Morgunblaðið - 07.04.1995, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 1995 51
MINNINGAR
MARGRET
ERLINGSDÓTTIR
+ Margrét Erl-
ingsdóttir
fæddist á Geita-
bergi i Svínadal
hinn 12. júní 1906
og lést á Droplaug-
arstöðum 29. mars
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
hjónin Erlingur Ól-
afsson og Auðlín
Erlingsdóttir. Hinn
13. desember 1930
giftist hún Bótólfi
Sveinssyni, f. 17.6.
1900. Þau bjuggu
allan sinn búskap í
Breiðholti v/Laufásveg í
Reykjavík. Börn þeirra eru: 1)
Erla, f. 19.5.1931, maki hennar
er Guðmundur Kristleifsson,
þau eiga fjögur börn. 2) Sól-
veig, f. 19.5. 1935, sambýlis-
maður hennar er Guðmundur
Helgason. Hún á þijú börn. 3)
Fjóla, f. 2.10. 1936, maki henn-
ar er Ólafur Gíslason og eiga
þau tvær dætur. 4) Erlingur,
f. 25.2. 1942, maki hans er
Guðrún Ólafsdóttir, þau eiga
tvær dætur.
Margrét verður jarðsungin
frá Fossvogskirkju í dag og
hefst athöfnin kl. 15.00.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta
skalt.
(V. Briem.)
Margrét Hrefna
og Hafdís.
Ástkær langamma
okkar er nú látin. Hún
var alltaf svo hlý og
elskuleg við okkur
systkinin allt þar til
hún kvaddi. Er við heimsóttum hana
og langafa í Breiðholtið v/Laufás-
veg var tilhlökkunin mikil því þá
komst maður svo að segja í sveit-
ina. Þar var heyjað, farið á hest-
bak, hlaupið síðan inn til ömmu og
var hún þá ávallt búin að leggja
einhverjar kræsingar á borð. Hún
amma átti við erfíð veikindi að
stríða en hefur nú fengið hvíldina.
Það er alltaf svo sárt að kveðja en
við vitum að hún er enn hjá okkur
og einhvern tímann munu leiðir
okkar liggja saman á ný. Elsku
amma, hafðu þökk fyrir allt sem
þú gerðir fyrir okkur og við biðjum
Guð að styrkja afa í sinni sorg.
Mitt kærasta yndi, við kveðjum þig nú
með klökkvandi saknaðar tár,
með þökk fyrir allt, sem okkur varst þú,
og ennþá skalt okkur verða,
þótt líkaminn ljúfi sé nár.
Nú fagni Guð þér og geymi þig vel
og gefi þér blómin sín.
í Drottins hendur minn dýrgrip ég fel.
hann deyfi eggjarnar sáru.
Svo lif þú þar lífið ei dvín.
(Hannes Hafstein)
Fjóla Rún, Ólafur Már, Gylfi
Þór og Einar Líndal, Lovísa
Dögg og Harpa Dögg.
í DAG kveðjum við elskulega ömmu
okkar. Ótal minningar renna í gegn-
um hugann á þessari stundu. Minn-
ingar um þær góðu stundir sem við
áttum hjá ömmu og afa á heimili
þeirrá í Breiðholti og í sveitinni
uppi á Kjalanesi og allar réttarferð-
irnar. Það var ósjaldan sem við
fengum að gista í stofunni hjá þeim,
og þá var alltaf skriðið upp í hjóna-
rúm á morgnana til afa og amma
færði okkur síðan morgunkaffíð.
Alltaf var amma komin á ról á
undan öllum öðrum, búin að taka
upp úr kartöflubeði, snúa flekk eða
gefa hænsnunum sínum. Alltaf var
til heitt á könnunni og kökur á
borðum. Fram á síðustu stundu
hugsaði hún um að enginn færi án
þess að fá í svanginn og kaffisopa.
Hún amma var trúuð kona og
kenndi okkur fyrstu bænirnar og
minnti okkur ávallt á að fara með
þær fyrir svefninn. Æskustöðvarn-
ar áttu sterk ítök í ömmu og hún
sagði okkur oft frá uppvexti sínum
þar. Til dæmis sagði hún frá því
er hún veiddi með hrífuskafti fyrir
veiðistöng og títuprjón sem öngul.
Amma var traust, gjafmild og mjög
gjóðhjörtuð kona og vildi öllum það
besta einkum þeim sem minna
máttu sín. Síðustu árin átti hún við
veikindi að stríða. Því stríði er nú
lokið og hefur hún nú fengið hvíld.
Við kveðjum þig amma með sökn-
uði og þökkum allar þær yndislegu
minningar sem þú skilur eftir í
hjörtum okkar. Við biðjum Guð að
styrkja þig, elsku afí, í sorginni og
um ókomna framtíð.
t
Ástkær bróðir okkar,
EYMUNDUR SVEINSSON
frá Stóru-Mörk,
sem lést 30. mars sl., verður jarðsunginn frá Stóradalskirkju laug-
ardaginn 8. apríl kl. 13.00.
Bílferð verður frá Umferðarmiðstöðinni kl. 10.00.
Guðrún Sveinsdóttir,
Sigfús Sveinsson,
Pálma Sveinsdóttir.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför ástkærrar
móður okkar og dóttur,
BERGRÚNARANTONSDÓTTUR,
Nónhæð 2,
Garðabæ.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ragnheiður Kristín Sigurðardóttir, Sváfnir Már Steinsson,
Jarþrúður Pétursdóttir, Anton Lfndal Friðriksson.
t
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug
vegna andláts
MARGRÉTAR JENSDÓTTUR.
Guðrún Einarsdóttir, Steingrímur Gautur Kristjánsson,
Kristján Einarsson, Gunnhildur Kristjánsdóttir.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
í
Herrahártoppar
Herrahárkollur
B SÉRLEGA STERKUR
OG FALLEGUR ÞRÁÐUR
is PANTIÐ EINKATÍMA
R RÁÐGJAFI Á STAÐNUM
Hár:x.
Ðpryði
V m y Sérvcrslun
Borgarkringlunni,
sími 32347.
Birting afmælis- og
minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar end-
urgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjóm blaðsins í Kringl-
unni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akur-
eyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi í númer
691181. Það eru vinsamleg tilmæli blaðsins að lengd greinanna fari
ekki yfir eina og hálfa örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega
línulengd — eða 3600-4000 slög. Greinarhöfundar eru beðnir að
hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar
greinar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmæl-
isfréttir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent-
uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tví-
verknað.
Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu
tali eru nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og
Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem
sýndu okkur samúð, vináttu og marg-
háttaðan stuðning í veikindum og við
andlát og útför ástkærrar eiginkonu
minnar, móður okkar, dóttur og systur,
ELÍNRÓSAR HELGU
HARÐARDÓTTUR,
Móasíðu 4a,
Akureyri.
Sérstakar þakkirtil lækna og starfsfólks
á deild 11E Landspítalans og lyflækningadeildar Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri.
Gunnlaugur Höskuldsson,
Hörður Þór Jóhannesson,
Steingrímur Jóhannesson,
Hörður Þór Snorrason, Þórdfs Valdimarsdóttir,
Guðrún Harðardóttir,
Pálmi Viðar Harðarson.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem
sýndu okkur samúð og vináttu við and-
lát og útför eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður og afa,
JÓHANNESAR STEFÁNSSONAR
frá Neskaupstað.
Sérstakar þakkir til alls hjúkrunarfólks,
einnig til allra vina og samstarfsmanna
í Neskaupstað.
Sofffa Björgúlfsdóttir,
Valgarður Jóhannesson, Rós Navart Jóhannesson,
Ólafur M. Jóhannesson, Þórdfs Stephensen,
Pétur Valgarðsson, Guðbjartur Ólafsson
Jóhannes Stefán Ólafsson, Magnús Þór Ólafsson.
t
Hjartans þakkir fyrir vinsemd og hlýjar
samúðarkveðjur við andlát og útför
elskulegrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
ÞURÍÐAR HELGADÓTTUR
frá Kaldbak,
Eyrarbakka.
Sérstakar þakkir til allra á Sólvöllum.
Guð blessi ykkur öll.
Inga Guðjónsdóttir, Gunnar Olsen,
Alda Guðjónsdóttir, Jón Gunnar Gíslason,
Guðmundur Guðjónsson, Guðbjörg Vfglundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu
okkur samúð, vináttu og margháttaðan
stuðning við andlát og útför bróður
okkar, föður, afa og frænda,
SIGURÐAR ARNAR SIGURÐSSONAR,
Kaupmannahöfn.
Sérstakar þakkir til Guðmundar J. Guð-
mundssonar, Dagsbrúnar og íslend-
ingafélagsins í Kaupmannahöfn.
Guð blessi ykkur.
Áslaug Sigurðardóttir,
Hjördís Sigurðardóttir,
Steinn Hermann Sigurðsson,
Hilmar Sigurðsson,
Einar Sigurðsson,
Kristján Aage, Elínborg,
og systkinabörn.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vinar-
hug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
SIGRÍÐAR STEFÁNSDÓTTUR
frá Borgarhóli,
Eyjafjarðarsveit.
Stefán Þór Jónsson, Auður Hauksdóttir,
Arnheiður Jónsdóttir, Freyr Ófeigsson,
Sigmar Kristinn Jónsson,
Jón Eyþór Jónsson, Guðbjörg Ósk Harðardóttir,
Þorgerður Jónsdóttir, Atli Freyr Guðmundsson,
Þóra Hildur Jónsdóttir, Þorsteinn Vilhelmsson,
barnabörn og barnabarnabörn.