ákvörðun heilbrigðis- ráðherra, sem greini- lega hefur engan áhuga á alþjóðasam- vinnu í heilbrigðismál- um. Hann hefur heldur engan skilning á mikil- vægi forvarna eða því starfi sem innlendir og erlendir aðilar hafa unnið að árum saman. Annað verður ekki skilið af svari hans til Læknafélags íslands er hann segir að fagleg ástæða þess að hann sagði upp samningn- um væri: „Að áfram-- hald verkefnisins skili engu mælanlegu gagni fyrir for- varnastarf á íslandi og það muni ekki breyta neinu um stöðu for- varnamála að leggja verkefnið nið- ur.“ Faglegt mat á verkefninu fór ekki fram og er yfirlýsingin órök- studd. Hún lýsir hins vegar yfir- gengilegum hroka ráðamanna og lítilsvirðingu við það starf sem unnið hafði verið í forvömum. Skömmu eftir að heilbrigðisráð- herra sagði upp þessu alþjóða- samningi, sem meðal annars tók til samstarfs við Eystrasaltsríkin, sérstaklega Litháen, fór utanríkis- ráðherra á fund Sameinuðu þjóð- anna í Nevv York meðal annars til að bjóða Eystrasaltsríkjunum að- stoð íslands! Hvernig á að skilja siðferði íslands í samskiptum við aðrar þjóðir þegar þannig er staðið að verkum? Eftir þetta lágu sam- skipti ráðuneytisins við Alþjóða- heilbrigðismálastofnunina mikið til niðri. Stofnunin skrifaði ráðuneyt- inu jtrekað og bauð meðal annars að ísland gæti tekið þátt í sam- starfinu sem „aukaaðili“ og þá án fjárskuldbindinga. Allt kom fyrir ekki og svaraði ráðuneytið ekki einu sinni bréfum stofnunarinnar. Framkvæmdastjóri skrifstofu Al- þjóðaheilbrigðismálastofnunarinn- ar í Kaupmannahöfn átti annað erindi til Islands í júní í fyrra og notaði þá tækifærið til að koma samskiptum stofnunarinnar og ís- lands í eðlilegt horf með viðræðum við heilbrigðisráðherra. Ekki skal spáð um árangur. Hitt er víst að framkvæmdastjórinn sýndi já- kvæðan vilja sinn meðal annars með því að ráða einn af varaþing- mönnum Alþýðuflokksins til starfa á stofnun sinni nokkru seinna. Niðurskurður til forvarna í íjárlögum fyrir árið 1995 eru 46,2 milljarðar til heilbrigðis- og tryggingamála. Hlutur forvarna (1. og 2. stigs) af þessari upphæð er aðeins um 0,5% eða um 230 milljónir. Tryggingamál taka mest eða 58,1%, sjúkrastofnanir 35,6%, heilsugæslustöðvar 3,7% og aðal- skrifstofa heilbrigðisráðuneytisins um 0,3%. Eins og sjá má munar minnstu um spamað í forvarna- málum miðað við aðra málaflokka þegar á heildina er litið. Að draga úr framlagi til 1. stigs forvarna sem fær aðeins 0,1% af heildar- framlaginu er óskiljanlegt. Er fróð- legt að skoða hvemig raunkostnað- ur þessara málaflokka hefur þróast miðað við árið 1991 og verðlag ársins 1994. Niðurstöður ríkis- reikninga árin 1991-1993 og fjár- laga árin 1994-1995 eru notaðar. Yfir tímabilið 1991-1995 jókst rekstrarkostnaður aðalskrifstofu ráðuneytisins um 30% eða 38,9 milljónir en launakostnaður hennar um 24,1% eða 16,3 milljónir. Til samanburðar minnkuðu framlög til forvarna langvinnra sjúkdóma (1. og 2. stigs forvarnir) um 97,4 milljónir eða 38,7% yfir sama tíma- T1 Hrafn Vestfjörð Friðriksson bil. Til smitsjúkdóma- og farsótta- vama minnkaði framlagið um 21,3 milljónir eða 36,3%. Langmest er þó skerðingin til 1. stigs forvarna langvinna sjúkdóma eða 71,2% eða um 35,4 milljónir. Ef litið er á sérhæfð viðfangsefni sést að sam- eiginlegt framlag til Afengisvarn- aráðs, Tóbaksvarnanefndar og Manneldisráðs minnkaði um 22,6 milljónir eða 69,1%, til Krabba- meinsfélags íslands um 118,8 milljónir eða 91,3% og til Hjarta- verdar um 2,6 milljónir eða 19,8%. Með öðmm orðum hafa framlög til forvama- og sjúkdómaleitar verið ótæpilega skorin niður á meðan aðalskrifstofa ráðuneytisins hefur fengið meira til sín. Lýst eftir forvarnarstefnu Margt bendir til þess að mikil- vægt starf og árangur'í forvömum liðinna ára sé nú í hættu. Af mik- illi skammsýni hefur verið ótæpi- lega dregið úr íjárveitingum til þessa málaflokks sem þó hefur ætíð lítið fengið miðað við aðra málaflokka. Öllu alvarlegra er þó að svo virðist sem heilbrigðisyfír- völd séu stefnulaus í þessum mál- um. Það gengur ekki og mun færa árangur í heilbrigðismálum aftur um áratugi. Setja þarf fram stefnu- mörkun og markmiðssetningu í for- vömum og samræma skipulag og framkvæmd þessa málaflokks. Til þess þarf að ætla meira fjármagn til forvama en nú er reyndin. Mál- tækið „Oft veltir lítil þúfa þungu hlassi" lýsir vel mikilvægi forvama. Höfum það í huga. Höfundur er fyrrverandi yfirlæknir í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuncyíinu og skólayfirlæknir. SENN verður molum lýðræðis kastað fyrir lýðinn í formi atkvæða- seðla sem fær fólk til að trúa því að valdið sé þar, sem það svo sannarlega ekki er. Og lýðræðið. Það minnir stundum á gleðikonu sem þrælar á markaði, en kaupir uppeldi bama sinna fyrir peninga og heimsækir þau aðeins þegar hún tekur sér frí frá störfum á fjögurra ára fresti. Og þótt að við verka- menn vitum þetta vel, kemur alltaf svolítill fiðringur í okkur og eftir- vænting, þegar mamma kemur í heimsókn með allskonar gjafabréf upp á vasann. Inní hringnum Á fyrstu árum aldarinnar byrjaði launafólk að þjappa sér saman, stofna verkalýðsfélög og bestu menn þess komust jafnvel á þing fyrir alþýðuflokkana sem þá stóðu undir nafni. Vinnulöggjöf var fest í sessi og skylduaðild að verkalýðs- Pólitísk forysta Alþýðu- bandalagsins hefur brugðist, segir Jóhann Eiríksson, sem beinir sjónum til Þjóðvaka. félögum spomaði við því að at- vinnurekendur gætu gert fólk vinnulaust fyrir sakir stéttvísi sinnar einnar. í fáum orðum sagt hagaði íslensk alþýða sér eins og sauðnautin á sléttum N-Ameríku sem mynduðu vamarhring til þess að mæta árásum varga og villidýra. Og inni í þessum varnarhring launa- fólks var lýðræðið eða a.m.k. sá hluti þess sem skipti mestu máli. Þegar ég var að koma út á vinnu- markaðinn um miðjan sjötta ára- tuginn vom stóm tarfarnir í sósíali- staflokknum og síðar Alþýðubanda- laginu ystir í vamarhringnum og á næstu ámm unnust stórir sigrar og hreyfíng alþýðunnar var hnar- reist og stolt. En tarfarnir gömluð- ust. Hinir ungu tarfar Alþýðu- bandalagsins hafa aðrar áherslur, vilja ekki standa ystir í vamar- gr hring, heldur vera fremstir í röð og hirða lítt um þótt vargar éti úr röðinni og öryggi göngumanna ger- ist ótryggt. Og hver getur láð há- lærðum stjórnmálafræðingum og lögfræðingum Alþýðubandalagsins að nenna ekki að berjast fyrir „lág- stéttafólk“ sem hefur ekki dug til að gera það sjálft. Þetta er mér löngu ljóst orðið en samt finnst mér að pólitísk forusta míns gamla flokks hafí bmgðist. A akri lýðræðisins Já, lýðræðið er sannarlega víð- lendur akur og nú stendur einmitt þannig á að nýr frjóangi hefur skot- ið rótum á mörkinni. Og nú verður kynlegur þytur og styr meðal hinna jurtanna sem fyrir em, stjómmála- flokkamir em skyndilega sammála. Þeim líst illa á Þjóðvaka og bölvan- lega líst þeim á Jóhönnu og hún fær bara fjandans flökkufylgi og vand- lætingin er sólstafir hinna öldnu flokka. Allir stunda flokkamir þó trúboð og vonast til að ná fylgi hver af öðmm, sem þá heitir að • skipta um skoðun og er gott og ; heilbrigt, enda er Össur til vitnis ‘ um það, en Þjóðvaki — íjárans i flökkufylgi. Staðreyndin er hins vegar sú að Þjóðvaki er eina stjóm- J málaaflið sem lofar því að beita sér * fyrir minni launamun og kannski * getum við aftur farið að mynda í varnarhring gegn árásum varga og ' villidýra. Og kominn tími til. Höfundur er leigubílstjóri. Signr sjómanna í þremur hagsmunamálum HAGSMUNIR sjómanna í mikil- vægum baráttumálum hafa verið tryggðir með markvissum vinnu- brögðum stjórnarliða og ríkisstjórn- ar Davíðs Öddssonar, en hér vil ég sérstaklega nefna kaup á fullkomn- ari björgunarþyrlu, tryggingu sjó- mannaafsláttar og endurgreiðslu sem nemur virðisaukaskatti á flot- vinnugalla, en í því er fólgin mikil hvatning til sjómanna um aukna notkun flotvinnugalla. Nýja björgunarþyrlan senn tilbúin Ný björgunarþyrla sem kostar tæplega milljarð króna kemur til landsins í næsta mánuði, en þyrlu- áhafnir Landhelgisgæslunnar hafa um nokkurt skeið verið að þjálfa sig fyrir Super Puma-þyrluna í Frakk- landi. Við stjórnarliðar, sem beij- umst fyrir öryggi sjómanna sérstak- lega, lofuðum því fyrir síðustu kosn- ingar að fullkomnari þyrla yrði keypt. Gengið var frá kaupum á síð- asta ári að vel athuguðu máli, því bæði þurfti að gera ítarlega úttekt á starfsemi Landhelgisgæslunnar og samanburðarathugun á ýmsum þyrl- um sem eðlilegt er þegar ráðist er í svo dýra fjárfestingu. Málið er í höfn. Loforðið hefur verið efnt. Sigur sjómanna í deilunni um sjómannaafsláttinn í fersku minni er slagurinn sem var tekinn um sjómannaafsláttinn, sem lengi hafði verið deilumál, ekki síst vegna þess að allt of margir „landkrabbar" nutu hans án þess að eiga raunverulegan rétt á skattaafslættin- um. Við stjórnarsinnar tókum harðan slag til varnar sjómanna- afslættinum, lokuðum götunum og útkoman varð mun skilvirkari greiðsla til sjómanna sem áttu að njóta af- sláttarins. Eftir fyrsta árið með nýja fyrir- komulaginu sáu sjó- menn svart á hvítu að sj ómannaafslátturinn hafði raunverulega hækkað vegna betri skilvirkni í kerfinu og annað árið með nýja kerfínu hefur staðfest það svo óyggjandi er að kerfíð nýtist eins og til er ætlast. Endurgreiðsla jafnvirði virðisauka af flotvinnugöllum Meirihluti fjárlaganefndar Al- þingis ákvað við afgreiðslu fjárlaga fyrir árið 1995 að endurgreiddur skyldi virðisaukaskattur af flot- vinnugöllum fyrir sjómenn. Félög sjómannskvenna víða um land börð- ust á sínum tíma fyrir niðurfellingu virðisauka af þessum öryggisbúnaði fyrir sjómenn og'með afgreiðslu Álþingis á fjárlagafrumvarpinu og skilgreiningu formanns fjárlaga- nefndar, Sigbjörns Gunnarssonar, í ræðu formanns um afgreiðslu máls- ins á ákveðnum lið fjárlaga, þá er málið í höfn. Nú er aðeins eftir að útfæra reglurnar, en framkvæmdin mun taka gildi á árinu. Á sérstökum lið fjár- laga er gert ráð fyrir endurgreiðslum á virðisauka af ýmsum búnaði björgunarsveita og endurgreiðslan til sjómanna á flotvinnug- öllum er vistuð á þeim lið. Ég tel einboðið að forustumenn björgun- arsveitanna munu fagna því mjög að tekin hefur verið ákvörðun j um þetta átak til þess l að hvetja til notkunar flotvinnugallanna, en < við það er miðað af hálfu fjárlaganefndar | að fullt tillit verði tekið til aukins fjármagns á þennan lið um leið og skýrist í hvaða farvegi umfangið er. Til þess er ætlast að fjármálaráð- Málið er í höfn, segir Ami Johnsen, loforðið hefur veríð efnt. herra hrindi málinu í framkvæmd hið fyrsta. Málið er í höfn, loforðið hefur verið efnt af hálfu stjórnarliða sem lofuðu framgangi þess á kjör- tímabilinu. Ástæða er til að þakka öllum þeim mörgu sem lagt hafa þessum málum mikla liðveislu svo trygging fengist fyrir framgangi þeirra. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurlandskjördæmi. Arni Johnsen

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.